Morgunblaðið - 20.12.1995, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA
Mikill áhugi fyrir Evrópukeppni landsliða í Englandi 1996
Uppselt á leik Englands
og Skotlands á Wembley
Alþjódlegur
styrkur
EM-liðanna
ALf>JÓÐLEGA knattspymusam-
bandið, FIFA, gaf í gær út nýjan
styrkleikalista og eru Brasilíu-
menn enn í efsta sætinu, en lands-
lið íslands er í fimmtugasta sæti.
Hér kemur röð efstu þjóða og þjóð-
anna sem leika í EM í Englandi.
1. Brasilía
2. Þýskaland
3. Ítalía
4. Spánn
5. Rússland
G. Holland
7. Argentína
8. Frakkland
9. Danmörk
11. Rúmenía
14. Tékkland
16. Portúgal
17. Búlgaría
18. Sviss
21. England
26. Skotland
30. Tyrkland
41. Króatía
50. Ísland
ENGLENDINGAR eru ákveðnir
að undirbúa landslið sitt sem
best fyrir Evrópukeppni lands-
liða, sem fer fram í Englandi
næsta sumar, en þá eru 30 ár
liðin síðan Englendingar urðu
heímsmeistarar á Wembley,
lögðu Þjóðverja þar að velli,
4:2, í sögufrægum leik — marg-
ir eiga sér þann draum að sá
leikur verði „endurleikinn"
næsta sumar. Það hefur verið
ákveðið að Terry Venables,
landsliðseinvaldur Englands,
fái frjálsar hendur um hvernig
hann undirbýr lið sitt fram að
keppninni, hvað sem það kost-
ar. Margar þjóðir sem taka
þátt í EM hafa óskað eftir vin-
áttuleikjum gegn Englending-
um í Englandi, til að undirbúa
sig sem best fyrir keppnina og
kynnast andrúmsloftinu á völl-
unum þar, sem er einstakt.
Blazevic, þjálfari Króata, sem unnu
Itali 1:2 á Italíu og gerðu jafntefli,
1:1, heima í undankeppni EM. Arr-
igo Saechi, þjálfari Ítalíu, var mjög
hrifinn af liði Króata og sagði að
þeir væru með stórkostlegt lið, skip-
að snjöllum leikmönnum í hverri
stöðu.
Þess má til gamans geta að
margar af þeim þjóðum, sem leika
í EM léku einnig í HM í Englandi
1966 — Þjóðverjar, Ítalír, Rússar
[Sovétmenn], Spánveijar, Búlgar-
ar, Portúgalar, Svisslendingar,
Frakkar og að sjálfsögðu England-
ingar. Þá máttust í undanúrslitum
V-Þýskaland — Sovétríkin og Eng-
land - Portúgal.
LANDSLIÐ Króatíu er nyög
öflugt og stór hópur leik-
manna liðsins leikur með lið-
um utan Króatíu, leikmenn
eins og Slaven Bilic, Karls-
ruhe, Igor Stimac, Derby,
Nikol Jerkan, Real Oviedo,
Robert Jarni, Real Betis, El-
vis Brajkovic, 1890 MUnchen,
varnarmenn. Miðvallarleik-
mennimir Zvonimir Boban,
AC Milan, Robert Prosinecki,
Barcelona, Nikola Jurcevic,
Casino Salzburg, Goran
Vucevic, Barcelona, Stipe
Andryasevic, Rayo Vallec-
ano, Mladen Mladenovic,
Casino Salzburg, Ante Mise,
Arnhem, og sóknarleikmenn-
irnir Davor Suker, Sevilla,
Alan Boksic, Lazíó, Goran
Vlaovic, Padova og Ardian
Kozniki, Cannes. Flestir aðr-
ir leikmenn í landsliðshópn-
um koma frá tveimur liðum
í Króatíu - Hajduk Split og
FC Kroatia, þar af tveir leik-
menn sem léku með erlend-
um liðum, en hafa snúið
heim.
Nú þegar hafa þrjár þjóðir sem
leika í Englandi, Tyrkir,
Búlgarar og Rússar, óskað eftir
leikjum og einnig Ungveijar, en
þeir verða þó ekki með í EM. Eng-
lendingar hafa þegar ákveðið einn
leik, það er gegn spútnikliði Kró-
ata, sem er talið eitt skemmtileg-
asta lið Evrópu. Leikurinn verður á
Wembley 24. apríl.
Englendingar, sem leika í A-riðli
ásamt Skotum, Hollendingum og
Svisslendingum leika alla leiki sína
í riðlakeppninni á Wembley. Nú
þegar er uppselt á leik þeirra gegn
Skotum 15. júní — 76.000 að-
göngumiðar eru seldir og hafa Skot-
ar fengið um 10.000 miða á leik-
inn. Þjóðimar hafa ekki
leikið Iandsleik í sjö ár,
eða síðan Englendingar
unnu 2:0 í Glasgow 1989
— síðasti leikur þeirra á
Wembley var 1988, þegar
Englendingar unnu 1:0.
England og Skotland hafa
leikið 107 landsleiki síðan liðin léku
fyrsta leikinn 1872 í Glasgow, 0:0.
England hefur unnið 43 leiki, Skot-
ar 40 leiki og 24 sinnum hefur orð-
ið jafntefli.
Geysilegur áhugi er fyrir Evrópu-
keppninni í Englandi — áður en
dregið var var búið að selja um
áttatíu prósent af aðgöngumiðun-
um á leikina og þegar upp verður
staðið, verður uppselt á alla leikina.
Englendingar mæta Svisslend-
ingum í opnunarleiknum á Wembley
8. júní. Englendingurinn Roy Hodg-
son sem stjórnaði Svisslendingum,
er þeir töpuðu 1:3 gegn Englend-
ingum í vináttulandsleik í vetur,
verður illa fjarri góðu gamni því
hann verður ekki með liðið í EM.
Hann þjálfar Inter Milan og Artur
Jorge var í gær ráðinn landsliðs-
þjálfari.
Þegar dregið var í Birmingham
á sunnudaginn var, voru fjögur Iið
DAVOR Suker, einn hlnna marksæknu lelkmanna Króatíu, sem verða í sviðsljósinu í EM í
Englandi. Suker, sem leikur með Sevilla á Spánl, sést hér fagna markl sínu í sigurleik, 1:2,
gegn Ítalíu í Palermo í undankeppni EM.
A-RIÐILL
England
Holland
Skotland
Sviss
sett í fyrsta styrkleikaflokk; Eng-
land, Danmörk, Spánn og Þýska-
land, en önnur lið voru sett saman
í hatt. Fyrir dráttinn voru uppi radd-
ir um að koma í veg fyrir að Eng-
land og Skotland lékju
í sama riðli, en hætt
var við það — ákveðið
að öll lið sætu við sama
borð. Þjóðimar fjórar í
fyrsta styrkleika-
flokknum Ieika leikina
sína þijá í riðlakeppn-
inni á sama velli. Englendingar á
Wembley, Danir- á Hillsborough í
Sheffield, Þjóðveijar á Old Trafford
í Manchester og Spánveijar á El-
land Road í Leeds.
Hollendingar efstir á
blaði hjá veðbðnkum
„Þetta er mjög erfiður riðill og
ómögulegt að spá um hvað gerist.
Hollendingar eru með gott lið, en
ég held að það sé möguleiki að
bæði England og Skot- __________
land komist áfram í átta
liða úrslitin," sagði Terry
Venables, landsliðsein-
valdur Englands. Hol-
lendingar, sem eru efstir
á listanum yfir líklega
Evrópumeistara hjá veð-
bönkum i London — 9-2, leika fyrst
gegn Skotum á Villa Park 10. júní.
Þjóðveijar, sem hafa tvisvar orð-
ið Evrópumeistarar, leika í C-riðli
B-RIÐILL
Spánn
Frakkland
Búlgaría
Rúmenía
með ítölum, Tékkum og Rússum
og fara leikir riðilsins fram á Old
Trafford í Manchester og Anfield
Road í Leeds. Þjóðveijar, urðu
meistarar 1972 og 1980,
leika síðasta leik sinn í
riðlinum gegn Ítalíu,
meisturunum frá 1968,
á Old Trafford 19. júní.
Beiti Vogts, þjálfari
Þýskalands, segir að ít-
alir séu líklegastir til sig-
urs í riðlinum, ásamt sínu liði.
„Vandamálið hjá okkur er hvað ung
og óreynt lið við erum með. Þó svo
að ítalska liðið sé reynslumeira en
mitt lið, tel ég að við eig-
um jafna möguleika á
sigri. Það nægir okkur
ekki að vinna þá — við
verðum einnig að klára
dæmið gegn Tékkum og
Rússum."
Arrigo Sacchi, þjálfari
Ítalíu, sagði að ítalir myndu ekkert
gefa eftir i baráttunni
gegn Þjóðveijum.
Tékkum eða Rússum —
leikirnir verða allir erf-
iðir, við munum að
sjálfsögðu leika til sig-
urs eins og alltaf.“
Spánn, Búlgaría,
Rúmenía og Frakkland leika saman
í B-riðli og fara leikirnir fram á
Elland Road í Leeds og St. James
Park í Newcastle. Javier Clemente,
C-RIÐILL
Þýskaland
Ítalía
Rússland
Tyrkland
D-RIÐILL
Danmörk
Króatía
Portúgal
Tyrkland
þjálfari Spánveija, segir að það
verði vandamál fyrir þá að þeir leiki
í riðli með Rúmenum og Búlgörum,
þar sem svo margir leikmenn frá
þessum þjóðum leika á
Spáni og þekki því vel
til leikaðferðar Spán-
veija — leikmenn eins
og Rúmenarnir Gheorg-
he Hagi og Gica Po-
pescu hjá Barcelona og
Florin Raducioiu hjá
Espanyol, ásamt Búlgaranum Lyu-
boslav Penev hjá Atletico Madrid.
Einnig hefur búlgarski snillingurinn
Hristo Stoichkov leikið með Barcel-
ona.
Evrópumeistarar
Danmerkur leika í D-
riðli ásamt Portúgal,
Tyrklandi og Króatíu.
Danir leika alla sína
leiki í riðlinum á á Hills-
borough í Sheffield og
þjálfari þeirra Richard Möller
Nielsen ánægður með það. Aðrir
leikir í riðlinum fara fram á City
Ground í Nottingham.
Knattspyrnuunnendur bíða
spenntir eftir að sjá hvernig
spútnikliði Króatíu gengur í EM,
en með liðinu leika margir mjög
snjallir leikmenn sem leika með lið-
um á Ítalíu, Spáni, í Þýskalandi og
víða. „Við höfum bestu leikmenn
heims, sem eiga eftir að gera góða
hluti í. Englandi," segir Miroslav
er