Morgunblaðið - 13.01.1996, Qupperneq 1
V
1996 m LAUGARDAGUR 13. JANÚAR BLAÐ U
Martha fær
ÓL-styrkinn
MARTHA Ernstdóttir, frjálsíþróttakona,
fær aftur styrk frá Olympíusamhjálpinni.
Það varð Ijóst í gær, en þegar henni barst
síðasta greiðsla fyrir áramót var jafnframt
tilkynnt að ekki yrði um frekari styrkveit-
ingu að ræða. Martha hefur náð lágmarki
alþjóða frjálsíþróttasambandsins í 5.000
metra hlaupi fyrir ólympíuleikana í Atl-
anta, en vantar fáein sekúndubrot upp á
að ná lágmarki íslensku ólympíunéfndar-
innar. „Það var brotið á hennar rétti. Nú
hefur það verið viðurkennt og við gleðj-
umst yfir því. Við óskum henni alls hins
besta og vonum að hún komi í toppformi
á Ólympíuleikana,“ sagði Júlíus Hafstein,
formaður Ólympíunefndar íslands I gær.
*
Iþróttamenn leggja mikið upp úr góðri æfíngaaðstöðu en tugþrautarkappinn Jón Amar Magnússon úr Tindastóli
á Sauðárkróki sem er á meðal þeirra bestu í heimi æfír við óvenjuleg skilyrði. Hann hleypur m.a. í vatninu í
sundlauginni og reglulega í fjörunni, sem margir eiga bágt með að trúa. Ragnar Axelsson ljósmyndari og
Steinþór Guðbjartsson blaðamaður sóttu kappann heim á Sauðárkrók og fylgdust með honum daglangt í vikunni.
Jón Arnar var í 10. sæti á
heimslistanum í tugþraut
í desemberblaði banda-
ríska fijálsíþróttaritsins
Track and Field og hann
hefur stundað íþróttina
sem atvinnumaður síðan
í júlí sem leið en þar með
lýkur samlíkingu með honum og
öðrum í hópi þeirra bestu. Atvinnu-
maður er ef til vill of sterkt til orða
1 tekið því styrkurinn, sem gerir hon-
um þó kleift að einbeita sér að
æfingum og keppni, er ekki nema
100.000 krónur á mánuði og þar
af fær hann_80.000 kr. frá Afreks-
mannasjóði ÍSÍ, og æfingaaðstaðan
á Sauðárkróki er langt frá því að
vera sambærileg við aðstöðu sem
afreksíþróttamenn búa almennt við.
En hann hvorki kvartar né kveinar,
segir reyndar að erfitt sé að fram-
fleyta fjölskyldunni á styrknum og
fæðingarorlofi unnustunnar, Huldu
Ingibjargar Skúladóttur, sem ól
þeim soninn Krister Blæ 1. desem-
ber sl., en fjaran við Sauðárkrók
hafi sannað gildi sitt sem æfinga-
svæði og sé það besta í heimi.
íþróttamaður ársins 1995 er
verðugur fulltrúi íslenskra íþrótta-
manna; metnaðargjarn og sam-
viskusamur, veit að hverju hann
gengur og leggur mikið á sig, lætur
utanaðkomandi áhrif ekki raska ró
sinni og er jarðbundinn þrátt fyrir
að vera í hópi þeirra bestu í heimin-
um í erfiðustu grein fijálsíþrótta,
kurteis og kemur vel fyrir.
Hulda Ingibjörg er sem hægri
hönd hans í einu og öllu, mikilvæg
stoð í hverju sem á gengur, en hver
dagur er fyrst og fremst skipulagð-
ur af þjálfaranum Gísla Sigurðssyni
sem fylgist nákvæmlega með hverri
hreyfingu afreksmannsins, skráir
árangur og skipuleggur í samræmi
við það sem á undan er gengið með
Ólympíuleikana í Atlanta í sumar í
huga.
„Ég tók eftir Jóni Arnari þegar
hann var 16 eða 17 ára og sá strax
eins og fleiri að þarna var mikið
efni á ferð,“ sagði Gísli við Morgun-
blaðið. „Ég hélt að hann væri að
æfa reglulega en komst síðar að
því að svo var ekki. Hins vegar
höfum við unnið markvisst að upp-
byggingunni undanfarin ár og ég
sé alfarið um skipulagningu æfing-
anna. Ég byggi þær á karakter
Jóns Arnars og líkamlegum hæfi-
leikum hans og ákveð planið tvo til
þijá mánuði fram í tímann. Ég
skipti þessu niður í æfingar á undir-
búningstímabili, æfingar á milli-
Dagurí
lífi Jóns
Amars
tímabili og keppnislíkar æfingar en
allir æfingaflokkarnir skarast. Ég
legg sérstaklega mikið upp úr lið-
leika- og teygjuæfingum og hug-
þjálfun skipar veglegan sess en Jón
Amar er fæddur íþróttamaður,
sterkur og öflugur, og því þarf
hann lítið að æfa aflaukandi lyfting-
ar. Hins vegar hef ég ávallt verið
talsmaður þess að efla forvarnir
varðandi lyfjamisnotkun og vil
fjölga lyfjaprófum. Vegna lyfjamis-
notkunar heima og erlendis segir
sig sjálft að þegar svona hlutir ger-
ast, eins og með Jón Arnar sem er
að bæta sig um mörg hundruð stig
á ári, fer neikvæð umræða af stað.
Við vinnum gegn lyfjamisnotkun
og ég vildi að Jón Arnar færi í lyfja-
próf hálfsmánaðarlega til að sýna
að allt er eins og það á að vera.
Það er dýrt en engu að síður mikil-
vægt til að hægt sé að fjalla um
þessi mál á jákvæðum nótum. Það
kemur í veg fyrir kjaftagang og er
auk þess mikið uppeldisatriði gagn-
vart öllum öðrurn."
Þegar kalt er í veðri og mikið
frost er ekki gott að hlaupa mikið
úti en hlaup í dýpri enda útisund-
laugarinnar á Sauðárkróki koma í
staðinn, þrisvar til fjórum sinnum
í viku, Ídukkutíma í senn. Jón Arn-
ar missti úr níu áætlaða æfinga-
daga í nóvember vegna flensu og
um mánaðamótin nóvember-des-
ember meiddist hann á vinstri ökkla
og hefur ekki getað beitt stökkfæt-
inum að fullu síðan en er allur að
koma til. Ekki síst vegna æfinganna
í vatninu.
„Margt fólk hérna, sérstaklega
eldra fólk, heldur að ég sé eitthvað
skrýtinn," sagði Jón Arnar á
morgunæfingunni þegar Morgun-
blaðsmenn bar að garði. „Það botn-
ar ekki í því hvað fullfrískur maður-
inn sé að gera með barnakúta á
OLYMPIULEIKAR: BARIST UM SJOIMVARPSRETTINIUIEVROPU / B4