Morgunblaðið - 19.01.1996, Qupperneq 1
1996
■ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR
80% líkur
á Japans-
ferðinni
ÖRN Magnússon, framkvæmda-
stjóri HSI, sagði að stjóm sam-
bandsins legði mikla áherslu á
að islenska landsliðið þekktist
boð Japana um að taka þátt í
móti sem hefst í Japan 7. apríl.
„Boð japanska sambandsins er
það gott að við getum eiginlega
ekki hafnað því. Eins og staðan
er í dag tel ég áttatíu prósent
líkur á því að landsliðið fari til
Japans. Mótanefndin hefur fjall-
að um málið og sent félögunum
bréf til að kanna hug þeirra til
þess að úrslitaleikjum 1. deildar
karla verði seinkað um fimm
daga vegna Japansferðarinnar, “
sagði Örn.
Þorbjöm Jensson, landsliðs-
þjálfari, sagðist leggja mikla
áherslu á að fara með liðið til
Japans. „Þessi ferð gæti reynst
okkur mjög mikilvæg í undirbún-
ingi okkar. Ég sé ekki að það
breyti mildu þó úrslitaleikirnir
verði færðir aftur um nokkra
daga,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Morgunblaðið/Kristinn
BJÖRGVIN Björgvlnsson, hornamaður úr KA, hefur leiklð vel með llöl sínu í
vetur og nú fœr hann tæklfæri með íslenska landsllðlnu í fyrsta sinn.
Weah hótar að
hætta að leika
fyrir Líberíu
GEORGE Weah, sem m.a. var útnefndur besti leik-
maður heims á liðnu árí, hótaði í gær að hætta
að leika með landsliði Líberíu eftir Afríkukeppnina
sem nú stendur yfír. „Ef aðstæður breytast ekki
er ég hættur með landsliðinu og ég hef þegar tíl-
kynnt síjóraendum og þjálfurum hug minn,“ sagði
hann og lýsti yfir óánægju með hvað knattspyrnu-
yfirvöld sýndu liðinu lítínn stuðning en hann sagði
að senda ættí unga og efnilega leikmenn í alþjóða
æfingabúðir á kostnað þeirra sem væru ábyrgir
fyrir landsliðinu. „Það verður að bæta liðið og það
verður að búa við betri aðstæður. Þetta gengur
ekki svona. Það vantar ríkisstyrk en þetta er ekki
aðeins spuming um peninga heldur allt. Sagt er
að ég sé bestí knattspyraumaður heims en ég er
ekki í góðu liði. Og í fullri hreinskilni þarf ég
ekki að leika með landsliðinu.“
Weah leikur með AC Milan á Ítalíu og hann
greiddi farið fyrir sig tíl Suður-Afríku úr eigin
vasa auk þess sem hann hefur styrkt landsliðið
og knattspyrnuna í Líberíu á ýmsan hátt. Libería
vann Gabon 2:1 í fyrsta leik Afríkukeppninnar sl.
þriðjudag.
Lalas Knattspyrnu-
maður Bandaríkjanna
ALEXI Lalas, landsliðsmaður og vamarmaður hjá
Padua á Ítalíu, var kjörínn Knattspyraumaður
ársins 1995 í Bandaríkjunum en greint var frá
kjörínu í gær. 160 knattspymufréttamenn tóku
þátt í kjörinu og fékk Lalas, sem var í öðru sætí
1993 og 1994,209 atkvæði en 52 settu hann í
fyrsta sætíð. John Harkes hjá West Ham var í
öðru sæti með 94 stíg og hefur munurinn á fyrsta
og öðrum manni ekki verið svo mikill í þau fimm
ár sem kjörið hefur farið fram. Marcello Balboa,
sem var þjörinn sá bestí 1994, var í þríðja sætí
með 91 stíg en hann leikur með Leon í Mexíkó.
Lalas og Harkes hafa gert samuing um að leika
í nýju bandarisku deildinni í knattspyrnu en
keppnin hefst í apríl. Lalas verður með New Eng-
land Revolutíon og Harkes með D.C. United í
Washington en gert er ráð fyrir að Balboa leiki
með Colorado Rapids.
Perryman vill með
Ardiles til Japans
STEVE Perryman, þjálfari Start í Noregi, hefur
óskað eftír að verða leystur frá störfum nú þegar
til að hann getí gerst aðstoðarþjálfari Osvaldos
Ardiles hjá Shimuzu S-Pulse í Japan en hann var
aðstoðarmaður Ardiles þjá Tottenham. Gert er
ráð fyrir að sljórn Start taki ákvörðun í málinu
í dag. Perryman skrifaði undir samning við Start
á liðnu sumrí og gildir hann til hausts.
Töluverðarbreytingará landsliðshópi Þorbjörns Jenssonar
Björgvin eini nýliðinn
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik, tilkynnti
á blaðamannaf undi í gær 14-manna landsliðshóp sem tekur
þátt í Lotto-keppninni í Noregi um mánaðamótin. Einn nýliði er
í íslenska hópnum, Björgvin Björgvinsson úr KA, og nokkrir sem
koma nú inn aftur eftir nokkurt hlé. „Ég lít á þetta mót í Nor-
egi fyrst og fremst sem góðan undirbúning og ætla því að
gefa nokkrum leikmönnum, sem ekki hafa verið með undir
minni stjórn, tækifæri," sagði Þorbjörn Jensson.
Halldór
landsliðs-
þjálfari í
karate
KARATESAMBAND íslands
hefur ráðið Halldór Svavars-
son landsliðsþjálfara í karate
frá 1. janúar til 31. desember
í ár. HÍalldór er einn af reynd-
ustu karatemönnum landsins
og hefur náð lengst íslend-
inga á mótum erlendis. Hann
hefur verið við nám í Finn-
landi síðastliðin ár og æft þar
með landsliði Finna, sem er
eitt sterkasta landslið heims.
Halldór er margfaidur ís-
landsmeistari og varð m.a,
Norðurlandameistari i -65 kg
flokki áríð 1989. Hann hefur
þrisvar sinnum verið útnefnd-
ur karatemaður ársins af
KAÍ.
Björgvin Björgvinsson, horna-
maðurinn knái úr KA, er eini
nýliðinn í hópnum og hornamaður-
inn Davíð Olafsson úr Val hefur
áður leikið tvo landsleiki, gegn
Grænlendingum fyrir skömmu.
Gunnar Andrésson, UMFA, Jason
Ólafsson, Brixen, og Bjarni
Frostason, markvörður Hauka,
koma nú inn í hópinn aftur eftir
nokkurt hlé. Geir Sveinsson og
Júlíus Jónasson verða ekki með
þar sem þeir eru að spila með lið-
um sínum erlendis á sama tíma.
Leikmenn eins og Bergsveinn
Bergsveinsson, markvörður
UMFA, Páll Þórólfsson, UMFA,
Gunnar Beinteinsson, FH, og Jón
Kristjánsson, Val, hlutu ekki náð
fyrir augum landsliðsþjálfarans að
þessu sinni. „Þessir leikmenn eru
þó allir inni í myndinni fyrir undan-
keppni HM og ég útiloka engan,“
sagði þjálfarinn.
„Ég ákvað að gefa Júlíusi og
Geir frí að þessu sinni þó svo við
hefðum getað farið fram á það við
félögin þeirra að fá þá lausa. Ungu
strákarnir fá þarna tækifæri til
að sanna sig, ég veit hvað hinir
geta sem ég valdi ekki núna. Það
er mikilvægt að fá að sjá þessa
ungu stráka í leik með landsliðinu.
Ég veit ekki hvað Jason Ólafss-
son, sem leikur á Italíu, er í góðri
æfíngu og því vil ég skoða hann
sérstaklega í þessu móti,“ sagði
Þorbjörn.
Norðmenn, Danir, Júgóslavar
og Rúmenar taka þátt í Lottó-
keppninni auk íslendinga. E'yrsti
leikur íslenska liðsins verður gegn
Norðmönnum í Hamar 31. janúar.
Leikið verður gegn Rúmenum 2.
febrúar, gegn Dönum 3. febrúar
og loks gegn Júgóslövum 4. febr-
úar.
Landsliðið
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, hefur
valið landsliðshópinn sem tekur
þátt í Lotto-keppninni í Noregi
um mánaðamótin. Liðið skipa
eftirtaldir, landsleikir í sviga:
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val (234)
Bjarni Frostason, Haukum (5)
Aðrir leikmenn:
Bjarki Sigurðsson, UMFA (169)
Dagur Sigurðsson, Val (45)
Ólafur Stefánsson, Val (29)
Patrekur Jóhannesson, KA (102)
Valdimar Grímsson, Selfossi (197)
Róbert Sighvatsson, UMFA (18)
Einar G. Sigurðsson, Selfossi (105)
Gunnar Andrésson, UMFA (25)
Jason Ólafsson, Brixen (5)
Leó Örn Þorleifsson, KA (4)
Davíð Ólafsson, Val (2)
Björgvin Björgvinsson, KA (0)
BADMINTON: GÓD BYRJUN 18 ÁRA LIÐSINS ÁEM/C4