Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR
BLAD
AFREKSMANNASJOÐUR ISI
Fimmtíu millj. úthlut-
aðásl. fimm árum
„Þessi sjóður hefurverið og er tvímælalaust aðalstyrktaraðili afreks-
íþróttafólks á íslandi," sagði Ellert B. Schram, forseti fSÍ
IÞROTTASAMBAND Islands
hefur á undanförnum fimm
árum úthlutað rúmlega fimmtíu
milljónum króna úr Afreks-
mannasjóði ÍSÍ, eða síðan 1992
þegar sú ákvörðun vartekin
að auka fjárframlög í sjóðinn
upp í átta prósent af óskiptum
arði ÍSÍ af lottó-tekjum sam-
bandsins. „Þessi sjóður hefur
verið og er tvímælalaust aðal-
styrktaraðili afreksíþróttafólks
á Islandi," sagði Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, á fundi
með fréttamönnum í gær. Þeg-
ar tilkynnt var að Afreks-
mannasjóðurinn úthlutar 5,3
millj. króna til styrkveitinga til
sérsambanda ÍSÍ á fyrsta fundi
sjóðsins á árinu. Þetta er fyrsta
skref sjóðsins á árinu, þess
má geta að úthlutað var rúmum
þrettán millj. kr.
Ellert sagði að sjóðstjórnin hafi
skýra stefnu í úthlutunum til
að styðjast við, þegar ákvarðanir
væru teknar um styrkveitingar.
Starfsreglur væri í samræmi við
afreksstefnu sem íþróttasambandið
fylgir og samþykkt var á ársþingi
sambandsins 1992. „Fyrirkomulag-
ið á þessum úthlutunum er að fram-
lögin renna til sérsambandanna,
sem síðan úthluta framlögunum
áfram samkvæmt samþykktum
A-styrkþegar
TVEIR afreksmenn eru á A-styrk frá Afreksmannasjóðl ÍSÍ
— ión Arnar Magnússon, tugþrautakappi og íþróttamaður
ársins 1995, og Pétur Guðmundsson kúluvarpari sem er nú
við æfingar í Bandaríkjunum.
sjóðsstjórnar til einstakra íþrótta-
manna eða verkefna," sagði Ellert
B.
„Eins og ég sagði áðan er þessi
sjóður aðalstyrktaraðili afreksfóls á
íslandi. íslenskir íþróttamenn njóta
góðs af þeim tekjum sem íþrótta-
sambandið fær úr lottó, frá ís-
lenskri getspá, sem ÍSÍ á hlut í.
Fólkið sem tekur þátt í lottó-leikn-
um er sannarlega að styrkja góð
málefni, að undirbúa okkar besta
íþróttafólk við að reyna að standa
sig á alþjóðlegum vettvangi,“ sagði
Ellert B.
Tveir afreksmenn eru á A-styrk
sjóðsins, sem færir þeim styrk að
upphæð 80.000 kr. á mánuði. Það
eru Jón Arnar Magnússon, tug-
þrautamaður, sem er í fjórtánda
sæti í tugþraut á heimslista alþjóða
frjálsíþróttasambandsins, IAAF, og
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
sem er í sextánda sæti á heimslist-
anum yfir kúluvarpara. Hér á síð-
unni er listi yfir þau sérsambönd
sem hefur verið úthlutað styrkjum
og til hvaða íþróttamanna þeir
styrkir renna. Það eru- fjórir sund-
menn, einn fimleikamaður, einn
skíðamaður og skíðalandsliðið, átta
fijálsíþróttamenn, tveir badminton-
menn og tveir júdómenn.
Tottenham og
Wimbledon
sýknuð
hjá UEFA
ENSKU félögin Tottenham og Wimbledon
höfðu betur í deilu sinni við Knattspyrnusam-
band Evrópu (UEFA) vegna þátttöku liðanna í
Intertoto keppninni síðastliðið sumar. UEFA
hafði sett félögin í keppnisbann vegna þess að
þau notuðu varalið og lánsmenn í keppninni
en ekki sín sterkustu lið en í gær féllst UEF A
á rök félaganna og dró bannið til baka en gerði
Tottenham að greiða sem nemur tæpum 7 miLjj-
ónum króna og Wimbledon þarf að greiða rúm-
ar 5 miljjónir í sekt. Sektin mun verða greidd
af enska knattspyrnusambandinu. Það tók for-
ráðamenn félaganna aðeins
20 mínútur í gær að sannfæra
UEF A rnn að ekki væri rétt-
lætanlegt að dæma liðin í
keppnisbann.
Alan Sugar sótti fundinn
fyrir Tottenham og hann
sagði þetta engan sigur.
„Þetta er svipað og vera
dæmdur fyrir að ræna banka
en fá síðan tilkynningu um
að lögreglan ætli að greiða
sektina," sagði hann.
Spænsk knattspyrnulið til-
kynntu í gær að þau myndu
taka þátt í keppninni á kom-
andi tímabili, en þau voru
ekki með í fyrra. Forráða-
menn deildarinnar á Spáni
tilky nntu UEFA einnig í gær
að þeir ætluðu að fækka í
deildinni hjá sér, úr 22 liðum
í 18, og tækju breytingamar
gildi árið 1998.
Fyrsti
heims-
bikarsig-
ur Nefs
SONJA Nef frá Sviss kunni
vel við sig i flóðyósunum í
skíðabrautinni í Sestriere á
Ítalíu í gærkvöldi þar sem
hún fagnaði sigri á heims-
bikarmóti í fyrsta skipti.
Þessi 23 ára stúlka varð í
fjórða sæti eftir fyrri ferð-
ina í hinni frægu Kandahar
braut en frábær frammi-
staða í seinni ferðinni gerði
það að verkum að Nef sigr-
aði. Samanlagður tími henn-
ar var 1.47,40 mín. en Marli-
es Oester, einnig frá Sviss,
varð önnur, 0,14 sek. á eftir.
Sænska stúlkan Pernilla
Wiberg varð þriðja á
1.47,40.
Styrkir.../D4
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA
„Magic“ aftur með Lakers?
Svo gæti farið að körfuknattleik
skappinn Earvin „Magic“
Johnson dragi fram skóna á nýjan
leik og leiki með LA Lakers í NBA-
deildinni í Bandaríkjunum. Ef af
verður er talið líklegast að hans
íyrsti leikur verði á föstudaginn
þegar Lakers tekur á móti Michael
Jordan og félögum hjá Chicago
Bulls, efsta liðinu í deildinni. Þetta
kemur fram í New York Post í gær
og þar segir ennfremur að fórráða-
menn Lakers hafi hvorki játað né
neitað fréttinni.
„Magic“ er nú 36 ára gamall en
hann lagði skóna á hilluna frægu
árið 1991 eftir að hann greindist
með HIV veiruna en síðan þá hefur
hann nokkrum sinnum látið að því
liggja að hugsanlega kæmi hann
aftur og hann lét verða að því með
Draumaliði Bandaríkjanna á
Olympíuleikunum í Barcelona 1992.
Hann þótti með allra bestu leik-
mönnum körfuknattleiksins og Del
Harris þjálfari Lakers sagði að það
yrði að sjálfsögðu mikill fengur að
fá hann. „Við yrðum heppnir ef
hann kæmi aftur, það er enginn
eins og hann,“ sagði Harris.
Allt er tilbúið ef „Magic" skyldi
koma. Samkvæmt reglum má hann
ekki leika með Lakers þar sem hann
á hlut í félaginu en lögfræðingar
þess eru búnir að gera ráðstafanir
þannig að það á ekki að koma í veg
fyrir að hann mæti Jordan og Bulls
á föstudaginn. Hann hefur æft með
Lakers síðasta hálfa mánuðinn og
John Black, talsmaður Lakers,
sagði að félagið væri tilbúið að
gera allt sem hægt væri til að fá
hann aftur.
„Við höfum rætt málin við hann
og forráðamenn NBA-deildarinnar
og við munum gera allt sem við
getum til að fá hann til að leika á
ný fyrir Lakers. Við erum tilbúnir
þegar og ef hann vill,“ sagði Black.
Samkvæmt heimildum New York
Post mun „Magic“ tilbúinn til að
leika með Lakers en umboðsmaður
hans vildi ekkert láta hafa eftir sér
að svo stöddu.
KÓRFUKNATTLEIKUR: HAUKAR EIGA AÐ VINNA SKAGAMENN í BIKARKEPPNINNI / D2