Morgunblaðið - 27.01.1996, Blaðsíða 4
IPROmR
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN
Þorbjörn Jensson spáir bikarmeisturum KA sigri á Selfossi ífjörugum leik
Erfitt fyrír Selfyssinga
aðráða viðvöm KA
ÞORBJÖRN Jensson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik,
spáir því að það komi í hlut
KA og Fram að leika til úrslita
í bikarkeppni karla og Fram
og Stjörnunnar í kvennaflokki.
„KA-menn eru með mun
sterkari vörn en Selfyssingar,
sem hafa verið að fá mikið af
mörkum á sig - síðast þrjátíu
og fimm gegn FH-liðinu. KA-
liðið getur leikið gífurlega
sterka vörn og ekki skemmir
það fyrir að Alfreð Gíslason
verður með liðinu f öllum mik-
ilvægum leikjum, eins og
leiknum á Selfossi," sagði
Þobjörn, þegar hann spáði í
undanúrslitalejki bikarkeppn-
innar fyrir Morgunblaðið.
Það verður erfitt fyrir Selfyss-
inga að ráða við flata sex
núll vörn KA - til að þeir geti það
þá verða þeir allir að taka virkan
þátt í sóknarleiknum, ekki aðeins
Valdimar Grímsson, eins og í leikn-
um gegn FH. Valdimar er geysileg-
ur keppnismaður og ég efa ekki að
hann á eftir að mæta grimmur til
leiks gegn sínum gömlu félögum,
ákveðinn að teika enn einn bikarúr-
slitaleikinn, sem hefur verið fastur
liður hjá honum undanfarin ár.
Ég reikna með að Selfyssingar
leiki framliggjandi varnarleik gegn
KA, eins og þeir gerðu í deildinni
% og tókst ágætlega. Þeir gera eflaust
einhveijar endurbætur á varnarleik
sínum og reyna að koma í veg fyr-
ir að Patrekur Jóhannesson og Jul-
ian Duranona eigi greiðan aðgang
að markinu,“ sagði Þorbjörn, sem
spáir leiknum 25:28 í tölum. Mikill
áhugi er fyrir leiknum á Selfossi
og er uppselt á hann.
Heimavöllurinn
sterkur
Þorbjörn spáir því að heimavöllur
ráði úrslitum þegar Framarar taka
á móti Víkingum í Framhúsinu.
„Þetta verður án efa mikill baráttu-
leikur eins og á Selfossi. Framarar
-,eru erfiðir heim að sækja - það
sýndu þeir þegar þeir lögðu fyrstu-
deildarlið ÍR að velli í bikarkeppn-
inni. Rússinn hjá Fram, Oleg Titov,
er mjög öflugur varnarleikmaður
og hefur bundið flata vörn Fram-
liðsins vel saman. Varnarleikur
Fram hefur mikið að segja, því að
leikmenn Víkings eru ekki hávaxnir
og því ekki öflugar langskyttur. Það
verður ekki mikill munur á liðunum
þegar upp verður staðið, en heima-
völlurinn ræður úrslitum," sagði
Þorbjörn.
Þorbjörn spáir því að Fram vinni
auðveldan sigur á Fylki í Árbænum
í undanúrslitum kvenna og Stjarnan
leggi ÍBV að velli í miklum baráttu-
leik í Eyjum. Framstúlkur eru bik-
armeistarar - unnu Stjörnustúlkur
í úrslitaleik í fyrra.
EM I LISTHLAUPI A SKAUTUM
Rússamir
unnu loks
Bonaly fyrst eftir skylduæfingarnar
Rússneska parið Oksana Gritsch-
uk og Evgeny Platov, sem eru
heims- og ólympíumeistarar í ís-
dansi, bættu í gær Evrópumeistara-
titlinum í safnið. Landar þeirra,
Anjelika Krylova og Oleg Ovsiann-
ikov, urðu í örðu sæti og Irina Rom-
anova og Igor Yaroshenko fengu
bronsið með glæsilegum dansi við
Zorba.
Evrópumeistararnir nýkrýndu
sögðust í fyrra ætla að gerast at-
vinnumenn en hættu síðan við, ekki
síst vegna þess að nú fá þau pen-
ingaverðlaun á stórmótum og í gær
fengu þau sem nemur tveimur millj-
ónum króna.
Franska stúlkan Surya Bonaly,
fimmfaldur meistari, hefur naumt
forskot eftir skylduæfingarnar í
listhlaupi kvenna. Hin 16 ára gamla
rússneska stúlka Irina Slutskaya
er í öðru sæti eftir að dómararnir
níu höfðu gefið sér langan tíma til
að gera upp á milli þeirra. Þrír
dómarar settu hvora um sig í fyrsta
sæti og þar sem hvorug var með
meirihluta var athugað hversu
margir dómarar hefðu sett þær í
1. og 2. sætið og það voru fimm,
þannig að ekki dugði það. Sjö dóm-
arar settu Bonaly í 1., 2. eða 3.
sætið en sex Rússann unga jiannig
að Bonaly er með forystu. I þriðja
sæti er þýska stúlkan Tanja
Szewczenko en Olga Markova frá
Rússlandi, sem sigraði i skylduæf-
ingunum í fyrra, varð að sætta sig
við 11. sætið.
Á mótinu í fyrra voru skylduæf-
ingarnar veikasta hliðin hjá Rúss-
anum unga og því eru margir sem
spá því að hún muni gera góða hluti
í dag í fijálsu æfingunum. Á hinn
bóginn þykir Bonaly hafa náð sér
vel á strik, en hún þótti í lítilli æf-
ingu ekki alls fyrir löngu. Hún tók
sér frí frá sýningum og fór heim í
viku og æfði í friði og ró. Það virð-
ist hafa borið árangur.
SELFYSSINGAR munu ekki
ráða við vörn KA segir
landsiiðsþjálfarinn og hér
eru þeir Alfreð Gislason og
Patrekur Jóhannesson, en
þeir munu væntanlega leika
stórt hlutverk í vörninni.
Sigurður í
landsliðið
SIGURÐUR Bjarnason, leik-
stjórnandi Stjömunnar, er
kominn í landsliðshópinn í
handknattleik, sem tekur þátt
í Lotto-keppninni í Noregi í
næstu viku. Sigurður tekur
stöðu Gunnars Andréssonar,
Aftureldingu, sem á við meiðsii
að stríða. Sigurður, sem hefur
leikið 81 landsleik, hefur ekki
leikið með landsliðinu síðan
gegn Tékkum í heimsmeistara-
keppninni í Sviþjóð 1993.
Ingi Rafn
brotinn
INGI Rafn Jónsson, landsliðs-
raaður úr Val í handknattleik,
mun að öllum likindum ekki
leika meira með Valsliðinu í
vetur. Ingi Ragn handarbrotn-
aði í leik gegn KR í vikunni
og er kominn í gifs. Tvö bein
á handarbaki hægri handar
brotnuðu og verður Ingi Rafn
að gangast undir aðgerð í
næstu viku.
Afreksmannasjóður
ÍSÍ úthlutar 5,3 millj.
FRAMKVÆMDASTJÓRN íþróttasambands íslands samþykkti á
fundi sínum á fimmtudaginn tillögur Afreksmannasjóðs um styrk-
veitingar til sérsambanda ÍSÍ.
Sundsamband íslands
Sundsambandinu var úthlutað kr. 500.000 fyrir tímabilið 1. janúar
til 30. júlí 1996 til að standa undir kostnaði vegna undirbúnings Olymp-
íuhóps SSÍ, en í hópnum eru Eydís Konráðsdóttir, Magnús Konráðs-
son, Logi Jes Kristjánsson og Arnar Freyr Ólafsson.
Fimleikasamband íslands
Fimleikasambandinu var úthlutað kr. 300.000 til að undirbúa Rúnar
Alexandersson til að komast á ÓL í Atlanta. Sjóðurinn samþykkir jafn-
framt að taka mál Rúnars sérstaklega til skoðunar eftir heimsmeistara-
keppnina, sem verður í Puerto Rico um miðjan apríl nk.
Skíðasamband íslands
Skíðasambandinu var úthlutað kr. 540.000, sem skiptast þannig:
•SKÍ fær B-styrk að upphæð kr. 40.000 á mánuði tímabilið 1. janúar
til 30. júní 1996 vegna Kristins Björnssonar, sem hefur staðið sig
mjög vel að undanförnu í FlS-mótum bæði í svigi og risasvigi.
•SKÍ var jafnframt úthlutað kr. 300.000 til að standa undir kostnaði
vegna æfinga og keppni A-landsliðs SKÍ.
Frjálsíþróttasamband íslands
Fijálsíþróttasambandinu var úthlutað kr. 3.200.000 sem skiptast þann-
>g:
•Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmaður, er í ijórtánda sæti á heims-
lista alþjóða fijálsíþróttasambandsins. Samkvæmt starfsreglum sjóðsins
ber honum því A-styrkur að upphæð kr. 80.000 á mánuði frá 1. janúar
til 31. desember 1996.
•Pétur Guðmundsson, kúluvarpari, er í sextánda sæti á heimslista
alþjóða fijálsíþróttasambandsins. Samkvæmt starfsreglum sjóðsins ber
honum því A-styrkur að upphæð kr. 80.000 á mánuði frá 1. janúar til
31. desember 1996.
•Vésteinn Hafsteinsson, kringlukastari, er í 29. sæti á heimslista al-
þjóða fijálsíþróttasambandsins. Samkvæmt starfsreglum sjóðsins ber
honum því B-styrkur að upphæð kr. 40.000 á mánuði frá 1. janúar til
30. júní 1996.
•Sigurður Einarsson, spjótkastari, er í 39. sæti á heimslista alþjóða
fijálsíþróttasambandsins. Samkvæmt starfsreglum sjóðsins ber honum
því B-styrkur að upphæð kr. 40.000 á mánuði frá 1. janúar til 30. júní
1996.
Jafnframt var FRÍ úthlutað styrk vegna eftirtalinna íþróttamanna
vegna æfinga og keppni á tímabilinu 1. janúar til 30. júní.
•Einar Vilhjálmsson, spjótkastari..............kr. 200.000
•Guðrún Arnardóttir, spretthlaupari............kr. 200.000
•Martha Ernstdóttir, langhlaupari..............kr. 200.000
•Vala Flosadóttir, stangarstökkvari............kr. 200.000
Badmintonsamband íslands
Badmintonsambandinu var úthlutað kr. 300.000 til að standa undir
kostnaði vegna æfinga og keppni Brodda Kristjánssonar og Árna
Þórs Hallgrímssonar á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 1996, en þeir
félagar stefna að þátttöku á ÓL í Atlanta.
Júdósamband ísiands
Júdósambandið fékk B-styrk að upphæð kr. 40.000 á mánuði á tíma-
bilinu 1. janúar til 30. júní vegna Vernharðs Þorleifssonar.
Bjarni Friðriksson stefnir á þátttöku á ÓL í Atlanta og á nokkra
möguleika á að komast á leikana. JSÍ fékk úthlutað kr. 200.000 til að
standa að undirbúningi vegna Bjarna á tímabilinu 1. janúar til 30. júní
1996.