Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 D 3
KÖRFUKNATTLEIKUR
'nesjalið er ekki í bikarúrslitum
að vinna,
lað tapa
iri skoðun," segir fyrirliði Skagamanna
Fyrsti úrslitaleikur bikarkeppninnar utan Reykjavíkur
Suðumesjaslag
ur í Garðinum
menn,“ sagði Reynir. Hreinn var
spurður hvort hann væri ekki
hræddur um að leikmenn hans yrðu
eins og statistar þegar þeir kæmu
í Höllina í fyrsta sinn. „Ég er auðvit-
að drulluhræddur, en ég var leik-
maður með Snæfelli í úrslitum gegn
Keflavík 1993 og það var allt annað
en skemmtileg reynsla. Ég mun
reyna að miðla þeirri reynslu til
strákanna og við munum gera okk-
ar besta og sjá til hvað það dugar
gegn Haukum," sagði Hreinn.
Sterkir erlendir leikmenn
Bæði lið hafa á að skipa mjög
öflugum erlendum leikmanni, Milt-
on Bell er hjá Skagamönnum og
Jason Williford hjá Haukum. Ekki
er ólíklegt að úrslit leiksins ráðist
mikið af frammistöðu þeirra og víst
er að baráttan á þeim bæ verður
mikil. Þeir þekkjast ágætlega því
þeir voru saman í menntaskóla í
Richmond. „Milton er eldri en ég
og var að hætta þegar ég kom í
skólann og ég leit alltaf upp til
hans,“ segir Williford um Bell og
þegar hann var spurður hvar hann
myndi raða honum í styrkleikaflokk
meðal erlendra leikmanna hér á
landi sagði Williford brosandi:
„Hann er næstbestur!"
Bell sagði gott fyrir körfuknatt-
leikinn í knattspyrnubænum Akra-
nesi að liðið skuli hafa komist í
úrslit. „Þó svo menn tali um að
mikið ráðist af viðureign okkar Jas-
ons þá held ég að frammistaða ís-
lensku strákanna í liðunum muni
ráða meiru um úrslitin," sagði Bell
og þegar hann var spurður um
styrkleika Willifords sagði hann ein-
faldlega: „Hann er bestur."
Bæði lið leika hraðan sóknarleik
og því má búast við talsverðu skori
í Höllinni á sunnudaginn, ef til vill
ekki hvað síst úr hraðaupphlaupum.
Ekki verður baráttan undir körf-
unni minni en þar munu menn slást
um hvert einasta frákast. Þar er
Milton Bell gríðarlega mikilvægur
með 18,9 fráköst að meðaltali í leik
í deildinni í vetur og Williford er
einnig grimmur í fráköstunum og
hefur tekið 14,2 að meðaltali í vet-
ur. Milton Bell er efstur á lista yfir
varin skot í deildinni, hefur varið
68 skot mótherja sinna í vetur en
það gerir 3,1 skot að meðaltali í leik.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
FYRIRLIÐAR liðanna sem takast á í úrslitalelk bikarkeppni
kvenna í Garðinum í dag. Harpa Magnúsdóttlr úr NJarðvík
er vinstra megin og Anna María Sveinsdóttir, fyrirliði blkar-
meistara Keflavíkur, er til hægri.
ir leikinn eins og venjulega en hann
hefði þó farið með liðið í tvígang út
í Garð til að kynnast húsinu. Sér
litist vel á allar aðstæður og hann
ætti von á skemmtilegum baráttu-
leik. Bæði liðin hafa sótt liðsstyrk
til Bandaríkjanna, Suzette Sarg-
eant leikur með Njarðvík og Ver-
onica Cook leikur með Keflavík.
Suzette Sargeant sagði að styrkur
Njarðvíkurliðsins væri sú góða ein-
ing sem væri í liðinu. Keflavíkurlið-
ið er sterkt lið með langa hefð og
því yrði leikurinn örugglega erfið-
ur. Veronica Cook sagði að sterk-
asta hlið Keflavíkurliðsins væri góð-
ur varnarleikur. Hún sagðist vita
lítið um Njarðvíkurliðið annað en
það væri skipað ungum og óreynd-
um stelpum. „En við verðum allar
taugaóstyrkar í bytjun og ég líka,
svo sjáum við hvað setur,“ sagði
Veronica Cook.
BIKARÚRSLITALEIKUR kvenna fer fram í Garðinum í dag og
er þetta í fyrsta sinn sem leikið er utan Reykjavíkur. Suður-
nesjaliðin Keflavík og Njarðvík leika til úrslita kl. 16.00 og er
þetta í fyrsta sinn sem þessi lið mætast í úrslitaleik. Að sögn
forráðamanna liðanna var ástæðan fyrir þvf að leika í Garðin-
um fyrst og fremst sú að ætla má að fleiri áhorfendur komi
og skapi um leið skemmtilegra andrúmsloft. íþróttahúsið í
Garði ér nýtt og glæsilegt, rúmar 600-700 áhorfendur og var
vígt á síðasta ári.
Morgunblaðið/Þorkell
Keflavíkurstúlkurnar eru núver-
andi bikarmeistarar. Þær hafa
unnið þennan titil undanfarin þrjú
ár og eru óneitan-
lega mun sigur-
stranglegri. En
Njarðvíkurliðið hef-
ur komið á óvart og
sagði Jón Einarsson þjálfari að
þrátt fyrir ungan aldur væri mikill
töggur í stelpunum og þar væri
skemmst að minnast sigurs þeirra
Björn
Blöndal
skrlfar frá
Keflavík
á efsta liðinu í deildinni og núver-
andi íslandsmeisturum Breiðabliks
í 8 liða úrslitum. „Við höfum leikið
einn leik við Keflavík í deildinni þar
sem við töpuðum með 13 stiga
mun, en stelpurnar hafa tekið mikl-
um framförum síðan og því tel ég
að þær geti með góðum leik velgt
Keflavíkurliðinu ærlega undir ugg-
um.“
Sigurður Ingimundarson þjálfari
Keflvíkinga sagðist búa lið sitt und-
ver sferkara í „Kanadabaráttunni“
ire skoraði 22 stig og átti tólf stoð-
sendingar fyrir fyrir Toronta og
Oliver Miller skoraði 21 stig og tók
þrettán fráköst.
Terry Mills skoraði sín flest stig
í vetur, 24, og Allan Houston gerði
körfu þegar 1,9 sek. voru til leiks-
loka — körfu sem tryggði Detroit
Pistons sigur á Dallas Mavericks,
93:92, á útivelli. Houston og Otis
Thorpe skoruðu báðir 20 stig fyrir
Detroit, sem hefur unnið tólf af síð-
ustu sautján leikjum sínum. Mc-
Cloud skoraði 23 stig Jackson átján
fyrir Dallas.
Brent Price skoraði 25 stig, Cal-
bert Cheaney 20, en sjö leikmenn
Washington Bullets skoruðu yfir tíu
stig þegar liðið vann meistaraHou-
ston Rockets heima, 120:85, eftir
að hafa haft 23 stiga forskot í leik-
hléi. Sex af níu þriggja stiga skotum
Price rötuðu rétta leið, hann tók
níu fráköst og átti átta stoðsending-
ar. Aftur á móti tók Gheorghe
Muresan þrettán fráköst og skoraði
sautján stig. Hakeem Olajuwon
skoraði 22 stig fyrir gestina, þar
af aðeins tvö í seinni hálfleik. Meist-
arar Houston hafa tapað sex sinn-
um í síðustu tíu leikjum sínum.
Brent Barry geystist fram völlinn
og skoraði sigurkörfu Los Angeles
Clippers, 94:93, gegn Denver
Nuggets þegar 1,7 sek. voru til
leiksloka. Loy Vaught skoraði 26
stig og tók þrettán fráköst og Terry
Dehere skoraði átján stig fyrir
heimamenn. Antonio McDyess
skoraði 23 stig og tók þrettán frá-
köst fyrir Nuggets og Dale Ellis
skoraðin nítján stig fyrir liðið, sem
hefur tapað sex leikjum í röð og
átta af síðustu ellefu leikjum sínum.
Njarðvík
á mögu-
leika með
góðum leik
SIGURÐUR Hjörleifsson, þjálf-
ari kvennaliðs Breiðabliks í
körfuknattleik, segir að eftir öll-
um sólarmerkjum að dæma eigi
Keflavíkurstúlkur að sigra stöll-
ur sínar frá Njarðvík í bikarúr-
slitaleiknum í dag. „Keflvíkingar
hafa verið áskrifendur að úrslita-
leiknum í fjöldamörg ár og
reynslan er því þeirra megin.
Byrjunarlið Keflavíkur er það
sterkasta í deildinni og á bekkn-
um eru stelpur sem eru eða hafa
verið í einhveijum landsliðum
þannig að þær eru ekki árenni-
legar. Keflavíkurstúlkur eru
stærri, eldri, reyndari og betri
skyttur þannig að það bendir
allt til sigurs þeirra,“ sagði Sig-
urður um Keflvíkinga.
„Njarðvik er með ungt og mjög
efnilegt lið og þær eiga að sjálf-
sögðu möguleika gegn Keflvík-
ingum. Til að sigra þarf Njarðvík
að ná sínum besta leik. Þær hafa
verið nokkuð rokkandi í vetur
en leikið mjög góða leiki inná
milli, eins og þegar þær slógu
okkur út úr bikarnum, þá léku
þær mjög vel. Ungu stelpurnar
verða auðvitað stressaðar og það
er eðlilegt, en þær mega ekki
vera of stressaðar. Ef Njarðvík
nær að halda í við Keflavik fyrstu
tíu mínúturnar verður þetta
skemmtilegur og spennandi leik-
ur. Það háir líka Njarðvík að
erlendi leikmaðurinn þeirra er
einnig þjálfari og það tekur töl-
vert frá henni, en hún er góð.“
Keflavíkurstúlkur hafa sigrað
veikari liðin í deildinni mjög stórt
að undanförnu en Sigurður telur
það ekki merki um að þær séu
orðnar langbestar, heldur frekar
spurningu um hugarfar í þeim
leikjum þar sem sigur er nokk-
urn veginn bókaður fyrirfram.
„Ég vona að þetta verði skemmti-
legur leikur og að Njarðvíkur-
stúlkur komi til með að standa
sig. Vonandi verður þetta engin
„slátrun“ því það gerir kvenna-
körfunni ekki gott,“ sagði Sig-
urður.
UM HELGINA
Taekwondo
Norðurlandamótið í Taekwondo verður háð
í Laugardalshöll í dag. Keppendur eru 77.
Mótið hefst kl. 9.30, en úrslitaviðureignir
verða kl. 13 til 17.
Handknattleikur
Laugardagur:
Undanúrslit bikakeppni karla:
Framhús: Fram - Víkingur.........16.15
Selfoss: Selfoss - KA...............16
Undanúrslit bikakeppni kvenna:
Fylkishús: Fylkir - Fram............14
Vestm.ey.: ÍBV - Stjarnan........13.30
Sunnudagur:
1. deild karla:
Strandgata: Haukar - UMFA...........20
Körfuknattleikur
Laugardagur:
Bikarúrslit kveuna:
Garður: Keflavík - Njarðvík.........14
Sunnudagur:
Bikarúrslit karla:
Laugardalshöll: íA - Haukar.........14
Íshokkí
íslandsmótið:
Laugardagur:
Laugardalur: SR-SA..................20
Sund
Stórmót Sundfélags Hafnaríjarðar verður í
Sundhöll Hafnarfjarðar. Mótið hóst í gær-
kvöldi, en heldur áfram í dag og á morgun.
Keppni hefst kl. 10 og síðan kl. 15.30 báða
dagana. Allt besta sundfólk landsins tekur
þátt í mótinu.
Blak
Laugardagur:
1. deild karla:
Hagaskóli: ÞrótturR. - ÍS..........14
Ásgarður: Stjaman - HK.............16
1. deild kvenna:
Digranes: HK-Víkingur..............14
Borðtennis
Punktamót Stjörnunnar verður háð sunnu-
daginn 28. jnúar. Keppni hefst kl. 11. ,