Morgunblaðið - 06.02.1996, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KR:
Guðmundur
Benediktsson
Kristján Fínnbogason
Porsteinn Guðjónsson
Breiðablik:
Arnar Grétarsson
Hittust
í London
islenska karlalandsliðið í knattspyrnu hélt til
Möltu og tekur þar þátt í fjögra landa móti
dagana 7. til 11. febrúar. Liðin sem taka þátt
auk heimamanna og íslendinga koma frá
Rússlandi og Slóveníu.
■ JÓN Gunnarsson bætti um helg-
ina íslandsmetið í bekkpressu í -90
kg flokki tvívegis á íslandsmótinu.
Hann lyfti fyrst 196 kg og síðan 200
kg-
■ BERGSVEINN Alfonsson, fyrr-
um knattspymukappi hjá Val er
þessa dagana í golferð í Thailandi
með Samvinnuferðum Landsýn. A
föstudaginn sigraði hann í móti
ferðaskrifstofunnar lék á 71 höggi
nettó og varð annar án forgjafar.
Bergsveinn hélt einmitt uppá 50 ára
afmæli sitt þennan dag.
■ AGNES Sigurþórsdóttir úr GR,
sigraði í kvennaflokki án forgjafar
og lék meðal annars par fjögur holu
á tveimur höggum, en holan var rúm-
lega 300 metra löng.
■ HALLDÓR Svavarsson, nýráð-
inn landsliðsþjálfari í karate, hafnaði
í 3. sæti í -70 kg flokki á Opna
danska meistaramótinu um helgina.
Hann vann sex viðureignir af sjö.
■ LINFORD Christie keppir ekki
meira innanhúss í vetur eftir að hafa
meiðst í keppni um helgina. Þar af
leið;r að ekkert verður af einvígi
hans og Bruny Surin heimsmeistar-
ans í 60 m hlaupi innanhúss en það
var áformað á næsta laugardag.
■ EARVIN „Magic" Johnson varð
að selja 5% hlut sinn í Los Angeles
Lakers áður en hann fékk leyfi til
að spila með liðinu. Hann seldi hlut
sinn á 12 milljónir dollara, eða 780
milljónir íslenskar krónur. Hann
keypti sama hlut fyrir 11 milljónir
dollara fyrir tveimur árum. Hann
hagnaðist því um 65 milljónir króna
á hlutabréfunum.
■ MICHAEL Jordan sagði eftir
leikinn við Los Angeles Lakers
aðfaranótt laugardags að Magic
hefði sýnt þá tilburði sem hann hefði
áður haft. „Hann hafði sigurvilja, en
það fannst mér vanta hjá öðrum leik-
mönnum í liðinu. Ég vona að leikur-
inn verði meira spennandi næst þeg-
ar við mætumst," sagði Jordan.
■ CHRIS Webber, leikmaður
Washington fór í uppskurð á öxl
um helgina og leikur ekki meira með
liði sínu í vetur.
■ HJÖRTUR Leví Pétursson, leik-
maður Selfyssinga í handknattleik,
leikur ekki næsta leik þeirra, þar sem
hann var úrskurðaður í eins leiks
bann á fundi Aganefndar.
■ BJARKI Guðmundsson, vara-
fyrirliði úrvalsdeildarliðs Vals í körf-
unni meiddist tvívegis í leiknum gegn
Keflavík á sunnudaginn. Snemma
leiks meiddist hann á hægra hné, en
kom inná aftur. Um miðjan síðari
hálfleik datt hann á ný á hnéið og
að þessu sinni varð að flytja hann
með sjúkrabíl á sjúkrahús.
■ LEIKMENN KR og Tindastóls
áttu í mesta basli með að fóta sig á
á hálu gólfinu í íþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi í úrvalsdeildarleik félag-
anna í körfubolta á sunnudaginn.
Var alls ekki einleikið hversu margar
sóknir fengu skjótan endi vegna
hálku í fyrri hálfleik. í leikhléi ruku
starfsmenn íþróttahússins til og fóru
að þrífa gólfið til að koma í veg fyr-
ir hálkuna. Ástæða hálkunnar var
danskeppni í salnum daginn áður en
þá báru nokkrir keppendur vax neð-
an á skó sína og ekki hafði tekist
að þrífa gólfíð nægilega vel.
TÍMAMÓT
I andslið karla í handknattleik
■■ og knattspymu, sem eru á
ferðinni þessa dagana, standa á
ákveðnum tímamótum um þessar
mundir. Þau eiga það sameiginlegt
að nýir þjálfarar hafa tekið við
stjórninni og mikilvæg verkefni
eru framundan. Hand-
knattleiksmenn láta sig WBKMM
enn dreyma um sæti á
heimsmeistaramótinu í
Japan 1997 - en þeir
taka þátt í sérstakri
undankeppni fyrir hana
í haust - og hjá knatt-
spymumönnum styttist
í að undankeppni næstu heims-
meistarakeppni hefjist.
Ljóst er að ný kynslóð tekur
senn við aðalhiutverkunum og því
er mikilvægt að byija strax að búa
hana vel undir átökin með sem
bestum hætti; sem þjálfaramir eru
einmitt að gera þessa dagana.
Logi Ólafsson er nýtekinn við
stjórn knattspymuliðsins af Ás-
geiri Elíassyni, hefur einmitt ný-
verið valið leikmannahóp fyrsta
sinni og héit í gær til Möltu þar
sem hann stjómar liðinu í þremur
vináttulandsleikjum nú í vikunni.
Fyrst gegn Slóveníu á morgun,
síðan gegn Rússum á fóstudag og
loks gegn heimamönnum á sunnu-
daginn. í þessum fyrsta hópi Loga
eru nokkrir leikmenn sem Htið eða
jafnvel ekkert hafa fengið að
spreyta sig í A-landsliðinu, og vel
er skiljanlegt að hann vilji fá að
sjá þá í alvöru baráttu. Nokkrir
þeirra eldri eru enn í fullu fjöri
en Logi veit betur hvar þeir standa.
Eitt af því sem Logi þarf að
bæta frá síðustu leikjum Evrópu-
keppninnar er að hressa leikmenn
áður en haldið er til leiks. Það var
eins og einhver doði væri yfir lið-
inu undir það síðasta hjá Ásgeir;
eitthvert and- eða stemmnings-
leysi, sem aldrei kann góðri lukku
að stýra. Ekki skal þvi haldið fram
að það hafí verið Ásgeiri að kenna
eða hvort ástæður voru aðrar, en
þegar haldið er I leik - ekki síst
landsleik - verða menn að vera
rétt stemmdir.
Æfingaleikir eru mikil-
vægir en ekki úrslit
leikjanna er frá líður
Þorbjöm Jensson og lærisveinar
hans í handknattleikslandsliðinu
tóku þátt í móti í Noregi, sem lauk
um helgina. Uppskeran varð fjórða
sæti, sem lítur líklega ekki sérlega
vel út á pappírnum. Mest er hins
vegar um vert að Þorbjöm var að
prófa sig áfram. Hér heima voru
nokkrir leikmenn sem vel hefðu
getað skipað lið hans, en hann
kaus að gefa ungum, lítt reyndum
leikmönnum tækifæri - vildi sjá
þá sjáifur í baráttu í móti sem
þessu. Þegar frá líður skipta úrslit-
in ekki svo miklu máii, en þau
voru svo sem ekki slæm þegar
betur er að gáð; sigur gegn Rúm-
eníu og naumt tap gegn Noregi,
Danmörku og Júgóslavíu. Það sem
skiptir máli er að liðið slípist, Þor-
björn fínni réttu blönduna og verði
búinn að fínstilla sína menn þegar
í alvöruna kemur.
Í báðum þessum greinum eiga
íslendingar marga unga, fram-
bærilega leikmenn. Það sem skipt-
ir máii er að þjálfaramir verði
búnir að fínna rétta kjamann og
liðin verði tilbúin þegar út í alvör-
una kemur.
Skapti
Hallgrímsson
Er handknattleiksmaðurinn ÓLAFUR STEFÁNSSOIM að hugsa um eitthvað annað?
Er einn með
sjáKum mér
OLAFUR Stefánsson var ásamt Patreki Jóhannessyni marka-
kóngur Lottó-keppninnar sem fórfram víða í Noregi f liðinni
viku og lauk í Bergen um helgina. Strákarnir gerðu sín tuttugu
og þrjú mörkin hvor en Bjarki Sigurðsson var næstur með 21
mark eins og Morten Bjerre frá Danmörku. Danir sigruðu í
Lottó-keppninni í fyrsta sinn, en íslendingar hafa ávallt verið í
þriðja sæti þar til nú. Ólafur gerði fallegasta mark keppninnar,
sannkallað sirkusmark gegn meisturum Dana eftir glæsilega
og vel útfærða sendingu frá Sigurði Bjarnasyni.
Olafur, sem stundar nám í líf-
efnafræði við Háskóla ís-
lands og er í sambúð með Kristínu
■■■■■■ Þorsteinsdóttur,
Eftir verður tuttugu og
Steinþór þriggja ára í sumar
Guðbjartsson en hanfj er nú þeg.
ar orðinn einn af
lykilmönnum landsliðsins.
Hvað er efst íhuganum um þess-
ar mundir?
„Það sem er næst er að ljúka
Islandsmótinu á toppnum og
standa sig í skólanum. Ég vil verða
betri handboltamaður en á langt í
land.“
Svo ertu í tónlistinni?
„Ég æfi ekkert en er að dútla á
þverflautu. Það er ágætt að spila
á hana eftir tapleiki og gott að
eiga hana að eins og konuna. Ég
sagði skilið við æfingarnar í
menntó og sé eftir því en er að
rifja þær upp aftur.“
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera?
„Handboltinn er skemmtilegast-
ur og ég tek hann alvarlegar en
áður. Við eigum möguleika á að
komast langt en gullna reglan mín
í handboltanum er, að ég er ekkert
betri en ég sýndi í síðasta leik.“
Ertu mikill félagsmaður?
„Nei, ekki fyrir utan handbolt-
ann. Ég vil heist vera útaf fyrir
mig með kærustunni og sæki ekki
í fólk utan handboltans."
Hvað gerirðu með sjálfum þér?
„Ég tek lífinu með stóískri ró
og hugsa með sjálfum mér. Ég les
mikið í heimspeki og hef gaman
af því, einkum siðfræðinni."
Gagnast þetta þér í boltanum?
„Já, þetta hjálpar mér sem
manneskju og að vera manneskja
hjálpar að vera í boltanum. Ég
veit lykilinn að farsælu lífi, þó allt
takist ekki. Ég veit hvað þarf að
Morgunblaðið/Steinþór
ÓLAFUR Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleik, notaði
tímann á Fornebuflugvelli í Ósló f gær til að spá í næsta leik.
leggja á sig, hvað er hægt að gera
fyrir aðra, þó allt hafi ekki runnið
upp fyrir mér, en ef hlutirnir ganga
upp er gott að þekkja takmörkin."
Þú vilt verða betri í handbolta.
Ertu að hugsa um að leika með
erlendu liði?
„Ég hef hug á að komast út, en
í augnablikinu er ég ekki nógu
„stabíll" og ekki nógu klókur. Þeg-
ar ég tala við kallinn [Boris Abk-
ashev, aðstoðarlandsliðsþjálfara]
sé ég hvað ég á langt í land. Við
þurfum meiri tíma því okkur vant-
ar samæfingu."
Hvað læturðu þig dreyma um?
„Ég hef oft hugsað um þetta,
hvernig maður verður hamingju-
samur maður; núna stefni ég að
því að verða menntaður maður og
hugsanlega verð ég að fara til út-
landa til þess. Draumurinn er líka
að verða góður I handbolta og finna
réttu leiðina.“
Strákarnir kölluðu þig Home
Alone - aleinn heima - í ferðinni,
vegna þess að þú varst stakur og
einn í herbergi. Atti þetta ekki vel
við þig?
„Jú, en mér finnst gott að tala
um hluti. íslendingar eru lokaðir
en lykiliinn fyrir landsliðið er að
við leikmennirnir, ég, Patti og Dag-
ur, getum sagt hvað okkur finnst.
Ef við erum ósáttir við spila-
mennsku hvers annars eigum við
að hittast og ræða málin. Þetta
getur orðið dúndurlið á aiþjóða
mælikvarða ef við höldum hópinn
og enginn meiðist, ef við gagnrýn-
um hver annan og fáum boltann
til að rúlla. Ef Rip, Rap og Rup,
eins og við þremenningarnir höfum
verið kallaðir, getum plummað
okkur, lítur þetta vel út.“