Morgunblaðið - 08.02.1996, Qupperneq 2
2 D FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Mikil breyting orðið á framkomu Frakkans Eric Cantona frá janúar 1995 til febrúar 1996
Jákvæður
ogtilfyr-
irmyndar
Aime Jacquet, landsliðsþjálfari
Frakklands í knattspyrnu,
hefur sagt að hvorki Eric Cantona
hjá Manchester United né David
Ginola hjá Newcastle eigi heima í
landsliðinu en margir telja að þjáif-
arinn verði að endurskoða afstöðu
sína, sérstaklega eftir leik Wimble-
don og United í ensku úrvalsdeild-
inni á Selhurst Park um liðna helgi.
Fyrir ári var Cantona í sviðsljósinu
á sama velii þegar hann gekk í
skrokk á áhorfanda en í kjölfarið
fylgdi keppnisbann til 1. október sl.
og fyrirliði franska landsliðsins
missti auk þess landsliðssætið. En
Cantona er allt annar maður í febr-
úar 1996 en hann var í janúar 1995.
Hann gerði tvö mörk í 4:2 sigri
United um helgina, annað með
skalla og hitt úr vítaspymu, og sýndi
hvers hann er megnugur. Enginn
hefur efast um tækni kappans en
hann hefur átt erfitt með að hemja
skapið og þurft að sitja af sér leiki
og greiða sektir fyrir vikið. Hins
vegar segir Alex Ferguson, knatt-
spymustjóri Manchester United, að
Cantona sé nýr og breyttur maður
síðan hann kom úr banninu sl.
haust.
Rólegur
„Það hefur ávallt farið lítið fyrir
honum og hann er enn rólegur en
það sem hefur komið fyrir hann er
sérstök reynsla sem hjálpar ekki en
hefur áhrif á lífið. Sagt er að jafn-
vel neikvæð reynsla geti verið góð
og kannski hefur þetta leitt eitthvað
gott af sér. Ef til vill hefur viðhorf
hans til óréttlætis breyst. Síðan
hann byrjaði að leika aftur hafa
komið upp atvik þar sem hann hef-
ur ekki verið sammála dómaranum
en hann hefur kosið að mótmæla
ekki. Ég hef séð hann ganga rólega
í burtu eftir atvik sem hann hefði
bmgðist við öðravísi áður.“ Maður-
inn sem hafði allt á hornum sér og
safnaði spjöldum hefur leikið 21 leik
síðan hann kom úr banninu, hefur
verið jákvæður og til fyrirmyndar
og ekki fengið eina einustu bókun.
Cantona hefur gert fimm mörk í
síðustu sex leikjum United og tók
við fyrirliðastöðunni á laugardag
þegar Steve Bruce fór meiddur af
velli eftir að hafa leikið í stundar-
fjórðung. George Best, fyrram leik-
maður United, sem kynntist vel
dökku hliðum knattspymunnar og
lífsins í heild, hrósaði Cantona. „Það
var erfítt fyrir hann að koma aftur
á völlinn en hann sýndi í hverju
hann er bestur. Hann var til fyrir-
myndar.“
Cantona fékk líka rós í hnappa-
gatið fyrir hálfum mánuði þegar
hann gekk á milli manna og stillti
til friðar eftir að upp úr sauð í viður-
eign United og West Ham. Ferguson
sagði að hann hefði ekki enn náð
að sýna sitt besta en það væri stutt
í það. „Hann hefur verið frábær á
æfingum eins og alltaf síðan hann
kom til okkar en hann hefur átt við
erfiðleika að etja - hæfileikarnir
koma til með að njóta sín til fulls
þegar stöðugleikinn verður fyrir
hendi.“
Leikari?
Franski leikmaðurinn, sem er úti
í kuldanum hjá landsliðsþjálfaran-
um, verður 30 ára í maí og gæti
aldursins vegna spilað á meðal
þeirra bestu í mörg ár til viðbótar
en hæfileikarnir era einnig fyrir
hendi á öðrum sviðum - hann er í
myndlistinni, er ljóðelskur, náttúru-
unndandi og aðhyllist heimspeki -
og þess vegna gæti hann átt fyrir
sér frama langt frá knattspyrnunni.
Nýiega hóf hann leikferilinn með
því að leika í frönsku kvikmyndinni
Le Bonheur est dans le Pre, en
myndin hefur notið mikilla vinsælda
í Frakklandi og hefur sala að-
göngumiða þegar skilað sem sam-
svarar liðlega 500 millj. kr. „Eric
gæti örugglega átt glæstan leikferil
fyrir höndum eftir að hann hættir
í knattspymunni," sagði Sabine
Azuma, mótleikkona hans. „Hann
er innilegur, blíður og fágaður mað-
ur og mjög góður leikari sem gæti
verið einn sá besti í Frakklandi,"
sagði Azuma.
Liverpool hverfur 30
ár aftur í tímann
LIVERPOOL hefur gert búningasamning við Reebok að verðmæti 2,5
milljarðar króna og gildir samningurinn til ársins 2001. Útlit nýju búning-
anna verður gamalt ef svo má segja því við efnisval og útlit er tekið mið
af búningum félagsins eins og þeir voru er Liverpool varð bikarmeistari
árið 1965. Rauði liturinn verður ekki með glansáferð eins og nú, auglýs-
ing búningsins verður mjög látlaus og félagsmerkið verður sporöskjulaga.
Því verður jafnframt breytt á þann hátt að fuglinn sem verið hefur í því
hverfur og í hans stað kemur teikning af Shankly-hliðinu svokallaða á
Anfield. Er þetta gert í minningu þeirra sem létust í harmleiknum á Hilis-
borough fyrir nokkrum árum. Varabúningurinn verður ijómagular treyjur
og svartar buxur.
Framleiðandinn hefur enn ekki ákveðið útsöluverð í verslunum er búist
er við að hann þurfi hið minnsta að selja 80.000 stykki til að koma út á sléttu.
Breyttur
maður
ERIC Cantona er frábær
knattspyrnumaður en skap-
ið hefur oft hlauplð með
hann í gönur. Hann leggur
stund ð myndlist, er Ijóð-
elskur, náttúruunndandl og
aðhyllist heimspeki - og
þannlg sá teiknari enska
blaðsins Sunday Tlmes
Frakkann fyrlr sér í fyrra,
er hið góða og hið llla toguð-
ust á í honum. Nú segja
kunnugir að Cantona sé
gjörbreyttur maður.
Glímdu við spámennina
ENGLAND Árangur á heimavelli frá 1984 Ásgeir Logi JH Þín spá
Laugardagur 10. feb. úrslit
1 Middlesbro - Newcastle 4 2 0 15:5 X 2 X 2
2 Manchester Utd. - Blackburn 2 10 5:2 2 1 X 1
3 Nottingh. Forrest - Arsenal 4 1 5 13:16 1 X. 1 .X 2 i l* 2^ _
4 Bolton - Aston Villa 0 10 1:1 1 X 2 2 2
5 Everton - Manchester City 4 3 3 12:8 1 1 1 2
6 Coventry - Chelsea 4 4 2 16:12 1 X X 2 2
7 Sheffield Wed. - Wimbledon 2 3 3 7:8 1 X T T
8 Watford - Charlton 6 3 0 19:9 1 X 2 2 X 2
9 Portsmouth - Leicester 3 1 2 10:6 1 1 2 1 X
10 Oldham - Norwich 2 12 9:9 1 1 T
11 W.B.A. - Southend 110 4:2 1 X 2 2
12 Stoke - Ipswich 3 4 3 8:8 1 2 1 X 2 1
13 Luton - Grimsby 2 0 3 10:9 1 i i 2
Hvers u margir réttir síðast:' >ft sigurvegari (vikur): ð marga rétta í heild: piöl r*-\ Ttöl
Hvec 1 5 | 1 6 1 1 9 1
1 Slagur spámannanna: 1 Hva 1 | 1 11z I fl2Ö~l
| Ásgeir - Logi 8:8 | Meðalskor eftir 14 vikur: nvn 9,0 | 1 3,6 |
I { ÍTALÍA Árangur á heimavelli frá 1988 Ásgeir Logi m Þín spá
Sunnudagur 11. feb. úrslit
1 Fiorentina - Parma 0 3 1 5:6 T 1 X 1 X
2 Sampdoria - Torino 2 2 2 8:5 2 1 X 2 1
3 Udinese - Lazio 0 2 1 2:4 1 X |2. 1 X 1
4 Inter - Napoli 3 3 1 7:5 1 1 í ~x 2
5 Atalanta - AC Milan 0 1 5 2:9 2 2 2
6 Juventus - Cagliari 2 3 0 8:5 u 1 1
7 Padova - Vicenza 0 1 0 0:0 x" 2 T x" 1 ¥
8 Bari - Piacenza 0 0 0 0:0 1 1 X 2 1
9 Roma - Cremonese 2 1 1 8:5 1 1 1
10 Cittadella - Lumezzane 0 0 0 0:0 T X 2 T T X _
11 Pro Patria - Torres 0 0 0 0:0 1 X 1 X 1 X 2
12 Solbiatese - Pavia 0 0 0 0:0 1 X 1 1
13 Tempio - Varese 0 0 0 0:0 1 X 1 1
Slagur spámannanna:
1 Ásgeir - Logi 11:4
Hversu margir réttir síðast:
Hve oft sigurvegari (vikur):
Hvað marga rétta í heild:
Meðalskor eftir 13 vikur:
10
6
113
33
9
103
13,
10
120
33.