Morgunblaðið - 18.02.1996, Blaðsíða 3
2 D SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996 D 3
+
Fyrsti A<ura
jeppinn
EÐALBÍLAMERKIÐ Acura í Banda-
ríkjunum setti nýlega á markað fyrsta
jeppann sem ber Acura merkið. Jepp-
inn dregur þó svip sinn og einkenni
frá Isuzu Trooper enda er lítið gert
til þess að leyna tengslunum þar á
milli. Það er helst hjólin og merkið sem
greina bílana að. Undir vélarhlífinni
er meira að segja 190 hestafla, 3,2
lítra, V-6 vél Isuzu.
70 milljón bflar
íJapan
FJÖLDI bíia sem skráður er í Japan
komst í nóvember á síðasta ári i fyrsta
sinn yfir 70 milljónir. Samkvæmt
tölum frá samgönguráðuneyti Japans
var heiidarbílafjöldinn 70.001.315 bíl-
ar, eða 1,58 bíll á hverja fjölskyldu. í
október 1990 voru skráðir 60 milljónir
bílar í Japan og 50 milljónir bílar í
desember 1986.
Volvo til
Bandaríkj-
anna?
STJÓRNVÖLD og skipulagsyfirvöld í
Norður- og Suður-Karólínufylkjum og
Georgíufylki í Bandaríkjunum hafa
skýrt frá því að Volvo sé að ígrunda
hugsanlega staði fyrir bílaverksmiðju
í þessum fyikjum. Yfirmenn Volvo
segja hins vegar að fyrirspurnir í þessa
átt séu einvörðungu venjubundinn
þáttur í starfsemi fyrirtækisins og
ekki sé að vænta neinna ákvarðana í
náinni framtíð. Fyrirtækið hefur lýst
því yfir að það vilji heíja bílafram-
leiðslu í Bandaríkjunum.
Nýr Renault
Midliner
TILBOD OSKAST
íToyotaT-100 SR-5 4 W/D, árgerð '93 (ekinn 7 þús.
mílur), Lada Sport 4 W/D, árgerð ’91 og aðrar bifreið-
ar, erverða sýndará Grensásvegi 9 þriðjudaginn
20. febrúarkl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00.
Mitsubishi L-300
Tilboð óskast í Mitsubishi L-300 Minibus 4 W/D
(tjónabifreið), árgerð ’93.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00.
SALA VARN ARLIÐSEIGNA
SÁ HÆNGUR er á bílaútvörpum í
mörgum bandarískum bílum að sjálf-
leitari þeirra stöðvar aðeins á stöðv-
um sem útvarpa á bylgjulengd sem
endar á oddatölu en hieypur yfír
jafnar tölur. Ásgeir Örn hjá Bíl-
tækjaísetningum hf. segir að þetta
hafi lengi vel verið svona í amerísk-
um bílum en mesta vandamálið sé
hins vegar skortur á upplýsingum
um tækin sem bandarísku bílafram-
leiðendumir framleiða.
„Bandaríkjamenn hafa sent út á
bylgjulengd sem enda á oddatölu en
Evrópumenn bæði á oddatölu og
sléttri tölu.”
Engar upplýsingar um tækin
„í mörgum tækjum, sérstaklega
þegar sjálfleitun var að koma í tæk-
in 1988-1989, þá var þetta þannig
að tækin leituðu einungis á odda-
tölum. Seinna komu tæki með rofum
þar sem hægt var að stilla tækin
þannig að þau leituðu bæði að odda-
tölum og sléttum tölum. Þannig er
þetta í fiestum tækjum. Einn galli
sem fylgir amerískum bíltækjum frá
bílaframleiðendunum er sá að þeir
láta engar upplýsingar frá sér fara
um sín tæki. Þess vegna hafa bíla-
umboðin hérlendis sem hafa flutt inn
ameríska bíla verið í vandræðum því
bílaframleiðandinn vill að tæki sem
bilar sé tekið úr bílnum og sent utan
til viðgerðar. Þetta getur orðið mik-
ill kostnaður fyrir bíleigandann. Við
reiknuðum einhvern tíma út að lítil
viðgerð sem hefði kostað hérlendis
2-4 þúsund krónur hefði kostað hátt
í tífalt þá upphæð með sendingar-
kostnaði í Bandaríkjunum," sagði
Ásgeir Örn.
Hann benti þó á að ekki væru
margar stöðvar hérlendis, altént
ekki á höfuðborgarsvæðinu, sem
enduðu á sléttri tölu. Hann nefndi
bylgjulengdirnar 102,2, 92,4 en
einnig á 93,5, og 106,6. Aðrar stöðv-
ar væru á oddatölu. Flestar stöðvar
úti á landi sendu út á bylgjulengd
sem endaði á oddatölu. ■
HJÓNIN Sigursteinn Árnason og Sigríður Ólafsdóttir, ásamt starfsmanni Toyota,
við Corona bílinn sem hefur dugað þeim svo vel í hátt í 30 ár.
Á Toyota
Corona ’67
HJÓNIN Sigursteinn Árnason og Sigríð-
ur Ólafsdóttir keyptu nýjan Toyota
Corona 27. júní 1967 og hafa átt hann
allar götur síðan. Bíllinn er 29 ára gam-
all og eigandi bílsins er kominn á tíræð-
isaldur. Fyrir skemmstu komu þau hjón
á með bílinn á verkstæði Toyota til að
láta skipta um frosttappa á vélinni og
líta yfir hosur og fieira. Ending bílsins
er vissulega góð en það fer ekki heldur
fram þjá neinum að meðferð þeirra
hjóna á bílnum hefur verið til fyrir-
myndar.
Sigursteinn og Sigríður keyptu bílinn
hjá Japönsku bifreiðasölunni í Ármúla 7
og kostaði hann með skráningu og ryð-
vörn 204.492 krónur. Sigursteinn segir
að bíllinn hafi aldrei bilað en vissulega
hafi hann fengið það viðhald sem þurft
hafi. Bílnum hefur verið ekið 318 þúsund
km. Eina endurbót hefur Sigursteinn
þurft að gera á bílnum en það var þeg-
ar hann setti öryggisbelti sem hann fékk
úr Skóda. Sigursteinn segir að það sé
ekki til skrölt í bílnum sem er enn með
upprunalegt lakk að hluta til. ■
Civic 4,46 metrur
BIRT var röng mynd af Honda Civie stallbaki í síðasta blaði með
samanburðartöflu yfír (jögurra hurða stallbaka með minni vél en
1.400 rúmsentimetra að slagrými. Myndin sem birtist var af fimm
dyra hlaðbaknum sem kostar 100 þúsund krónum minna en stallbak-
urinn. Þetta brenglaði samanburðinn töluvert því fjögurra hurða stall-
bakurinn er 4,46 m á lengd en ekki 4,31 m eins og fimm dyra hlað-
bakurinn eins og haldið var fram í töflu. Honda Civic stallbakurinn
er því einn stærsti bíllinn í þessum flokki.
Þess má geta að bandaríska bílablaðið Automobile hefur valið
Honda Civic bíi ársins 1996.
FÁTT veidur bílaeigendum meiri
ama en að sjá bílinn sinn ryðga nið-
ur. Saltaustur á götur borgarinnar
flýtir mjög fyrir ryðmyndun og áður
en farið var að ryðveija bíla sérstak-
lega voru ryðgaðir bílar algeng sjón
hér á landi. Nú eru margir nýir bílar
með ryðvarnarábyrgð í allt að sex
ár frá framleiðanda. Hér verður íjall-
að um ryðmyndun og hvernig bíla-
framleiðendur hafa brugðist við þess-
um vágesti með nýjum framleiðslu-
aðferðum.
Ryð myndast þegar járn gengur í
samband við súrefni. Ryð myndast
fyrr ef vatn er til staðar og ef vatn-
ið er mengað götusalti tekur það enn
skemmri tíma fyrir bílinn að ryðga.
Til þess að koma í veg fyrir ryðmynd-
un þarf að klæða járnið með
ógegndræpri vörn svo súrefni komist
ekki í samband við það. Þetta er
aðalástæðan fyrir því að bílar eru
lakkaðir. En það nægir að skoða
gamla, ryðgaða bíla til þess að sann-
færast um að lakkið eitt dugar ekki
sem ryðvörn. Jafnvel ódýrustu gerðir
bíla sem framleiddir eru nú fara því
í gegnum fiókið ferli ryðvarnar áður
en þeir eru settir á markað.
Meðhöndlun á járnplötum
Ryðvörnin hefst áður en smíði bíls-
ins hefst. Járnplötur eru húðaðar
með málmsinki. Ferlið kall-
ast galvanisering. Sink
er mun hvarfgjarn-
ari málmur en
Votnsblönduó lökk til varnar ryói
Nýr Mondeo
Stöóva aóeins
á oddatölum
Formaður félags löggíltra bflasala, Ingímar
Sigurðsson, segir að bifreiðasalar hafí náð
að reka af sér slyðruorðið. Lengi hafi loðað
við stéttina að viðskiptahættir sem þar tíðk-
uðust væru ekki alltaf alveg eftir bókinni
MEÐ NÝJUM lögum um bifreiða-
sala sem tóku gildi 28. febrúar
1995 eru gerðar mun meiri kröfur
til færni og þekkingar bifreiðasala.
Upp úr lagasetningunni tóku bif-
reiðasalar sig saman og stofnuðu
Félag löggiltra bílasala. Ingimar
Sigurðsson, formaður félagsins,
segir að nú hafi bifreiðasalar stigið
einu skrefi framar og tekið upp
innra eftirlit með stofnun siða-
nefndar bifreiðasala.
Undirbúningur að stofnun Félags
löggiltra bílasala hófst haustið 1994
þegar nokkrir þeirra hitt-
ust á námskeiði fyrir bíla-
sala sem iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytið stóð að.
Fyrsti aðalfundur félags-
ins var haldinn 28. febr-
úar 1995, eða sama dag og nýju
lögin tóku gildi. Kosin var fimm
manna stjórn og tveir varamenn. í
framhaldi fékk félagið leigt hús-
næði hjá Bílgreinasambandinu og
17 bílasölur í
Félagi lög-
giltra bílasala
þar er einn starfsmaður sem svarar
fyrirspumum bílkaupenda einu
sinni í viku, tvo tíma í senn.
„Við höfum núna sett á iaggirnar
siðanefnd bifreiðasala sem er nokk-
urs konar innra eftirlit með bílasöl-
um. Bílkaupendur geta komið
kvörtunum bréfleiðis til siðanefnd-
arinnar sem mun taka á þeim mál-
um.“
Mælar skrúfaðir niður
I siðanefndinni situr einn fulltrúi
frá Bifreiðaskoðun Islands, einn frá
Félagi íslenskra' bifreiða-
eigenda og einn frá
Suzuki bílum hf.
Ingimar sagði að fé-
lagið gæti beitt sér í
ýmsum . málum. Hann
nefndi sem dæmi að síðastliðið sum-
ar hefði bílasali orðið uppvís að því
að skrúfa niður kílómetramæla í
bílum og selt þá sem minna ekna
en þeir voru. Sá bílasali var ekki í
ara sé að sprauta því. í íblöndunar-
efnunum eru sérstakar efnablöndur
sem flýta fyrir þornun eða stuðla að
auknum gljáa.
Vatnslökk
Sjálf aðferðin við að sprauta bíla
er bæði óhagkvæm og óvistvæn.
Lakkið verður að þynna nægilega
með leysiefnum svo hægt sé að
sprauta því en um leið hafnar aðeins
um 15% blöndunnar á sjálfum bílnum
en afgangurinn gufar út í andrúms-
loftið. Leysiefni er lífræn efnasam-
bönd og mynda mengunarský í and-
rúmsloftinu. Nýlega settu bandarísk
stjórnvöld reglugerð um leyfileg
mörk lífrænna efna í slíkum efna-
blöndum og leita framleiðendur nú
annarra leiða til þess að þynna út
bílalakk svo hægt sé að sprauta þeim.
Besta raun hefur gefið að blanda
vatni út í lakkið þótt mörgum þyki
sem það hljóti að auka hættu á ryð-
myndun. General Motors reið á vaðið
strax seint á áttunda áratugnum
þegar það hóf að nota vatnsblönduð
lökk á Chevrolet Camaro og Pontiac
Firebird. Reynslan var hins vegar
ekki góð eins og kom glögglega í
ljós þegar bílarnir voru sprautaðir
eftir viðgerð á yfirbyggingu. GM
hætti því að nota vatnslökk þar til
seint á níunda áratugnum að notkun
á endurbættum vatnslökkum hófst.
Nú til dags nota flestir bílaframleið-
endur vatnslökk í ysta lagið og sum-
ir eru farnir að nota vatnsblandaða
grunna einnig.
Að endingu er sett glært lakk
yfir litalakkið sem er ætlað að veija
það gegn rispum. Glæra lakkið er
með leysiefnum og tilraunir með
vatnsblönduð glær lökk hafa enn
sem komið er ekki skilað nægilega
góðum árangri. Glæra lakkið er síð-
asta þrepið í flóknu ferli ryðvarnar
á bílum. Á þessum grunni eru bíl-
framleiðendur tilbúnir að veita
a.m.k. fimm ára ryðvarnarábyrgð
með bílum sínum. ■
NÝLEGA kom á markað nýr Nissan
Pathfinder. Auk nýs útlits er bfllinn
með nýrri gerð fjöðrunar og innrétt-
ingu. Meðal annárs er Pathfinder boð-
inn með 168 hestafla, 3,3 iítra, V-6 vél.
Morgunblaðið/RAX
INGIMAR Sigurðsson, formaður Félags löggiltra bílasala.
Félagi löggiltra bílasala. Fyrir til-
stuðlan félagsins var starfsemi hans
stöðvuð.
„Við fengum nokkra aðila sem
höfðu keypt bíla af honum til þess
að kæra hann. Þetta varð aldrei að
sakamáli vegna þess að umræddur
bílasali greiddi kaupendunum til
baka þann mismun sem hefði átt
að vera vegna meiri aksturs. Það
fór því ekki svo langt að hann yrði
kærður til lögreglu,“ sagði Ingimar.
Hann sagði að þessi tiltekni bíla-
sali væri ennþá starfandi en ekki
undir merkjum Félags löggiltra
bílasala.
Innan vébanda Félags löggiltra
bílasala eru 17 bílasölur sem er
nálægt helmingur af öllum bílasöl-
um á höfuðborgarsvæðinu.
„Við bendum öllum bílkaupendum
á það að fara með bílinn í ástands-
skoðun áður en hann er keyptur,
jafnvel þótt bíllinn sé keyptur af
bílaumboði," segir Ingimar.
„Bílasalar eru stétt sem hefur
verið félagslaus í yfir 20 ár og með
hálfgert óorð á sér. Markmið félags-
ins er að koma bílasölu út úr hálf-
gerðu prangi yfir í það að vera
kaupmennska sem lýtur almennum
viðskiptareglum."
Úttekt á útsölum
Félag löggiltra bílasala hefur
einnig leitað eftir samstarfi við FÍB
um að gera úttekt á útsölum bif-
reiðaumboðanna á notuðum bílum.
„Útsölur hafa verið að tröllríða
þessum markaði síðustu
mánuði. Það hafa verið
stanslausar útsölur frá
því í nóvember og við vilj-
um skoða hvort um raun-
verulegar útsölur sé að
ræða. Við fórum nokkrir félagar
sl. sumar á slíkar útsölur og könn-
uðum það verð sem var í boði. í
mörgum tilfellum var hærra verð
sett upp en hefði átt að vera miðað
við akstur. Þetta viljum við alfarið
að sé stöðvað enda er þarna verið
að blekkja bílkaupendur. Tökum
sem dæmi Toyota Corolla árgerð
1992 sem ætti að hafa verið ekið
um 60 þúsund km miðað við 15
þúsund km meðalakstur á ári.
Svona bíll ætti að vera boðinn á
um 880 þúsund kr. En á útsölum
rekumst við á svona bíl sem er
ekinn 120-130 þúsund km á 780
þúsund kr. Miðað við aksturinn
ætti þessi bíll á raunverulegri út-
sölu að vera á 720 þúsund kr.
Miðað er við að bíll lækki
í verði um þrjár krónur
á hvern km ef honum
hefur verið meira ekið
en eðlilegt telst og hækki
í verði um tvær krónur
á hvern km ef honum er minna
ekið. Þetta eru þau viðmið sem
bílaumboð og bílasalar hafa farið
eftir síðustu misseri," segir Ingi-
mar. ■
Kvörtunum
hægt að koma
bréfleiðis
mmm,
BÍLAFRAMLEIÐENDUR leita leiða til að nota vatnsblandaða grunna
til þess að koma í veg fyrir að lífræn leysiefni losni út í andrúmsloftið.
járn og myndar málmhúð á yfirborði
járnsins. Margir framleiðendur gal-
vanísera báðar hliðar járnplötunnar
á innri hlutum bílsins en aðeins einu
sinni á þeim hlutum þar sem lakkáf-
erðin þarf að vera í hæsta gæða-
flokki.
Þegar grunnyfirbygging bílsins
hefur verið soðin saman er hún
hreinsuð, þurrkuð og meðhöndluð
með fosfati allt að átta sinnum. Þá
loks er járnið tilbúið undir fyrsta
grunninn. Fyrsti grunnurinn kallast
stundum E-grunnur (rafdráttar-
grunnur). Rafstraum er hleypt í
gegnum járnplöturnar og þykkan
málningargrunninn sem þeim er dýft
í. Rafstraumurinn dregur málning-
una að yfirborði málmsins og inn í
glufur sem ógerlegt er að ná til með
venjulegri sprautubyssu. Rafstraum-
urinn hjálpar einnig til við að binda
grunninn við málminn áður en hann
er þuiykaður í ofni við 350-450 gráð-
ur á fahrenheit. Áður en E-grunnur-
inn er bakaður setja sumir framleið-
endur kvörnunarvörn á neðsta hluta
yfirbyggingarinnar. Efninu er
sprautað á innri brettin og á neðsta
hluta svuntunnar og myndar þykkt
varnariag gegn steinkasti um leið
og E-grunnurinn er bakaður.
Lakk og litur
Seinni grunnurinn er sprautaður
á E-grunninn. Á síðari hluta áttunda
áratugarins og í upphafi þess níunda
tíðkaðist ekki alltaf að grunna tvisv-
ar en seinni grunnurinn bindur lakk-
ið betur og fyllir auk þess út í örlitl-
ar glufur sem kunna að vera á E-
grunninum.
Nú er búið að undirbúa málminn
undir lökkun með lit. Lakkinu er
sprautað á bílinn eins og seinni
grunninum. í bílalakki eru ijórar teg-
undir efna, þ.e. bindiefni, leysiefni,
íblöndunarefni og litarefni. Bindiefn-
ið heldur öllum þessum efnum saman
og stuðlar að því að liturinn úr litar-
efninu dreifist jafnt yfir yfirborðið.
Leysiefnið þynnir lakkið svo auðveld-
ENDURHANNAÐUR Ford Mondeo
er væntanlegur á markað í Evrópu
síðar á þessu ári. Að ofan er tölvuunn-
in mynd af bflnum sem sýnir að hann
hefur svipuð stíleinkenni og Ford
Taurus. Hlaðbaksútfærslan af
Mondeo, sem er sami bíll og Contour
í Bandaríkjunum, verður t.d. með mun
stærri afturijósum en fyrirrennarinn.
RENAULT V.I., atvinnubíladeild
Renault, sýndi endurhannaðan
Midliner vörubílalínuna á vörubíla-
sýningunni í Genf í síðasta mán-
uði: Midliner hentar einkum til
styttri og meðallangra flutninga
og hafa yfir 24Ó þúsund slíkir bílar
verið framleiddir því bíllinn var
frumkynntur 1978. Þar af hafa 52
þúsund bílar verið fluttir út til
Bandaríkjanna þar sem þeir eru
seldir undir nafninu Mack.
Auk nýs útlits hefur Midliner
fengið nýtt ökumannshús. Höfuð-
rýmið hefur verið aukið um 190
mm og fyrir ofan framrúðuna er
komið geymslurými. Rúðuvindur
eru rafdrifnar sem og hliðarspeglar
sem eru upphitaðir.
Ökumannssætið
leikur á ' loftpúðum
og framrúðan er lit-
uð.
Nýtt útlit er á
bílnum framanverð-
um og ber grillið nú
Renault ættarsvip-
inn. GT ökumannshúsið er með
mestu höfuðrými í þessum
stærðarflokki vörubíla, Heildar-
þyngd Midliner bílanna er frá
7,5-15,7 tonn og sex vélastáerðir
eru í boði, 120-226 hestafla.
Renault V.I. kynnti éinnig á bíla-
sýningunni í Amsterdam í byijun
mánaðarins nýjan Magnum AE
560, sem er stærsti vörubíllinn sem
fyrirtækið smíðar. Magnum AE
560 er með nýrri V8 vél, 16,4 lítra
sem skilar mest 560 hestöflum við
1.900 snúninga á mínútu. Há-
markstog þessarar nýju vélar er
2.450 Nm frá 1.150 til 1.500 snún-
ingum á mínútu.
Renault V.I. (Vehicule Industri-
elle) seldi á síðasta ári 75.770 vöru-
bíla, strætisvagna og rútur sem er
19,5% söluaukning frá fyrra ári.
Þar af voru seldir 45.700 bílar inn-
an Evrópu, sem er 39% aukning,
og 30.070 bílar innan dótturfyrir-
tækis Renault V.I. í Bandaríkjun-
um, Mack Trucks, sem er 7,5%
aukning. ■
Nýr Pathfinder
Amerísk bílaúfvörp med annad kerfi
*
Ur prangi í
kaupmenns