Morgunblaðið - 24.02.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
ffrgpmÞIafeife
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR
BLAÐ
SKIÐI / HM I ALPAGREINUM
Sá besti!
Reuter
ÍTALINN Alberto Tomba slgradl í fyrsta sinn á heimsmeistaramótl alpagreina í gær er hann náði bestum tíma
í stórsvlginu. Tomba var vel fagnað af löndum sínum, enda hefur hann beðlð lengi eftlr þessum gullpeningl.
íslendingarnir
féllu úr keppni
í stórsviginu
ÍSLENSKU keppendumir í stórsvigi á
Heimsmeistaramótinu í Sierra Nevada á
Spáni, Haukur Amórsson og Arnór Gunnars-
son, keyrðu báðir út úr brautinni í fyrri
umferð og luku þar með keppni í greininni,
en þeir keppa á ný á morgun í svigi. Haukur
og Arnór voru meðal 32 skíðamanna sem
tókst ekki að ljúka fyrri umferðinni, en alls
tóku 100 skíðamenn þátt í stórsviginu, þar
af luku 54 keppni. Til gamans má geta þess
að Cyrille Rabbath frá Líbanon varð í 54.
og síðasta sæti á 2.54,59 eða rétt tæpri mín-
útu á eftir sigurvegaranum Alberto Tomba
frá Ítalíu.
David Batty
til Newcastle
KEVIN Keegan, knattspyrnusljóri New-
castle, er tilbúinn að kaupa miðvallarspilar-
ann David Batty frá Blackbum á 3,75 millj.
punda. Batty mun fara í læknisskoðun hjá
Newcastle um helgina, þannig að hann leikur
ekki með liðinu gegn Liverpool í dag. Á aft-
ur á móti að vera klár í slaginn þegar New-
castle leikur gegn Manchester United í næstu
viku. Batty, sem er 27 ára, kom til Black-
burn frá Leeds á 2,75 millj. punda í október
1993. Hann varð Englandsmeistari með Le-
eds 1992, núverandi meistari með Blackburn
og á möguleika á að verða meistari með
Newcastle. Kevin Keegan hefur með þessum
kaupum keypt leikmenn fyrir samtals 1,7
miHjarða ísl. króna á síðustu tólf mánuðum.
KA ræddi við
Einar Gunnar
KA-MENN hafa orðað það við Selfyssinginn
Einar Gunnar Sigurðsson, landsliðsmann í
handknattleik og helstu skyttu Selfyssinga,
að leika með KA næsta vetur. Einar Gunnar
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að
það væri rétt að minnst hefði verið á þenn-
an möguieika við sig á dögunum, en það
hefði verið nyög óformlegt. Hann sagði jafn-
framt að hann væri alls ekki að hugsa um
neitt slíkt þessa dagana, enda ætlaði hann
að einbeita sér að því að ljúka þessu tima-
bili með sínu liði.
Fyrsti heimsmeistaratitill Alberto Tombas varð loks að veruleika
„Einn erfidasti sigurinn“
„ÞETTA var án efa einn erfiðasti sigur minn,“ sagði ítalski skíða-
kappinn Alberto Tomba í gær eftir að hafa loks nælt í gull fyrir
sigur á heimsmeistaramóti. Hann sigraði þá í stórsvigi heims-
meistaramótsins í Sierra Nevada á Spáni. „Takmark mitt var
verðlaunapeningur, hvaða verðlaun sem er. Ég stefndi ekki sér-
staklega að gullinu," sagði Tomba. ítalinn, sem er 29 ára og
sigursælasti alpagreinamaður í sögu ólympíuleikanna, er nú að
taka þátt í fimmta heimsmeistaramótinu og voru sumir aðdá-
enda hans farnir að örvænta um að hann ynni HM-guli. En sigur-
inn langþráði i gær var öruggur og glæsilegur.
Ferill Tombas er stórbrotinn.
Hann á í fórum sínum þrenn
gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun
frá ólympíuleikum auk þess sem
hann hefur sigrað í heimsbikar-
keppninni, en HM gull vantaði í safn-
ið.
Tomba hafði forystu eftir fyrri
ferðina, Norðmaðurinn Lasse Kjus
var annar og næstir komu Svisslend-
ingarnir Michael von Griinigen og
Urs Kaelin. Tomba hélt svo forskot-
inu með góðri frammistöðu í seinni
ferð og fagnaði sigri, fékk tímann
1.58,63 mín., Kaelin nældi í silfur á
1.59,07 og von Griinigen fékk brons
á 1.59,45. Kjus tapaði dýrmætum
tíma er honum hlekktist lítillega á
í efri hluta brautarinnar í seinni ferð
og datt niður í fjórða sæti - fór á
1.59,51 mín.
Tomba, sem sigraði bæði í svigi
o g stórsvigi á ólympíuleikunum 1988
og aftur í stórsvigi 1992, hafði áður
aðeins unnið til einna verðlauna á
heimsmeistaramóti; fékk brons á
fyrsta móti sínu, 1987. Á síðasta
HM, í Japan 1993, veiktist hann og
missti af stórsviginu og heltist úr
lestinni í svigi - var þá innan við
mínútu í brautinni.
Sþánverjar voru ekki ánægðir
með ummæli Tombas í sjónvarpsvið-
tali á dögunum þar sem hann líkti
skíðasvæðinu í Sierra Nevada við
nágrannalandið Marokkó og heima-
menn blístruðu á ítalska liðið við
opnunarhátíðina. Og ekki höfðu
heimamenn gleymt ummælunum
þegar Tomba mætti til leiks í gær.
„Það voru einhverjit' sem blístruðu
þegar ég lagði af stað og við enda-
markið,“ sagði hann. „Ég reiddist -
en varð enn ákveðnari en ella,“ sagði
hann.
Tomba renndi sér fyrstur í gær
og náði 0,03 sekúndum betri tími
en Kjus í fyrri ferðinni. Áður en að
þeim kom i þeirri seinni hafði Kael-
in, silfurhafinn frá síðustu Ólympíu-
leikum, farið brautina og náð mjög
góðum tíma. Þeir voru þvi undir
pressu og Kjus varð á í messunni;
var nærri dottinn ofarlega í braut-
inni en náði þó þriðja besta tíma en
Tomba var eftir: hann fór á fullri
ferð og hlekktist raunar á á sama
stað og fleirum. Litlu munaði að
hann dytti og sleppti hliði en Tomba
sýndi gífurlegan styrk með því að
halda jafnvægi og hélt áfram eins
og ekkert hefði í skorist. „Ég var
óánægður með sjálfan mig vegna
þessa og gaf sannarlega allt í botn
eftir þetta áfall. Hugsanlega hafa
þessi mistök verið af hinu góða,“
sagði hann á eftir. „Þau höfðu góð
áhrif á mig andlega og ég tók mikla
áhættu á eftir. Séu menn nægilega
kraftmiklir er hægt að vinna upp
þann tíma sem tapast við svona at-
vik,“ sagði Tomba.
Síðasti ítalinn til að sigra í stór-
svigi á heimsmeistaramóti var hinn
frægi Gustavo Thoeni, sem nú er
þjálfari Tombas, í St. Moritz í Sviss
árið 1974. Deborah Compagnoni
sigraði í stórsvigi kvenna í fyrradag
þannig að ítalir eru himinlifandi með
árangur sinna manna á mótinu á
Spáni að þessu sinni.
Eftir að Tomba kom í mark var
hans fyrsta verk að fagna sigrinum
með félögum í hinum „Opinbera
áhangendaklúbbi Tombas“ sem eltir
skíðakappann hvert sem hann fer
til að keppa, en í klúbbnum eru
nokkrir íbúa heimabæjar hans, Ca-
stel de Britti í nágrenni Bologna.
„Við elskum hann innilega," sagði
Loris Righi, einn meðlima í aðdá-
endaklúbbnum, um goðið. „Hann er
frábær. Grandissiino! Bestur."
KNATTSPYRNA: RÚSSAR ÆTLA SÉR STÓRA HLUTI í ENI / B2,B3