Morgunblaðið - 01.03.1996, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.03.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1996 B 3 DAGLEGT LÍF am sýndi að börn með öryggistengsl við móður voru eftirsóttir félagar, full lífsorku, sjálfstæð og áhugasöm, grétu sjaidnar og misstu síður stjórn á skapi sínu. Börn méð kvíðatengsl á hinn bóginn voru hikandi, óákveð- in og ómarkviss í hegðun og misstu oftar stjórn á skapi sínu. Nauðsynlegt að læra tungumálið á næmiskeiðinu Næmiskeið bama til að læra tungumálið er frá vöggu til 4ra ára aldurs eða á sama tíma og vitsmuna- legir þættir þroskast mest. Talþrosk- inn er óhemju hraður við 2 ára aldur- inn. Það hefur komið í ljós að börn sem eru einangruð frá öðrum fyrstu fjögur ár ævinnar, eiga erfitt með að læra málið og öðlast í raun ekk- ert móðurmál. Málfræðingar telja víst að algild málfræðilögmál séu börnum með- fædd og að það verði að virkja þau á ákveðnu tímabili. Öll talandi böm ganga í gegnum sömu þrep- in hvar sem er í heiminum og ef til að mynda íslenskt barn elst upp í Kína læri það kínversku jafnauðveld- lega og það hefði lært ís- lenskuna. Það hefur meira að segja uppgötvast að böm gera sömu málvillurnar hvert sem málumhverfið er og leiðrétt- ingar fullorðinna á þeim em tilgangslausar. Segja má að böm séu forrituð til að skynja mun á hljóðum. Sér- hæfðar máltaugafrumur greina til að mynda muninn á órödduðu p og rödduðu b. Að þessu leytinu til er tungumálið líffræðilegt. í hjali barna grelnast öll málhljóð Máltaka barna hefst með hjali, en í því má greina fleiri hljóð en koma fyrir í móðurmálinu. 4-6 mán- aða mynda þau atkvæði: „ba ba“ og „ma ma“. 10. mánaða koma sam- hljóðar og sérhljóðar í einu orði: „Pam“. Og loks við eins árs aldurinn koma heil orð. Þá heyrast fyrstu órödduðu lokhljóðin. Þau geta sagt „pabbi, mamrna." Máltaka barna er reglubundin og hún verður að eiga sér stað á þessum árum. Það er eins og heili þeirra sé afar næmur fyrir að nema málhljóð og til að mynda 5 ára börn fara létt með að læra sitt annað mál á nokkr- GEÐTENGSL verða börn að mynda við uppalanda sinn á fyrstu 18 mánuðunum. Erlend rannsókn ó leik- skólabörnum sýndi að börn með öryggistengsl við móð- ur voru eftirsóttir félagar, full lífsorku, sjólfstæð og óhugasöm, grétu sjaldnar og misstu síður stjórn ó skapi sínu. um mánuðum, sem tæki foreldra þeirra mörg erfið ár. Tveggja ára tala börn í tveggjá til þriggja orða setningum, eins kon- ar símskeytastíl, þriggja ára segja þau setningar í málfræðilegu formi og fjögurra ára tala þau líkt og full- orðnir. Undraheimur heilans Heilinn er ef til vill mest spenn- andi rannsóknarefni mannsins: Heil- inn í honum sjálfum. Og rannsóknar- efnin þar eru óþijótandi. Hann starf- ar sem ein heild en samanstendur af tveimur sambærilegum heilahvel- um sem hafa nokkuð skýra verka- skiptingu á milli sín. Málstöðvarnar eru til að mynda í vinstra heilahvel- inu. Rannsóknir á máli og tilfinning- um hafa sýnt svo ekki verðum um villst að það skiptir öllu máli á hvaða tímaskeiði örvunin verður að vera. Og nú vakna fleiri spurningar: Hve- nær er best að læra félagsmótun, reikning eða tónlist? Eða með öðrum orðum, hvenær eru áhrif tiltekinna umhverfisþátta í hámarki til að nema ákveðna hluti?. Félagsmótun á sér stað á aldrin- um 3 til 6 ára. Það er tíminn sem börn þurfa að kynnast öðrum fyrir utan fjölskylduna, eignast vini og læra að eiga sómasamleg samskipti ___ við aðra sem bundin eru reglum, eins og þeim sem fylgja því að vera í skóla. Næmi fyrir tönllst og relknlngl í nýlegu hefti af Newsweek er vitnað í nýjar rannsóknir um næmiskeið heila- fruma barna til að læra tónlist og reikn- ing. Þar kemur fram að reikningsgáfuna sé gott að örva sérstak- lega til 4 ára aldurs og æskilegt að vekja áhuga þeirra á ýmiss Morgunblaðið/Ásdís konar talnaleikjum. Næmiskeið til að örva tóniistar- gáfuna er hinsvegar frá þriggja til tíu ára. Ef barn lærir ekki á neitt hljóðfæri á þessu tímabili verður því námið mjög erfítt síðar og barnið aldrei fímt. Skynsamiegt er að syngja fyrir barnið og láta það skynja hrynjanda. Áhuga barnsins má svo gleðja með því að iáta það læra á hljóðfæri. Hugsanlega verða í framtíðinni greind æ fleiri næmiskeið barna til að læra tiltekna hluti. Hægt verður að segja til um hvar í heila örvunar- svæðið er og hvenær taugafrumurn- ar eru næmastar. ■ Gunnar Hersveinn A face is like a wo'k of art. It deseiYes a great fi'ame U'wgrn'i'i Enlwd nliijon fnemf. for íKngbw*«KÍ jnrríitj/ior: ojTrwcar l.a.tiyeworhs AUGLYSINGAHERFERÐIN Andlit er eins og listaverk, sem á stórkostlega umgjörð skilið hefur vakið mikla athygli, enda hafa stórstjörnur á borð við Ninu Hagen, Andy Warhol, Mickey Rourke og fleiri léð fyrirtækinu andlit sitt. . ■ ■■ og listaverk, sem á stórkostlega umgjörð skilið hefur vakið mikla athygli, enda hafa stórstjörnur á borð við Andy Warhol, Arnold Schwarzenegger, Sharon Stone og RuPaul setið fyrir á auglýsingun- um, sem birst hafa í mörgum út- breiddustu tímaritum heims. Hluta af hagnaði L.A. Eyework er varið til góðgerðarstarfsemi, skólastyrkja og ýmissa lista- og bókmenntastofnana. Gherardi og McReynolds hafa um árabil styrkt rekstur Aileen Getty hússins, sem samnefndur listamaður setti á lagg- irnar fyrir konur með alnæmi. Aile- en Getty, fyrrverandi tengdadóttir Elizabeth Taylor og barnabarn olíu- milljarðamæringsins J. Paul Getty, er sjálf með alnæmi og hefur undan- farin ár helgað sig baráttunni fyrir bættum aðbúnaði alnæmissjúkl- inga. Trúlega eiga Gherardi og McReynolds stóran þátt í að marg- ir líta nú á gleraugu sem ómissandi fylgihlut með tískufötunum; fylgi- hlut sem undirstrikar persónuleik- ann og skapar manneskjunni það yfirbragð sem hún sjálf kýs og gild- ir þá einu hvort sjóngler eða venju- legt rúðugler er í umgjörðunum. B-SUPER Öflugra B-Vítamín B-Súper inniheldur 11 náttúruleg B-vítamín í hámarksstyrkleika. Þau eru mikilvæg fyrir efnaskipti líkamans, heilbrigða starfsemi margra líffæra, tauganna og húðarinnar. Einnig nauðsynleg fyrir heilbrigðan hárvöxt og til blóðmyndunar. B-Súper er sterk blanda allra B-vítamína Fæst í heilsubúðum, apótekum og heilsuhillum matvörubúða Éh. lEÍIsuhúsið Kringlunni & SkólavörÍustig GULI MIÐINN TRYGGIR GÆÐIN! PARKÉTSLÍPÚN Sigurðar Ólafssonar Við gerum gömlu gólfin sem ný Sími: 564 3500 - 852 5070

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.