Morgunblaðið - 01.03.1996, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1996 B 7
DAGLEGT LÍF
I tií.r ;■
r ■■■
Mikilvægt er að vita, áður en grip-
ið er til lokúrræða eins og skurðað-
gerða, að „getuleysið" sé ekki af
sálrænum toga. Margar sálrænar
og félagslegar ástæður geta legið
því til grundvallar að limurinn stífni
ekki nægjanlega í kynlífs athöfnum.
Ein leið til að greina slík vandamál
frá vefrænum sjúkdómum er að
fylgjast með því hve oft menn fá
stand í svefni og hve stífur limurinn
er þá. Til er sérstakt tæki sem menn
geta tengt við tippið á nóttunni,
svokallað RigiScan,
sem skráir hversu oft
menn fá stand, hve
lengi það varir og hve
stífur limurinn er. Fái
menn nægjanlega
langvinnt og stíft
stand í svefni er líklegt
að vandamálið sé af —mm~"~~—^—
sálrænum eða félagslegum toga og
er þá eðlilegast að vísa mönnum
áfram til aðila sem hafa sérhæft sig
í að meðhöndla slíkt.
Mörg önnur fróðleg erindi voru
flutt á þessu þingi m.a. um kynlífs-
vandamál fattlaðra, kynskiptiað-
gerðir, kynfræðslu, eyðni og áhrif
ýmissa sjúkdóma á kynlíf. En þarna
var líka ýmislegt á boðstólnum sem
ekki var beinlínis fræðilega framsett
og sumt verkaði næsta framandlegt
og annað hjákátlegt. Ef dæma má
af-þessu heimsþingi þá eru ráðstefn-
ur í „kynlífsfræði" afar undarleg
blanda af v'ísindum og persónulegum
áhugamálum þátttakendanna. Innan
um hávísindalegar vel unnar rann-
sóknir mátti finna fyrirlestra þar
sem markmiðið var fyrst og fremst
að „predika" og veija tilvist hinna
ýmsu afbrigða mannlegrar kynlífs-
hegðunnar.
Japanskir hommar
Eitt athyglisverðasta erindið sem
flokka má undir „predikun" var fyr-
irlestur frá félagi japanskra homma
og lesbía. Japanskir hommar og lesb-
íur búa nefnilega við það sérstaka
vandamál að fjölmiðlar og almenn-
ingur viðurkennir ekki að þau séu
til. A meðan samkynhneigðir Vest-
urlandabúar beijast fyrir jafnrétti
snýst barátta japanskra stallsystk-
ina þeirra um að sanna tilvist sína.
Boðskapur fyrirlesarans hljómaði
Um helmingur allra
karla á aldrinum
50-80 ára sögðust
vilja hafa samfarir
oftar.
afar einkennilega í eyrum okkar
Vesturlandabúa. Japanskir hommar
líta nefnilega svo á málin að eyðni-
veiran hafí hjálpað þeim í baráttunni
með því að þvinga ráðamenn og fjöl-
miðla til að viðurkenna tilvist þeirra
sem sérstaks áhættuhóps. Þeir
hamra því látlaust á þessu hvar sem
færi gefst. Nokkrir vestrænir homm-
ar í salnum stóðu upp og vildu vara
japanska stallbræður sína við þess-
ari baráttuaðferð. Á Vesturlöndum,
sögðu þeir, er áherslan lögð á að
eyðni sé ekki
„hommasjúkdómur"
m.a. vegna þess að
stimpillinn „homma-
sjúkdómur“ er eins og
vítamínsprauta fyrir
gömlu „hommagrýl-
_______ una“. En japönsku
” hommarnir horfðu
bara á þá tómum augum og svöruðu
því til að þeir vildu miklu heldur
hafa grimma „hommagrýlu“ til að
berjast við en að lifa ósýnilegir.
„Kynlífsfræði“ skammt
á veg komin á íslandi
Á íslandi eru „kynlífsfræði“ mjög
skammt á veg komin og fáir íslend-
ingar hafa sérhæft sig í meðferð
þessara vandamála. Af þeim sem
fjallað hafa um kynlíf á íslandi er
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrun-
arfræðingur, að öðrum ólöstuðum,
ókrýndur brautryðjandi. Brautryðj-
endastarf er oft vanþakklátt og aldr-
ei auðvelt og Jóna Ingibjörg á mikl-
ar þakkir skildar. Vonandi verður
þess ekki langt að bíða að boðið
verði uppá námskeið í kynlífsfræðum
innan læknadeildar og félagsvísinda-
deildar Háskóla íslands. Best er þó
að fara með gát og bíða þar til tryggt
er að gæði menntunar standi undir
nafni. Það er engu að síður þakkar-
vert tímanna tákn að íslenskt áhuga-
fólk um kynlífsfræði skyldi á síðasta
ári ráðast í það framtak að hýsa í
fyrsta sinn norrænt þing kynlífs-
fræðinga á íslandi.
Höfundur er sálfræðingur við
Krabbameinslækningadeild Karol-
inska sjúkrahússins í Stokkhólmi og
leggur stund á rannsóknir á áhrifum
krabbameins og krabbameinsmeð-
ferðar á kynlíf.
Grace Kelly, Audrey
Hepbum og Jackie Kennedy
fyrirmyndirnar að vor- og sumartískunni í ár
ANDI þriggja látinna kvenna sveif
yfir vötnum á vor- og sumartísku-
sýningum í Mílanó, París og New
York þetta árið ef marka má um-
sagnir í ýmsum erlendum tísku-
■ tímaritum. Kvikmyndastjörnurnar
Grace Kelly og Audrey Hepburn
höfðu ómæld áhrif á kventískuna á
sjötta áratugnum og áratug síðar
varð Jackie, fyrrum forsetafrú
Bandaríkjanna, jafnframt fyrir-
mynd kvenna víða um heim. Allar
áttu sameiginlegt að vera rómaðar
fyrir fegurð, glæsileika og smekk-
legan klæðaburð, sem þótti dæmi-
gerður fyrir kvenleika og fágun.
Hér gefur að líta nokkur dæmi um
áhrif, sem rekja má til þessara
þriggja kvenna.
Audrey Hepburn
Audrey Hepburn var há, grönn
og tíguleg og minnti á ballerínu.
Tískuhönnuðurinn Hubert de Giv-
enchy var persónulegur vinur henn-
ar og átti sinn þátt í að skapa henni
þá ímynd, sem fylgdi henni alla
ævi. Þegar fjallað var um Givenchy
í tískutímaritum fylgdu jafnan
myndir af kvikmyndastjörnunni í
fatnaði eftir hann. Árið 1954 lék
Audrey Hepburn í kvikmyndinni
Sabrina, en í
henni kom leik-
konan fram í
kjólum eftir
Givenchy.
Endurgerð
þessarar vin-
sælu myndar á
efalítið sinn þátt
í áhrifum Au-
drey Hepburn á
vortískuna í
ár.
Jackie
Kennedy
Sem forset
afrú Bandaríkj-
anna þótti viðeig-
andi að Jackie
Kennedy klæddist
fatnaði eftir
bandarískan hönn-
uð. Framan af
hannaði Oleg
Cassini föt á
hana, en eftir að
forsetahjónin
heimsóttu
Frakkland í
fyrsta skipti
kaus Jackie
Kennedy fatn-
að eftir Cour-
réges, Chanel
eða Givenchy.
TVIHNEPPTAR
dragtir voru í miklu
uppáhaldi hjá Jackie
Kennedy og hönnuðu
Oleg Cassini, Andre
Courréges og Chanel
slíkar dragtir fyrir
hana. Meðal nýjunga
frá Ralph Lauren þetta
árið er dragt sem
óneitanlega minnir á
dragtir, sem voru ein-
kennandi fyrir forseta-
frúna. Þessi þykir
einkum lík einni eftir
Courréges.
AUDREY Hepburn í Sabrina árið 1954. Þessi glæsi
legi, útsaumaði samkvæmiskjóll, sem trúlega e
með frægari flíkum kvikmyndasögunnar, var
|N bandaríska tískuhönnuðinum Todd Oldhar
« innblástur í útsaumaðan kjól öllu smærri
Grace Kelly
Grace Kelly var og leit út eins
og dæmigerð dóttir úr auðugri,
bandarískri fjölskyldu. Hún klædd-
ist dýrum og sígilduin fatnaði, en
tileinkaði sér fljótlega ýmis evr-
ópsk áhrif. Handtöskuna frá
Hérmes skildi hún sjaldan við sig
en slíkar töskur eiga nú auknum
vinsældum að fagna. Kjólar henn-
ar voru yfirleitt þröngir að ofan
með síðum og víðum pilsum.
ÞESSIR stelpulegu sumar-
kjólar, sem Karl Lagerfeld
hannaði fyrir Chanel,
minna um margt á einn
kjólinn, sem Graee Kelly
klæddist í kvikmyndinni
High Society.