Morgunblaðið - 10.03.1996, Side 2
2 D SUNNUDAGUR 10. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. MARZ 1996 D 3
i I
Alþjóðlega bílasýningin í Genf stendur
alla vikuna en þar eru yfir þúsund bílar,
fylgihlutir og búnaður fró yfir 300 fram-
leiðendum í 36 löndum. Komust færri
sýnendur að en vildu en sýningarrýmið
er allt nærri 70 þúsund fermetrar. Þarna
koma úrlega fram ýmsar nýjar gerðir svo
sem greint hefur verið fró í Morgunblað-
inu, andlitslyftingar og margvíslegar hug
myndir sem settar eru fram til að vekja
athygli og nó síðan kannski inn ó færi-
bönd fjöldaframleiðslunnar síðar. Meðal
þjónustu sem veitt er ú kynningardögum
óður en sýningin er opnuð er þessi „lif-
andi“ símstöð sem býður mönnum að
hringja úr GSM síma sínum. ■
HONDA Legend er nú kominn í
þriðju kynslóðinni, voldugur og
virðulegur bíll eins og áður.
SINTRA er nýr fjölnotabíll frá Opel og er smíðaður hjá GM.
GM er fyrirtæki á
heimsmælikvarða
OPEL Corsa er nú framleiddur í
fimm löndum og verið að undirbúa
framleiðslu í fleiri löndum. Bíllinn
var seldur á sl. ár í 800 þús. eintök-
um í 75 löndum, frá íslandi til
Grikklands, Mexíkó til Argentínu
og Japan til Ástralíu. Þetta sagði
Louis R. Hughes, einn af forstjórum
GM, á blaðamannafundi í Genf og
nefndi hann það sem dæmi um vel
heppnaða framleiðslu sem væri vel
tekið á hinum ólíku markaðssvæð-
um.
GM sem er einn risanna í bíla-
framleiðslu heimsins, rekur 33
verksmiðjur og hefur 100 þúsund
manns í vinnu og er þar aðeins
talin sú deild sem fellur undir stjórn
Hughes, alþjóðadeildin, en hlutur
hennar er um fjórðungur af heildar-
framleiðslu í fyrra. Af þeim fóru
2.990.000 á aðra markaði en í
Bandaríkjunum. Sala utan Banda-
ríkjanna hefur aukist úr 1,5 millj.
bfla árið 1975, 2 millj. árið 1985
og er nú eins og fyrr segir rétt
tæpar 3 milljónir bíla. Gerir
Hughes ráð fyrir að um
helmingur af heildarfram-
leiðslu GM verði seldur
utan Bandaríkjanna árið
2005. Einnig gerir hann
ráð fyrir að mest aukning
á bílasölu verði í Asíu á
næsta áratug, um 5 milljónir
bfla, og að þar muni seljast
fleiri bílar en í Evrópu eða Ameríku
í dag eða um 18 milljónir bíla.
Miklar fjárfestingar
framundan
Miklar fjárfestingar standa fyrir
dyrum hjá GM, um 20 milljarðar
(ÍSK) í verksmiðju í Póllandi og
yfir 300 milljarðar í Opel í Þýska-
landi til aldamóta og um 100 millj-
arðar í Austurríki, og Belgíu og
víðar í Evrópu.
Louis R. Hughes segir það stefnu
GM að vera fyrirtæki á heimsmæli-
kvarða og þess vegna vetji það
miklum fjármunum á næstu árum
til að koma upp framleiðslu í Asíu-
löndum og ná þar markaðshlutdeild.
Er m.a. horft til Kína í þessu sam-
bandi en þar er gert ráð fyrir um
2,5 milljóna bíla sölu áríð 2003.
Þrátt fyrir þessa nýju sókn
til Asíu segir Hughes
fyrirtækið ætla að
standa áfram
styrkum fótum í
Evrópu. ■
MEÐAL nýjunga frá GM er
litla umhverfistæknivélin sem
notuð er í MAXX frumgerðun-
um sem sýndar voru í Genf í
fyrra. Rúmtakið er 973 rúm-
sentimetrar, hún er 50 hestöfl,
þriggja strokka og hún vegur
aðeins 85 kg. Með þessari vél
er ætlan GM að Ieggja sitt af
mörkum í þeirri stefnu að
draga úr eldsneytiseyðslu um
fjórðung fyrir árið 2005.
Nýlt f lagg-
skip í Hondu-
flotanum
HONDA sýndi nýja gerð af lúxusbílnum
Legend sem nú kemur í þriðju útgáfu sinni
í áratug. Kemur hann á markað í júní næst-
komandi. Legend byggir að 40 hundraðshlut-
um á eldri útgáfu og eru það atriði eins og
framdrifið, sama hjólahaf og sex strokka vél
en annað er nýtt, svo sem betri fjörun og
betri vinnsla vélar.
Vélin í Legend er 3,5 lítra, sex strokka
og 205 hestöfl og hefur gangur hennar ver-
ið bættur frá eldri vél og hún gerð þýðgeng-
ari. Legend er búinn tölvustýrðri sjálfskipt-
ingu sem tekur mið af hröðun, hleðslu, hraða
og fleiru og heldur réttum gír miðað við sem
mesta nýtingu aflsins. Líkt og aðrir bílar í
þessum verð- og stærðarflokki er Legend
búinn líknarbelgjum, hemlalæsivöm, saml-
ingu og útvarpi með 8 hátölumm. Legend
vegur 1.670 kg, er 4,98 m langur, 1,81 m
breiður og 1,43 m hár. Hjólhafíð er 2,91
metri. ■
SUZUKI Baleno Iangbakur með aldrifi var afhjúpaður í Genf
en hann verður fáanlegur hérlendis með haustinu.
Baleno-langbakur meé aldrifi
SUZUKI kynnti nýjan Baleno lang-
bak með aldrifi en hann er vænt-
anlegur til íslands með haustinu um
leið og hann fer á markað í öðrum
Evrópulöndum. Baleno langbakur
verður fáanlegur með 1,6 og 1,8 1
vélum, handskiptingu eða sjálfskipt-
ingu. Úlfar Hinriksson hjá Suzuki-
bílum, sem staddur var á bílasýning-
unni í Genf sagði verðið ekki vera
komið á hreint en ljóst er að þessi
bíll keppir við aðra aldrifsbíla, t.d.
Toyota Corollu og Mitsubishi Lancer
frá Japan. Með þessari gerð eru
Suzuki verksmiðjurnar að mæta
kröfum þeirra í Evrópu sem vilja vel
búinn fjölskyldubíl í fullri stærð.
Baleno langbakurinn er ívið stærri
en Toyota Corolla og Mitsubishi
Lancer en að mörgu leyti sambæri-
legur. Hann er 4,34 m langur, 1,69
m breiður og 1,46 m hár og er hjól-
hafið 2,48 m. Bíllinn verður fáanleg-
ur með 1,6 og 1,8 lítra vélum og
handskiptingu en sjálfskipting er
einnig fáanleg.
Meðal búnaðar má nefna sam-
læsingar, rafstillanlega spegla, raf-
drifnar rúður, snúningshraðamæli
og litað gler. Þá má nefna að í far-
angursrýminu er sérstakt bretti með
mörgum litlum hólfum sem þægilegt
er að geyma í smáhluti. Þar er með-
al annars lítil fata og sagði Úlfar
Hinriksson að hún væri upplögð fyr-
ir beituna þegar veiðimaðurinn fer
í sinn veiðitúr. Verðið er ekki á
hreinu fyrr en síðar á árinu. ■
STARLET er snotur bíll - ekki stór-
lega breyttur - en knár og ágætlega
rúmgóður. PASEO t.v. er nýr af nál-
inni en verður ekki í boði hérlendis.
Nýr Starlet og Paseo frá Toyota
STARLET, fimmta kynslóðin af
þessum vinsæla smábíl frá Toyota,
var kynntur í Genf en alls hafa
verið framleiddar nærri þijár millj-
ónir Starlet bíla. Hann er búinn
1,3 lítra 75 hestafla vél og er
framdrifínn fimm manna bfll.
Óráðið er á þessari stundu hvort
og þá hvenær Starlet kemur á
íslenskan markað. Bogi Pálsson
framkvæmdastjóri Toyota um-
boðsins sagðist á sýnngarbásnum
í Genf hafa verið ákveðinn í að
taka hann ekki em eftir að hafa
skoðað bílinn nánar og honum lit-
ist vel á hann myndi hann endur-
skoða þá ákvörðun. Það myndi þó
ráðast af því hvort samningar
næðust við Japani um verð til ís-
lands.
Starlet er fáanlegur þriggja eða
fímm hurða en sömu mál eru á
báðum gerðum. Lengd 3,74 m,
breidd 1,63 m, hæð 1,4 og hjólhaf-
ið er 2,3 metrar. Bíllinn vegur
830-960 kg, er fáanlegur með 5
gíra handskiptingu eða þriggja
gíra sjálfskiptingu. Hámarkshrað-
inn er 170 km og hröðun úr kyrr-
stöðu í 100 km tekur 11,2 sekúnd-
ur. I bæjarakstri eyðir þessi nýja
vél 8,6 1 og 5,6 1 á þjóðvegi.
Sakamoto, aðalhönnuður Star-
let, sagði að við hönnun á fimmtu
kynslóðinni hefði verið jafn mikið
horft til baka eins og fram á við
til þess að gleyma ekki þeim atrið-
um sem gert hafa Starlet svo vin-
sælan en jafnframt hugað vand-
lega að nýjungum og öryggisatrið-
um sem væru nú sífellt meira spurt
um í bílum af öllum stærðum. Star-
let hefur nokkuð voldugan fram-
enda og virkar því stærri en hann
í rauninni er en rúður eru stórar
og innanrými ágætt bæði í fram-
og aftursætum. Farangursrýmj
tekur 214 lítra.
50 þúsund fyrlr Evrópu
Framleiddir verða um 180 þús-
und bílar á ári þegar fullum af-
köstum verður náð og fara af þeim
um 50 þúsund á markað í Evrópu
sem er nærri tvöfalt meira en seld-
ist af síðustu gerð. Gera forráða-
menn Toyota ráð fyrir að Evrópa
verði áfram stærsti útflutnings-
markaðurinn en þar hefur um 85%
af útfluttum Toyota bílum selst.
Er Starlet þar í þriðja sæti á eftir
Corolla og Carina.
Þá kynnti Toyota einnig Paseo
sem er fimm manna bíll af milli-
stærð með 1,5 lítra, 16 ventla og
90 hestafla vél. Paseo er laglegur
og sportlegur bíll bæði innan og
utan. Hann verður ekki fáanlegur
hérlendis.
Sportbíll
f ró Hyundai
HYUNDAI kynnti nýjan sportbíl, Coupe, sem er lag-
lega hannaður, fjögurra manna bíll og áhugaverður.
Hann er rökrétt framhald af hugmyndabílunum eða
frumgerðunum HCD 1 og 2, er búinn tveggja lítra,
138 hestafla og 16 ventla vél.
Á blaðamannafundi í Genf staðhæfðu forráðamenn
Hyundai að hér væri kominn bíll sem keppt gæti við
ýmsa aðra sportbíla svo sem Opel Calibra, Ford Probe,
Fiat Coupe og Eclipse, hann væri rýmri að innan en
sumir þeirra enda með lengra hjólhaf. Bíllinn er 4,34
m langur, 1,73 m á breidd og er hjólhafið 2,47 m.
Auk tveggja lítra vélarinnar verða einnig í boði 1,6
og 1,8 lítra vélar. Öflugasta vélin er aðeins 8,6 sek-
úndur að koma handskipta bílnum úr kyrrstöðu í 100
km hraða og er hámarkshraðinn 201 km. Eyðslan í
bæjarakstri er 11,4 lítrar og 7,3 á þjóðvegi.
Hyundai-verksmiðjurnar hyggjast sækja af meiri
krafti á Evrópumarkað og sagði Hyo Whi Baik að-
SPORTBILL
frá Hyundai
var frumsýnd-
ur í Frank-
furt. Forráða-
menn Hyundai
segja það
stefnu fyrir-
tækisins að
sækja mun
meir á al-
þjóðamarkað
á næstu miss-
erum.
stoðarforstjóri Hyundai að ráðgert væri að koma upp
þróunar- og rannsóknadeild í Frankfurt og auka sam-
vinnu við evrópska tæknimenn og sagði hann það líka
hugmynd fyrirtækisins að ná enn meiri samvinnu við
stærstu bílaframleiðendur í heiminum en vildi ekki
tiltaka nánar hvaða framleiðanda. Á síðasta ári fram-
leiddu Hyundai 1,2 milljónir bíla og er stefnt að 1,4
milljón bíla framleiðslu í ár. Af þeim fara 800 þúsund
á heimamarkað og 600 þúsund til útflutnings. Á
heimamarkaði er hlutdeild Hyundai 48% en á síðasta
ári var opnað nokkuð fyrir innflutning bíla frá Vestur-
löndum til Suður Kóreu með lægri tollum og var 79%
aukning í innflutningi þeirra. í dag eru verksmiðjur
Hyundai í sex löndum og er ráðgert að setja upp
verksmiðjur í Tyrklandi og Indlandi á næstu misserum.
Brimborg með Ford í eitt ár
BRIMBORG hefur haft umboð fyr-
ir Ford í eitt ár og hefur söluaukm
ingin á þessum tíma verið mikil. í
tilefni af tímamótunum bauð Brim-
borg svæðisstjórum Ford, Martin
Gorniak og Phil Sergeant, til lands-
ins. í fréttatilkynningu frá Ford
segir að fyrirtækið sé hæstánægt
með sölu á Ford bílum nýliðinn
janúarmánuð. Þann mánuð hafi
Ford verið í fimmta sæti yfir mest
seldu bflategundina á íslandi og
söluaukningin í þessum mánuði
milli áranna 1995 og 1996 verið
hvorki meira né minna en 1.400%.
Þetta sé til marks um þann mikla
árangur sem Brimborg hafi strax
náð sem söluaðili Ford bíla.
Sergeant sagði m.a. þegar tíma-
mótanna var minnst að með heims-
væðingarferli Ford (Ford Globalis-
ation Process) væri meiri athygli
beint að viðskiptavinum fyrirtækis-
ins hvarvetna í heiminum. „Við
reynum að uppfylla þarfir við-
skiptavina okkar, __ sérstaklega í
löndum eins og íslandi,“ sagði
Gorniak.
Sergeant bætti því við að bíla-
verksmiðjunum væri heiður að því
að starfa með Brimborg og þær
gerðu sér miklar vonir um bjarta
framtíð Ford bíla á íslandi.
Brimborg hafði selt 20 Ford
Explorer jeppa 23. febrúar sl. en á
sama tímabili 1994 höfðu selst 6
jeppar og 4 jeppar 1995. ■
EGILL Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, Phil Serge-
ant, svæðisstjóri Ford, Sigtryggur Helgason, forsljóri Brimborg-
ar, Jóhann J. Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, Martin Gorniak,
svæðisstjóri Ford og Ríkharður Úlfarsson sölustjóri.
Nýr smájeppi
Land Rover
of stór
© BOSCH
Uarahlutjp
STJÓRNENDUR Land Rover virð
ast hafa misreiknað sig illilega þeg-
ar nýr smájeppi var hannaður. Jepp-
inn þykir of stór. CB40, sem svo
kallast bíllinn, var ætlað að keppa
við Toyota RAV4 og verða kostur
fyrir fleiri bílkaupendur. Hingað til
hafa kaup á Land Rover helst verið
á færi þeirra efnameiri.
Frumgerð CB40, sem nýlega var
frumkynnt, er næstum jafnstór og
Land Rover Discovery. Yfirmenn
BMW, sem á meirihluta í Rover,
óttast að nýi bíllinn komi niður á
sölu á nýjum Discovery sem kemur
á markað 1997.
Nú hefur Wolfgang Reitzle, yfir-
maður hjá Rover, látið þau boð út
ganga til þróunardeildar Rover að
hönnun hins nýja Discovery verði
endurskoðuð með það að markmiði
að bíllinn verði sem ólíkastur CB40.
Margir telja að of seint sé að breyta
hönnun CB40 þar sem aðeins eitt
ár er þar til framleiðslan hefst.
CB40 kemur fyrr á markað en end-
urgerður Discovery. Líklegt þykir
að breyttur Discovery verði dýrari
bíll með meiri búnaði og róttækara
útliti en fyrirrennarinn. g
NÝR smájeppi Land Rover
þykir of stór.
fllfelgur - stýri - gírhnúðar- sæti
imPGTUS
Urðarstíg 9 sími 551 1902
í bílínn eru góðir!
Ljósasamlokup
og púðuþurpkur
GWS 9-125 Slípirokkur 900w
BOSCH
BOSCH umboðið aðkeyrsla frá Háaleltisbraut
BRÆÐURNIR
Lágmúla 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807
Söluaðllar:
Málningarþjónustan, Akranesl (Handverktæri). GH verkstæðiö Borgarnesi (Bílavara-
hlutir og fl). Póllinn, fsafirði (Handverkfæri). KEA, Akureyri (Handverkfæri og fl).
Pórshamar, Akureyrl (Bflavarahlutir og tl). KÞ Húsavík (Handverkfæri og bllavarahlutir).
Víklngur, Egilsstöðum (Handverkfæri. bilavarahlutir og fhlutir).Vélsmlð)a Hornafjarðar,
Hornafirði (Handverkfæri, bílavarahlutir og fl). Bygglngavörur Steinars Árnasonar hf.,
Selfossi (Handverkfæri).
^Hónnun: Gunnar Steinþórsson / BOSCH / 02. 96-002