Morgunblaðið - 24.03.1996, Qupperneq 1
CHRYSLER NEW YORKER - NÝJA „BJALLAN“ í GENF -
STERKLEGUR OG HRÁR ISUZU - FYNDINN SKODA FELICIA
&CHRYSLER
Komdu
og skoðaðu
bíla
ársins
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600
SUNNUDAGUR 24. MARZ
1996
BLAÐ
mreioaumDOOanna
annast útvegun
lánsins á 15 mínútum
Giltiilrhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Morgunblaðið/Sverrir
RENAULT Mégane er djarflega teiknaður og sportlegur bíll af millistærð,
Impreza
kynntur um
helgina
INGVAR Helgason hf. kynnir
nýjan ?ubaru Impreza aldrifsbíl
um he gina. Impreza er heldur
minni en Legacy en með sömu
vélum. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem Impreza aldrifsbíll kemur
hingað til lands en hann er nú
boðinn á lægra verði en áður.
Verðið er frá 1.690.000 kr. Boðið
er upp á tvær gerðir af bílnum.
Fernra dyra bíllinn, stallbakur-
inn, kostar frá 1.696.000 en skut-
bíllinn 1.749.000 kr.
Sama vél er í Impreza og í
Legacy, þ.e. 2ja lítra, 115 hest-
afla. Opið verður í dag, sunnu-
dag, á milli kl. 14-17. ■
Renault Mégane kominn
RENAULT Mégane,
arftaki 19, er kominn
til landsins, en bíllinn
var fyrst kynntur á
alþjóðlegu bflasýn-
ingunni í Frankfurt í
október á síðasta ári.
Bíllinn er framleidd-
ur í fimm útfærslum,
þ.e. fimm dyra hlað-
bakur, þriggja dyra
hlaðbakur, lítill fjöl-
notabíll, femra dyra
stallbakur og blæju-
bíll. í fyrstu atrennu
býður Bifreiðar og
landbúnaðarvélar bíl-
inn í fyrst nefndu
útfærslunni, þ.e.
Mégane RN 1400 og
RT 1600. Bíllinn var
reyndur stuttlega í vikunni með
stærri vélinni.
Að utanverðu er Mégane mjög
djarflega teiknaður bíll og til
marks um þá þróun sem orðið
hefur hjá Renault í átt til sport-
legri lína. Fimm dyra hlaðbakur-
inn er dropalaga séður frá hlið
en framendinn er kominn með hið
sérstaka Renault útlit á grilli.
Afturendinn er nokkuð hár og
afturrúðan mjög stór. Allar lín-
urnar eru mjúkar og ávalar og
billinn sýnist nokkru minni við
fyrstu sýn en hann í raun er.
Skynrænar þurrkur
Innanrýmið, þ.e. sæti og hurð-
arspjöld, eru klædd með myns-
truðu efni. Þar heldur þróunin í
tauáklæðaskreytingum áfram þar
sem frá var horfið í Clio og
Twingo. Létt er yfir öllu og mæla-
borðið er mikil listasmíð. Utvarpið
og segulbandið er innfellt í inn-
réttinguna.
Bætt hefur verið við ýmsum
nýjungum eins og jafnan er gert
í splunkunýjum bílum. í Mégane
er það skemmtilegur búnaður í
tengslum við rúðu-
þurrkurnar sem fara
á letingjastillinguna
þegar stöðvað er t.d.
á rauðu ljósi. Sömu-
leiðis fer afturrúðu-
þurrkan sjálfvirkt af
stað þegar bílnum er
bakkað í rigningu.
1600 rúmsenti-
metra vélin skilar 90
hestöflum og er tölu-
vert vinnslumikil.
Mégane fæst aðeins
með fimm gíra hand-
skiptingu fyrsta kast-
ið. Gírskiptingin er
þægileg og lipur.
Staðalbúnaður í 1600
bílnum er samlitir
stuðarar, líknarbelg-
ur í stýri, útihitamælir í mæla-
borði og rafdrifnar rúður. 1600
bíllinn er þó í dýrasta lagi, kostar
1.498.000 kr., en fyrir þann pen-
ing fá menn lipran og skemmti-
legan bíl sem er ágætlega búinn.
Fimm dyra RN 1400 bíllinn verð-
ur boðinn á 1.298.000 kr. með
fjarstýrðum samlæsingum, út-
varpi/segulbandi með fjarstýr-
ingu og GT útvarpsloftneti. Með
sama búnaði og auk þess samlit-
um stuðurum og álfelgum kostar
hann 1.348.000 kr. ■
Gugu.