Morgunblaðið - 02.04.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 B 3
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Slógum
þær út af
laginu
„VÖRNIN gekk nyög vel lyá
okkur og við náðum að slá
þær útaf laginu. Við tókum
smá áhættu og skiptum um
varnarleik, og það gekk allt
upp. Við náðum 19 fyrstu
stigunum og þær höfðu ekki
skorað eftir rúmar tíu mínút-
ur. Sóknin brást i seinasta
leik en núna gekk hún upp.
Stelpurnar tóku skynsamleg
skot og hittu vel. Ég lagði
upp fyrir leikinn að hafa
bara gaman af þessu og það
gekk eftir,“ sagði Sigurður
Ingimundarson þjálfari
Keflavíkur ánægður með
stelpurnar sínai- að leik lokn-
um.
„Stelpurnar komust ekk-
ert áleiðis gegn vörn Kefla-
víkurliðsins, en þetta er alls
ekki munurhm á liðunum.
Við áttum við veikindi að
stríða, en það útskýrir ekki
endilega þennan ósigur. Við
spiluðum okkar versta leik i
vetur og réðum aUs ekki við
þessa vörn. Við vorum samt
búin að fara í gegnum þenn-
an möguleika fyrir ieikinn,
en þetta gekk ekki. Ég er
samt nyög stoltur af stelpun-
um og óska þeim til ham-
ingju með þennan árangur
um leið og ég óska Keflvík-
ingum tii liamingju með titil-
ixm,“ sagði Óskar Krisíjáns-
son þjálfari KR niðurlútur
eftir leikinn.
Anna María Sveinsdóttir,
fyrirliði Keflvíkinga, var að
vonum ánægð eftir að hafa
hampað bikarnum. „Við
breyttum vörninni og náðum
að slá þær útaf laginu. Við
spiluðum stífa pressuvörn
sem gekk vel. Við hittum
nyög vel og það gekk í raun
allt upp. Við fengum skell á
föstudaginn og spiluðum þá
ekki nógu vel. En þetta var
okkar besti leikur í vetur.“
Keflavík meistari
KEFLAVÍK nældi sér í íslands-
meistaratitil með litlum erfið-
leikum þegar stelpurnar sóttu
KR heim í Hagaskóla á sunnu-
dagskvöldið. Ef körfuboltamenn
í Keflavík hafa verið niðurlútir
eftir ósigur karlaliðsins á sunnu-
daginn komu stelpurnar í veg
fyrir að það yrði langvarandi.
Keflavík átti ekki í minnstu erfið-
leikum og með frábærri vörn og
góðri hittni tryggðu stúlkurnar
sér íslandsmeistaratitil númer
sjö á níu árum og unnu tvöfalt
í sjötta skipti. Keflavíkurstelp-
urnar léku sér að slöku liði KR
og eftir að hafa skorað fyrstu
19 stigin, áttu þær ekki í erfið-
leikum með að klára dæmið og
luku leiknum með 33 stiga mun,
37:70.
Það er óhætt að segja að leikurinn
hafi verið nær einstefna í átt
að körfu KR í fyrri hálfleik. Keflavík-
urstelpurnar spiluðu
2-3 vörn á allan völl-
inn og pressuðu vel.
Sú vörn gekk betur
en besta ævintýri og
þegar 10 mínútur voru liðnar voru
þær komnar með 19 stig á móti engu.
Anna María Sveinsdóttir og Veronika
Cook fóru fyrir Keflavíkurliðinu sem
átti ekki í minnstu erfiðleikum með
að verjast slökum leik KR stelpnanna
sem áttu einn sinn slakasta leik í
vetur. Helga Þorvaldsdóttir braut þó
ísinn þegar hálf ellefta mínúta var
liðin. Stig KR urðu á endanum 11 í
hálfleiknum, og í leik um íslands-
meistaratitil er það of lítið, jafnvel í
handbolta. Keflavíkurstelpurnar
héldu áfram að skora og þegar fyrri
hálfleiknum lauk var munurinn 21
stig Keflavík í vil.
Nýting KR stelpnanna í fyrri hálf-
leik var með því slakara sem sést
hefur og hittu þær aðeins í 3 skotum
af 15 utan af velli og misstu boltann
22 sinnum og náðu honum aðeins 5
sinnum.
Seinni hálfleikurinn var öllu skárri
hjá KR. Það tók ekki nema 6 mínút-
Sindri
Bergmann
Eiðsson
skrifar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Keflavík íslandsmeisfari kvenna 1996
KEFLAVÍKURSTÚLKUR unnu þrefalt í ár; bikar-, deildar- og íslandsmelstarar. í llðinu eru, neðrl
röð frá vinstrl: Lóa Björk Gestsdóttir, Guðlaug Sveinsdóttir, Erla Reynlsdóttlr, BJörg Hafsteins-
dóttlr, Anna María Svelnsdóttir, fyrirliðl og Margrét Sturlaugsdóttlr. Efri röð frá vlnstrl: Ingi-
mundur Guðjónsson, lukkutröll, Sígurður Valgeirsson, liðsstjórl, Inglbjörg Emilsdóttlr, Elín-
borg Herbertsdóttir, Ería Þorstelnsdóttir, Veronica Cook og Sigurður Ingimundarson, þjálfari.
ur að bæta stigaskorið frá fyrri hálf-
leik og náðu þær að laga nýtinguna,
úr 20% í 50%, en vörnin var jafn
galopin og í þeim fyrri. Keflavíkur-
stelpurnar héldu áfram að hitta vel
og áttu ekki í miklum erfiðleikum
með að fá góð færi. Veronika og
Erla Reynisdóttir sem og Anna Mar-
ía sáu um að KR ætti enga mögu-
leika á að minnka bilið milli liðana
og juku muninn í 33 stig áður en
yfir lauk. Lokatölur leiksins 37:70.
Það er óhætt að segja að þetta
hafi verið einn slakasti leikur KR í
vetur og ekki kom hann á besta tíma.
Veikindi tóku sinn toll af liði KR og
áttu fjórar stelpur í liðinu við veik-
indi að stríða, þar af tvær í byijunarl-
iðinu, Guðríður Norðfjörð sem var
með slakasta móti og Kristín Jóns-
dóttir sem gekk einnig illa. Majenica
Rupe, sem þrátt fyrir mörg mistök
verður að teljast besti leikmaður
KR-liðsins í leiknum, gerði 18 stig
og tók 10 fráköst.
Anna María átti góðan leik í liði
Keflavíkur og skoraði 11 stig, tók 7
fráköst og átti 5 stoðsendingar. Ver-
onica átti einnig mjög góðan leik og
gerði 18 stig og tók 11 fráköst og
náði boltanum 7 sinnum.
Keflavíkurstelpurnar eru vel að
titlinum komnar og kórónuðu gott
tímabil sitt með stórsigri. Anna Mar-
ía tók við þriðja bikarnum í vetur
fyrir hönd stelpnanna og kann greini-
lega vel við sig í því hlutverki og
ekkert bendir til þess að þetta verði
hennar síðasti.
í sjöunda sinn
Keflvíkingar voru
rassskelttir
Grindvíkingar jöfnuðu metin í einvíginu
við Keflvíkinga um íslandsmeistaratit-
ilinn í körfuknattleik á sunnudaginn - og
heldur betur. Qftir að hafa
Skúli Unnar tapað fyrsta leiknum á
Sveinsson heimavelli gerðu Grindvík-
skrifar ingar sér lítið fyrir og burst-
uðu Keflvíkinga í Keflavík.
Lokatölur urðu 54:86 eftir að heimamenn
höfðu lagað stöðuna örlítið undir lok leiksins.
Það er skemmst frá því að segja að Kefl-
víkingar léku mjög illa og áttu aldrei mögu-
leika. Hefði hann verið fyrir hendi eyðilögðu
leikmenn hann með stöðugu tuði út í dómar-
ana. Dómararnir voru reyndar mjög slakir,
en engu að síður mun skárri en leikmenn
Keflavíkur. Vörn heimamanna var hræði-
lega léleg. Grissom var sá eini sem reyndi
að beijast og stíga fyrir mótheija sína til
að ná fráköstum. Aðrir í liðinu fylgdust með.
Helgi Jónas og Hjörtur gerðu fyrstu 18
stig Grindvíkinga og fékk sá fyrrnefndi ein-
staklega góðan frið til að skjóta því Guðjón
Skúlason réð ekkert við hann. Eina skiptið
sem Helgi Jónas fann fyrir Guðjóni var
þegar hann fékk hressilegt olnbogaskot er
boltinn var víðsijarri. Helgi Jónas lá eftir
en hafði vit á að láta þetta ekki fara í skap-
ið á sér, heldur einbeitti sér að leiknum.
Kynningin á liði Keflvíkinga, með ljósa-
sýningu og reyk, var það eina sem var í
lagi að þessu sinni hjá Keflvíkingum. Allt
annað brást. Sóknin var mjög vandræðaleg
gegn svæðisvörn gestanna, sem skiptu end-
rum og sinnum í maður á mann.
Þrátt fyrir allt var munurinn í leikhléi
aðeins 11 stig og heimamenn komu honum
niður í 6 stig í upphafi þess síðari, 35:41.
Þá kom einn hræðilegasti kafli, sem sést
hefur hér á landi hjá einu liði og stóð í átta
mínútur. Gestirnir gerðu 38 stig gegn fjór-
um stigum Keflvíkinga - munurinn orðinn
40 stig. Keflvíkingar hefðu mátt skipta
ungu strákunum inná fyrr til að leyfa þeim
að spreyta sig og hvíla lykilmenn meira.
Leikur liðsins gat vart versnað þó ungu
strákarnir fengju að prófa.
Svæðisvörn Grindvíkinga gekk vel, enda
gerðu Keflvíkingar aðeins 27 stig í hvorum
hálfleik. Hjörtur var sterkur í sókninni og
stjórnaði leik liðsins af festu. Helgi Jónas
hitti vel og raunar léku flestir þokkalega,
en það var fyrst og fremst vörn Grindvík-
inga sem var sterk.
24 Villur 9
Morgunblaðið/Einar Falur
RODNEY Dobard tekur hér boltann af Guðjóni
Skúlasyni sem ætlaðl sér að leggja knöttlnn {
körfuna.
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1996
Annar leikur liðanna iúrslitunum,
leikinn i Keflavik31. mars 1996
KEFLAVÍK NJARÐVÍK
•———mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmrn
54 Stig 86
0/0 Víti 22/34
6/21 3ja stiga 8/24
m
39 Fráköst 43
25 (vatiBjáJ. 32
14 (sóknar) 11
6 Bolta néð 11
16 Bolta tapað 12
14 Stoðsendingar 14