Morgunblaðið - 02.04.1996, Síða 8
mam
SBOBBBBBH
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Fowler óstöðvandi
isitSÍSI
Reuter
ROBBIE Fowler, framherjlnn ungl og stórhættulegl hjá Llverpool, kann grelnllega vel vló slg
á Old Trafford. Hér fagnar hann fyrra markl sínu gegn Aston Vllla á sunnudaginn.
FOLK
DRAUMUR flestra unnenda
ensku knattspyrnunnar rættist á
sunnudag er Manchester Un-
ited og Liverpool komust í úrslit
bikarkeppninnar. Þetta eru tvö
af bestu liðum landsins og Ijóst
að um sannkallaðan stórslag
verður að ræða á Wembley 11.
maf þegar úrslitaleikurinn fer
fram. Leikmenn Chelsea og As-
ton Villa urðu að bíta í það súra
epli að falla við síðustu hindrun
fyrir úrslitaleikinn, og verða
sigrar stórliðanna að teljast
sanngjarnir þó svo Chelsea hafi
fengið góð marktækifæri gegn
United og munurinn hafi verið
of stór miðað við gang leiks Li-
verpool og Villa.
Manchester United hefur nú
ekki tapað í síðustu 15 leikj-
um, síðan 1. janúar og liðið á mögu-
leika á tvennunni eftirsóttu: að sigra
bæði í deildar- og bikarkeppni. Un-
ited er komið í úrslit bikarkeppninnar
þriðja árið í röð og er einungis þriðja
liðið á þessari öld til að afreka það.
Vörn United var ekki eins og alla
jafna; bakvörðurinn Denis Irwin og
miðverðirnir Steve Bruce og Gary
Pallister voru allir illa fjarri góðu
gamni vegna meiðsla. David May og
Gary Neville voru ekki sannfærandi
sem miðvarðarpar í byrjun og
Chelsea var tvívegis nálægt því að
skora. Litlu munaði reyndar að David
Beckham kæmi United yfir eftir
fimm mín. er skot hans úr teignum
small í stönginni en síðan tók Chelsea
völdin. Aðeins munaði millimetrum
að Steve Clarke skoraði er gott skot
hans smaug framhjá markinu og
varnarmaðurinn Michael Duberry
þrumaði svo í neðanverða þverslána
en þaðan hrökk knötturinn út.
Það kom því ekki á óvart er
Chelsea náði forystu á 11. mín.
Mark Hughes, sem varð þrívegis bik-
armeistari með Man. Utd. - síðast
1994 er hann skoraði í úrslitaleiknum
- braust upp vinstri kantinn og sendi
glæsilega fyrir mark fyrrum félaga
sinna, þar var Ruud Gullitt kominn
og Hollendingurinn skallaði örugg-
lega í netið.
Eric Cantona var óheppinn að
jafna ekki rétt fyrir hlé er gott skot
hans utan teigs fór í stöngina. Un-
ited náði sér annars ekki á strik fyr-
ir hlé en í seinni hálfleik var allt
annað uppi á teningnum. Andy Cole
jafnaði á 55. mín. - rak stóru tána
í knöttinn andartaki áður en hann
sveif yfir marklínuna eftir glæsilegan
skalla Cantonas og þremur mín. síð-
ar gerði áðurnefndur Beckham sigur-
markið eftir hroðaleg mistök í liði
Chelsea. Miðvallarleikmaðurinn Cra-
ig Burly, sem annars lék mjög vel,
vann knöttinn á miðjum eigin vallar-
helmingi og hugðist senda til baka
á Hitchcock markvörð. Sendingin var
hins vegar ónákvæm, fór rakleiðis
til Beckhams sem var á auðum sjó
og þakkaði kærlega fyrir sig með
því að skora framhjá Hitchcock sem
kom á móti.
Eftir að Chelsea hafði lent undir
var alltaf á brattann að sækja hjá
leikmönnum liðsins. Þeir fengu þó
ákjósanleg færi á að skora en Peter
Schmeichel, hinn danski markvörður
United, var í miklum ham eins og
venjulega. Varði vel þegar á þurfti
að halda og aðeins einu sinni missti
hann af knettinum; fast skot John
Spencers fór framhjá honum og
stefndi í markið en þá var Eric Can-
tona kominn til baka og skallaði ör-
ugglega frá af marklínu!
„Þetta er besti undanúrslitaleikur
síðan ég kom til United. Ég held að
sigurinn hafí verið verðskuldaður.
Ruud Gullit setti okkur í smá vand-
ræði í fyrri hálfleik en í síðari hálf-
leik vorum við betri,“ sagði Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri United.
Glæsileg mörk Fowlers
Robbie Fowler, framheijinn ungi
og stórhættulegi hjá Liverpool, kann
greinilega vel við sig á Old Trafford,
leikvangi Manchester United. Hann
gerði tvö frábær mörk gegn United
í deildinni fyrr í vetur og á sunnudag
voru tvö stórglæsileg mörk hans
hápunktar leiks Liverpool og Aston
Villa. „Everton kom með bikarinn til
Liverpool í fyrra og nú ætlum við
halda honum þar en færa hann yfir
á Anfíeld," sagði Fowler.
Fowler kom Liverpool á bragðið
strax á 16. mín. Jamie Redknapp,
sem hefur lengi verið meiddur og var
nú í byijunarliðinu í fyrsta skipti í
fimm mánuði, tók aukaspyrnu frá
hægri, Fowler kastaði sér fram í
teignum og skallaði glæsilega neðst
í markhornið íjær.
Leikurinn var lengstum ekki sér-
lega skemmtilegur á að horfa, Liv-
erpool hörfaði og gaf Aston Villa
eftir stór svæði á vellinum en treysti
á skyndisóknir. Villa lék vel á kafla
í fyrri hálfleik, skapaði þá ágæt færi
en tókst ekki að skora, og þegar á
leið var eins og leikur liðsins fjaraði
út. Undir lokin gulltryggði Liverpool
svo sigurinn með tveimur mörkum.
Fyrst skoraði Fowler á 86. mín. með
glæsilegu vinstri fótar skoti utan úr
teig; eftir aukaspyrnu Redknapps frá
vinstri skallaði varnarmaður frá,
Fowler tók knöttinn á bijóstið og
skaut viðstöðulaust með vinstra fæti
í stöngina fjær og inn. Hann hefur
þar með gert 33 mörk í vetur.
Jason McAteer gerði svo þriðja
markið á 90. og síðustu mínútu:
Steve McManaman lék upp vinstri
kantinn, inn á teig og renndi á
McAteer sem var fyrir opnu marki
og gat ekki annað en skorað.
Villa, sem sigraði í deildarbikar-
keppninni með 3:0 sigri á Leeds á
Wembley um fyrri helgi, var talsvert
með knöttinn í leiknum um helgina
og skapaði sér þokkaleg færi en sig-
ur Liverpool var þó sanngjam. „Við
lékum vel í 80 mínútur en seinna
markið var rothöggið," sagði Brian
Little, knattspymustjóri Villa, og
bætti við að lið hans hafí ekki náð
að skora í þremur leikjum gegn Li-
verpool í vetur.
■ GARRY Flitcroft, sem Black-
burn keypti frá Man. City á 3,2
millj. punda í sl. viku, var rekinn
af leikvelli í sínum fyrsta leik —
eftir aðeins þijár mín. gegn Ever-
ton fyrir ofsafengna hegðun.
■ GRAHAM Kavanagh tryggði
Middlesbrough sinn fyrsta sigur
frá 23. desember, með marki úr .
vítaspyrnu gegn Leeds, 1:0. Gary
McAllister misnotaði vítaspyrnu
fyrir Leeds.
■ JOHN Lukic, markvörður Le-
eds, meiddist í seinni hálfleik og tók
varnarmaðurinn Lucas Radebe frá
S-Afríku stöðu hans.
■ NIALL Quinn skoraði eftir að-
eins 80 sek. gegn Bolton, sem náði
að jafna með marki John McGinlay.
Guðni Bergsson lék vel með Bol- ;J
ton.
■ BARCELONA nálgast Atletico
Madrid á toppnum á Spáni með
hveijum leik. Heppnin var með
Barcelona gegn Albacete — sig-
urmarkið skoraði Oscar Garcia.
Atletico Madrid tapaði fyrir Real
Madrid, 1:2. Michael Laudrup
skoraði sigurmark Real Madrid.
Átta umferðir eru eftir og á
Atletico eftir að sækja Barcelona
heim á Nou Camp 20. apríl.
■ ALLY McCoist skoraði þrennu
fyrir Glasgow Rangers gegn Raith
Rovers, 4:2.
■ HOLLENSKI markvörðurinn
Theo Snelders, sem Rangers
keypti frá Aberdeen á 200 þús. 1
pund, lék sinn fyrsta leik með liðinu.
■ PORTÚGALSKI landsliðsmað-
urinn Jorge Cadete, sem Celtic
Keypti frá Sporting Lissabon, lék
sinn fyrsta leik gegn Aberdeen í
gærkvöldi, 5:0. Cadete skoraði
fimmta markið, aðeins þremur mín.
eftir að hann kom inná sem vara-
maður, við mikinn fögnuð 25.994
áhorfenda.
■ ROMARIO skoraði fimm mörk
fyrir Flamengo gegn Olaria, 6:2 í
Brasilíu.
■ ANDY Möller byijar að æfa
fyrr með Dortmund en fyrirhugað
var — meiðsli hans, liðbönd á fæti
tognuðu, eru ekki eins alvarleg og
talið var í fyrstu. Sagt var í sl. viku,
að hann yrði sex vikur frá æfingum
og keppni, nú er ljóst að hann fari
að æfa á næstu dögum og leiki með
gegnKöln 9. apríl.
■ JOHANN Cruyff, þjálfari Barc-
elona, sagði í gær að hann yrði
áfram á Spáni — væri ekki að ger-
ast þjálfari Bayern Miinchen, eins
og orðrómur hefur verið um. „Það
er skemmtilegt að vera orðaður við
lið eins og Bayern," sagði Cruyff.
■ CRUYFF sagði einnig, að hann
hafi ekki áhuga á að taka við hol-
lenska landsliðinu. „Ég tel að ég
sé ekki rétti maðurinn fyrir það
starf. Ég er þjálfari, sem vill um-
gangast leikmenn sína daglega."
Bayem lagði Dortmund
Bayern Múnchen skaust upp í
efsta sæti þýsku deildarinnar
með l:0-sigri á Dortmund um helg-
ina. Það var þýski landsliðsmaðurinn
Mehmet Scholl sem gerði sigurmark-
ið á 38. mínútu og var það einkar
glsæislegt — skot utan vítateigs
hægra megin af 20 metra færi og
boltinn sveif í fjærhornið. „Þetta
átti að vera fyrirgjöf," sagði Scholl
um markið.
Bayern hefur nú tveggja stiga
forskot á Dortmund þegar níu um-
ferðir eru eftir en Dortmund á einn
leik til góða. Leikur Bayern þótti
ekki góður en engu að síður var sigur-
inn mikilvægur því tap á heimavelli
hefði þýtt að möguleikar á meistarat-
itlinum hefðu orðið mun minni. Papin
lék með Bayern og virkaði nokkuð
frískur og eins átti Lothar Matthaus
góðan leik. Klinsmann fann sig hins
vegar ekki og var daufur.
Eftir leikinn sló Scholl svissneska
landsliðsmanninn hjá Dortmund
Stephane Chapuisat því hann hafði
eitthvað verið að ergja hann á vellin-
um. Scholl gæti átt yfir höfði sér
allt að átta vikna keppnisbann. „Það
er slæmt þegar leikmenn eins og
Scholl missa stjórn á skapi sínu.
Hann er frábær leikmaður en á enn
mikið eftir ólært. Ef hann ætlar sér
að vera leikmaður á heimsmæli-
kvarða þarf hann að læra að stilla
skap sitt, bæði innan vallar sem
utan,“ sagði Otto Rehhagel, þjálfari
Dortmund.
Gladbach van Frankfurt 2:0 og
er í þriðja sæti, 10 stigum á eftir
Bayern. Það er því ljóst að keppnin
um meistaratitilinn stendur á milli
Bayern og Dortmund. Eftir leikinn
var Karl-Heinz Körbel rekinn sem
þjálfari Frankfurt en við starfi hans
tekur fyrrum þjálfari liðsins, Serbin
Dragoslav Stepanovic, sem var rek-
inn frá spænska liðinu Athletic
Bilbao fyrir tveimur vikum. Það
verður hlutverk hans að bjarga liðinu
frá falli.
Tímamófaleikur
hjá Baresi
Leikm'enn AC Milan heldur sínu
striki á toppi ítölsku deildarinn-
ar. Á sunnudaginn lögðu þeir Piac-
enza að velli, 2:1. Leikurinn markaði
tímamót á ferli fyrirliða AC Milan,
Franco Baresi. Hann lék þarna sinn
500. deildarleik með félaginu sem
hann hefur verið hjá allan sinn feril.
Það var lítill meistarabragur á leik-
mönnum Juventus er þeir mættu
Parma. Þó tókst þeim að sigra með
marki Del Piero eftir skelfíleg mistök
markvarðar Parma, Luca Bucci.
Giuseppi Signori hlaut ekki_ náð
fyrir augum landsliðsþjálfara Itala,
Árrigo Sacchi, í síðustu viku er hann
kallaði saman landsliðshóp til æfinga.
En hann lét það ekki á sig fá og
skoraði öll þijú mörk Lazio í sigri á
Vicenza á Olympíuleikvanginum í
Rómaborg, 3:0.
Inter Milan hefur verið að sækja
í sig veðrið upp á síðkastið varð að
játa sig sigrað á heimavelli gegn Fior-
entina, 1:2.