Morgunblaðið - 13.04.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
ilforgiutltfafeifc
D
1996
LAUGARDAGUR 13. APRIL
BLAD
Formannskjör í HSÍ
Rætt við Asgerði
og Guðmund
ÓLAFUR B. Schram hefur ákveðiö að hætta sem
formaður Handkuattleikssambands íslands á árs-
þingi þess í vor og hefur uppstillinganefnd þegar
rætt við tvo forystumenn sem þykja koma til
greina sem eftirmenn Ólafs. Það eru Ásgerður
Halldórsdóttir og Guðmundur Ingvarsson.
Ásgerður er fyrrverandi formaður Gróttu á
Seltjarnarnesi, hefur setið í stjórn handknattleiks-
deildar félagsins og á nú sæti í stjórn HSÍ. Guð-
mundur er núverandi formaður landsliðsnefndar
sambandsins. Ásgerðiu- og Guðmundur munu
bæði hafa tekið jákvætt í málaleitan uppstiilinga-
nefndar.
Páll Gislason, formaður handknattleiksdeildar
Gróttu, er formaður uppstillinganefndar HSÍ, en
með honura í nefndinni eru Jón Auðunn Jónsson
formaður handknattleiksdeildar FH og Pálmi
Kristinsson frá Víkingi.
VELSLEÐAR
Verður
íslands-
mótið
haldið á
Langjökli?
KEPPNI til íslandsmeistara í
véjsleðaakstri, sem átti að vera
á Ólafsfirði um helgina, hefur
verið frestað vegna snjóleysis.
Snjónum hefur rignt burt að
mestu og sá sem eftir er þykir
of krapakenndur fyrir vélsleða-
keppni. Hugsanlegt er að
keppni sem halda átti á ísafirði
síðar í mánuðinum verði einnig
frestað af sömu ástæðu.
Fátt er til ráða ef mótunum er
frestað, því þau eiga bæði að
gilda til íslandsmeistara í vélsleða-
akstri. Til að íslandsmótið sé lög-
legt verður að halda þrjú mót á
keppnistímabilinu, en aðeins eitt
hefur þegar farið fram, í Bláfjöllum.
Snjór finnst helst í nágrenni jökla
þessa dagana og því hefur sú hug-
mynd komið upp að halda íslands-
mótið á Langjökli, jafnvel tvær
umferðir á 3-4 dögum. Að öðrum
kosti verða ekki krýndir íslands-
meistara í vélsleðaakstri á þessu ári.
„Við erum að skoða þennan
möguleika, að halda mótið á Lang-
jökli og gista í Húsafelli i nokkra
daga. Þetta er spurning um hvort
hægt er að flytja allan tækjakost
upp á jökulinn. Þetta væri skemmti-
leg nýjung og gæti þess vegna orð-
ið framhald á þessu, ef vel tekst
til,“ sagði Bragi, Bragasson, fram-
kvæmdastjóri Landsambands ís-
lenskra akstursíþróttafélaga, í sam-
tali við Morgunblaðið. Ákvörðun um
þetta mál verður tekin í næstu viku.
Pétur skoraði
SKIÐI
Morgunblaðið/Kristján
Tvöfalt hjá ísfirdingum
ÍSFIRÐINGAR fögnuðu slgri í stórsvigi karla og kvenna á Alþjóðlegu skíðamótl
í Hlíðarfjalli vlð Akureyri í gær. Arnór Gunnarsson sigraðl í karlaflokki og Slg-
ríður Þorláksdóttir í kvennaflokki en þau eru hér að lokinni keppnl.
■ Nánar um mótið / B3
FRI vill vinna með
KSÍ að bættri að-
stöðu innanhúss
HELGI Haraldsson, formaður frjálsíþróttasam-
bandsins, hefur sent stjórn knattspyrnusambands-
ins erindi þess efnis að samböndin standi saman
í baráttu fyrir bættri innanhússaðstöðu fyrir báð-
ar íþróttagreinar. „Það er báðum íþróttagreinun-
um mikilvægt að komið verði upp góðri innan-
hússaðstöðu og því tel ég hyggilcgt að við vinnum
saman að þessu markmiði 5 stað þess að hver sé
að kljást, í sínu horni og fái kannski litlu sem
engu framgengt,“ sagði Helgi á fundi með frétta-
mönnum í gær. Hann sagðist ekki hafa fengið
nein viðbröð við erindi sínu enn frá KSÍ, enda
væri stuttur tími liðinn síðan það var sent.
„Bætt aðstaða er okkur lykilatriði og þar tel
ég hagsmuni þessara tveggja sambanda fara sam-
an.“
Ólympíufarar FRÍ æfa
samanytra íjúlí
ÓLYMPÍUFARAR Frjálsíþróttasambandsins
verða saman í æfingabúðum í Athens í Georgíu-
ríki frá 1. júlí og fram að þeim tíma að leikarnir
hefjast tæpum þremur vikum siðar. Jafnvel gæti
svo farið að einhverjir keppendur fari ekki inn
í Ólympíuþorpið fyrr en degi áður en keppni í
þeirra grein hefst. Þetta upplýsti Knútur Óskars-
son, framkvæmdastjóri FRÍ, á fundi með blaða-
mönnum í gær, en þess má geta að einn kepp-
andi íslenska liðsins, Guðrún Arnardóttir, leggur
stund á nám við háskólann í Athens. Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem sá háttur er hafður á að
hafa hópinn saman við æfingar síðustu vikumar
fyrir Ólympíuleika. Kostnaðurinn við búðimar
nemur um einni milljón króna. Gísli Sigurðsson
verður sem kunnugt er þjálfari íslenska fijáls-
íþróttafólksins fram að leikum.
FRJALSIÞROTTIR
Landsliðsmenn í æfingabúð-
ir í Athens í Bandaríkjunum
PÉTUR Marteinsson opnaði
markareikning sinn hjá
Hammarby í fyrrakvöld en
hann gerði annað mark liðsins
í 3:0 sigri gegn Sylvia í átta
liða úrslitum sænsku bikar-
keppninnar. Pétur skoraði sjö
mínútum fyrir leikslok, skaut
úr þvögu eftir homspyrnu.
Hammarby mætir AIK í und-
anúrslitum en AIK vann
Örgryte 2:1 og lagði Rúnar
Kristinsson upp mark Orgryte.
FJÓRIR frjálsíþróttamenn,
þ. á m. Jón Arnar Magnússon
tugþrautarkappi og íþrótta-
maður ársins í fyrra, eru á för-
um til Bandaríkjanna í æfinga-
búðir. Þeir verða tæpar sex vik-
ur ytra og Gísli Sigurðsson
þjálfari verður með í för.
Jón Arnar Magnússon úr Tinda-
stóli, Ólafur Guðmundsson,
HSK, og Theódór Karlsson úr
Smára í Skagafirði, sem allt eru
landsliðsmenn í tugþraut, fara utan
ásamt Atla Guðmundssyni,
stangarstökkvara, sem einnig er
úr Smára. Þeir fara í dag, laugar-
dag, og koma aftur 20. maí. ís-
lenski hópurinn verður við æfingar
í borginni Athens í Georgíuríki,
skammt frá Atlanta, þar sem
Ólympíuleikarnir verða haldnir í
sumar. „Við vorum þarna í fyrra,
þetta er sveitavöllur og mjög þægi-
legt í alla staði að vera þarna,“
sagði Gísli Sigurðsson þjálfari við
Morgunblaðið í gær. Vert er að
geta þess að Guðrún Arnardóttir,
hlaupakona, er við nám í Athens.
Jón Arnar, Ólafur og Theódór
voru allir í landsliðinu sem vann sig
upp í 1. deild Evrópubikarkeppninn-
ar í tugþraut í fyrra. „Segja má
að þetta -sé hálfgerð landsliðsf^rð.
Þessir þrír eru vænlegastir fyrir
Evrópubikarkeppnina, sem verður í
Tallin í Eistlandi um miðjan júní,
en þar fyrir utan eru þrír einstakl-
ingar, Auðunn Guðjónsson, Friðgeir
Halldórsson og Þórður Þórðarson
sem bítast um fjórða sætið fyrir
Evrópubikarkeppina," sagði Gísli.
Þjálfarinn segir Ólaf í mikilli
framför í þrautinni og segist eiga
von á að hann og Theodór bæti sig
mikið á næstu mánuðum. Gísli sagði
Ólaf myndu keppa í tugþraut í
Bandaríkjaferðinni, á móti sem
verður í Fairfax í Virginíu í byijun
maí.
Hópurinn kemur heim 20. maí
sem fyrr segir og strax helgina á
eftir keppir Jón Arnar á hinu árlega
tugþrautarmóti í Götzis í Austur-
ríki.
HANDKNATTLEIKUR: VIGGÓ í ÆFINGABÚÐIR MEÐ RÚSSUM / C4