Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 3
2 D LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
+
FJARMAL IÞROTTAHREYFINGARIIMNAR
Svafyfir
sigog
setti vall-
armet
BRETINN David Carter setti
glæsilegt vallarmet á Royal
Mougins golfvellinum í Cann-
es í Frakklandi i gær. Carter
lék völlinn á níu höggum
undir pari, kom inn á 62
höggum. Það merkilega við
þetta glæsilega met er að
hann svaf yfir sig og mætti
ekki á völlinn fyrr en hálfri
klukkustund áður en hann
átti að mæta á teig. Þetta
virtist hafa góð áhrif á kapp-
ann því hann fékk 10 fugla
á hringnum og hefði í raun
getað gert betur því hann
þrípúttaði eina braut og varð
að sætta sig við par á siðustu
holunni, sem er par fimm.
Þett® er besti árangur Cart-
ers og hann bætti vallarmetið
um tvö högg og þetta er jafn-
framt lægsta skor sem kylf-
ingur hefur náð á evrópsku
mótaröðinni í ár.
Papin
virðist
vera ráð-
villtur
FRÉTTIR um franska knatt-
spyrnukappann Jean-Pierre
Papin hjá Bayern MUnchen
taka á sig nýja mynd á hverj-
um degi. Fyrir stuttu vildi
hann fara frá Bayern, var á
leið til Newcastle, síðan
Manchester United og þá
komu fréttir að hann myndi
verða áfram hjá Bæjurum —
á rúmri viku var hann búinn
að fara fram og aftur yfir
Ermarsundið, ekki einu
sinni, heldur tvisvar. Aftur
er Papin kominn á flakk,
franska blaðið l’Equipe sagði
frá því í gær, að þessi kunni
Ieðurtuðrusparkari hafi hug
á að snúa heim og vonast til
að Ieika með Montpellier
næsta keppnistímabil. Þá
hefur hann einnig verið orð-
aður við Marseille.
22 áhorf-
endur
mættu
BRASILÍUMENN kalla ekki
allt ömmu sína þegar um
knattspyrnu er að ræða. Það
var ekki boðið upp á sam-
badans í Rio de Janeiro í vik-
unni, þegar meistaraliðið
Fluminense tók á móti Volta
Redonda í Ríó-deildinni, 1:0.
Aðeins 22 áhorfendur mættu
á leikinn, greiddu samtals
14.520 ísl. kr. í aðgangseyri.
Ástæðan fyrir þessu var að
stuðningsmenn liðsins láta
ekki bjóða sér upp á allt—
þeir mæta á völlinn til að
skemmta sér. Eftir að Flum-
inense hafði tapað tveimur
leikjum í röð, fengið á sig
átta mörk, sögðu stuðnings-
mennirnir; hingað og ekki
lengra. Þeir töldu tímanum
betur varið í annað en horfa
á leikmenn liðsins reyna að
leika knattspyrnu.
Gjaldþrot
félaga
blasir við
Fjárhagsstaða íslensku íþróttahreyf-
ingarinnar hefur verið í brennidepli
undanfarin misseri. Umsvif sérsambanda
ISI eru mismikil og staða þeirra ólík.
Velta Knattspyrnusambandsins er lang-
mest og það stendur á traustasta grunn-
inum en rekstur margra annarra sam-
banda byggist fyrst og fremst á út-
breiðslustyrkjum ISÍ og tekjum af Lottói.
Samanburður á reikningum sérsamband-
anna bendir til þess að staða Handknatt-
leikssambandsins sé sýnu verst en áber-
andi er að veltan er víða lítil miðað við
veltu félaganna. Reikningsárið 1. nóvem-
ber 1993 til 31. október 1994 var rekstr-
arkostnaður KSÍ 137,8 millj. kr., tekjur
141,1 millj. kr. og höfuðstóll jákvæður
um 49,6 millj. kr. Samsvarandi tölur hjá
HSÍ 1. maí 1993 til 30. apríl 1994 voru
52,4 millj. kr. í kostnað, 66,7 millj. kr.
tekjur og höfuðstóll neikvæður um 13
millj. kr.
Samkvæmt úttekt íþróttabandalags
Reykjavíkur á fjárhagsstöðu hverfafé-
laganna 1990 til 1994 námu skuldir
þeirra 614 milljónum kr. í lok starfsárs-
ins 1993 til 1994 og peningaleg staða
þeirra var neikvæð um 350 millj. króna.
Áhyggjur
Á íþróttaþingi ÍSÍ í október 1994 var
samþykkt ályktun þar sem lýst var yfir
áhyggjum vegna slæmrar fjárhagsstöðu
margra íþróttafélaga og sambandsaðila.
Þingið taldi nauðsynlegt að láta gera
ítarlega úttekt á málunum og í ársbyijun
1995 var skipuð nefnd til að fylgja álykt-
uninni eftir. Magnús Oddsson, varafor-
seti ÍSÍ, var skipaður formaður nefndar-
innar en með honum þeir Logi Kristjáns-
son, forstöðumaður tölvudeildar Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og formað-
ur Breiðabliks, Sveinn Jónsson, löggiltur
endurskoðandi og fyrrverandi formaður
KR, og Valdimar L. Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Aftureldingar. Stefáp
Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ,
starfaði með nefndinni.
Félög í efstu deildum karia
I skýrslu nefndarinnar kemur fram
að úttekt á fjármálum íþróttahreyfingar-
innar sé mjög viðamikið verkefni og því
hafi hún takmarkað athugun sína við
félög eða deildir félaga með lið í efstu
deild karla í knattspyrnu, handknattleik
og körfuknattleik. Nefndin byggði sam-
antektina á starfsskýrslum ISÍ 1994,
skoðaði sérstaklega peningalega stöðu í
árslok 1994 og miðaði við stöðu veltu-
fjármuna að frádregnum skammtíma-
og langtímaskuldum. Peningaleg staða
er jákvæð ef veltufjármunir eru hærri
en allar skuldir en neikvæð ef skuldirnar
eru hærri en veltufjármunirnir. Neikvæð-
ur mismunur merkir að viðkomandi geta
ekki greitt_ skuldir sínar við óbreyttar
forsendur. í úttektinni var ekki tekið til-
lit til mannvirkja, áhalda eða tækja, sem
félögin nota í daglegum rekstri, til að
fá sem gleggstar upplýsingar um getu
þeirra til að standa við skuldbindingarn-
ar og annast áframhaldandi rekstur
íþróttastarfsins.
Staðan best í knattspymunni
Fram kom að peningaleg staða deild-
anna var almennt slæm þó að ljósir
punktar væru inni á milli. Staða ein-
stakra deilda var afar mismunandi sem
og möguleikar þeirra til tekjuöflunar,
greiðslu skulda og áframhaldandi rekstr-
ar en í heildina var ástandið best í knatt-
spyrnunni. Tvö félög eða deildir voru
með 40 til 50 millj. kr. veltu, eitt félag
*
A sambandsstjómar-
fundi íþróttasambands
íslands í gær var meðal
annars lögð fram
skýrsla nefndar um fjár-
mál íþróttahreyfingar-
innar en peningaleg
staða liða í efstu deild
karla í knattspymu,
handknattleik og körfu-
knattleik í árslok 1994
var skoðuð. Steinþór
Guðbjartsson var á
fundinum og fékk stað-
fest að mörg félög og
margar deildir eru í raun
gjaldþrota.
eða deild með 30 til 40 millj. kr. veltu,
tvö félög eða deildir með 20 til 30 millj.
kr. veltu og fímm félög eða deildir með
10 til 20 millj. kr. veltu. Velta félaganna
10 var samtals um 250 millj. kr.
Sú deild sem stóð best var með já-
kvæða stöðu upp á 2,7 millj. kr. en á
hinum endanum var staða deildar nei-
kvæð um 16,6 millj. kr. Að meðaltali var
staða deildanna neikvæð um 7 millj. kr.
og alls um liðlega 70 milljónir.
Þrot blasir við
Staða allra 12 handknattleiksdeild-
anna var neikvæð, frá 2,1 millj. kr. til
18.,5 millj. kr., og samtals um 81,3 millj.
kr. Veltan var samtals tæplega 167 millj.
kr. og skiptist þannig að eitt félag eða
deild var með 20 til 30 millj. kr. veltu,
sjö félög eða deildir með 10 til 20 millj.
kr. veltu og fjögur félög með innan við
10 millj. kr. veltu.
Ámóta staða var í körfuknattleiknum
og í handknattleiknum. Peningaleg staða
allra 12 úrvalsdeildarfélaganna var nei-
kvæð, frá 1,2 millj. kr. til 8,9 millj. kr.,
og samtals um 51 millj. kr. Fimm félög
eða deildir voru með 10 til 20 millj. kr.
veltu og sjö félög eða deildir með innan
við 10 millj. kr. veltu.
Greiðsluerfiðleikar félaganna í hand-
knattleik og körfuknattleik voru mjög
miklir og „álíta má að víða blasi við
þrot,“ eins og stendur í skýrslunni.
í niðurstöðum skýrslunnar segir að
fjárhagsleg staða einstakra deilda og
félaga innan umræddra þriggja íþrótta-
greina hafi verið afar erfið í árslok 1994
og engar vísbendingar séu um að fjár-
hagsstaðan hafi almennt batnað 1995.
„Mörg félaganna eða deildanna eru í
raun gjaldþrota og er einungis haldið
gangandi með góðvilja kröfuhafa. Ætla
má að margir stjórnarmanna séu í um-
talsverðum persónulegum ábyrgðum.
Einnig er spurning á hvern hátt eða
hvort aðalstjórnir félaganna séu ábyrgar
fyrir skuldum og skuldbindingum deild-
anna.“
1. DEILDIN I KNATTSPYRNU 199
Rekstur félaga
60 milljónir kr. ---
55
Rekstur félaga Peningaleg staða
Lið Tekjur, þús. kr. Gjöld, þús. kr. Afkoma, þús. kr. Lið Veltufé, Skuldir, þús. kr. þús. kr. Mism., þús. kr.
A 48.054 -41.858 6.196 A 16.051 -18.644 -2.593
B 43.704 -56.702 -12.999 B 15.058 -12.397 2.661
C 30.345 -28.829 1.515 C 7.343 -13.647 -6.305
D 28.977 -28.903 74 D 7.052 -17.002 -9.950
E 26.936 -32.330 -5.394 E 5.033 -21.592 -16.559
F 17.459 -18.444 -985 F 3.540 -15.397 -11.857
G 14.479 -16.209 -1.730 G 2.705 -18.163 -15.457
H 14.477 -14.845 -367 H 1.965 -10.353 -8.388
1 13.996 -19.190 -5.193 I 1.517 -4.430 -2.914
J 11.978 -15.468 -3.490 J 1.127 0 1.127
Samtals 250.405 -272.778 -22.373 Samtals 61.391 -131.625 -70.235
Meðaltal 25.041 -27.278 -2.237 Meðaltal 6.139 -13.163 -7.023
Peningaleg staða
1. DEILDIN í HANDKNATTLEIK 199
Rekstur félaga
Lið
Tekjur, Gjöld,
þús. kr. þús. kr.
Afkoma,
þús. kr.
Peningaleg staða
Lið
Veltufé,
þús. kr.
Skuldir,
þús. kr.
Mism.,
þús. kr.
Rekstur félaga
30 milljónir kr.
25
20
pTekjur
A 29.153 -24.685 4.468 A 1.213 -3.267 -2.054
B 19.984 -20.605 -620 B 236 -2.316 -2.080
C 18.801 -17.137 1.664 C 0 -2.629 -2.629
D 18.166 -17.951 214 D 109 -3.426 -3.317
E 15.945 -17.045 -1.100 E 1.136 -5.875 -4.739
F 14.706 -17.073 -2.367 F 857 -5.637 -4.780
G 14.703 -16.021 -1.318 G 1.291 -7.443 -6.152
H 12.695 -16.899 -4.204 H 1.060 -7.806 -6.745
^ 1 8.963 -9.401 -438 I 1.097 -8.942 -7.845
J 5.114 -6.561 -1.447 J 751 -10.953 -10.202
K 4.417 -5.769 -1.352 K 262 -12.569 -12.307
L 4.101 -3.976 125 L 2.992 -21.454 -18.462
Samtals 166.748 -173.123
Meðaltal 13.869 -14.427
-6.375
-531
Samtals
Meðaltal
11.004
917
-92.317 -81.312
-7.693 -6.776
■De
K L Meðaltal
Peningaleg staða---------------------------------------------------------Miiijónirkr.
ÚRVALSDEILDIN í KÖRFUKNATTLEIK 199
Rekstur félaga
Lið
Tekjur, Gjöld,
þús. kr. þús. kr.
Afkoma,
þús. kr.
Peningaleg staða
I iA Ve*tuíé. Skuldir, Mism.,
þús. kr. þús. kr. þús. kr.
Ffékstur félaga
I ----milljónir kr.
A 29.153 -24.685 4.468 A 1.213 -3.267 -2.054
B 19.984 -20.605 -620 B 236 -2.316 -2.080
C 18.801 -17.137 1.664 C 0 -2.629 -2.629
D 18.166 -17.951 214 D 109 -3.426 -3.317
E 15.945 -17.045 -1.100 E 1.136 -5.875 -4.739
F 14.706 -17.073 -2.367 F 857 -5.637 -4.780
G 14.703 -16.021 -1.318 G 1.291 -7.443 -6.152
H 12.695 -16.899 -4.204 H 1.060 -7.806 -6.745
I 8.963 -9.401 -438 I 1.097 -8.942 -7.845
J 5.114 -6.561 -1.447 J 751 -10.953 -10.202
K 4.417 -5.769 -1.352 K 262 -12.569 -12.307
L 4.101 -3.976 125 L 2.992 -21.454 -18.462
Samtals 166.748 -173.123 -6.375 Samtals 11.004 -92.317 -81.312
Meðaltal 917 -7.693 -6.776
Meðaltal
[=1 1=3 =□ □□
Peningaleg staða
Milljónir kr.
0
-5
-10
/
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 D 3
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
Jordi Cruyff valinn í
hollenska landsliðið
JORDI Cruyff, 22 ára, framvörður
hjá Barcelona, var í gær valinn í
hollenska landsliðið sem leikur vin-
áttuleik gegn Þjóðveijum í Rotterd-
am. Þetta gerist 30 árum eftir að
faðir hans, Johan, klæddist fyrst
landsliðspeysu Hollands, einnig í
Rotterdam — gegn Ungverjum í sept-
ember 1966. Alls lék hann 48 lands-
leiki og skoraði 33 mörk í þeim. Jordi
gat valið um hvort hann léki fyrir
Holland eða Spán, þar sem hann er
einnig með spánskt vegabréf. Hann
hefur gert upp hug sinn og valið
Holland. .
Miklar líkur eru á að Jordi leiki í
byijunarliðinu — taki stöðu Patricks
Kluiverts, sem er meiddur á hné.
Guus Hiddink, þjálfari Hollands, hef-
ur valið tvo aðra nýliða í lið sitt -
John Veldman, varnarleikmann hjá
Spartak í Rotterdam, sem leikur með
Ajax næsta keppnistímabil og Philip
Cocu, miðvallarspilara hjá Eindhov-
en.
Rehhagel kominn I snöruna
BAYERN Munchen hefur verið í
sviðsljósinu á undanförnum árum —
þar er lenska að fýrrverandi leik-
menn liðsins iáti ljós sitt skína. Franz
„Keisari“ Beckenbauer, formaður
félagsins, hefur verið mjög áberandi
RALLAKSTUR
Finni
fremstur
FINNINN Tommi Makinen á
Mitsubishi Lancer vann hið erf-
iða Safarirall í Afríku i byijun
april. Hann hefur nú 40 stig í
keppni ökumanna, Kenneth
Eriksou á Mitsubishi Lancer 23
og Colin McRae á Subaru
Impreza 22. Mitsubishi hefur
97 stig, Subaru 93 og Ford 53.
Safarirailið í Afríku var
3.000 km langt, þar af 1.912
km á sérleiðum. Kenneth Erik-
son náði forystu í byrjun, en
félagi haus hjá Mitsubishi,
Tommi Makinen fylgdi fast á
eftir. Mikil rigning og flóð ollu
vaudræðum í keppninni í byij-
un, en siðan hrjáði mikiil hiti
og þurrir vegir ökumönnum í
síðari hlutanum. Makinen
blómstraði við þessar aðstæður
og kom rúmum tveimur minút-
um á undan Erikson í mark.
Billinn sem þeir aka er 1.230
kg og búinn 300 hestafla vél,
en Mitsubishi keppnisliðið er
staðsett í Þýskalandi.
á því sviði og Paul Breitner einnig,
en hann hefur að undanförnu verið
orðaður við Bayern. Breitner hefur
skrifað greinar í blaðið Bild og verið
óspar að rakka niður Otto Rehhag-
el, þjálfara Bayem, — þolir hann
greinilega ekki. Rehhagel, sem er
virtasti þjálfari Þýskalands og ekki
þekktur fyrir að láta aðra segja sér
fyrir verkum, á ekki sjö dagana sæla
í „ormagryfjunni" í Bæjaralandi. Því
hefur lengi verið haidið fram að hann
verði látinn taka poka sinn eftir þetta
keppnistímabil og það þrátt fyrir að
Bayem verði Þýskalandsmeistari og
UEFA-meistari. „Sigurinn gegn
Barcelona breytir engu um framtíð
Otto Rehhagel hjá Bayern," ritar
Udo Lattek, fyrrnrn þjálfari liðsins í
knattspyrnutímaritið Kicker á
fimmtudaginn og hann segir: „Það
er sama þótt Bayern fagni mörgum
sigrum, verði UEFA-meistari og
Þýskalandsmeistari, framtíð hans í
Bæjaralandi er öll.“ Jiirgen Klins-
mann, miðherji Bayern, segist ekki
trúa því eins og gengi liðsins hafi
verið, að menn séu nú þegar byijað-
ir að ræða um uppstokkanir.
Rehhagel, sem er fastur fyrir og
fylginn sér, hefur ekki viljað tjá sig
um málið — menn sem þekkja hann
vel, segja að hann sé ekki tilbúinn
að skvetta bensíni á eldinn. „Ég
þekki Otto vel, hann hefur lítinn
áhuga á að starfa hjá félagi þar sem
margir vilja leika aðalhlutverkið, eru
alltaf tilbúnir að koma í ljölmiðla tii
að tjá sig um allt og ekkert, skapa
sundrung," var haft eftir leikmanni
sem lengi lék undir stjórn Rehhagels
hjá Werder Bremen.
Fagnar Capello með Milan?
FABIO Capello, þjálfari AC Milan,
sem tekur við þjálfun liðs Real
Madrid næsta keppnistímabil, getur
fagnað sínum fjórða meistaratitli
með Mílanóliðinu á fimm árum, þeg-
ar liðið leikur á útivelli gegn Tórínó
á sunnudaginn. AC Milan er níu stig-
um á undan Juventus þegar fjórar
umferðir eru eftir.
Juventus á erfiðan leik fyrir hönd-
um, gegn Inter í Mílanó. Marcello
Lippi, þjálfari Juventus, hefur viður-
kennt að möguleikarnir á að halda
meistaratitlinum séu litlir, lið sitt
verði að leggja áherslu á annað sæt-
ið. Ekki má gleyma því að Juventus
á möguleika á að vera Evrópumeist-
ari. „Menn mínir eru ekki búnir að
ná sér eftir Evrópuleikinn gegn
Nantes — það var níundi leikur okk-
ar á 24 dögum."
UM HELGINA
Júdó
íslandsmeistaramótið í júdó, karla og
kvenna, fer fram í dag kl. 13.30 í íþrótta-
húsi FB við Austurberg.
Handknattleikur
Laugardagur:
Úrslit kvenna, fimmti leikur:
Ásgarður: Stjarnan - Haukar....15.30
Fimleikar
íslandsmót FSÍ í trompfimleikum fer fram
í dag i íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafn-
arfirði, kl. 14. Einnig verður keppt í ungl-
ingaflokkum á sama stað og hefst keppni
kl. 10.
Knattspyrna
Laugardagur:
Deildarbikar karla:
Akranes: ÍA - Skallagrímur........14.45
Deildarbikar kvenna:
Ásvellir: Breiðablik - ÍBA...........17
Reykjavíkurmót karla:
Laugardalur: KR - Þróttur............17
Leiknisvöllur: Leiknir - Fjölnir..•..17
Sunnudagur:
Deildarbikar kvenna:
Ásvellir: ÍBA - Afturelding..........11
Ásvellir: Valur- Haukar..............13
Reykjavíkurmót karla:
Laugardalur: Fram- Fylkir............17
Laugardalur: Valur- ÍR............20.20
Leiknisvöllur: Víkingur - Ármann..18.30
Léttir - KSÁÁ.....................20.30
Pílukast
Reykjavíkurmótið í pílukasti fer fram f
KR-heimilinu um helgina, laugardag og
sunnudag kl. 13 báða dagana. Úrslita-
keppni í öllum flokkum hefst kl. 16.30
sunnudag.
Skíðaganga
íslandsgangan, skiðatrimm, fer fram við
Strýtu í Hliðarfjalli kl. 14. í dag.
Hlaup
Fjölskylduhlaup Isfugls og Aftureldingar,
sem var frestað á dögunum, fer fram í dag
kl. 13. Hlaupið verður frá iþróttahúsinu að
Varmá.
Heimsmeistarinn á öflugum bíl
LÍKUR eru á að Mitsubishi verksmiðjuliðið sendi þýskan ökumann í alþjóðarallið hérlendis í
haust. Mltsubishi hefur forystu í heimsmeistarakeppni bílaframleiðenda og ökumanna eftlr
sigur í Safari rallinu í Afríku í apríi. Maklnen þeysir hér í frumskóginum í Nairobi.
Heimsmeistari einn þeirra
sem vilja keppa á íslandi
MIKLAR líkur eru á því að fjöldi erlendra keppenda verði í
alþjóðarallinu hérlendis í haust. Meðal þeirra sem sýnt hafa
rallinu áhuga er fyrrverandi heimsmeistari, ítalinn Miki Biasi-
on sem ekið hefurfyrir Ford og Lancia bflaverksmiðjurnar.
Heimsmeistaralið Mitsubishi í Þýskalandi, sem m.a. hefur
unnið tvö mót í heimsmeistaramótinu á þessu ári vinnur að
því að koma til landsins. Yf ir 50 fyrirspurnir hafa borist f rá
erlendum ökumönnum, mörgum vel þekktum frá ýmsum lönd-
um Evrópu.
Mitsubishi liðið, sem keppir í
heimsmeistaramótinu hefur
mikinn áhuga á rallinu og sendir
væntanlega 300 hestafla Lancer,
sem þýska stúlkan Isolde Holde-
reid keppti á í fyrra. „Ákvörðun
um ökumann verður tekinn í næstu
viku, en hann verður líklega þýsk-
ur“, sagði Wolfgang Burgel, um-
boðsaðili þýskra rallökumanna, í
samtali við Morgunblaðið.
Bflamir fluttir með risaþotu
„Ég hef orðið var við mikinn
áhuga manna á að keppa á ís-
landi. Malarvegirnir eru einstakir
og fágætir í Evrópu. Aðalmálið er
að flutningur manna og tækja sé
á viðráðanlegu verði. Það eru
5-600 rallökumenn í Þýskalandi,
100 þeirra hafa alþjóðleg réttindi,
þannig að það eru ýmsir möguleik-
ar í stöðunni. Einn þeirra sem lang-
ar að koma er Gregor Morawitz á
Lancia Delta. Þá erum við að
kanna möguleika á því að koma
með 14 Nissan Micra keppnisbíla
í samvinu við Nissan bílaverksmiðj-
umar. Keppnin á íslandi yrði þá
liður í Nissan Micra meistaramóti,
sem færi einnig fram í Hollandi
og Englandi“, sagði Wolfgang.
Varðandi flutning á Micra rallbíl-
unum hefur verið rætt um að flytja
þá í Boeing 747 flutningaþotu, þar
sem þeir þurfa að komast til Hol-
lands um leið og keppni lýkur.
ítalska liðið Astra, sem hefur
m.a. ítalann Massimo Biasion á
sínum snærum hefur einnig áhuga
á að koma í keppnina. Biasion
varð tvívegis heimsmeistari í rall-
akstri, 1989 og 1990. Liðið er að
reyna finna fjármagn í formi aug-
lýsinga til að komast í keppnina,
en það er staðsett á Ítalíu. Bíll
Biasion er fjórhjóladrifinn 300-400
hestafla Lanca Delta Integrale.