Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HANDKNATTLEIKSMENN ársins, efri röð frá vinstri: Arnar Pétursson, Nína K. Björnsdóttir, Judit Esztergal, Guðmundur Hrafn-
kelsson, Halla María Helgadóttir, Julian Duranona, Patrekur Jóhannesson, Dagur Sigurðsson, Fanney Rúnarsdóttir og Oleg
Titov. Fyrir framan eru, frá vinstri, Ólafur Björn Lárusson, Jón Kristjánsson, Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson. A
neðri myndinni eru þau bestu, Dagur Sigurðsson og Fanney Rúnarsdóttir með viðurkenningar sínar.
Fanney og
Dagur best
Dagur Sigurðsson fyrirliði ís-
landsmeistara Vals í hand-
knattleik karla og Fanney Rúnars-
dóttir, markvörður deildar- og bik-
armeistara Stjörnunnar, voru út-
nefnd bestu leikmenn 1. deildar
karla og kvenna á lokahófi hand-
knattleiksmanna sem fram fór í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á
laugardagskvöldið. Julian Duran-
ona, KA og Halla María Helga-
dóttir, Víkingi, voru valin bestu
sóknarmenn nýliðins tímabils, auk
þess sem þau hlutu viðurkenningu
fyrir að vera markahæst í 1. deild
karla og kvenna. Bestu varnar-
menn ársins voru valin Patrekur
Jóhannesson, KA, og Judit Eszt-
ergal, einn íslandsmeistara Hauka
í kvennahandknattleik. Fanney
Rúnarsdóttir varð einnig fyrir val-
inu sem besti markvörður 1. deild-
ar kvenna en hjá körlunum varð
Guðmundur Hrafnkelsson landsl-
iðsmarkvörður, Val, hlutskarpast-
ur. Eyjamaðurinn Arnar Péturs-
son og Nína K. Björnsdóttir, leik-
maður Stjörnunnar, voru kosin
efnilegustu leikmenn Ieiktíðarinn-
ar. Oleg Titiov úr Fram var út-
nefndur besti leikmaður 2. deildar
karla og upplýst var um að Jakob
Jónsson, þjálfari og leikmaður BÍ,
hefði verið markahæstur leik-
manna 2. deildar.
Þjálfari Íslandsmeistara Vals,
Jón Kristjánsson, varð fyrir valinu,
þjálfari ársins í 1. deild karla og
Olafur Björn Lárusson, þjálfari
deildar- og bikarmeistara kvenna
í Stjömunni, hlaut sams konar
nafnbót í 1. deild kvenna. Þá voru
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson valdir besta dómarapar
landsins þriðja árið í röð.
Afkomendur Váldimars Svein-
björnssonar, sem fyrstur kynnti
handknattleik fyrir íslendingum
upp úr 1920, gáfu bikar í tilefni
af því að sl. sunnudag, 21. apríl,
voru liðin eitt hundrað ár frá fæð-
ingu hans. Bikarinn var afhentur
í hófinu til þess leikmanns er þótti
hafa skarað fram úr á leiktímabil-
inu í 1. deild að mati þjálfara.
Fyrir valinu varð Dagur Sigurðs-
son og afhenti Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari bikarinn fyrir
hönd afkomendanna sem voru á
niðjamóti sama kvöld og útnefn-
ingin fór fram.
KNATTSPYRNA
Rúnar byrjar vel
Gerði sigurmark Örgryte eins og ííyrra,
RÚNAR Kristinsson, landsiiðsmaður íknattspyrnu, byrjaði tíma-
bilið í sænsku úrvalsdeildinni eins og hann gerði ífyrra - með
því að skora sigurmarkið fyrir Örgryte. Rúnar gerði eina mark
leiksins í íslendingaslagnum gegn Örebro á útivelli um helgina.
Rúnar skoraði markið á 73. mín-
útu með skoti úr utanverðum
vítateignum vinstra megin. Hann
■■■■■■■ lagði knöttinn
Grétar hárnákvæmt í nær-
Eyþórsson hornið eftir að hafa
skrifarfrá snúið á tvo varnar-
Eíy/þjóð menn örebro.
Leikurinn var ekki góður og ís-
lendingarnir í liði Örebro, Sigurður
Jónsson, Arnór Guðjohnsen og
Hlynur Birgisson, sem kom inn á
sem varamaður á 62. mínútu; þóttu
ekki sýna neinn stórleik. Orebro
fékk tækifæri til að jafna er liðið
fékk vítaspyrnu á síðustu mínútu
leiksins. Pólveijinn Kubiztal tók
spyrnuna en Bengt Andersson,
núna gegn Örebro
landsliðsmarkvörður Svía, varði.
Rúnar, sem skoraði sigurmarkið
í opnunarleik deildarinnar í fyrra í
2:1 sigri gegn Norköpping, fékk 4
í einkunn af 5 mögulegum í sænska
dagblaðinu GT. Hinir Islendingarnir
fengu tvo í einkunn.
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari,
var meðal áhorfenda í Örebro og
sagði í samtali við Expressen að
hann hefði oft séð íslensku leik-
mennina spila betur en í þessum
leik.
Róbert
með tilboð
„ÉG er með tilboð frá Fred-
enbeck og mun gefa mér
næstu daga til þcss að skoða
það,“ sagði Róbert Sighvats-
son, linumaður úr UMFA en
hann kom í gærkvöidi frá
Þýskaiandi þar sem hann
skoðaði aðstæður hjá Fred-
enbeck. Róbert vildi ekkert
um það segja hvort líkurnar
væru ineiri eða minni að hann
léki með félaginu. Héðinn Gils-
son er einnig með tilboð frá
sama félagi.
Schutterwald hefur einnig
sýnt Róberti áhuga en hann
sagðist ekki hafa heimsótt fé-
lagið, en hann mun verða í
sambandi við það á næstunni.
Haukastúlkuríslan
HAUKASTÚLKUR færðu fé-
lagi sínu veglega gjöf á 65 ára
afmæli þess, þegar þær urðu
íslandsmeistarar í handknatt-
leik eftir mjög dramatíska úr-
slitakeppni. Urslitaorustan
fór fram í Garðabæ á laugar-
daginn ífimmta leik liðanna
og höfðu Hafnfirðingar 18:19
sigur á deildar- og bikar-
meisturum Stjörnunnar. ís-
landsmeisturunum var síðan,
ásamt fjölda stuðningsfólks,
ekið í dráttarvélakerru með
lögreglufylgd frá íþróttahús-
inu í Garðabæ að félagsheim-
ili sínu við Strandgötu og
fögnuðu meira að segja hörð-
ustu FH-ingar engu minna en
Haukarnir. Það eykur enn á
dramað að það eru einmitt
50 ár síðan Haukakonur
hömpuðu íslandsmeistara-
bikarnum - unnu hann síðast
1946.
Ohætt er að segja að þessi úr-
slitakeppni hafi fest kvenna-
handknattleikinn betur í sessi með
óvæntum úrslitum
Stefán og miklum svipting-
Stefánsson um- Eftir tvo fremur
skrifar auðvelda sigra
Stjörnunnar á
Haukastúlkunum í fyrstu úrslita-
leikjunum snerist dæmið algerlega
við með tveimur sigrum Hafnfirð-
inga og taugar liðsmanna sem
stuðningsmanna voru þandar þegar
kom að uppgjörinu á laugardaginn.
í þeim leik náðu Haukastúlkur strax
tveggja marka forystu en það var
mjög mikilvægt því Stjarnan hefur
ekki oft lent í þeirri stöðu í vetur
að þurfa að vinna upp mun. Eftir
mikinn barning tókst Garðbæingum
að minnka forskotið niður í eitt
mark, 8:9, rétt fyrir leikhlé en tvö
mörk Hafnfirðinga í röð og fyrsta
mark eftir hlé, setti aftur mikla
pressu á Stjörnuliðið.
Þegar um tíu mínútur voru eftir
af leiknum og staðan 14:17 var að
duga eða drepast fyrir Garðbæinga
og þeir byijuðu að pressa sóknar-
menn Hauka utar á vellinum.
Árangurinn varð sá að þegar tvær
mínútur voru til leiksloka var stað-
an 17:18. Haukar skora þegar ein
og hálf mínúta er til leiksloka en
Ragnheiður Stephensen minnkar
muninn í 18:19 þegar 45 sekúndur
eru eftir. Haukar misstu boltann í
næstu sókn sinni þegar hálf mínúta
er eftir en tókst með látum að
standa af sér tilraunir Garðbæinga
til að knýja fram framlengingu.
Stjarnan fékk þijá leiki til að
tryggja sér þriðja bikarinn í vetur
en gat það ekki. Á laugardaginn
var að duga eða drepast og stúlk-
urnar virtust gera sér grein fyrir
því og þrátt fyrir taugaspennu örl-
aði á meiri sigurvilja en í tveimur
síðustu leikjum. Hins vegar var
heppnin ekki með þeim, til dæmis
fóru þijú skot í slá fyrir hlé og í
síðari hálfleik gerði íiðið tveimur
mörkum meira en mótheijarnir.
Ragnheiður Stephensen, Guðný
Gunnsteinsdóttir og Herdís Sigur-
bergsdóttir áttu ágætan dag.
Haukar sýndu sem fyrr mikla
baráttu enda á góðri siglingu með
góðan byr í seglin. Stúlkurnar börð-
ust fyrir sínu þó að ekki hefði mátt
miklu muna og undir lokin var far-
ið að draga af þeim. Eins og áður
hefur komið fram, býr Haukaliðið
yfir meiri líkamsstyrk en Stjörn-
ustúlkur og Áuður Hermannsdóttir,
Judit Esztergal og Harpa Melsted
eru ekki auðveldar viðureignar í
vörninni. Stjörnustúlkum tókst að-
eins einu sinni að skora með gegn-
umbroti.
I
i
<