Morgunblaðið - 04.05.1996, Blaðsíða 4
íHóniR
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Draumur
Seattle
rættist
Nær Auxerre
tvöföldu í
Frakklandi
FRANSKA Iiðið Auxerre frá
Búrgundarhéraðinu hefur
tekið stefnuna á að vinna
tvöfaldan sigur, bæði deild
og bikar i Frakklandi, í
fyrsta skipti í sögu félags-
ins. Leikmenn liðsins geta
tekið fyrra skrefið í kvöld
þegar þeir leika gegn 3.
deildarliðinu Nimes á Pare
des Princes í París. Nimes
er fyrsta 3. deildarliðið til
að komast í úrslit í sögu
frönsku bikarkeppninnar.
Liðið hefur slegið út þrjú
I. deildarlið á leið sinni til
Parísar.
Auxerre getur orðið átt-
unda liðið frá seinní heims-
styijöldinni til að vinna tvö-
falt, Marseille gerði það síð-
ast 1989. Ef liðinu tekst
þetta mun það verða mikili
sigur fyrir þjálfarann Guy
Roux, sem hefur verið með
liðið í 35 ár. Leikurinn er
sögulegur fyrir Christian
Perez, Nimes, fyrrum lands-
liðsmann Frakklands, sem
náði ekki að fagna sigri í
bikarúrslitaleik sem leik-
maður með Mónakó og París
St Germain. Pierre Barlagu-
et, þjálfari Nimes, hefur
leikið tvo úrslitaleiki með
liðinu og tapað þeim báðum
- 1958 og 1961.
• Leikurinn verður sýndur
beint á Eurosport kl. 18.
Fær peysu
lan Wrtight
IAN Wright, miðherji Arse-
nal, sem hefur oft lent í úti-
stöðum við dómara og oft
fengið að sjá gula spjaldið.
ætlar að skipta á peysu sinni
við dómarann Keith Cooper,
sem dæmdi sinn síðasta leik
þegar Arsenal lék gegn
Blackburn á dögunum.
að það verður ekki vandamál að
komast að,“ sagði hann. „Ég vil
endilega halda áfram að spila,
en það sem rekur mig áfram er
sigurviljinn, ég vil endilega
vinna. Ég vil leika eins og þeir
[leikmenn Houston] og langar
alls ekki að vera í þessu liði [Lak-
ers] eins og það er núna,“ sagði
Magic.
MEISTARAR Houston Rockets áttu ekki íteljandi
vandræðum með að komast í aðra umferð úrsli-
takeppninnar í NBA-deildinni í körfuknattleik.
Liðið sigraði Lakers 3:1 og sömu sögu er að
segja um Seattle sem lagði Sacramento. Seattle
hefur átt í erfiðleikum undanfarin ár og þrátt
fyrír að vera með eitt af bestu liðunum í deild-
inni hefur gengið illa að komast áfram í úrslita-
keppninni. En það tókst að þessu sinni.
Leikmenn Houston stefna ótrauðir að þriðja meistar-
atitlinum í röð þrátt fyrir að fáir hafí trú á að
þeim takist það. Engu að síður hefur liðið leikið betur
og betur með hveijum leiknum og Lakers, með Magic
Johnson í broddi fylkingar, var engin hindrun fyrir
meistarana, sem mæta Seattle í næstu umferð.
Hakeem Olajuwon gerði 25 stig þegar Rockets vann
Lakers 102:94 og tryggði sér sæti í undanúrslitum
vesturdeildarinnar. Olajuwon, eða „Draumurinn" var
ómetanlegur að vanda. Hann kom Houston yfir 91:81
með fallegu húkkskoti er 6 mínútur voru eftir og þeg-
ar Lakers minnkaði muninn í fímm stig skoraði hann
frá endalínu þegar skotklukkan var að tifa út og varði
síðan skot frá Eiden Campbell. Hann tók 11 fráköst,
átti sjö stoðsendingar, stal knettinum fjórum sinnum
og varði tvívegis skot frá mótheijum sínum. „Vörnin
hefur verið aðal okkar í síðustu tveimur leikjum, sér-
staklega í síðasta leikhlutanum," sagði Olajuwon eftir
sigurinn. „Robert Horry var frábær í kvöld. Hann
barði okkur saman í sókninni, lék frábæra vörn og
gerði gríðarlega mikilvæg stig, sérstaklega þessar tvær
þriggja stiga körfur," bætti hann
við. Horry og Kenny Smith gerðu
hvor um sig 17 stig.
Del Harris, þjálfari Lakers, hafði
Magic á bekknum mikinn hluta
leiksins og meðal annars síðustu sex
mínúturnar. „Hann [Magic] var ekki
í stuði í dag. Okkur vantaði ein-
hvern neista og hann er auðveldara
að fá hjá ungum mönnum,“ sagði
Harris.
Seattle tókst loks að reka af sér
slyðruorðið og komst áfram úr
fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Liðið brá sér til Sacramento og sigr-
aði Kings næsta örugglega, 101:87.
Gary Payton gerði 29 stig, þar af
10 í þriðja leikhluta og hann hitti
úr 4 af 5 þriggja stiga skotum sín-
um. „Ég vildi alls ekki fara heim
til að leika fimmta ieikinn þannig
að ég ákvað að axla meiri ábyrgð
og það gerði ég,“ sagði Payton
ánægður með að vera kominn áfram
í keppninni.
„Ég vissi að við gætum þetta.
Við urðum bara að taka okkur sam-
an í andlitinu eftir tapið í öðrum
leiknum. Það var mjög gott að sigra
þá tvívegis á útivelli," sagði Payton
sem tók 6 fráköst og átti auk þess
fimm stoðsendingar. Shawn Kemp
gerði 23 stig fyrir Seattle og tók 8
fráköst og Detlef Schrempf var með
13 stig, 10 fráköst og níu stoðsend-
ingar.
Lionei Simmons gerði 24 stig
fyrir heimaliðið, Tyus Edney var
með 14 og Brian Grant 13. Mitch
Richmond tognaði þegar rúmar
fimm mínútur voru eftir og lék ekki
meira með og hafði það sín áhrif á
leik liðsins.
Atlanta tókst ekki að gera út um
viðureignina við Indiana Pacers er
Reuter
HOUSTON Rockets átti ekki í erfiðleikum meö Lakers og meistararnir eru
komnir í undanúrsllt. Hér leggur Robert Horry knöttinn í körfu Lakers og
Magic Johnson fylgist með.
liðið kom í heimsókn í fyrrinótt.
Gestirnir sigruðu 83:75 og því þurfa
liðin að mætast fímmta sinni. „Ég
er mjög ánægður, alla vega í nokkra
daga í viðbót," sagði Larry Brown
þjálfari Pacers eftir sigurinn.
Pacers lék án Reggie Miller og
því er sigurinn enn sætari. Það var
fyrst og fremst frábær vörn gest-
anna sem kom heimamönnum í opna
skjöldu, enda skoruðu þeir ekki með
skotum utan teigs í sjö mínútur í
síðasta leikhluta, en þá var skotnýt-
ing liðsins aðeins 22%. Rik Smits
var stigahæstur Pacers með 17 stig
og hann tók 9 fráköst. Derrick
McKey gerði 14 stig, þar af þriggja
stiga körfu er þijár mínútur voru
eftir og Hawks búnir að minnka
muninn í tvö stig. Steve Smith gerði
19 stig fyrir Atlanta og Mookie
Blaylock 17, en leikmenn liðsins
misnotuðu þrettán skot í röð í fjórða
leikhlutanum.
EARVIN „Magic“ Johson var
ekki ánægður í fyrrinótt þegar
Lakers tapaði fyrir Houston
Rockets og féll þar með úr úrsli-
takeppninni. Honum fannst sem
félagar hans í Lakers hefðu ekki
nægilega sterkan sigurvilja og
eins er hann óhress með að fá
ekki að stjórna sóknarleik Lak-
ers, en hann hefur að mestu ver-
ið notaður sem framheiji eftir
að hann kom til liðs við Lakers
á ný í vetur, stöku sinnum settur
í stöðu leikstjórnanda. Eftir leik-
inn sagði hann að fengi hann
ekki stöðu leikstjórnanda á
næsta tímabili gæti vel hugsast
að hann léki með öðru félagi.
„Það eru ein tiu lið sem viija fá
mig sem leikstjórnanda þannig
„Sápuóperan" í Bæjara-
landi tekur á sig nýja mynd
Fréttir úr herbúðum Bayern
Múnchen koma ekki lengur á
óvart, þær taka á sig ýmsar mynd-
ir daglega og menn í Þýskalandi
eru byijaðir að ræða um „Sápuó-
peruna" í Bæjaralandi. Ekki var
liðinn nema dagur frá því að Bay-
em lagði Bordeaux að velli, að
sögur um að leikmenn væru að
fara frá félaginu skutu upp kollin-
um. Glasgow Rangers vill fá
Jiirgen Klinsmann á ný til Bret-
landseyja, Inter Milan hefur áhuga
á svissneska miðvallarspilaranum
Ciriaco Sforza og Feyenoord á
austurríkismanninum Andreas
Herzog, sem hefur einnig verið
orðaður við Werder Bremen, þar
sem hann var áður en hann kom
til Bayern.
Ofan á þetta bætist að þjálfarinn
Otto Rehhagel, sem var látinn fara
frá Bayern á dögunum, segir sitt
álit á ástandinu í Bæjaralandi.
Rehhagel, sem kemur fram í sjón-
varpsþætti á sunnudaginn, sagði í
viðtali við blaðið Bild í gær að
hann hafi unnið gott starf hjá
Bayern Múnchen, sem á nú mögu-
leika að tryggja sér fyrsta Evrópu-
bikarinn í 20 ár. „Ég hefði fagnað
bæði meistaratitli og sigri í UEFA-
keppninni. Ég var ráðinn til Bay-
ern til að gera liðið af einu af toppl-
iðum Evrópu, sem ég og gerði.
Vinnufriðurinn hjá liðinu var ekki
mikill og það var ekki auðvelt að
vinna að ýmsum hlutum. Ég hefði
átt að koma til Bayern með aðstoð-
armann, sem ég vildi hafa, en ekki
láta fyrrum leikmann Bayern,
Klaus Augenthaler, starfa áfram.“
„Ég hef lært mikið á að vera
hjá Bayern og mun ekki láta margt
af því sem þar kom upp, endurtaka
sig. Margt að því sem gerðist í
búningsklefanum er aðhlátursefni.
Margir stjórnarmanna Bayern
þótti sjálfsagt að ráfa þar um með
börnin sín, þannig að það var ekki
friðsælt á stundum sem ég vildi
hafa frið. í framtíðinni mun ég
ákveða hver verður aðstoðarmaður
minn og það verður hans hlutverk
að sjá um að það sé vinnufriður."
„Magic“ óhress hjá Lakers