Morgunblaðið - 12.05.1996, Blaðsíða 3
2 C SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1996 C 3
FERÐALÖG
FERÐALÖG
CAFÉ Kranzler við Kurfiirstendamm, aðalstræti þeirrar
borgar sem áður gekk undir nafninu Vestur-Berlín.
Betri Berlín
í byggingu
FÆRA má fyrir því gild rök að Berlín sé aðeins sjö ára
gömul. Múrinn sem var martröð Austur- Berlínarbúa féll
í nóvember 1989 og íbúar austurborgarinnar flykktust
yfír í vesturhlutann til að skoða allt sem þeir höfðu aldr-
ei séð með eigin augum. Fjölskyldur og vinir sem höfðu
verið sundraðir í þijá áratugi sameinuðust í faðmlögum
og grétu af gleði.
Sagt er að Róm hafi ekki verið byggð á einni nóttu.
Tvær Berlínarborgir sameinuðust í eina á nokkrum mín-
útum. Ný borg varð til. Sameiningin kostaði vaxtaverki
sem hafa staðið yfír síðastliðin sjö ár og gera enn. Svo
miklar breytingar eru ekki átakalausar en átökin fela
einnig í sér sprengikraft framkvæmda. AIls staðar má
sjá byggingarkrana, alls staðar er verið að byggja upp
nýja borg, nýjar vonir.
Þjrár miðborgir
Þegar ekið er inn í borgina úr austurátt má sjá þijú
breið vegaskilti með dágóðu millibili sem vísa veginn í
tiltekna átt. Á þeim öllum stendur Berlin Zentrum. Nú
mætti ætla að ef ekið væri inn á þessa þijá hliðarvegi
kæmi maður á sama stað; að miðborg Berlínar. En því
er ekki að heilsa. Hvert skilti visar á sinn stað, þrenns
konar Berlin Zentrum. Ein miðborgin gengur í daglegu
tali undir nafninu Ku’damm sem er stytting á Kurfiirst-
endamm, aðalstræti þeirrar borgar sem áður gekk undir
nafninu Vestur-Berlín. Annað skiltið vísar til hinnar eig-
inlegu miðborgar sem gengur undir nafninu Mitte (Miðj-
an) og er miðborg þess borgarhluta sem áður var Aust-
ur-Berlín. Þar er hið nafnkunna breiðstræti Unter den
Linden með fjölda sögufrægra bygginga frá fyrri öldum
og Alexanderplatz umkringt kuldalegum byggingum
þess byggingastíls sem kenndur er við sósíalískt raunsæi.
Þriðja skiltið vísar til Potsdamer Platz sem var auðn-
in ein í tvískiptri borg. Landsvæði sem tilheyrði vestur-
hlutanum en lá utan í þeim eystri. Potsdamer Platz á
sér langa sögu á stuttum tíma. I byijun aldarinnar og
á millistríðsárunum var þar iðandi athafnalíf Berlínar,
einni mestu iðnaðarborg Evrópu. í seinni heimsstyijöld-
inni voru sögulegar byggingar Potsdamer Platz þurrkað-
ar út. Á árunum eftir stríð var þar gróðalind svartamark-
aðsbraskara því á svæðinu mættust sovéski, breski og
ameríski hluti borgarinnar. Á tímum tveggja borga naut
þetta svæði þess vafasama heiðurs að vera algert eyði-
flæmi en um leið aðdráttarafl fyrir ferðamenn því hvergi
var múrinn skrautlegar skreyttur, hvergi var sýnin yfir
járntjaldið dapurlegri.
Nú er öldin önnur. Við Potsdamer Platz slær hjarta
Berlínar á ný. Urgandi byggingakranar þekja svæðið.
Þangað streymir fjármagn utan úr heimi, Sony er að
byggja Evrópuhöfuðstöðvar sínar þarna, Mercedes Benz
og fjölmörg önnur fyrirtæki fjársterk vilja sjá háreistar
byggingar sínar rísa á þessum sögufræga stað. Nýtt
fjármála- og viðskiptahverfi í smíðum.'
Eitthvað við allra haefi
Ferðalangar fínna allir eitthvað við sitt hæfí í Berlín.
Borgin býr yfir stórbrotinni sögu sem í mörgu endurspegl-
ar sögu þýsku þjóðarinnar. í Berlín skynjar ferðalangur-
inn mikilfengleikann í sögu Prússlands í fyrri alda bygg-
ingum. íbyijun aldarinnar réð Bauhaus byggingarstíllinn
ríkjum. í austurhluta borgarinnar má sjá þær byggingar
sem frammámenn í kommúnistaflokknum vildu sjá sem
tákn um sæluríki sósíalismans. Og nú er hægt að skyggn-
ast inn í framtíðina á fjölmörgum stöðum innan borgar-
innar. Ný Berlín er í byggingu.
En Berlín er ekki bara byggingar. Mannlífíð í Berlín
er gróskumikið. Til Vestur-Berlínar safnaðist fólk frá
Vestur-Þýskalandi fyrir fall kommúnismans í Evrópu,
ENDURUPPGERT hús framan
við byggingarkrana.
TÁKN sameinaðrar borgar,
Brandenborgarhliðið.
UPPLÝSINGAGÁMUR á grind við Potsdamer
Platz, sem hefur að geyma allar upplýsingar
fyrir forvitna ferðalanga um byggingarfram-
kvæmdir á svæðinu.
listamenn, bóhemar, ungir menn á flótta undan her-
skyldu og þannig mætti áfram telja. Einnig er mikið um
innflytjendur í borginni, sérstaklega frá Tyrklandi, og
hafa þeir sett sterkan svip á Berlín. Eftir sameininguna
hefur fjöldi fólks flykkst til borgarinnar úr austurhluta
Evrópu. Berlín skartar skrautlegri mannlífsflóru og það
er gaman að virða hana fyrir sér.
Austur-Berlín var höfuðborg Austur-Þýskalands og
þar var miðstöð stjórnsýslu, vísinda og lista. Bæði í
ræðu og riti var fjallað um borgina eins og tvíburinn
handan við múrinn væri ekki til. Fullkomin afneitun
gagnvart ríkjandi heimsmynd var við lýði hjá valdhöfum
í austri. Þessi afneitun, en um leið landfræðileg nálægð
við vestrið, skapraunaði mörgum íbúum austurborgarinn-
ar, sérstaklega unga fólkinu sem gat ekki fallist á þróun
kommúnismans yfír í algert einræði. Samruni þessa fólks
sem áður var aðskilið hefur skapað ákaflega sérstakt
borgarsamfélag. Berlín, beggja vegna múrs, var ávallt
þekkt fyrir auðugt listalíf og nú er listin lifandi sem
aídrei fyrr.
í sameinaðri Berlín er mikið að gerast, ferðalangurinn
skynjar lífíð og fjörið alls staðar. Veitingastaðir, þýskir
sem alþjóðlegir, og kaffíhús hafa sprottið upp um alla
borg, götusalar eru á víð og dreif. Verslunarmiðstöðvar
og sérverslanir með framandi varning eru auðfundnar.
íbúar sameinaðrar Berlínar vilja gleyma öllu sem á
undan er gengið. Sársauka stríðs og eftirstríðsára og
þeirru sundrungu sem kalda stríðið olli. Múrinn hefur
verið brotinn niður en leifar hans standa enn sem minnis-
merki um martröð sem er liðin. Vonin um betri framtíð
handa börnunum í Berlín er ríkjandi meðal þeirra sem
hafa lifað tímanna tvenna. ■
EFTIR því sem maður nálgast
meir skýjum hulin eldfjöllin á
landamærum Zaire, Rwanda
og Uganda, þeim mun verri
verður vegurinn. Við ókum í gegnum
Uganda í átt til landamæranna og
þar sem malbikinu sleppti tók við
malarvegur, sem varð eftir því sem
nær dró smátt og smátt að lélegum
slóða. Hann endaði svo í hálfgerðum
ruðningi þegar til Zaire kom og loks
var ekki hægt annað en að skilja
bílinn eftir og ganga.
Górillur eru náskyldar okkur
mönnunum. Þeim er skipt í þijár
undirtegundir og eru fjallagórillur
sú sjaldgæfasta. Þeim hefur fækkað
mjög mikið síðustu áratugina vegna
ágangs manna. í dag eru aðeins til
500-600 dýr.
Fjallagórillur lifa einungis í Vir-
unga-fjalllendinu á landamærum
Uganda, Rwanda og Zaire, sem eru
meðal fátækustu landa heims auk
þess sem þar hefur ríkt mikill póli-
tískur óstöðugleiki og styijaldir. Því
veltir maður því fyrir sér hvaða
framtíð fjallagórillurnar geti átt. Það
sem hefur orðið þeim til bjargar, að
minnsta kosti tímabundið, er ferða-
mennskan, sem byggst hefur upp í
kringum þær. Það er að mörgu Ieyti
kaldhæðnislegt, en margir fullyrða
að án ferðamannanna væri líklega
búið að útrýma fjallagórillunum.
Þetta snýst um einfalda hagfræði.
Hver ferðamaður greiðir um 10 þús.
kr. fyrir skoðunarferð, sem eru mikl-
Górillur í f jöllum
Fjallagórillum hefur fækkað mjög síðustu óratugina en svo
virðist sem ferðaþjónustan ætli að verða þeim til bjargar.
Jon GeSr Pétursson og Kristin Lóa
Ólafsdóttir fóru til Zaire til að skoða fjallaqórillur,
en þær lifa einungis í Virunga-fjalllendinu ó landamærum
Uganda, Rwanda oq Zaire.
ir peningar á þessum slóðum. Því eru
górillurnar verðmætari Iifandi en
dauðar og er því lagt kapp á að
vernda þær. Veiðiþjófnaður hefur
minnkað mikið og þær lifa nú að
miklu leyti í afmörkuðum þjóðgörð-
um, sem njóta gæslu. Fjallagórillun-
um hefur því farið hægt fjölgandi
núna allra síðustu árin.
„Gorillas fn the Mist“
Virunga-þjóðgarðurinn er uppi í
fjöllunum, þar sem ræktunarlandinu
sleppir og regnskógmrinn tekur við.
Fjöllin eru hulin skýjum mestan hluta
sólarhringsins ogþví auðvelt að skilja
af hveiju Dian Fossey, frægur frum-
kvöðull verndunar íjallagórillana,
kallaði bók sína um þær „Gorillas in
the Mist“, sem samnefnd bíómynd
var gerð eftir. í þjóðgarðinum fékkst
Primus-bjór, sem er frægur meðal
ferðalanga í Afríku, bruggaður í
Zaire og erfitt er að fá í öðrum lönd-
um. Vegna óreiðu í efnahagslífinu
er bent á það í ferðabókum að kaupa
flösku af Prímus til að átta sig á
síbreytilegu gengi zaireanska
gjaldmiðilsins. Fyrir hana þarf alltaf
að borga í kringum 1 bandaríkjadoll-
ar alveg sama hvað gengið er fellt
mikið. Því eigi maður að reikna hvað
margar flöskur af Primus hlutir
kosti, en ekki hvað mörg milljón
zaires. Bjórinn er seldur í 750 ml
flöskum og er enginn miði á flösk-
SVEITABÆR í Zaire.
FÁTÆKT er mikil í Zaire og búa börnin víða við kröpp kjör.
KARLGÓRILLAN Marcel með
yngsta afkvæmið sér við hlið. Hann
var nýlega drepinn af veiðiþjófum.
unni heldur málað á hana nafnið
Primus. Virkaði flaskan dálítið
skuggaleg í fyrstu en bjórinn reynd-
ist alveg Ijómandi góður.
Lagt var af stað í górilluskoðunina
í sólarupprás og blöstu þá hvassydd
Virunga-eldíjöllin við, skýlaus allt í
kring, en þau hæstu eru 4.500 m
há. Við fórum í hóp með tveimur
þjóðgarðsvörðum til að finna górill-
urnar. Annar var með frumskóga-
sveðju til að
höggva leiðina og
finna dýrin, en
hinn með vélbyssu
til að halda frá
buffalóum, hlé-
börðum, veiðiþjóf-
um eða öðru ill-
þýði, sem hann
sagði að væri al-
gengt þarna og
gæti ráðist á okk-
ur í skóginum.
Aðalhættan
fannst okkur þó
vera af honum
sjálfum því vél-
byssa er greini-
lega talsvert
stöðutákn á þess-
um slóðum. Var
stressandi að
ganga á eftir honum með hlaðna
byssuna á öxlinni og hiaupið vísandi
að okkur öllum á eftir.
Fyrstu kynnln
Fyrstu kynni okkar af górillunum
voru þó alls ekki eins rómantísk eða
tilfinningaþrungin og margir hafa
lýst þegar þeir sjá þennan stórvaxna
ættingja í fyrsta skipti. Höfðum við
gengið um stund í gegnum þéttan
regnskóginn þegar við heyrðum und-
arleg hljóð. Fyrst lágvært prump og
síðan langdregin búkhljóð sem óm-
uðu í skóginum líkt og einhver væri
á ferli sem hefði lifað á rúgbrauði
og malti síðustu vikurnar. Við stopp-
uðum og litum í kringum okkur og
sáum þá sökudólginn, ungan górillu-
karl, sem sat í lágvöxnu tré og hám-
aði í sig gróðurinn. Lét hann lítið
fara fyrir sér í þéttu laufinu, hélt
áfram að éta en gjóaði augunum
forvitinn við og við í áttina til okkar.
Þetta kom leiðsögumönnunum á
sporið og sveigðu þeir út af stígnum
inn í þéttan og ógreiðfæran skóginn
og hjuggu með sveðjunum á báða
bóga til að auðvelda okkur leiðina.
Töldu þeir fullvíst að foringi hópsins,
silfurbakurinn Marcel, væri í ná-
grenninu, því górillurnar eru vanar
að halda hópinn. Eftir að hafa höggv-
ið dágóða stund hægðu þeir skyndi-
lega á sér og skipuðu okkur að fara
hljóðlega. Var ekki laust við að hjart-
að í okkur færi að slá hraðar þegar
þeir sögðu að líklega væfi Marcel í
næsta nágrenni. Fikruðum við okkur
hljóðlega áfram í dimmum skóginum
i humátt á eftir þeim og vissum ekki
hveiju við áttum von á; hvort górill-
urnar kæmu stökkvandi út úr skógin-
um beijandi á bijóst sér „a la King
Kong“ eða hyrfu á brott þegar við
nálguðumst. Skyndilega sáum við
risastóran, svartan og loðinn apa
liggja makindalega nokkrum metrum
fyrir framan okkur á skógarbotnin-
um, ásamt fimm öðrum öpum. Við
nálguðumst Marcel hljóðlega og virt-
ist honum standa nákvæmlega á
sama um nærveru okkar. Hann lá
makindalega á maganum með aðra
höndina yfir höfuð sér, en kíkti síðan
laumulega til okkar í gegnum fingur
sér, líklega til að
athuga hvort túr-
istar dagsins væru
eitthvað frá-
brugðnir öðrum.
Hjá honum var lít-
ill ungi, sem hjúfr-
aði sig upp að baki
pabba síns. Ekki
virtist honum
finnast við neitt
spennandi þvi
hann lokaði aug-
unum fljótlega
aftur og hélt
áfram að blunda.
Þessu var hins
vegar öfugt farið
með okkur túrist-
ana, frændur
hans, því við höfð-
um ekki átt von á
að komast í seilingarfjarlægð frá
fullvaxinni górillu. Marcel sér ferða-
menn nánast daglega, en flestir
ferðamennirnir sjá górillur aðeins
einu sinni á ævinni.
Drepinn af veiðiþjófum
Eftir nokkra stund fór Marcel að
bæra á sér eftir blundinn. Reisti hann
sig upp, barði sér á bijóst, greip
blaðstilk og fór að éta. Eftir að hafa
étið um stund fór hann að verða óró-
legur og fór okkur að líða eins og
hann vildi að við færum að hypja
okkur. Stóð hann að lokum upp og
gekk í burtu inn í skóginn ásamt
nokkrum öðrum úr hópnum. Höfðum
við þá verið hjá honum í um eina
klukkustund, en það er sá tími sem
ferðamannahópar dvelja hjá górillun-
um. Virtist eins og Marcel vissi að
„tíminn" væri liðinn og mál að hætta
þessu hangsi og fara að gera merki-
legri hluti.
Eftir að við vorum komin heim frá
Afríku bárust okkur váleg tíðindi frá
Zaire; Marcel og ein kvengórilla
höfðu verið drepin af veiðiþjófum,
sem námu á brott með sér lítinn
unga, líklega þann sem við skoðuð-
um. Talið er að górillurnar hafi verið
drepnar þegar veiðiþjófarnir reyndu
að nema ungann á brott frá hópnum.
Því er greinilega full ástæða til að
halda áfram að leggja mikla áherslu
á verndun górillanna, ef takast á að
tryggja framtíð þeirra. Hættan er
óneitanlega mikil að þessar fáu eftir-
lifandi fjallagórillur eigi eftir að
hljóta sömu örlög og Marcel. ■
Á slóðum Jane
Austin og
Virginiu Woolf
ÞEKKTIR enskir rithöfundar og
skáld fyrri tíma hafa mikið aðdrátt-
arafl fyrir ferðamenn sem heim-
sækja landið. Skoðunarferðir eru
skipulagðar af ferðamálayfirvöldum
viðkomandi staða, gjarnan með bók-
menntalegu ívafi þar sem ferðamenn
geta hlýtt á fyrirlestra um æviferil
skáldsins og upplestur úr verkum
þess.
Meðal þeirra staða sem ferðamenn
heimsækja gjarnan er heimili Jane
Austin, höfundar Hroka og hleypi-
dóma og Vona og væntinga í Chaw-
ton í Hampshire, Steventon, bærinn
þar sem hún fæddist árið 1776, og
Winchester Cathedral þar sem hún
var jarðsettárið 1817.
CHAWTON Cottage í Hampshire, þar sem rithöfundurinn
Jane Austin bjó síðustu átta æviár sín.
Annar vinsæll viðkomustaður
ferðamanna með bókmenntaáhuga
er heimili Virginiu og Leonards
Woolf í Rodmell, East Sussex. í leið-
inni er gjarnan farið til Charleston
Farmhouse rétt hjá þar sem systir
Virginiu, málarinn Vanessa Bell bjó
með listamanninum Duncan Grant
og vini þeirra David Garnett.
Upplýsingar um þessa staði og
aðra álíka, svo sem upplýsingar um
uppákomur sem boðið er upp á í
tengslum við viðkomandi listafólk,
er hægt að nálgast hjá upplýsinga-
miðstöðum fyrir ferðamenn alls
staðar í Englandi. ■
Kynningartilboð og
nýtt hótel ó Aruba
ÚRVAL-Útsýn hefur samið við
hótel á Aruba; Wyndham Aruba
Beach Resort & Casino. í fréttatil-
kynningu frá ferðaskrifstofunni
segir að um sé að ræða glæsilegt
hótel á Palm Beach ströndinni, um
5 mínútna akstur frá höfuðstaðnum
Oranjestad.
Á hótelinu er m.a. að finna stóra
sundlaug með barnalaug, barna-
klúbb, körfuboltavöll, tennisvelli,
heilsurækt, 5 veitingastaði, bari og
spilavíti og stutt er í 18 holu golfvöll.
Allar vistarverur eru loftkældar
og í þeim er kaffivél, ísskápur, sími,
gervihnattasjónvarp, útvarp, hár-
þurrka og öryggishólf. Allar vistar-
verur eru með svalir og útsýni til
sjávar.
Wyndham Aruba Beach Resort
& Casino var áður Aruba Hilton.
Það var nýlega keypt af Wyndham
hótelkeðjunni sem rekur fjölmörg
hótel víða um heim. Við eigenda-
skiptin var allt hótelið endurnýjað.
Kynningartilboð
Úrval-Útsýn er með kynningar-
verð á ferðum til Aruba í sumar.
Til dæmis kostar 8 daga ferð
97.480 krónur. Innifalið er New
York, flugvallarskattar, gisting á
Holiday Inn á Kennedy flugvelli í
eina nótt, flug áfram til Aruba með
American Airlines og gisting í viku
í tvíbýli á Wyndham Aruba Beach
Resort.
DANMÖRK
KAUPMANNAHÖFN
TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI
hvora leið með flugvallarskatti
Sala: Wihlborg Rejser, Danmörku,
Sími: 0045 3888 4214
Fax: 0045 3888 4215