Morgunblaðið - 19.05.1996, Page 1
m
f
Danmörk
Ódýrir bílaleigubílar
fyrir íslendinga
Tveggja vikna gjald:
Opel Corsa, dkr. 2.995
Opel Astra, dkr. 3.590
Opel Astra st., dkr. 3.990
Opel Vectra, dkr. 4.390
Innif. ótakm. aksturog tryggingar.
Fáið nánari verðtilboð.
Nýkominn
sumarhúsalisti
sendist ókeypis
fjðlbreytt úrval sumarhúsa
um alla Danmörk.
Internationat Car Rental ApS.
Uppl. á íslandi sími 456-3745.
Gamla fiskimanna-
þorpið sem núna
hefur viðurnefnið
Litla Manhattan.
S
Ul
BENIDORM
PtorgjnttMaMli
SUNNUDAGUR19. MAÍ1996 BLAÐ C
Min eina sanna
3
Lægstca verð á
bílaleigubílum
hverf sem
ferðinni er
heitið
Hringdu i okkur og fáðu ssndan
sumarbœklinginn s: 588 35 35
■
m
Flugleiðir og SAS
Lægri Saga
Class fargjöld
FLUGLEIÐIR og SAS hafa gert
samkomulag um að bjóða ný og
lægri Saga Class fargjöld, svokölluð
Saga2 gjöld, til 46 staða í Evrópu-
sambandinu.
Fargjöldin eru 25-30% lægri en
almenn Saga Class gjöld. Þjónustan
um borð og á flugvöllum er sú sama
og Saga Class farþegar njóta og
hægt er að bóka Saga2 gjöldin og
gera breytingar á ferðatilhögun með
allt að fjögurra daga fyrirvara.
Símon Pálsson, forstöðumaður
markaðsdeildar Flugleiða á íslandi,
segir reynslu af slíkum fargjöldum
góða, en þau stóðu til boða til nokk-
urra staða sl. vetur.
Að sögn Símonar hefur sala á
Saga Class farmiðum á íslandi, þ.e.
Saga Class og Saga2, aukist um 28%
milli ára fyrstu fjóra mánuði þessa
árs. Hann segir markmið Flugleiða
og SAS að auðvelda íslenskum fyrir-
tækjum aðgang að markaði Evrópu-
sambandsins. Fólk úr viðskiptalífinu
eigi nú greiða leið til um 50 borga
í Evrópu á þessum nýju fargjöldum.
Breytingar ó fyrningarreglum Vildarklúbbs Flugleiða
Ferðapunktar í
allt að f jögur ár
án fyrningar
UMSÓKNAREYÐUBLÖÐ um
aðild að Vildarklúbbi Flugleiða
liggja frammi á söluskrifstofum
Flugleiða, í flugstöðvum, hjá
ferðaskrifstofum og víðar.
FRA 1. maí sl. eru ferðapunktar, sem
korthafar Vildarklúbbs Flugleiða
ávinna sér, í gildi í allt að fjögur ár.
Korthafi sem byijar í Vildarklúbbnum
í júní 1996 getur því safnað sér punkt-
um til 31. desember 1999 án fyming-
ar. Hafi hann ekki náð að safna
nægilegum punktum fyrir vildarferð
eða vildarþjónustu, falla áunnir
punktar á árinu 1996 niður.
Elísabet Hilmarsdóttir, deildarstjóri
Vildarklúbbsins, segir að allir 18 ára
og eldri geti sótt um að verða félagar
í klúbbnum. Fylla þurfí út umsóknar-
eyðublöð, sem liggi frammi á sölu-
skrifstofum Flugleiða, í flugstöðvum,
hjá ferðaskrifstofum og víðar.
Við skráningu vinnur korthafí sér
inn 3.000 ferðapunkta, sem eru jafn-
margir punktar og hann getur áunnið
sér með ferðum á almennu farrými
til og frá Kaupmannahöfn.
Sem dæmi um ávinning Vildar-
klúbbsfélaga segir Elísabet að 36
þúsund ferðapunktar nægi til að vinna
sér inn vildarferð til Norðurlandanna,
Amsterdam, London, Glasgow og
Lúxemborgar, en hins vegar þurfi 50
þúsund ferðapunkta til vildarferðar
til Bandaríkjanna og Halifax í
Kanada.
Frá 1. mars hafa korthafar Vildar-
klúbbsins jafnframt getað safnað
ferðapunktum fyrir innkaup í Saga
Boutique með því að fá kaupin skráð
á kort sín. Sem dæmi safnast 150
ferðapunktar fyrir innkaup frá 2.001
kr. til 5.000 kr.
Elísabet segir að korthafar Vildar-
klúbbs Flugleiða njóti einnig vildar-
kjara hjá SAS, Scandic-hótelunum og
Herz-bílaleigunum. ■
HATIÐ
HESTAMANNA
►FJÓRTÁN daga alþjóðleg hátíð
hestamanna verður i Ungverja-
landi 10. til 24. september í haust
vegna 1100 ára landvinnings-
afmælis þjóðarinnar.
Forfeður Ungveija numu land-
svæðið, sem nú kallast Ungveija-
land, á hestbaki og vilja nú stefna
reiðmönnum allra þjóða til sín.
Aðstandendur hátíðarinnar hafa
leitað hófanna þjá íslendingum
um hesta og reiðmenn á hátíðina.
Hátíðin verður fjölbreytt og
miðað við að bæði áhugamenn og
atvinnumenn geti notið hennar,
en hún hefst á þvi að um 5000
knapar frá 105 löndum ríða um
stræti Kecskemétborgar, en þar
er hátíðin haldin.
Fallegasti hestur veraldar verð-
ur valinn á hátíðinni, en meðal
þeirra sem velja hann verða Luc-
iano Pavarotti og Bridgitte Bard-
ot.
Einnig verður markaður með
öllu sem viðkemur reiðmennsku,
og dagskrá með sýningum og
keppni. Upplýsingar um hátiðina
fást þjá Túra És Távlovasok, H-
1053. Búdapest, Ferenciek tere
4. Sími 1171-644. Fax 2670-171. ■
¥ t I
* .1
4-
Bókunarstaða 17. maí
maí 20. uppselt júli 1. 10 sæti laus
27. uppselt 8. 3 sæti laus
fum 3. 6 sæti laus 15. uppselt
10. uppselt 22. laussæti
17. uppselt/biðlisti 29. iaussæti
24. laussæti ágúst 5. uppselt
Sérstakt kynningarverð á nokkrum viobótaríbúðum
Ca’s Sabones á PALMA N0VA
Vistarverur: Rúmgóðar íbúðir með einu svefnherbergi, eldhúskrók, baði,
svefnherbergi og góðum svölum sem allar snúa út að glæsilegum garðinum.
Aðstaða: Tværsundlaugar, barnalaug, sundlaugarbar, bar, leiktæki og dagleg
skemmtidagskrá.
Staðsetning: Glæsileg strönd og gífurlegur fjöldi veitinga-
og skemmtistaða á Magaluf og Palma Nova í stuttu
göngufæri.
Tilvalinn staður fyrir alla í fjölskyldunni!
43.390 kr,
staðgreitt á mann m.v. 2 fuliorðna og
2börn (2ja-l1 ára).
/erðfrá
59.970 kr,
staðgreitt á mann m.v.
2 fullorðna í ibúð
^NRVAL-ÚTSÝN
l.ágmúta 4: sínti 569 9300,
Hafnarfirði: sími 565 2366, KeJ'lavík: sími 421 1353,
Selfossi: sfmi 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
- og hjú umboðsmönnum um lancl allt.