Morgunblaðið - 19.05.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. MAÍ 1996 D 3
Bílasala aó færast
inn í stórverslanir
BYLTING hefur orðið í sölu á not-
uðum bílum í Bandaríkjunum síðustu
mánuði með tilkomu nýrra risabíla-
sala. Vinnubrögðin eru líka með allt
öðrum hætti. I stað sölumanna sem
gera því sem næst hvað sem er til
þess að sannfæra viðskiptavininn um
að festa kaup á bíl beita starfsmenn
nýju fyrirtækjanna engum þrýstingi
og þegar eitt sinn er búið að setja
verð á bíl verður því ekki breytt.
Venjur kaupenda að breytast
Það eru engir nýgræðingar í kaup-
sýslunni sem hafa snúið sér að þess-
um blómlegu viðskiptum. Raftækja-
risinn Circuit City og myndbanda-
keðjan Blockbuster hafa sett upp
gríðarstórar miðstöðvar, CarMax,
með allt að 1.000 nýlegum bílum
utandyra. í síðasta mánuði tókst
samstarf með einum stærsta seljanda
eldhúsáhalda í Bandaríkjunum og
gæðamálagúrúnum J.D. Power um
stofnun Driver’s Mart og ráðgert er
að setja á stofn 100 miðstöðvar vítt
og breitt um Bandaríkin.
Fyrirtæki á þessu sviði starfa öll
með áþekkum hætti. Bílamir eru
boðnir á föstu verði sem engin leið
er að prútta niður og sölumennimir
láta viðskiptavini í friði ef þeir óska
þess. Andrúmsloftið er afslappað,
hugað er að þörfum bamanna með
leiktækjum og hægt er að fá sér
hressingu á staðnum. Opnunartími
er lengri en tíðkast hjá öðmm bílasöl-
um. Sérfræðingar segja að þessir
nýju viðskiptahættir hafi nú þegar
breytt venjum bandarískra bílkaup-
enda.
Núna em fjórar CarMax miðstöðv-
ar í rekstri og á síðasta ári seldu þær
bíla fyrir 290 milljónir dollara, tæpa
19 milljarða ÍSK. Ráðgert er að opna
sjö nýjar CarMax miðstöðvar á þessu
ári og 20 fyrir árið 1999.
Kort af bílastæðinu
í CarMax miðstöð tekur sölumað-
ur á móti viðskiptavini, svarar spurn-
ingum hans og leiðir hann að tölvu
með snertiskjá. Þar velur viðskipta-
vinurinn þá bílgerð sem hann hefur
helst áhuga á og prentar út allar
upplýsingar um hann ásamt litmynd
og korti sem sýnir hvar bílnum hefur
verið lagt við miðstöðina. Ef við-
skiptavininum líkar það sem hann
sér á myndinni kallar hann í sölu-
mann sem sest í farþegasætið og
farið er í reynsluakstur. Á meðan
skoða bifvélavirkjar CarMax uppí-
tökubílinn. Þegar komið er til baka
úr reynsluakstrinum fær viðskipta-
vinurinn útprentað verðmat á uppí-
tökubílnum ásamt verðtilboði. Sé það
viðskiptavininum að skapi gengur
CarMax frá öllum pappírum. Snúist
honum hugur á hann þess kost að
skila bílnum innan fimm daga frá
kaupunum að því tilskildu að bílnum
hefur ekki verið ekið meira en 250
mílur. Auk þess sem eftir lifir af
upphaflegri ábyrgð bílsins frá fram-
leiðanda býður CarMax 30 daga
ábyrgð með hveijum bíl.
Bílarnir sem CarMax selur eru
fæstir eknir meira en 20.000 mílur
og þeir hafa farið í gegnum viða-
mikla skoðun. ■
VW EA420, nýr
smábíll sem verður
minni en Polo,
verður með þriggja
strokka vél.
Nýr Volkswagen smóbíll
smíóaóur ó sjð klsf
VOLKSWAGEN hyggst smíða
nýjan smábíl, minni en Polo, sem
hefur verið hannaður þannig að
samsetningin á aðeins að taka sjö
klukkustundir. Ferdinand Piech,
stjómarformaður VW, sagði á ráð-
stefnu sem 850 bflvélahönnuðir
sóttu í Vín í byijun mánaðarins,
að einföld samsetningin væri lykill-
inn að því að gera þetta verkefni
ábatasamt fyrir VW.
Nýi smábíllinn er byggður á
styttri grind af Polo og keppir í
sama stærðarflokki og Renault
Twingo og Fiat Cinquecento. Ford
Ka smábíllinn sem Ford hyggst
setja á markað á næstu áram er
í sama stærðarflokki.
Piech sagði að það tæki 30 klst
að smíða Golf og fullyrti hann að
nýi Polo bfllinn yrði innan tíðar
smíðaður á 14 klst. Nýi smábíllinn
yrði hins vegar smíðaður á aðeins
sjö klst.
Þriggja
strokka vél
Bíllinn er þekktur undir vinnu-
heitinu EA420 og var fyrst kynnt-
ur sem Chico hugmyndabíllinn á
bílasýningunni Frankfurt 1991.
Bíllinn verður að öllum líkindum
með þriggja strokka vél en áður
hafði VW gert tilraunir með
tveggja strokka vél en hætti þeim
vegna þess hve erfiðlega gekk að
fá þýðan gang í þær.
Piech greindi ekki frá því í
smáatriðum hvernig VW hyggst
ná svo skömmum framleiðslutíma
en ræddi ítarlega um samskipti
bílaframleiðenda og birgja. Vitað
er að VW er að leggja drög að
tilraunum í verksmiðjum sínum í
Brasilíu og Argentínu og í Skoda
verksmiðjum sínum í Tékklandi
þar sem birgjar verða starfandi
innan verksmiðja VW. ■
Morgunblaðið/Sverrir
ÞORLEIFUR Þorvaldsson, sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni hf.,
afhendir Hafsteini Valssyni, eiganda Bílaleigu Reykjavíkur, átta
nýja bíla af gerðinni Nissan Almera og Micra. Með þeim á
myndinni er Hallfríður Karlsdóttir, eiginkona Hafsteins.
Ný bílaleiga tekur til
starfa í Reykjavík
BÍLALEIGA Reykjavíkur er nýtt fyr-
irtæki sem er að hefja starfsemi.
Hafsteinn Valsson er eigandi bíla-
leigunnar en hann hefur starfað sl.
20 ár hjá Bílaleigu Akureyrar.
Hafsteinn kvaðst telja að enn
væri rúm fyrir nýja bílaleigu en hann
hyggst einbeita sér að útleigu á hefð-
bundnum fólksbílum fyrst um sinn.
Bílaleiga Reykjavíkur, sem er til
húsa i Fellsmúla, fékk afhenta átta
nýja bfla frá Ingvari Helgasyni fyrir
skemmstu af gerðunum Nissan Micra
og Nissan Almera. ■
TILBOÐ ÓSKAST 1
í Ford Thunderbird LX árg. ‘94
(ekinn 19. þús. mílur),
Dodge Spirit ES árg. ’90,
Dodge Van 250 (Custom) árg. ‘93
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 21. maí kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Meöalaldur
bíla hór á
íslandi
FÓLKSBÍLAR í Evrópu eru að
meðaltali 8,2 ára gamlir. Bílaflotinn
í Tékklandi er sá elsti í álfunni,
14,2 ár og þar eru bílar að meðal-
tali 23 ára þegar þeir eru unnir í
brotajárn. Norðmenn koma næstir
á eftir með 10,4 ára gamlan flota
og þar er bflum hent þegar þeir era
að meðaltali 17,4 ára. Yngsti bíla-
flotinn er hins vegar í Sviss, 5 ár.
Bílafloti íslendinga er aðeins eldri
en meðaltalsaldurinn var í árslok
1995 8,4 ár. ■
Meðalaldur bílaflotans í Evrópu
Sviss 5,0 Ár
I Bretland Jtl
Holland sT'
I Þýskaland 6,5 fe
Italía 6,7
I Slóvenía 6,7^
Frakkland 6,8
I Belqía 6,9 I
Dánmörk w
I Spánn — 8,2|
Meðaliaí 8,2
I ísland 8,4|
Svíþjöð 9,1
I Finnland 9,2 1
Gnkkfáh’dr TÖ7Ó
! Noregur 10.4 1
Tékkíand H2
Auto-
Hart*
wachs
I
i
8 t ■-: ■ 1
Þekking Reynsla Þjónusta
cá i icim iye
SUOtJRl AHDSBHAUT S. 108 BEYKJAVlK. SlMI: SSI 4830. FAX: SI1 3862