Morgunblaðið - 31.05.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMAMNA
1996
JRtorgttttMitStfö
■ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Stund milli stríða
Morgunblaðið/Þorkell
NOKKRIR landsliðsmenn tóku sér spil í hönd í gær á mllli æflnga. Hllmar Björnsson, Kristján Finnbogason,
Ólafur Þórðarson, Guðmundur Benediktsson og Lárus Orri Sigurðsson.
Sjöberg hótar
að flytja frá
Svíþjóð
SÆNSKI hástökkvarinn Patrick Sjöberg, fyrrum
heimsmethafi, sem varð í sjötta sæti á HM í
Gautaborg I fyrra, hótaði í gær að gerast Norð-
maður eða Finni til að komast á Ólympíuleikana
í Atlanta. Stjórnvöld í Svíþjóð hafa dregið veru-
lega úr fjárstyrkjum til afreksfólks í íþróttum
að undanförnu og hefur Sjöberg mótmælt því á
ýmsan hátt, var til dæmis ekki með á EM innan-
húss I Stokkhólmi í mars.
Nýverið var Bengt Westerberg kjörinn for-
maður sænska fijálsíþróttasambandsins, en hann
er fyrrverandi formaður Þjóðarflokksins og fé-
lagsmálaráðherra. Hann hefur haft í hótunum
við Sjöberg vegna þess að hástökkvarinn hefur
frekar viljað vera við æfingar en taka þátt í
landskeppni með Svíum, til dæmis við Finna.
Westerberg sagði á dögunum að léti Sjöberg
ekki af þessum mótmælum yrði hann ekki með-
al keppenda á Ólympiuleikunum í Atlanta. Sjö-
berg svaraði þessu í gærkvöldi og sagði að ef
formaðurinn breytti ekki afstöðu sinni yrði hann
að grípa til róttækra ráða. „Ég reyni þá að ger-
ast Norðmaður eða Finni frekar en að láta ein-
hvern pólitíkus stoppa ntig,“ sagði Sjöberg.
Mál Bjarka kom-
in á hreint
BJARKI Gunnlaugsson mtm á næstunni skrifa
undir þriggja ára samning við Mannheim í
Þýskalandi. Hann sagði í gær að hans mál væru
komin á hreint. „Ég var búinn að ganga frá öllu
við Mannheim áður en ég kom hingað og það á
bara eftir að skrifa undir. Ég geri það um leið
og ég kem út aftur,“ sagði Bjarki í gær. Bjarki
sagðist ánægður með samninginn og einnig með
þá niðurstöðu að Feyenoord ætti ekki rétt á
greiðslum fyrir sig. „Það munar miklu fyrir mig
að vera frjáls í þessu sambandi," sagði Bjarki.
Bjarki aftur í lið
vikunnar
BJARKi var útnefndur í lið vikunnar i 2. deild
í þýska blaðinu Kickev aðra vikuna í röð, alls
hefur hann þrisvar verið útnefndur i lið vikunn-
ar á keppnistimabilinu. Bjarki hefur leikið vel
með Mannheim að undanförnu.
Byrjunarliðið
gegn Makedóníu
EFTIR að hafa séð landsliðið á æfingu í gær undir sljórn Loga Ólafs-
sonar, landsliðsþjálfara, er hægt að stilla byrjunarliðinu, sem leikur
gegn Makedóníu, upp á tvo vegu. Birkir Kristinsson verður markvörð-
ur, Lárus Orri Sigurðsson hægri bakvörður, Rúnar Kristinsson,
vinstri bakvörður, miðverðir Guðni Bergsson og Ólafur Adolfsson.
Miðjumenn frá hægri; Þórður Guðjónsson, Arnar Grétarsson, Sigurð-
ur Jónsson og Ólafur Þórðarson, sóknarleikmenn Bjarki Gunnlaugs-
son og Arnór Guðjohnsen.
Einnig er mögulegt að Agúst Gylfason byxjaði sem vinstri bakvörð-
ur, Rúnar færi þá fram á vinstri vænginn á miðjunni, Ólafur Þórðar-
son inn á miðjuna með Sigurði og Arnar á hægri vænginn, þannig
að Þórður byijaði ekki.
Keflavík gegn Örebro
KEFLVÍKINGAR mæta Örebro í TOTO-bikarkeppninni og fer
leikurinn fram í Svíþjóð. Knattspyrnuunnendur á Islandi fá því
ekki tækifæri til að sjá Arnór Guðjohnsen, Sigurð Jónsson og
Hlyn Birgisson leika í Keflavík. Keflvíkingar leika fjóra leiki í
keppninni, tvo heima - gegn liði frá Slóveníu 30. júní og liði frá
Sviss eða Danmörku 20. júlí, þar sem lið frá Ítalíu hafa dregið sig
úr keppninni. Utileikirnir verða gegn Örebro og lið frá Austurríki.
Vogts hefur fengið
sig fullsaddan
„Lothar Mattháus mun aldrei leika með landsliðinu fram-
ar," sagði landsliðsþjálfarinn reiður
Berti Vogts, landsliðseinvaldur
Þýskalands, er greinilega orð-
inn þreyttur á Lothar Mattháus, fyrr-
verandi fyrirliða landsliðsins, sem
hefur stöðugt gert harða hríð að
landsliði Þýskalands, eða eftir að ljóst
var að Vogts myndi ekki velja hann
í landsliðshóp Þýskalands fyrir EM
í Englandi. Það var fyrir löngu ljóst,
en þrátt fyrir það tilkynnti Mattháus
á dögunum að hann gæfi ekki kost
á sér í landsliðið, aftur á móti væri
hann tilbúinn í slaginn eftir Evrópu-
keppnina.
Vogts sagði í gær að Matthaus
myndi aldrei aftur leika fyrir hönd
Þýskalands, vegna stöðugra árása á
þýska landsliðið í fjölmiðlum. „Það
er ekki möguleiki á að vinna með
honum,“ sagði Vogts reiður. Ekki
er langt síðan að Mattháus gaf út
þá yfirlýsingu að Jurgen Klinsmann,
félagi hans hjá Bayern Miinchen og
arftaki að fyrirliðastöðunni í þýska
landsliðinu, væri á móti því að hann
kæmi aftur í landsliðið og vildi ræða
málið við hann í beinni sjónvarpsút-
sendingu. Þessi fallandi stjarna, sem
hefur leikið 122 landsleiki fyrir
Þýskaland, var kominn í stríð við
félaga sinn. Klinsmann sagði það
ekki rétt að hann væri að blanda sér
í mál landsliðsins; sagði að Berti
Vogts tæki einn ákvarðanir.
Ljóst er að Mattháus, sem missti
sæti sitt hjá landsliðinu vegna meiðsla
fyrir rúmu ári, eftir sextán ára landsl-
iðsferil, hefur grafið eigin gröf. „Þeg-
ar við höfum leikið síðustu átta til tíu
leiki okkar, hefur Mattháus reynt að
skaða landsliðið með yfirlýsingum í
blöðum. Þrátt fyrir að hann væri ekki
leikmaður, var hann alltaf aðalmaður-
inn í fréttum - og alla þá daga sem
þýska landsliðið lék. Það var greini-
legt að hann taldi að hann væri aðal-
maðurinn - kom sjálfum sér í sviðs-
!jósið,“ sagði Vogts.
KNATTSPYRIMA: MAKEDÓNÍA - NÝTT LIÐ Á GÖMLUM GRUNNI / D2