Morgunblaðið - 09.06.1996, Qupperneq 4
4 C SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Fró róðstefnu um stefnumótun í ferðamálum
Þróunar er þörf
til aukinnar arð-
semi og atvinnu
í nýrri stefnu samqönquráðuneytisins um ferðaþjónustu
seqir að hún sé ein af undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinn-
ar oq að hana skuli þróa til frekari arðsemi oq atvinnu-
sköpunar. Johannes Tomasson drequr hér fram
atriði úr nokkrum erindum fró róðstefnu í síðustu viku
þar sem stefnumótunin var kynnt.
„ÞAÐ verður eitthvað að koma í
staðinn til þess að byggðin haldist
við,“ sagði Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra í setningarræðu
sinni á ráðstefnu í liðinni viku þar
sem fjallað var um stefnumótun í
ferðamálum. Með þessum orðum
vísaði ráðherrann til nauðsynjar
þess að efla ferðaþjónustuna, en
stefnt er að því að fjölga ársverkum
úr fjórum þúsundum í sjö þúsund
til ársins 2005. „Menn velta upp
nýjum hugmyndum og sömu hug-
myndirnar eru þrautræddar og
komið að þeim aftur og aftur, af
því að á því er byggðaleg nauðsyn
og atvinnuleg nauðsyn að úr þeim
sé unnið - ég tala nú ekki um eftir
að búið er að kvótasetja skakið og
lambakjötið," sagði ráðherrann
ennfremur.
Sklpan og staða Ferðamála-
ráðs í endurskoðun.
Á ráðstefnunni voru flutt fjöl-
mörg erindi um ýmsa þætti stefnu-
mótunarinnar svo sem rekstrarum-
hverfi ferðaþjónustunnar, gæða-
stjórnun, markaðssókn, umhverfis-
vemd, menntun og rannsóknir og
samgöngur, svo nokkuð sé nefnt.
Meðal þess sem fram kom í máli
ráðherra var að í sumar á að endur-
skoða skipan og stöðu Ferðamála-
ráðs innan stjórnsýslunnar og hefur
hann hug á að leggja fram frum-
varp þar að lútandi næsta haust.
„Það hefur oft verið gagnrýnt,
að í samgönguráðuneytinu skuli
ekki vera sérstök deild ferðamála.
Skýringin er sú, að samgönguráðu-
neytið hefur verið byggt
upp með sérstökum
hætti, þannig að starfs-
mannafjölda hefur verið
haldið í lágmarki, en hin-
ar sterku stofnanir þess,
Póstur og sími, Vegagerðin, Flug-
málastjórn, Vita- og hafnamál,
Siglingamálastofnun og Ferða-
málaráð, hafa annast margvísleg
stjórnsýsluverkefni og erlend sam-
skipti að hluta til. Viðhorf í þessum
efnum hafa verið að breytast, nú
er krafist fulls aðskilnaðar stjórn-
sýslu og hagsmunagæslu, auk þess
sem aðildin að hinu evrópska efna-
hagssvæði kallar á vaxandi erlend
samskipti. Endurskoðunin á lögum
og reglugerðum, sem snúa að
Ferðamálaráði, er hluti af þeirri
heildarendurskoðun, sem nú fer
fram á starfsemi samgönguráðu-
neytisins og stofnana þess,“ sagði
ráðherran meðal annars.
Auka þarf samnýtingu
Erna Hauksdóttir framkvæmda-
stjóri Sambands veitinga- og gisti-
húsa ræddi um rekstrarumhverfi
ferðaþjónustunnar. í stefnumótun-
inni er áætlað að búa ferðaþjón-
ustunni sambærilegt rekstrarum-
hverfi og í samkeppnislöndum,
rannsaka rekstur og afkomu grein-
arinnar og að auka nýtingu fjárfest-
inga.
Erna sagði hinar mörgu greinar
ferðaþjónustunnar búa við þann
sameiginlega vanda að ferða-
mannatíminn væri stuttur. „Segja
má að sá vandi sé svo stór að aðr-
ir falli í skuggann. Það er því skort-
ur á tekjum vegna lélegrar nýtingar
fjárfestinga sem er grundvallar-
vandi fyrirtækjanna. Afkoma í
ferðaþjónustu er víða slæm vegna
þessa,“ sagði Erna og nefndi að í
stefnumótunarvinnunni hefði verið
sett upp áætlun um byggingu og
rekstur 36 herbergja heilsárshótels
utan Reykjavíkur. „Niðurstaðan var
sú að það er ekki grundvöllur fyrir
byggingu heilsárshótels úti á lands-
byggðinni, nema hagsmunaaðilar
leggi fram hlutafé án nokkurrar
ávöxtunarkröfu og séu þar að auki
tilbúnir til að tapa hluta af fram-
lögðu fé.“
Þá nefndi Erna hvernig
heimavistarskólar hefðu
lengi gert gistiþjónustu
mögulega víða um land
og sagði margar heima-
vistir að verða úreltar og að leggj-
ast af. Varpaði hún því fram að
samnýting þyrfti að vera meiri,
skólar gætu leigt herbergi af hótel-
um yfir vetrartímann og hótel feng-
ið aukið gistirými hjá þeim heima-
vistum sem til þess hentuðu. Einnig
ætti að vera hægt að koma á sam-
nýtingu í fólksflutningum. Erna
gerði einnig virðisaukaskatt að
Feröamenn og
nóttúra - ekki
andstæður
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ ráðstefnu samgönguráðuneytisins um
stefnumótun í ferðamálum.
samgönguráðherra.
umtalsefni og sagði mikilvægt að
stefna að því að leggja af alla mis-
munun í skattlagningu. „Gott dæmi
um þetta er sala á veitingum. Virð-
isaukaskattur á hamborgurum er
stundum 24,5% og stundum 14%.
Það fer eftir því hvort söluaðilinn
er með verslunarleyfi eða vínveit-
ingaleyfi... Ef þið kaupið ykkur
máltíð til dæmis hjá Ferðaþjónustu
bænda, sem margir hveijir selja
ferðamönnum máltíðir, þá borgið
þið 14% virðisaukaskatt ef þið borð-
ið í borðstofu bóndans, en ef hann
hefur byggt sérstakan borðsal fyrir
ferðamennina þá hækkar skattur-
inn í 24,5%.“
Pétur J. Eiríksson markaðsstjóri
Flugleiða fjallaði um markaðssókn
ferðaþjónustunnar og sagði hann
að á síðustu árum hefði íslensk
ferðaþjónusta vaxið umtalsvert og
hún aukið hlutdeild sína
í markaðslöndunum, hún
væri orðin arðbærari og
skilaði mun meiri tekjum
af hveijum ferðamanni
en áður. Stærsti erlendi
markaðurinn er Mið-Evrópa en það-
an komu 65.385 ferðamenn á síð-
asta ári og er spáð 8% árlegri fjölg-
un til aldamóta, Norðurlönd eru
næst stærsti markaðurinn með
59.193 ferðamenn í fyrra en þar
er gert ráð fyrir einna minnstri
árlegri fjölgun eða 4% til alda-
móta. Frá Austurlöndum fjær
komu 4.407 ferðamenn í fyrra og
þaðan er spáð mestri fjölgun eða
15% árlegri aukningu til aldamóta
og 10% frá Bandaríkjunum og
Suður-Evrópu.
Aukin kynning
á heimamarkaði
Pétur sagði styrk íslands á er-
lendum ferðamarkaði felast í nátt-
úru, sögu og menningu og ímynd
hreinleika en einnig væru óvenjuleg
afþreying, víðátta og kyrrð sem
andstæða fjöldaferðamennsku mik-
ilvægir þættir. Veikleikarnir væru
hins vegar skortur á fjármagni,
ónógt skipulag og samstarf aðila,
fjarlægð frá mörkuðum og ónóg
þekking á markhópum og þörfum
þeirra. Þá sagði hann heimamark-
aði hafa lítið verið sinnt af yfirvöld-
um ferðamála fyrr en á síðustu
árum.
„Kannanir benda til þess að um
það bil 190.000 innanlandsferða-
menn ferðist árlega um ísland og
veiji að jafnaði til þess 14 dögum.
Eyðsla sé 2.500 krónur á mann á
dag eða rúmlega 7 milljarðar á ári.
Þar af sé 4-5 milljarða eyðsla bein-
línis til komin vegna ferðar fólks
að heiman. Áætlaðar gistinætur
innanlandsferðamanna á síðasta ári
eru því 2,7 milljónir, þar af 60-70%
á tímabilinu maí-ágúst.“
Hörður Sigurbjarnarson fjallaði
í erindi sínu um ferðaþjónustu og
umhverfisvernd og sagði á margan
hátt kveðið við nýjan tón í afstöðu
og væntingum til greinarinnar og
í stefnunni væri lagt til að ferða-
þjónustan taki á metnaðarfullan
hátt frumkvæði á sviði umhverfis-
verndar. „Of áberandi hefur verið
ótti við eyðileggjandi áhrif ferða-
mannsins á náttúruna og lífríkið.
Vissulega má finna dæmi um traðk
og skemmdir á fjölförnum viðkomu-
stöðum ferðamanna, en auðveldlega
má koma í veg fyrir slíkt með fyrir-
byggjandi aðgerðum og í því efni
hefur einmitt vantað
stefnu sem sátt hefur
verið um,“ sagði Hörður.
Þá nefndi hann þau já-
kvæðu tengsl ferðaþjón-
ustu og atvinnulífs þar
sem bæði á Nesjavöllum og í Svarts-
engi hefði tekist vel til um kynningu
á þessum þætti lífsgrundvallar
landsmanna. „Við getum jafnframt
látið þau vísa fram á veginn. Hægt
væri að sýna og kynna mun fleiri
orkuver bæði vatns- og jarðgufu-
virkjanir að ógleymdum iðjuverum
í fiskvinnslu og ýmsum öðrum
óskyldum iðnaði." ■
Samnýfingin
þyrfti að vera
meiri
Útskrift frá Feröamála
skóla Islands
48 nemendur luku prófum frá
Ferðamálaskóla íslands í maí. Um
er að ræða kvöldskóla þar sem boð-
ið er upp á 19 áfanga sem allir
tengjast ferðaþjónustu. Nemendur
geta sjálfir ráðið námshraða sínum,
tekið einstaka áfanga, eða tveggja
anna heildstætt nám sem lýkur með
afhendingu prófskírteinis í ferða-
frséðum. I lok þess náms hafa nem-
endur lokið 30 einingum sem nýt-
ast í framhaldsskólakerfinu eða í
háskólum erlendis. í síðasta mánuði
luku 11 nemendur slíku námi.
Markmið Ferðamálaskólans er
að undirbúa nemendur undir alhliða
störf í ferðaþjónustu á íslandi.
Næsta haust mun skólinn bjóða upp
á nám, IATA-UFTAA, sem er
skipulagt af alþjóðlegu flugmála-
samtökunum IATA og veitir alþjóð-
lega viðurkenningu. Þá hefur skól-
inn aukið til muna samstarf við
erlenda háskóla. Hann sér jafn-
framt um menntunarþátt sam-
starfssamnings á sviði ferðaþjón-
ustu milli Islands, Færeyja og
Grænlands. ■
NEMENDUR sem luku tveggja anna prófi frá
Ferðamálaskóla íslands í maí.
2000 Norðmenn
ó Víkinqahótíð 1997
Minnast
Jandnáms
íslands f rá
V-Noregi
ALLT að tvö þúsund Norðmenn
eru væntanlegir til íslands næsta
sumar í tengslum við Víkingahátíð
í Hafnarfirði 9.-13. júlí á næsta
ári. Yfirlýstur tilgangur ferðarinn-
ar er að minnast landnáms íslands
frá Vestur-Noregi fyrir rúmlega
1100 árum og að styrkja vináttu-
bönd og menningartengsl þessara
bræðraþjóða, en hálft ár er síðan
9 manna undirbúningsnefnd var
sett á laggimar til þess að skipu-
leggja þessa miklu siglingu í kjöl-
far landsnámsmanna.
Norðmennirnir koma til íslands
á vegum Florö siglingaklúbbsins í
V-Noregi. Ákveðið hefur verið að
sigla til íslands með viðkomu á
Sheltlandseyjum og Færeyjum.
Um eitt hundrað bátar, 30 ft. og
lengri munu taka þátt í sigling-
unni, bæði seglbátar og mótorbát-
ar. Áuk þess mun stórt farþega-
skip fylgja bátalestinni, skólaskip-
ið og seglskipið Sörlandet og
öflugur björgunarsveitarbátur
mun leiða lestina. Þá er búist við
því að 300-700 manns komi til
Islands með flugvélum í tengslum
við ferðina sem hefst í lok júní
1997. Alls búast forsvarsmenn
siglingarinnar við því að um tvö
þúsund Norðmenn komi til lands-
ins af þessu tilefni.
Norsk listsýning í Hafnarflrði
og fyrirlestrar
Samvinna verður á milli Hafnar
í Hornafírði og Hafnarfjarðar um
mótttöku gestanna, þar sem allir
bátamir munu sigla til Hafnar, en
þeir hraðskreiðustu áfram til Vest-
mannaeyja og Hafnarfjarðar.
Norðménnirnir munu setja upp
listsýningu í Hafnarfirði auk þess
sem fyrirlesarar frá þeim munu
koma fram á Víkingahátíðinni. ■
Vísa kynnir
London
LONDON er vinsæll og fjölsóttur
áfangastaður íslendinga enda
mikið framboð þar af afþreyingu
við allra hæf. Vísa hefur í sam-
vinnu við bresk ferðamálayfírvöld,
hleypt af stokkunu sérstöku átaki
þar sem korthöfum njóta sérkjara
og/eða sérþjónustu hjá yfír 200
þjónustuaðilum í borginni. Átakið
stendur til marsloka á næsta ári.
London er fyrsta borgin þar sem
efnt er til samstarf Vísa og við-
komandi ferðamálayfírvalda, en
áður hafa ákveðin lönd verið kynnt
á hliðstæðan hátt. Nú stendur til
dæmis yfir slíkt átak í Frakklandi
eins og áður hefur verið sagt frá.
Hjá Þjónustumiðstöð Vísa að Álfa-
bakka 16 í Reykjavík er hægt að
fá sérstök tilboðshefti ásamt nán-
ari upplýsinum. Þá hafa tilboðs-
heftin vérið send ferðaskrifstofum
og helstu söluskrifstofum Flug-
leiða.
Afsláttur í dýragarð
Þar eru kynnt tilboð þekktra
fyrirtækja; Hilton hótelann og Pla-
net Hollywood veitingastaðarins
meðal annarra, auk afsláttar á
skoðunarferður og aðgangseyri að
þekktum ferðamannastöðum, til
dæmis dýragarðinum í London,
Kew Gardens og Tower Bridge.