Morgunblaðið - 12.06.1996, Síða 1
I
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1
%
_
I
-
HANDKNATTLEIKUR
Milisic úr-
skurðaður í
þriggja leikja
bann
SLOBODAN Milisic leikmaður Leifturs var í gær
úrskurðaður í þriggja leikja keppnisbann á fundi
aganefndar KSÍ. Astæðan er að hann réðst á
Mihajlo Bibercic leikmann ÍA í viðureign Leift-
urs og í A á Ólafsfirði á laugardaginn og sló
hann með olboganum. Engin skýrsla kom frá
dómara leiksins og því var bannið úrskurðað
eftir sjónvarpsupptöku frá leiknum. Að sögn
Geirs Þorsteinssonar skrifstofusljóra KSI er
þetta i fyrsta skipti sem aganefnd úrksurðar leik-
mann í leikbann eftir sjónvarpsupptöku eftir að
henni varð það heimilt samkvæmt lagabreytingu
sem samþykkt var á síðasta þingi sambandsins.
Þetta er því tímamótaúrskurður hjá nefndinni.
Milisic leikur með félögum sinum gegn Kefla-
vík í kvöld því úrskurður aganefndar tekur ekki
gildi fyrr en á hádegi næstkomandi föstudag. Á
sama fundi var Steinar Adolfsson einnig úrskurð-
aður í tveggja leikja bann vegna þess að hann
fékk annað rauða spjaldið sitt i sumar i umrædd-
um leik Leifturs og IA.
PLÁSTUR á nefinu hefur verið
áberandi í Evrópukeppninni í
knattspyrnu sem nú stendur yfir
í Englandi og ítalinn Perluigi
Casiraghi, sem á myndinni fagn-
ar öðru tveggja marka sinna í
gærkvöldi gegn Rússum, er einn
fjölmargra sem hafa nýtt sér
plásturinn eins og sjá má á nefi
hans. Menn hafa velt vöngum
yfir því til hvers menn séu með
plásturinn og til að forvitnast um
hvort og þá hvaða áhrif plástur-
inn hefði hafði Morgunblaðið
samband við Einar Thoroddsen,
háls-, nef- og eyrnalækni. „Það
er í raun ekki mikið um þennan
plástur að segja. Hann hefur ver-
ið notaður í lækningaskyni og þá
fyrst og fremst til að auðvelda
öndun fólks um nætur. Eg tel að
plásturinn hafi lítið að segja fyr-
ir knattspyrnumenn því þeir sem
eru á stöðugum hlaupum í niutíu
mínútur anda miklu frekar með
munninum. Annars virkar þetta
líkt og eins konar sperra á nasirn-
ar en plásturinn límir niður nef-
hrygginn og opnar þar með fyrir
betri öndun í gegnum nefið. Ef
þú værir hestur myndi þetta
eflaust hjálpa þér miklu meira
heldur en inni á knattspyrnuvell-
inum. Nei, svona að öllu gamni
slepptu þá held ég að þetta geri
knattspyrnumönnum lítið gagn,
hjálpar kannski sumum einhvern
tímann, en að leikmenn komist í
landsliðið bara fyrir það eitt að
vera með plástur á nefinu tel ég
ekki inni í myndinni."
íslendingar urðu fyrst varir við
þennan plástur í vetur hjá Robbie
Foweler leikmanni Liverpool.
Kapparnir í Evrópukeppninni
nota margir plásturinn og nokkr-
ir KR-ingar hafa sést með hann
í síðustu leikjum. „Það var einn
KR-ingur í Bandaríkjunuin um
daginn og keypti talsvert af
plástri og nokkrir í liðinu hafa
prófað hann,“ segir Einar Þór
Daníelsson leikmaður KR, sem
hefur prófað plásturinn. „Maður
finnur mun um Ieið og plásturinn
er settur á nefið og hann gerir
öndunina auðveldari," sagði Ein-
ar Þór. Plásturinn fæst ekki hér
á landi enn sem komið er en bú-
ast má við honum fljótlega.
Nokkrir viðmælenda blaðsins
töldu augljóst að plásturinn' æri
fyrst og fremst tískufyrirbrigði
sem gerði ekkert, eða mjög lítið
gagn-
Romario til
Valencia
BRASILISKI knattspyrnumaðurinn Romario er
á leið til Spánar á ný eftir ársdvöl hjá Flamengo
í heimalandi sínu ef marka má orð Francisco
Roig stjórnarformanns spænska félgasins Va-
lencia í gær. „Romario vill verða í brasiliska
landsliðinu í HM í Frakklandi eftir tvö ár og það
þýðir aðeins eitt. Hann mun leggja sig allan fram
með okkur til að sýna fram á að hann verð-
skuldi landsliðssætið," sagði Roig.
Romario, yfirgaf Barcelona á sínum tíma og
bar við heimþrá, er ekki sáttur við að deila sviðs-
ljósinu hjá Flamengo með Bebeto sem nýlega kom
heim frá Spáni. Spænska fréttastofan EFE sagði
í gær að kappinn fengi um 520 milljónir króna
í sinn hlut fyrir tveggja ára samning við Valenc-
ia liðið. Romario gæti þó orðið sínum nýju félög-
um enn dýrari því samkvæmt samningi sem hann
gerði við Barcelona er hann yfirgaf félagið þarf
Valencia að greiða Katalóníumönnum um 460
milljónir geri hann samning fyrir árslok. Roig
var þó bjartsýnn á að semja mætti um skynsam-
lega lausn mála og Romario yrði með Valencia
frá upphafi keppnistímabilsins.
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, um 17 marka tapið gegn Dönum
Peningaskortur kom
niður á undirbúningnum
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik, segir að ófar-
ir íslenska piltalandsliðsins í Evrópukeppninni, 17 marka tap fyrir
Dönum, væri hægt að rekja til þess að engir peningar hafi verið til
að undirbúa liðið fyrir keppnina. „Danir voru búnir að kosta mikiu
til við að undirbúa sitt lið. Þeir fóru meðal annars á æfingamót í
Portúgal, Austurríki og Sviss á meðan við vorum að reyna að æfa
hér heima. Það var nógu erfitt fyrir okkur að fá strákana utan af
landi á æfingar til Reykjavíkur. Munurinn á íslenska og danska lið-
inu felst fyrst og fremst í því að samæfing Dana var mun meiri.“
Þorbjörn sagði að til marks um
samæfinguna hafí danska liðið feng-
ið 15 hraðaupphlaup í leiknum. „Við
vorum að missa boltann allt of oft
í sókninni og fengum þá hraða-
upphlaup á okkur í staðinn. Vegna
peningaskorts gátum við ekki und-
irbúið liðið nægilega vel og það er
sárt. Það er nú einu sinni svo að
það helst oft í hendur, ef litlir pen-
ingar eru til undirbúnings er lítili
árangur. Við erum ekkert með verri
handboltamenn en Danir, en þeir
hafa betur samæft lið og það gerði
gæfumuninn. Það þarf að kosta
meiru til ef meiri árangur á að nást.“
Fyrir þremur árum náði 21 árs
liðið þriðja sæti á heimsmeistara-
mótinu í Egyptalandi, eru strákarn-
ir í þessu liði ekki eins efnilegir?
„Jú, ég held það nú. En þetta
bronslið var búið að undirbúa sig
mjög vel fyrir HM. Það fór meðal
annars á Norðurlandamót fyrir
keppnina og það var góður undir-
búningur. Það var meira lagt í það
lið en oft áður. Það eru margir efni-
legir strákar í þessu 20 ára liði sem
fór til Danmerkur og hafa verið að
spila með liðum hér í 1. deild og
staðið sig vel. Handboltageta þeirra
er fyrir hendi, en það vantar meiri
samæfingu til að búa til betra lið.“
Verður ekki sama vandamáiið
upp á teningnum í sambandi við
undirbúning A-Iandsliðsins fyrir
' undankeppni HM í haust, peninga-
leysi HSl?
„Nei, það vill svo skemmtilega
til að við fengum peningaverðlaun
[600 þúsund krónur] fyrir að vinna
mótið í Japan í síðasta mánuði auk
styrkja. Það er nóg til að fleyta
okkur áfram í þessum undirbúningi
landsliðsins fram á haustið. En því
miður voru þetta ekki nægilega
miklir peningar til að setja þá líka
í unglingaliðið."
1996
MIÐVIKUDAGUR 12.JÚNÍ
BLAD
Plásturinn
auðveldar
öndunina
ÍSHOKKÍ: COLORADO AVALANCHE VANN STANLEYBIKARINN / C4