Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 4
4 D SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VEL er frá öllu gengið í mælaborði og þar er allt sem menn
þurfa að hafa fyrir venjulega meðhöndlun bílsins
en ekkert umfram það.
Morgunblaðið/Þorkell
ALDRIFIÐ gerir Golf að mjög rásföstum og öruggum bíl við erfiðustu skilyrði.
Öruggur Golf long-
bokur með oldrifi
Verðið
húsinu hallar dálítið niður á við.
Langbakurinn er 32 cm lengri en
hinn venjulegi Golf en heildarlengd-
in verður þó aðeins 4,34 metrar sem
gerir hann að meðalstórum bíl.
Rúmgóður
Að innan er Golf langbakur vel
rúmgóður og öll sætin fara vel með
menn og veita góðan stuðning á
réttum stöðum. Fóta- og höfuðrými
er vel nægjanlegt og vel getur far-
ið um fímm í bílnum þótt menn
kjósi kannski síður að ferðast þann-
ig fímm fullvaxnir saman. Farang-
ursrýmið myndi þó alveg leyfa það
þar sem það tekur 466 lítra og
virðist nýtast mjög vel. Mælaborðið
er kannski það sem virkar dálítið
klossað, stokkurinn umhverfís
mælana er voldugur og mikill.
Hérlendis er Golf Syncro lang-
bakur boðinn með 1,8 lítra, fjög-
urra strokka og 90 hestafla vél.
Hún er ágætlega spameytin og
hljóðlát, í meðallagi rösk og með
fímm gíra handskiptingu má ná
ágætri vinnslu. Togið er 145 Nm
við 2.500 snúninga. Ekki er boðið
uppá annað en handskiptinguna í
aldrifs- Golfínum. Skemmtilegast-
ur væri þessi knái bíll vissulega
með stærstu vélinni en hún er 2,9
lítrar og 190 hestöfl en þá væri
verðið líka trúlega komið út eða
uppfyrir getu þeirra sem annars
geta vel hugsað sér fótvissan al-
drifsbíl frá Volkswagen. Og 90
hestafla vélin dugar lengi vel - það
er trúlega helst þegar bíllinn er
orðinn vel lestaður til langferðar
sem vinnslan tekur að gerast hæg-
ari en gaman er að.
Sítengda aldrifið
Rúmur áratugur er síðan
Volkswagen verksmiðjurnar komu
fyrst fram með syncro drifíð, sí-
tengda aldrifið sem nú er notað
meðal annars í Golf, Passat og
Caravell (,,rúgbrauðið“) bílana.
Syncro kerfíð er þannig úr garði
gert að það dreifir drif-átakinu eða
jafnar það. Við akstur í venjulegum
aðstæðum er aðalþunginn á fram-
drifínu en taki þau að spóla í hálku
eða möl eða ef losnar um þau af
einhverjum ástæðum færist átakið
meira til afturhjólanna og getur
við erfiðustu skilyrði legið ein-
göngu þar. Þessi aflflutningur ger-
ist með svonefndu seigjutengsli og
tengist drif framhjólanna afturöxli
í mismunadrifí. Það er fyllt þessari
silikon-olíu sem tengir drifátakið
saman eftir því sem snúningur seg-
ir til um.
Þessi syncro-drifbúnaður er
mjög lipur og finnast ekki að marki
neinir hnökrar þótt verið sé að
skaka bílnum í kröppum beygjum,
jafnvel á þurru malbiki. Segja má
að aldrif sé að verða valkostur sem
bílkaupendur vilja hafa og er þá
ekki aðeins verið að tala um þá sem
vegna búsetu eða atvinnu þurfa
að fara um erfíða vegi við slæm
skilyrði. Það er miklu fremur litið
á aldrif, ekki síst sítengt, sem góð-
an kost og lið í því að gera bíl
rásfastan og öruggan við allan
venjulegan akstur, á hraðbrautum,
venjulegum þjóðvegum og ekki síst
eins og hérlendis kannski malar-
vegum og hálum vegum. Það eins
sem truflar þegar ekið er á mölinni
GOLF með sitengdu aldrifi er eins í útliti og venjulegur langbakur.
Verðið er sem fyrr segir kr.
1.790.000 fyrir þennan aldrifskost.
Ástæða þess að Golf Syncro hefur
ekki verið boðinn hérlendis fyrr er
með framdrifinu eingöngu kostar
kr. 1.548.000 og er með 1,6 lítra
vél þannig að verðmunurinn liggur
ekki aðeins í aldrifinu. Þetta er vel
boðlegt verð og fyrir það fá menn
bíl með góðum staðalbúnaði, ör-
uggan á hvers kyns vegum og rúm-
góðan til ferðalaga og alhliða notk-
unar sem fjölskyldubíll. ■
Jóhannes Tómasson
Qg| GOLF, millistærðarbíllinn frá
^ Volkswagen verksmiðjunum
þýsku, hefur um árabil notið
Wi feikimikilla vinsælda hérlend-
is rétt eins og víðast hvar í
heiminum þar sem menn hafa
komist í tæri við hann enda
er salan í heild orðin yfír 20
</> milljón stykki. Síðasta kyn-
* slóðin kom fram fyrir um fjór-
um árum, heldur stærri og
Ui betur búin en fyrri gerðir.
CC Volkswagen umboðið hér-
lendis, Hekla hf., hefur nú
tekið að bjóða Golf langbakinn með
aldrifí og verður hann tekinn til
nánari skoðunar hér í dag. Hann
er tilsýndar rétt eins og venjulegur
langbakur en munurinn liggur sem
sagt í drifinu, sítengdu aldrifi með
seigutengsli sem gerir bílinn sér-
lega rásfastan og öruggan, til
dæmis sem ferðabíl á íslenskum
malarvegum. Þessi gerð með 90
hestafla 1,8 lítra vél kostar
1.790.000 krónur.
Golf Syncro langbakur eða Var-
iant eins og hann er nefndur í út-
landinu er smekklega hannaður
bíll, liggur Iáréttur á vegi, hefur
sæmilega volduga stuðara og hlið-
arlista og þaklistar gefa ákveðinn
svip. Línur eru hreinar og beinar,
þaklínan ofurlítið hallandi aftur
eftir bílnum og fara hliðarrúðurnar
því minnkandi. Allar rúður eru þó
ágætlega stórar og útsýni með
ágætum. Framendinn á Golf lang-
baknum er eins og á hinni gerð-
inni, luktir voldugar og stefnu- og
stöðuluktimar í stuðaranum vel
áberandi. Vatnskassahlífín er mjög
fínleg með VW merkinu og vélar-
HÆGT er að koma um 466 lítrum í farangursrýmið
og stækka það uppí 1.425 lítra.
Rásfastur
Rúmgóður
Þýður
Vegahljóð
er vegarhljóð sem getur orðið hvim-
leitt á stundum. Annan snöggan
blett er ekki að finna á þessum bíl.
Liggur vel
Víst er að ekki verða menn fyr-
ir vonbrigðum með aldrifið í Golf
Syncro. Fyrir utan hvað það er lip-
urt sem áður var minnst á er bíll-
inn einstaklega rásfastur og
skemmtilegur viðureignar á þjóð-
vegi. Góð fjöðrun gerir sitt til þess
að bíllinn liggur vel á mölinni og
óhætt er að bjóða honum talsvert
meira álag í beygjum og alls konar
aðstæðum - trúlega gott meira
álag en hraðamörkin segja til um.
í þéttbýlinu er Golf lipur vel og
þótt ekki hafi á þessum björtu
sumardögum tekist að reyna hann
Golf Variant
með aldrifi
í hnotskurn
Vél: 1,8 lítrar, 4 strokkar, 90
hestöfl, rafeindastýrð inn-
sprautun.
Vökvastýri - veltistýri.
Fimm manna.
Sítengt aldrif.
Samlæsingar.
Hæðarstilling á ökumanns-
sæti.
Rafdrifnar speglastillingar.
Hiti í hliðarspeglum.
Þokuljós að aftan.
Lengd: 4,34 m.
Breidd: 1,69 m.
Hæð: 1,43 m.
Hjólhaf: 2,47 m.
Þyngd: 1.190 kg.
Bensíneyðsla: 9,911 þéttbýli,
61 á jöfnum 90 km hraða.
Þverm. beygjuhrings: 10,7 m.
Staðgreiðsluverð kr.:
1.790.000.
Umboð: Hekla hf., Reykjavík.
í hálkufæri þá er ljóst að þar sem
veggripið er öruggt og heldur bíln-
um vel stöðugum í kröppum beygj-
um tná treysta honum nokkuð vel
í hálku þótt enn megi minna á eins
og svo oft áður að ekki er allt full-
komlega öruggt þótt tæknin sé
góð. Og endurtaka má að ákjósan-
legra væri að fá meiri snerpu en
skynsemin segir hins vegar að 90
hestafla vélin nægi og hæfi betur
kaupgetunni.