Morgunblaðið - 06.07.1996, Blaðsíða 1
4-
i
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
SUND
1996
LAUGARDAGUR 6. JULÍ
BLAD
Sigrún
Huld setti
heimsmet
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir úr
Ösp bætti heimsmetið í 200
metra fjórsundi þroskaheftra á
fyrsta degi Meistaramóts ís-
lands í sundi sem hófst í Laug-
ardalslaug í gærkvöldi. Hún
synti á 2.59,08 mín. og bætti
metið um eina sekúndu. Það var
áströlsk stúlka sem átti eldra
metið.
Mótinu verður framhaldið í
dag kl. 11 og lýkur kl. 17 með
úrslitasundum. Á morgun hefst
keppni á sama tíma og lýkur
um-kl. 17.30. Alls eru 600 skrán-
ingar í mótinu.
Myndin hér fyrir ofan er frá
keppni í 4x100 metra boðsundi
kvenna á Meistaramóti íslands
í Laugardalslaug í gærkvöldi.
■ Úrsiit / C2
Morgunblaðið/Þorkell
KNATTSPYRNA
Akureyrarslagur í
átta liða úrslitum
Það verður sannkallaður Akureyrarslagur
í átta liða úrslitum bikarkeppni karla
þegar Þór og KA mætast á Akureyrarvelli
fímmtudaginn 18. júlí, en dregið var í næstu
umferð í hádeginu í gær. Aðrir leikir á dag-
skrá umferðarinnar eru þeir að bikarmeistarar
KR mæta Valsmönnum að Hlíðarenda mið-
vikudaginn 17. júlí og Keflavík tekur á móti
Leiftri sunnudaginn 14. júli. Sama dag eigast
einnig við íslandsmeistarar ÍA og Fylkir á
Akranesi.
„Mér var sagt af draumspökum manni fyrir
leikina í sextán liða úrslitum að ég skyldi fara
á Árbæjarvöll og fylgjast með leiknum sem
þar færi fram. A þeim velli léki það lið sem
’við Skagamenn fengjum í næstu umferð og
það gekk eftir," sagði Guðjón Þórðarson, þjálf-
ari IA, í gær eftir að ljóst var hvaða andstæð-
inga hann fengi í átta liða úrslitum. „Ég fór
eftir þessu og sá Fylkismenn sigra Skallagrim
í Árbæ og er þokkalega sáttur við mótheijann.
Aðalatriðið var þó að fá heimaleik og Atli vin-
ur minn Eðvaldsson sá um það,“ bætti Guðjón
við og skírskotaði til þess að einn þeirra sem
dróg nöfn félaganna upp í brúsanum í gær var
Atli Eðvaldsson, þjálfari ÍBV.
„Ég hlakka til að mæta Valsmönnum og
er viss um að þarna verður um skemmtilegan
leik að ræða,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari
bikarmeistara KR, er í ljós kom að næsti leik-
ur í titilvörninni verður gegn Val að Hh'ð-
arenda. „KR-liðið hefur verið í úrslitum tvö
síðustu ár og strákamir þekkja hvað þarf til
að komast þangað. Þeir vita einnig. hversu
gaman það er að leika til úrslita og sigra og
þess vegna er ég viss um að þeir koma ákveðn-
ir til leiks gegn Val því sigurinn er ekki gef-
inn. Það verður ekkert kæruleysi þrátt fyrir
að okkur hafí gengið vel gegn Valsmönnum
í vor og sumar.“
Martha náði
ekki lágmarkinu
MARTHA Ernstsdóttir, hlaupakona úr ÍR, náði
ekki ólympíulágmarkinu í 5.000 metra hlaupi
kvenna á Bislett-leikunum í Osló í gærkvöldi. Hún
hfjóp á 16.11,39 mín. og kom síðust í mark af
þeim 12 sem iuku hlaupinu. íslenska ólympíulág-
markið í greininni er 16.00,00 mínútur.
Sigurvegari í hlaupinu í gær var Fernanda Ri-
beiro frá Portúgal sem hIjóp á 14.41,07 mínútum
og er það vallarmet. Gabriela Szoabo frá Rúmen-
íu varð önnur á 14.41,12 mín. og Julia Vaquero
frá Spáni þriðja á 14.44,95 mín. 10 fyrstu stúlkurn-
ar hlupu undir 16 minútum.
Martha fer til Bandaríkjanna á þriðjudag til
að keppa og reyna við ólympíulágmarkið, en hún
þarf að vera búin að ná því fyrir miðnætti 15.
júlí. Ólympíuleikamir í Atlanta verða settír 19. ^
júlí, eftir hálfan mánuð.
«■- v
Tveir norskir
landsliðsmenn til
Manchester United
MANCHESTER United hefur gert samning við
tvo norska landsliðsmenn i knattspyrnu. Félagið
keypti miðvörðinn Ronnie Johnsen frá Besiktas í
Tyrklandi fyrir um 120 miHj. kr. og gerði fimm
ára samning við hann. Miðheijinn Ole Gunnar
Solskjær var keyptur frá Molde í Noregi fyrir um
150 miHj. kr. „Ég er ánægður með þessa samn-
inga,“ sagði Álex Ferguson, knattspyrnustjóri
United, í gær. „Ronnie er stór, snöggur og sterk-
ur í návígi. Koma hans eykur samkeppnina um
stöður í vöminni sem er af hinu góða. Hann er
reynslumikill og aðlagast auðveldlega. Ole er
maður framtfðarinnar en hann er framheiji af
guðs náð.“
Barcelona samdi við
Baia en ekki Köpke
ÞÝSKI landsliðsmarkvörðurinn Andreas Köpke
fer ekki til Barcelona, en fyrir skömmu var greint
frá því að hann hefði samþykkt að gera samning
til tveggja ára við spænska félagið. Bobby Rob-
son, nýráðinn þjálfari Barcelona, gerði hins vegar
samning við Portúgalann Vitor Baia tíl átta ára,
en Baia, sem er 26 ára, var undir stjóra Robsons
hjá Porto. Spænska fréttastofan EFE sagði að
Baia gæti fengið um 100 milfj. króna í árslaun,
en Robson hefði snúið sér að Baia þegar ekkert
hefði gengið að semja við Köpke sem er 34 ára.
Fyrir Evrópukeppnina gerði Köpke samkomulag
við Stuttgart, en í fyrradag ákvað þýska knatt-
spymusambandið að honum væri fijálst að fara
frá Frankfurt til Barcelona. Af því verður ekki.
Joachim Björklund til
Glasgow Rangers
SVÍINN Joachim Björklund, sem á 44 landsleiki
að baki, gekk í gær frá samningi við Glasgow
Rangers í Skotlandi og er samningurinn metinn
á um 260 miljj. króna. „Ég lít á Rangers sem
eitt af 6 bestu liðum Evrópu,“ sagði þessi fjöl-
hæfi knattspyraumaður sem vill helst leika sem
miðvörður. „Ég heyrði fyrst af áhuga félagsins
í liðinni viku og það tók mig aðeins tvo daga
að segja já.“ Walter Smith, knattspyraustjóri
Rangers, sagði að Björklund væri góð viðbót.
„Hann stóð sig vel með Vicenza í ítölsku deild-
inni í vetur og þar sem hann er aðeins 25 ára
væntum við þess að njóta bestu ára hans. Hann
hjálpar okkur að halda áfram á sigurbraut.“
George Weah tekur lagið
HINN stórsiyalli leikmaður hjá AC Milan, Ge-
orge Weah frá Líberiu, söðlar heldur betur um
seinna í þessum mánuði og bregða sér í annað
hlutverk en hann er vanur. Samkvæmt fréttum
frá Ítalíu mun kappinn koma fram á góðgerðar-
tónleikum þar ytra og taka lagið með ítölsku
blússveitinni Zucchero. Tónleikarnir verða
haldnir þann 17. júlí nk. á San Siró-leikvanginum
í Mílanó, heimavelli Weahs, til styrktar flótta-
fólki frá Líberíu. Af öðrum frægum köppum,
sem koma munu fram á tónleikunum, má nefna
söngvarana Youssou N’Dour frá Senegal og
Salif Keita frá Malí.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: TVEGGJA ÁRA SIGURGANGA JOHNSONS ROFIN / C3