Morgunblaðið - 17.07.1996, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA: EVRÓPULEIKIR ÍA OG ÍBV / D2-D3
1996
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 17.JULI
BLAÐ
Morgunblaðið/Golli
KR-ingar í undanúrslit
KR vann Val 2:0 í átta liða úrslitum bikarkeppni KSI og er komið í undanúrslit ásamt IA og IBV en Þór og KA
elgast við á morgun. Ríkharður Daðason gerði fyrra mark KR en á myndinni fagnar Guðmundur Benediktsson
marki sínu og öðru marki KR. Ásmundur Haraldsson tll vlnstri lagði upp markið. Leikurlnn/D4.
OLYMPIULEIKARNIR I ATLANTA
Pétur og Sigurður
féngu frest til kvölds
Framkvæmdastjórn Ólympíunefndar ís-
lands ákvað á fundi sínum í gær að
veita Pétri Guðmundssyni kúluvarpara og
Sigurði Einarssyni spjótkastara frest til
kvölds til að ná lágmörkum fyrir Ólympíu-
leikana í Atlanta sem verða settir á föstu-
dag. Þeir taka þátt í móti í útborg Atlanta
í dag og nái þeir lágmörkunum verður
þeim bætt við ólympíuhóp íslands en ann-
ars verða þeir úti í kuldanum.
Fyrir fundinum í gær Iágu bréf frá
íþróttamannanefnd Óí, þar sem óskað var
eftir að Pétur og Sigurður yrðu þegar
skráðir í ólympíuhópinn, og frá Fijáls-
íþróttasambandinu, þar sem óskað var eft-
ir að þeir fengju frest til 21. júlí til að ná
lágmörkunum, ásamt stöðumati Gísla Sig-
urðssonar, ólympíuþjálfara. Málið var rætt
og vildi Margrét Bjarnadóttir að kösturun-
um yrði bætt strax í hópinn en sú skoðun
fékk ekki stuðning. Ósk FRÍ var heldur
ekki tekin til greina en nefndin féllst ein-
huga á að veita kösturunum frest til kvölds
til að ná settu marki þar sem þeir hefðu
ekki getað sannað sig endanlega á mótum
sem þeir höfðu skráð sig í vegna þess að
þau féllu niður í heild eða þeirra greinar.
Pétur og Sigurður kepptu sl. laugardag
og varpaði Pétur þá kúlunni 19,18 m en
Sigurður kastaði spjótinu 77,62 m. Lág-
markið i kúlu-er 19,50 m og í spjótkasti
79,90 m. Þeir verða með á móti í dag sem
er fyrst og fremst sett á fyrir Bandaríkja-
menn sem eiga eftir að ná lágmörkum.
KJartan
Jón Arnar bættf sig
Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmað-
ur, keppti á móti í LaGrange í Bandaríkjun-
um um helgina og bætti sig í tveimur
greinum. Hann kastaði spjóti 64,60 metra
og bætti sig um tvo metra og varpaði
kúlu 15,60 metra, en hann átti áður best
15,49 metra. Hann hljóp 100 metra á
10,4 sek. og 110 m grindahlaup á 14,28
sek.
„Árangurinn á mótinu um helgina lofar
góðu. Undirbúningurinn hefur gengið mjög
vel enda mjög góðar aðstæður hér til æf-
inga. Ég hlakka til að keppa á leikunum,"
sagði Jón Arnar sem byijar keppni á
Ólympíuleikunum 31. júlí.
Kjartan
Steinbach for-
maður dómara-
nefndar Alþjóða
handknattleiks-
sambandsins
KJARTAN Steinbach var í gær kjörinn formaður
leikreglna- og dómaranefndar Alþjóða handknatt-
leikssambandsins, IHF, en Kjartan situr þing IHF
í Atlanta i Bandaríkjunum þessa dagana. „Ég er
mjög ánægður með kjörið og verð að segja eins
og er að þetta var heýar-
innar fjör og lyartað sló
svo sannarlega á meðan á
talningu stóð,“ sagði
Kjartan í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta gef-1
ur okkur möguleika á að
koma fram okkar sjón-
armiðum, en það hefur
reynst okkur erfitt í gegn-
um tíðina,“ sagði Kjartan.
Þrír voru í kjöri, Kjart-
an, ítali að nafni Lacascio
og Norðmaðurinn Öivind
Bolstad, en hann hefur
yerið varaformaður nefndarinnar undanfarin ár.
í fyrri umferð kjörsins fékk Kjartan 37 atkvæði,
ítalinn 27 og fyrrum varaformaður 13. Þar sem
heiming atkvæða þarf til að vera löglega kjörinn
var kosið á milli Kjartans og Lacascio og þá hlaut
Kjartan 43 atkvæði en ítalinn 34. Litháin Javis
Grinbergas ætlaði að gefa kost á sér en dró sig
til baka áður en kom til kosninga.
„Það vakti mikla athygli hvað ítalinn fékk
mörg atkvæði því það vissi enginn innan hreyfing-
arinnar hver maðurinn var. Hann er frá Sikiley
og sagður vel efnaður enda barst hann mikið á,“
sagði Kjartan. Þetta er í fyrsta sinn sem íslending-
ur er kjörinn í nefnd hjá IHF og formennska í
nefndinni gefur sæti I aðalstjórninni en þar sitja
sautján manns. „Stjórnin ræður gríðarlega miklu
og má sem dæmi nefna að þegar reglum er breytt
ákveður stjórnin það, aðildarlöndin eru ekki einu
sinni spurð,“ sagði Kjartan, sem var kjörinn til
fjögurra ára. Næsta verkefni hans er að skipa
með sér þrjá menn í nefndina og verður það gert
í kvöld. Kjartan sagðist hafa rætt við Bolstad
eftir kjörið og hann hefði sagt sér að hann ætl-
aði ekki að gefa kost á sér í hana.
Örn Magnússon, framkvæmdastj óri Handknatt-
leikssambands íslands, er með Kjartani á þinginu
og sagði hann kjör Kjartans mikla viðurkenningu
fyrir íslenskan handknattleik. „Þetta er mikill
vegsauki fyrir okkur og í raun miklu sterkara
en ég held að menn geri sér almennt grein fyr-
ir,“ sagði Örn.
Sænska konan Karen Nielson Green sigraði
með glæsibrag í kjöri til formanns fræðslu- og
útbreiðslunefndar og felldi þar Þjóðverjann Hans
Georg Hermann.
Knattspyrnu-
landsliðið mætir
silfurliði Tékka
SILFURLIÐ Tékklands frá nýliðinni Evrópu-
keppni í knattspyrnu mætir islenska landsliðinu
í æfingaieik rétt við Prag miðvikudaginn 4. sept-
ember og kemur siðan til íslands á næsta ári.
Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusam-
bands íslands, ræddi við Tékkana um þessa leiki
meðan á EM stóð og tóku þeir vel í æfingaleiki
heima og að heiman en í gær fékk hann staðfest-
ingu á því að af þessu yrði.
„Það var nvjög mikilvægt fyrír okkur að fá
æfingaleik fyrir viðureignina á móti Litháen í
undankeppni HM, sem verður ytra 5. október, og
sérstaklega ánægjulegt að fá mótherja eins og
silfurlið Tékka,“ sagði Eggert við Morgunblaðið
í gær. Hann sagðist gera ráð fyrir að allir atvinnu-
mennimir yrðu með, svö framarlega sem þeir
væru heilir, með þeirri undautekniugu að óvíst
væri með leikmennina í Svíþjóð.