Morgunblaðið - 11.08.1996, Síða 2
2 D SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
BILAR
SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1996 D 3
Raddskynj-
ari í stað
takka
HÖNNUÐIR hjá Mercedes-Benz
og Daimler-Benz Aerospace
vinna nú að þróun nýs búnaðar,
svokallaðs raddskynjara, sem
mun í framtíðinni gera stóran
hluta af stjórnrofum í bílum
óþarfan. Farsímum verður t.a.m.
í framtíðinni stjórnað með radd-
skynjara fremur en rofum sem
þrýst er á með höndum.
Mercedes-Benz segir að þessi
nýja tækni muni ekki einvörð-
ungu auka þægindi bílstjórans
heldur einnig, og umfram allt,
auka öryggi hans. Að velja síma-
númer með því að gefa munnlega
skipun hefur það í för með sér
að ekki er nauðsynlegt að taka
hendur af stýri eða beina sjónum
frá veginum.
Á myndinni sést að við glugga-
skyggni er hljóðnemi sem tekur
við munnlegum skipunum og við
stýrið er hnappur sem þrýst er
á þegar talað er í síma. ■
LYKLA DISIN
PÓSTHÓLF488
fejlŒYKJAfík
Kippan Lykla Dís
FLESTIR hafa lent í því að týna
lyklunum sínum og þekkja það
óhagræði sem hlýst af því. Nú er
komin á markað svonefnd Lykla
Dís sem er lyklakippa sem ætti
að koma aftur í leitirnar. Á fram-
hlið kippunnar er nafnið Lykla Dís
ásamt heimilisfangi og póstnúmeri
en á bakhliðinni standa skilaboð
til finnanda Iyklakippunnar að
leggja hana í næsta póstkassa eða
lögreglustöð, ásamt númeri sem
eigandi lyklakippunnar er skráður
eftir.
Hlutverk Lykla Dísarinnar er
að koma kippunni aftur í hendur
eiganda ekki seinna en daginn
eftir að hún finnst. Þörfin fyrir
slíka Iyklakippu er brýn, ekki síst
þegar haft er í huga að bíllyklar
verða dýrmætari með hveiju ári
með áhangandi fjarstýringum og
rafrænum búnaði sem kostar
mörg þúsund krónur að end-
urnýja.
Fyrirtæki hafa keypt öryggis-
lyklakippur af þessari gerð fyrir
starfsmenn sína því jafnframt því
að hafa yfirlit yfir hvaða númer
hver starfsmaður hefur og hvaða
lyklar eru úti eru góðar líkur á
því að týndur lykill skili sér til
baka til fyrirtækisins.
Lykla Dísin kostar 850 kr. og
er seld hjá flestum bílaumboðum.
Fjallahjól með
gasdempurum
BMW er þekktur framleiðandi
gæðabíla en færri vita kannski að
fyrirtækið framleiðir einnig reið-
hjól. Nýlega setti BMW á markað
byltingarkennd fjallahjól með
fjöðrunarbúnaði sem hefur sannað
ágæti sitt í vélhjólum fyrirtækis-
ins.
Tæknina kallar BMW Telever
framhjólastýringu. í fremri hjóla-
gaffli hjólanna er gashöggdeyfir
sem hægt er að stilla á átta mis-
munandi vegu með tilliti til yfír-
borðsins þar sem á að hjóla eða
þunga knapans. Búnaðurinn kem-
ur einnig í veg fyrir að hjólið of-
rísi að aftan þegar hemlað er.
Búnaðurinn eykur stýringu á þess-
ari nýju kynslóð hjóla og þar með
öryggi og þægindi í notkun.
Hightech og Super-tech
Hjólin eru fáanleg í tveimur
gerðum, þ.e. Hightech og Super-
tech útfærslum. Þau eru bæði
ætluð þeim sem stunda reiðhjóla-
mennsku af ástríðu en munurinn
er sá að meira er vandað til hráefn-
is í Super-tech hjólunum. Bæði eru
þau smíðuð úr áli sem eykur stöð-
ugleika þeirra og dregur úr þyngd.
Við hönnun hjólanna voru þau
prófuð í sérstökum hristibúnaði
eins og vélhjól BMW eru prófuð
í. Þau reyndust afar stíf og losn-
aði ekkert um festingar eða bún-
að. Hjólin vega tólf kílógrömm og
hægt er að fella þau saman og
flytja þau í farangursrými bíla.
■
BÍLAR
Nærri 30
Musso jepp
ar seldir
MUSSO jeppinn frá Ssangyong
bílaverksmiðjunum í Suður-Kóreu
sem Bílabúð Benna hóf nýlega að
flytja til landsins hefur þegar náð
nokkurri fótfestu hérlendis en hátt
í þijátíu bílar hafa þegar verið seld-
ir. „Þetta eru mjög góðar viðtökur
og bíllinn hefur staðið alveg undir
væntingum okkar og kaupenda,"
sagði Benedikt Eyjólfsson í samtali
við Morgunblaðið.
Musso er búinn vélum frá Merce-
des Benz, drifbúnaði frá bandarísku
fyrirtækjunum Borg-Warner og
Dana Spice og er bíllinn hannaður
af Bretum. Benedikt Eyjólfsson
kvaðst hafa farið varlega í pantan-
ir í fyrstunni en vegna mun meiri
eftirspurnar en hann ráðgerði tókst
að útvega nokkra bíla frá Þýska-
landi til að stytta afgreiðslufrestinn.
„Ennþá fáum við ekki nógu marga
bíla frá verksmiðjunum en hugsan-
lega getum við fengið nokkra bíla
til viðbótar frá Þýskalandi," sagði
Benedikt ennfremur. ■
Sidanefnd
FÉLAG löggiltra bifreiðasala hefur
komið á fót siðanefnd sem starfar
eftir siðareglum félagsins. Sam-
kvæmt 14. grein getur hver sá sem
telur að bifreiðasali hafi brotið á
sér kært ætlað brot til Siðanefndar
Félags löggiltra bifreiðasala innan
tveggja mánaða frá meintu broti
enda sé málið ekki rekið fyrir al-
mennum dómstólum á sama tíma.
Kæran skal vera skrifleg og berast
í ábyrgðarpósti eða á annan sann-
anlegan hátt.
Eftirtaldar bílasölur eru aðilar
að Félagi löggiltra bifreiðasala: Allt
gott hf., Aðalbílasalan, Borgarbíla-
salan, Bílabankinn-Bílasel, Bíla-
batteríið, Bílasala Selfoss, Bílasala
Suðurlands, Bílasala Vesturlands,
Bílasalan Borg, Bílasalurinn,
Honda, Bílasalan Hraun, Nýja-bíla-
höllin, Bílatorg og Litla bílasalan.
Félag löggiltra bifreiðasala er
með símatíma á miðvikudögum
milli kl. 17 og 19. Síminn er
5888566. ■
Reyna að hasla sér
völl í Bandaríkjunum
um fengið mann í Los Angeles sem
framleiðir hágæðavöru fyrir Audi
úr trefjagleri til þess að framleiða
okkar vöru. Hann getur framleitt
um 25 sett á mánuði. Fjórir manns
vinna við framleiðsluna. Aukist
eftirspurnin er fljótlegt að auka
framleiðsluna upp í 50 stk á mán-
uði,“ segir Hákon.
Hann segir að hugsanlegt sé að
þeir félagar hanni vindskeiðar á bíl
af gerðinni Acura sem er nokkuð
algengur í Bandaríkjunum. „Þá
færum við utan aftur og keyptum
Acura og keyrðum aftur þessar
vegalengdir til þess að kynna dreif-
ingaraðilum yöruna."
Að taka af skarið
Fjórir Honda Civic á höfuðborg-
arsvæðinu eru nú með vindskeiðar
frá Impetus. Hákon sér um hönn-
una og Guðlaugur Búi einbeitir sér
meira að sölu og markaðsmálum.
„Það er erfitt að kynna vöru af
þessu tagi ef hún er ekkert sérstök.
Maður þarf að vera mjög ferskur.
Ég er reyndar dálítið hræddur um
að eyða mínum bestu hugmyndum
á einhvern bíl sem ég hef engar
sérstakar mætur á. Bíll er alltaf
svipaður í laginu og býður upp á
vissa möguleika í hönnun á vind-
skeiðum. Fái ég góða hugmynd vil
ég gjarnan geyma hana fyrir bíl
sem ég hef dálæti á. Mér finnst ég
reyndar þegar hafa gert of mikið
tengt Civic,“ sagði Hákon.
Hákon stundaði nám í Myndlista-
skóla Reykjavíkur og var mest gef-
inn fyrir nákvæmnisteikningu með
tæknilegu ívafi. „Ég reyni að vera
frumlegur en samt verð ég að vita
hvert straumurinn liggur og helst
taka aðeins af skarið. Nú er BMW
kominn með nýjan þrist sem er með
svipaðar línur og ég hef verið að
hanna. Ætli mönnum detti ekki
fyrst í hug að ég sé að herma eftir
þeim. Ég hafði hins vegar ekki séð
bílinn þegar mín hugmynd varð til.
Ég stórefa að BMW hafí fengið
hugmyndina frá mér en það er
gaman að sjá að þeir skuli hafa
gert eitthvað sem er svipað minni
vinnu,“ sagði Hákon. ■
HONDA Civic sem Hákon ók á
um Bandaríkin til þess að
kynna vindskeiðar frá Impetus.
FYRIRTÆKIÐ Impetus, sem rekið
er af Guðlaugi Búa Þórðarsyni og
Hákoni Halldórssyni, er nú að hasla
sér völl á Bandaríkjamarkaði með
vindskeiðar á Honda Civic bíla.
Fjallað var um fyrirtækið á heilsíðu
í Sport Compact Car, einu útbreidd-
asta bílablaði Bandaríkjanna á síð-
asta ári og ráðgerð er svipuð um-
fjöllun í tölublaðinu í október. Há-
kon segir að svörun hafi komið við
þessari umfíöllun frá Bandaríkjun-
um og Asíu.
Hákon segir að hlaðbaksútfærsla
af Civic sé algengast í Evrópu en
stallbakurinn í Bandaríkjunum. Því
þurfi að smíða mismunandi vind-
skeiðar fyrir þessar heimsálfur.
Vindskeið á Evrópubílinn sé án
stuðara en samkvæmt bandarískum
lögum verður að vera stuðari á öll-
um bílum.
25 dreifingaraðilar
„Við náðum að fjármagna þetta
dæmi og fórum utan. Þar keyptum
við notaðan bíl og settum á hann
vindskeið. Nú er kominn stuðari á
settið svo við eigum þau orðið til
bæði á bandarísku útfærsluna og
þá evrópsku. Ég ók bílnum milli
dreifingaraðilanna sem við höfum
valið úr en þeir eru 25 talsins, vítt
og breitt um Bandaríkin. Við höf-
HEILSÍÐUGREIN um vindskeiðar frá íslenska fyrirtækinu Imp-
etus í Sport Compact Car. Vinur Hákons, Snorri Örn Árnason,
stendur við hlaðbaksútfærslu af Honda.
Morgunblaðið/Júlíus
AND
Icclaod is 1K>( cxtKlly Unmgítl <.)
* M.i . a !or ,04t*> (nilnHinii. ob.
Mtd vti!»am>io}ii*iH íu»v
<jet ,i kitk <>nt »>( Uhi wteano* .vut
íilber >*<xi4llctU»öl mttvity. þiil
«• crri tni»\ fee) a llltlc shnrl-
t'tuur.H'd
Or «lli tl«-y? C(uninjj t» «i« from
Ihr Iriven nnr|ti i« »|ú* uniipir •v'ro
dyii-imic k't l*»r rurienl-gcucroUíiii
H<nkU CivUh Hi- ruitn- uf ll«- rnin-
paiiv 1« fm|K*tiia, 4wt Hh- kii is itir
br.tui.lui.) ut Iwo m*‘H, llakoa
II-il!cK.r#»»M>. v>bo Krwí.ltv Kon). atn!
Mh p.irtiict <iud\auv;iu
Boo had h *en
dvaiuning » Futrarl
Dmo Uni) kH for V W
Rm-llrs vrben Iuf
Imfrírnded Koni.
Whliv Ri»i< was
aitendins? cuHcgr. hc
wae approachtrd hv
anollter j.Iik(«,iiI w)u>
w*m«l hiin to pcrtorm smnv .•<»«-
<mvlM- siirvsery on lin Umula Ctviiv
Hc ■uin"! and i hIWumí Ihr hclpnf
lii» nvw Itfptui ntc two 8W«t tH-jian
a íurnj .tiui e»|M,nVvr inuiufy ln>o
huiMui^ l!ii' (iist linp*U*n kit Om-
V-nl kilrr. n-tli DiV v<«>|>«.RÍ‘rt1 <4 *
■ Vk.uI Mornlu deairrdtip íi ml Ú'Vic
vv.uv kumid to Ihc tv»o nrw JjuMnws
púrlHftn Tlvry n«»»uit«*l t!v<- kil »u«l
1vm> Urtys lalef. lh«: cat ww w»ld
Koim l'h»f ji'.'Kidcnl of Hwdi rd
l«cþuid. *Si» had br>j« inijtortntj;
k11> jroin nrmmt) lh<* world
•pwiity lw Imd ovoiv |u<rvK>ii*)y.
Ilnnl Ijnsine.** d« < ifimrv* rwotunNl,
lnnvfvvr. f lu- firyt kll> w«1* foMiu.ii
!n flh<<rv.'!;i«N hn| ihln m.itertiii
piuwd t>rt< diflkull tu work wiili.
InMc&d. liivpvtio* jaintd iorcea wilh
Artvanccd Compóslie TcchnoU»Rics
tn Huntaville. Al.rtwru.v lo k»rm thc
k<!s ítt « p‘ily<Wv4l'.*n»> m.iteriat lh.vl
Kv-viu'ifcruninius. AC1"» c<i.ov« ner,
Ivad bwu kmkipy ioi nj>pUcaHom i*>r
T'Jlc kit iliii’H is inntlr up of lour
ijiecf* (fiimi aori hmi ‘nnnpviv am)
rockcr pan>:U>. Cvrrvnil)1. ali H»c
* atc fyplaco-
part*. H<'fns •
,»» a (Actory*
t«I nr.ll fimsh.
Á xuHHolhsrck-oiuuJ
froo) humivi covcr
for i|»c t/.S', in.irkfi
w»!l .ilíow. tl|«r lnrlmý
for mpli hiimjívr !o
reiiiaili iis plac e. Th«
kii comcw prinn'rcil
fr»m th« f.ict(.ry, an<i
ou bidi* iigfi! mouftl-
ii»B hrockcln nnd » xdriitii ihayram.
Tttc Hgi-.u ibt>m«<>ivvK con t>o wlred
«<» tli.ii Uk' whltc lliuth lompa wiil lu-
iltvimHiatcd witti i|»c hjjjti hcotn*. <
vvhiK thc ycUow tmri|>.v ,»<> <«|wirah<d
!*)••- :i‘.»nua! kij; t.«ni|v> N.iturohy. thc
híjpt t.vmjK c;«<i tm iiHvliltcrt u- mcc!
xvlth k>cii! laws
F«r morw intuiniatlnu o» thi*
uniqua kit. <aH linp<iu,« t. ehim! «t
UU-534«ð4-.Cn. Rc:tKHnh«'r )tuv i«
lceland >o>« r«' raUuiif. *«» hv prc-
parcd lor ti.it i-h&rRv. It you •!
rnthci Httvc j huh' h)»>m,> . ymi <.«•>
lceland/c entrepreneurs crexe
o tmique ,wro kil tor Clvics
sr Aitxtnm stn
TT
Andlits-
lyfting á
Mondeo
FORD hyggst gera útlitsbreyt-
ingar á Ford Mondeo og systur-
bílnum Ford Contour, sem seld-
ur er í Bandaríkjunum. Myndin
að ofan er af frumgerð Mondeo
árgerð 1997, hlaðbaksútfærsl-
unni. Hann er með nýjum fram-
lugtum og vatnskassahlífin er
mjórri og ávalari.
Ný vél í G-jeppa
Mercedes-Benz
NÝR bíll í G-línu Mercedes-Benz,
Gelándewagen jeppalínunni, kem-
ur á markað í september nk. Þar
er um að ræða G-300 með sex
strokka dísilvél með forþjöppu og
millikæli.
Nýja vélin skilar 177 hestöflum
og leysir af hólmi sex strokka
túrbódísilvélina sem hefur verið
boðin með G-350 fram til þessa.
Sú vél var tólf ventla og skilaði
136 hestöflum. Nýja vélin er hins
vegar 24 ventla og skilar 30%
meira afli og 7,5% hærra togi en
í gömlu vélinni. Hámarkstog í
nýju vélinni er 330 Nm við 1.600
snúninga á mínútu. Verðið á að
haldast óbreytt þrátt fyrir aflmeiri
vél.
Meira afl - minni eyðsla
Þrátt fyrir meira afl segir
Mercedes-Benz að nýja G-300 vél-
in sé næstum 6% neyslugrennri
en G-350 vélin, eða um 13,1 lítri
á hvetja 100 km miðað við Evrópu-
staðai. Þessum árangri þakkar
Mercedes-Benz fíögurra ventla
tækninni ásamt rafeindastýrðu
innsprautunarkerfí. Auk þess er
nýja vélin ólíkt fyrirrennaranum
með millikæli sem kælir saman-
þjappað loftið sem streymir inn í
vélina þannig að meira loftmagn
kemst inn í hana og kemur í veg
fyrir að strokkarnir ofhitni.
Túrbódísll
Nýr G-300 er einnig búinn raf-
eindastýrðu hreyfílstýrikerfi, þ.á
m. rafeindastýrðri endurnýtingu á
útblásturslofti. Ný fimm þrepa
sjálfskipting er staðalbúnaður í
G-300 og einnig rafeindastýrð
hleðslustýring á ásum.
G-300 túrbódísil verður fáan-
legur í þremur útfærslum, sem
tveggja dyra bíll með 2.400 mm
hjólhafi, sem tveggja dyra lang-
bakur með sama hjólhafi eða sem
fernra dyra bíll með 2.850 mm
hjólhafi. ■
Ný V-12frá
Benz
MERCEDES-Benz hefur ákveðið
að smíða nýja V-12 sem verður
spameytnari og hreinni en fyrri
V-12. Vélin verður öll úr áli og
verður framleidd í vélaverksmiðj-
unni í Bad Cannstatt í útjaðri
Stuttgart. Nýja V-12 vélin verður
fáanleg í næstu kynslóð S-iínu
stallbakanna sem eru væntanleg-
ir á markað 1998, S-línu tveggja
dyra bílinn sem kemur á markað
1999 og SL sportbílinn sem kem-
ur á markað 2000. Vélin er sex
lítra og 36 ventla en minni og
léttari en V-12, 6,0 lítra vélin sem
hún leysir af hólmi.
Nýr Lexus
NÝR Lexus ES 300 er kominn
á markað en hann þykir lítið
breyttur að utanverðu að því
undanskildu að hjólhafið er um
5 sm lengra. Einnig er þakið litlu
hærra en áður en hvort tveggja
þýðir náttúrulega meira höfuð-
og fótarými. Vélin er 3ja lítra,
24 ventla V-6, 200 hestafla og
hefur aflið aukist um 12 hestöfl.
Nýjungar í bílnum er stillanlegt
fjöðrunarkerfi og spólvörn. Bíll-
inn er í megindráttum byggður
á sömu hönnun og Toyota
Camry.
Veröbil minnkar
ÍESB
VERÐBIL á bílum í Evrópusam-
bandinu hefur minnkað. Ein
ástæða þess er gengishækkun lír-
unnar en af 77 bflum sem gerður
var verðsamanburður á í aðildar-
ríkjunum 1. nóvember 1995
reyndust 30 vera ódýrastir í ítal-
íu. Af 78 bflum sem nú var gerð-
ur verðsamanburður á reyndist
yfir 20% verðmunur á 40 bílum.
Á síðasta ári voru 60 bílar með
þennan verðmun. Af níu vinsæl-
ustu bílunum í þremur stærðar-
flokkum reyndist aðeins meiri
verðmunur á Ford Fiesta og öðr-
um bflum á þessu ári en því síð-
asta.
Concept II á um
850 þús.
VOLKSWAGEN í Bandaríkjun-
um hefur hvatt umboðin þar í
landi að auka sölu sína ef þeir
vilji vera framarlega f röðinni
þegar kemur að því að selja nýju
Bjölluna, Concept II. Líklegt er
að bíllinn komi á markað á fjórða
ársfjórðungi næsta árs og verðið
í Bandaríkjunum verður nálægt
13 þúsund dollurum, tæpum 850
þús ÍSK. Framleiðslan hefst
haustið 1997 í Puebla í Mexfkó
og verða smfðaðir 23 þúsund bfl-
ar það ár. Líklegt er að um alda-
mótin verði smíðaðir 110 þúsund
bílar á ári. VW hyggst markaðs-
setja Bjölluna andspænis nýjum
Chrysler Neon sem þykir njóta
ámóta vinsælda í Bandaríkjunum
og gamla Bjallan gerði á sínum
tíma. ■
Scania húddbíll
kynntur í haust
SC/^NIA hefur sett á markað í
Evrópu nýja gerð húddbíls innan
4-línunnar, svokallaðan T-bíl. Bíll-
inn er hannaður af hinni víðfrægu
Bertone hönnunarmiðstöð á Ítalíu
en allir hlutar í bílnum eru teknir
úr 4-vörubílalínunni. T-bíllinn verð-
ur frumsýndur á flutningatækni-
sýningunni í Hannover í september.
Scania er einn evrópskra vöru-
bílaframleiðenda um að smíða nú-
tímalega útfærslu af húddbíl. Mark-
aður fyrir slíka bíla er fremur lítill
í Evrópu en þeim mun stærri í Bras-
ilíu þar sem T-bíllinn er mest seldi
þungi vörubíllinn. Um 90% af allri
sölu Scania í Brasilíu er T-bíllinn.
í Suður-Ameríku seldust á síðasta
ári um 6 þúsund húddbílar af Scan-
ia gerð sem gerir fyrirtækinu kleift
að halda framleiðslunni áfram og
endurbæta hana fyrir alla markaði.
1 haust kynnir Scania einnig nýja
gerð ökumannshúss, svokallað
CrewCab fyrir fjóra til átta far-
þega. Slík ökumannshús eru ætluð
fyrir björgunarbíla. Scania kynnir
einnig í Hannover í haust nýja línu
af sex og átta hjóla bílum með fleiri
en einum stýrisöxli. ■
SCANIA kynnir nýja gerð húddbíls í Hannover í haust. Billinn
á myndinni er af gerðinni T144 LA4x2NA 530.