Morgunblaðið - 16.08.1996, Blaðsíða 4
Olajuwon
í hnapp-
helduna
■ NIALL Quinn írski landsliðs-
maðurinn sem undanfarin ár hefur
leikið með Manchester City hefur
gegnið til liðs við Sunderland og
gerði þriggja ára samning við félag-
ið. Sunderland þurfti að reiða fram
130 milljónum króna fyrir kappann.
■ SVETLANA Masterkova sem
setti heimsmet í míluhlaupi kvenna
í fyrrakvöld verður á meðal kepp-
enda í 1.500 m hlaupi á alþjóðlegu
fijálsíþróttamóti í Köln í kvöld. Hún
er sem kunnugt er ólympíumeistari
í greininni og einnig í 800 m hlaupi.
■ DONOVAN Bailey annar
ólympíumeistari ætlar einnig að
vera á hlaupabrautinni í Köln í
kvöld og að sjálfsögðu var það 100
metra hlaupið sem varð fyrir valinu
hjá honum enda heimsmethafi í
greininni.
■ FRANKIE Fredericks ætlar að
etja kappi við Bailey í Köln og
einnig Bandaríkjamaðurinn
Dennis Mitchell sem náði að koma
á undan ólympíuemistamum í mark
í 100 metra hlaupi í Ziirich í fyrra-
kvöld.
■ HEIKE Henkel fyrrum ólymp-
íumeistari í hástökki kvenna keppir
í síðasta skipti stórmóti á heima-
velli í Köln í kvöld. Hún hefur
ákveðið að hætta keppni á alþjóð-
legum mótum í haust.
■ HENKEL átti sitt fyrsta barn
fyrir tveimur árum og hefur að því
loknu ekki tekist að komast í þá
æfíngu sem hún var í áður og komst
m.a. ekki í ólympíulið Þjóðveija
fyrir nýliðna leika.
■ HEIKE Drechsler fyrrum
heimsmethafí í langstökki kvenna
frá Þýskalandi er hins vegar ekki
á þeim buxunum að hætta heldur
ætlar hún að vera með í mótinu í
kvöld. Er það í fyrsta skipti nokk-
urn tíma sem hún keppir á stór-
móti sökum meiðsla í hné.
■ SONIA O’Sullivan hlaupakona
frá Irlandi sem átti í vanda á
ólympíuleikunum og lauk ekki
keppni 5.000 metra hlaupinu þar
sem hún var talin sigurstrangleg
hafði boðað komu sína á mótið í
Köln. En í gær ákvað hún að draga
sig til baka. Hún sagðist jafnframt
vonast til þess að verða klár í slag-
inn á þriðja „gullmótinu" í Brussel
eftir viku.
GOLF
Reuter
Lendl söðlar um
TEKKINN Ivan Lendl, sem um tíma var besti tennisleikari heims og sigraði á átta risamótum, lagði spaðann
á hilluna fyrir nokkrum árum og hefur nú söðlað um. í gær hóf hann keppni á fyrsta „alvöru" móti sínu sem
atvinnumaður í golfi, opnu móti í Marianske Lazne í Tékklandi, sem er hluti af evrópsku mótaröðinni. Lendl
byijaði ágætlega, gekk vel á tveimur fyrstu holunum, en síðan hallaði undan fæti og hann lauk keppni í gær á
82 höggum, 11 yfir pari. „Þetta er fímm sinnum verra en úrslitaleikur á Wimbledon," sagði Lendl í gær.
TORFÆRA
Hópur Svía mættur
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrifar
Tæplega 30 manna hópur Norð-
manna og Svía kom til lands-
ins í gær vegna fyrsta heimsbikar-
mótsins í torfæru
sem fram fer í Jós-
epsdal á morgun kl.
13. Hluti þeirra
keppir, en nokkrir
sænskir ökumenn koma hingað til
lands gagngert til að skoða aðstæð-
ur fyrir keppni af þessu tagi sem
verður hér að ári. Erlendu öku-
mennimir og íslensku keppendurnir
verða á sérstakri kynningu fyrir
keppnina við Bílabúð Benna á
Vagnhöfða í dag milli kl. 17-18.
Islendingurinn Svavar Óskar
Bjarnasson er leiðangursstjóri hóps-
ins en hann er búsettur í Svíþjóð
og keppir þar i torfæru á 700 hest-
afla grindarbíl. Vann hann síðustu
keppni sem Svíar héldu. „Ég er
loksins kominn með vélina í gott lag
en efast um að það dugi gegn ís-
lensku keppendunum sem hafa
mikla reynslu. Við erum komnir til
að læra, en ég minni á að Svíar
rassskelltu íslenska ökumenn fyrir
nokkrum árum á heimavelli," sagði
Svavar í samtali við Morgunblaðið.
„Svíinn Jimmy Bratt keppir á
Pegasus og er geysilega flinkur
ökumaður en vantar þó reynslu sem
hann fær í keppninni í Jósepsdal.
Það koma margir ökumenn sem eru
að skoða aðstæður með framtíðina
í huga og það er vel við hæfí að
heimsbikarmótið byiji á íslandi, en
ég hef trú á að þessi íþrótt eigi
eftir að vinna sér sess í Evrópu.
Það er mjög mikill áhugi í Svíþjóð.
í flokki götujeppa keppa miili 25-30
jeppar, en 7-8 í flokki sérútbúinna.
Norðmaðurinn Torger Johansen
keppir á götujeppa hérlendis og
hann er bijálaður ökumaður og til-
þrifamikill. Ég á von á því að koma
okkar muni verða til þess að íslensk-
ir ökumenn keppi i okkar mótum á
næsta ári og öfugt. Þessi íþrótt
þykir ævintýri líkust í augum Evr-
ópubúa sem sýnir sig best í áhuga
Eurosport á að sýna frá öllum mót-
um.“
KNATTSPYRNA
Meistaramir gegn Val
Islandsmeistarar Akurnesinga
sækja Valsmenn heima að Hlíð-
arenda í kvöld, en þá hefst 13. um-
ferð 1. deildarinnar með þremur
leikjum. Meistararnir eru í öðru
sæti, einu stigi á eftir KR, en Vals-
menn - sem ekki var spáð góðu
gengi fyrir sumarið - eru hins vegar
í fjórða sæti, þremur stigum á eftir
Leiftri og í harðri baráttu um Evr-
ópusæti.
Hinir leikir kvöldsins eru viðureign
Leifturs og Keflvíkinga í Ólafsfirði
annars vegar og hins vegar Fylkis
og ÍBV í Arbæ. Allir hefjast kl. 19.
Leiftur er í þriðja sætinu, átta stigum
á eftir Akumesingum en Keflvíkingar
eru í fallsæti; næst neðstir með sjö
stig, jafn mörg og Breiðablik, en með
skárri markatölu. Keflvíkingar hafa
lokið ellefu leikjum, eins og Breiða-
blik og Eyjamenri hafa aðeins lokið
10 leikjum. Þeir eru með 12 stig og
hafa leikið mun verr en spáð var í
upphafi. Þeir hafa verið í basli, em
í áttunda sæti en Fylkismenn, sem
voru í vondum málum framan af
sumri, hafa hins vegar tekið á sig
rögg undanfarið og eru komnir upp
í sjötta sæti deildarinnar.
Fjórði leikur 13. umferðar verður
á morgun er Breiðablik fær topplið
KR í heimsókn í Kópavoginn og
umferðinni lýkur á sunnudag með
leik Grindavíkur og Stjörnunnar.
KR-ingar eru efstir, sem fyrr seg-
ir; hafa 29 stig að loknum 12 um-
ferðum, Akurnesingar hafa 28,
Leiftursmenn 20 og Valsmenn 17.
Stjarnan er með 15 stig, Fylkir og
Grindavík 13, ÍBV 12, Keflavík og
Breiðablik 7.
Ríkharður Daðason, KR-ingur, er
markahæstur í 1. deild með 10 mörk
en Guðmundur Benediktsson, félagi
hans hjá Vesturbæjarliðinu og Bjarni
Guðjónsson, Skagamaður, koma
næslir. Hafa báðir gert 9 mörk.
Guðmundur hefur verið meiddur upp
á síðkastið en jafnvel er reiknað með
að hann verði með hluta leiksins
gegn Breiðabliki á morgun.
EIN af stjömum körfuknatt-
leiksins í Bandaríkjunum,
Hakeem Olajuwon, leikmað-
ur Houston Rockets gekk í
það heilaga á dögunum og
er sú lukkulega 18 ára gömul
stúlka, Dalia Asafi. Kappinn
er hins vegar 33 ára gamall.
Olajuwon er múhameðstrúar
eins og einginkonan og voru
þau að sjáifsögðu gefin sam-
an eftir þeim reglum sem þar
gilda. Það var faðir brúðar-
innar sem gaf leyfí sitt fyrir
ráðahagnum, en hann er við-
skiptajöfur í Houston og
biðst daglega fyrir í sama
bænahúsi i Houston og
körfuknattleiksstjaman.
„Þegar fólk er múhameðs-
trúar er ekkert til sem heitir
stefnumót við stúlkur og
þessháttar,“ sagði Hakeem í
yfírlýsingu í vikunni. „Fjöl-
skyldan hittist, rabbar saman
og þannig kynnist fólk hvert
öðm, svo er brúðkaup ákveð-
ið.“ Ennfremur tók hann
skýrt fram að ekki væri óal-
gengt að stúlkur sem væri
múhameðstrúar giftu sig
ungar. „Dalia er ung að árum
en þegar litið er á bakgrann
hennar, skilning á lífinu og
trúarbrögðunum er hún lík
mörgum öðmm múhameðs-
trúar konum, þroskuð miðað
við aldur.“ Frú Olajuwon
fær ríflega upphæð á ári frá
eiginmanni sinum til að halda
áfram námi sínu eins og ekk-
ert hefði í skorist.
Þetta er fyrsta hjónaband
þeirra beggja en NBA-
stjaraan á átta ára gamla
dóttur með fyrrum kæmstu
sinni.
Yfirlýsing
frá Wenger
eftir helgi
ARSENE Wenger sem nefnd-
ur hefur verið sem næsti
knattspymusljóri Arsenal
sagði I gær að hann myndi
gefa yfirlýsingu um framtíð-
aráform sín á þriðjudaginn,
en hann er samningsbundinn
Grampus Eight í Japan út
september mánu ð.
I samtali við Daily Mail
sagði hann. „Ég læt ekkert
uppi um hvort ég hafi áhuga
á tilboði eður ei frá Arsenal
fyrr en í sameiginlegri yfir-
lýsingu sem kemur væntan-
lega frá mér og Grampus
Eight á næsta þriðjudag."
Þrátt fyrh' þessa yfirlýs-
ingu halda vangaveltur
áfram I breskum fjölmiðlum
um það hver taki við Arsenal
og fiestir te\ja að nú falli öll
vötn til Dýraijarðar hjá Wen-
ger - hann verði næsti knatt-
spyrnustjóri félagsins. Ekki
minnkuðu líkurnar er Weng-
er bætti við í samtaii við áður-
nefnt dagblað. „Arsenal er
stórlið og því yrði það mikil
áskorun fyrir mig að taka að
við sljórn liðsins, eflaust sú
mesta sem ég hef fengið um
ævina. Þess vegna er þetta
verulega spennandi fyrir
mig, en það er ekki sann-
gjarnt að segja meira því ég
hef ekkert tilboð fengið enn
frá félaginu," sagði hinn 47
ára gamli Frakki.