Morgunblaðið - 17.08.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
ÍHtérgtmtMit&iti
■ LAUGARDAGUR 17.ÁGÚST
BLAÐ
Heimsbikarmót
haldið í Jósepsdal
FYRSTA heimsbikarmótið í torfæru fer fram í
Jósepsdal kl. 13 í dag. Meðal keppenda eru öku-
menn frá Svíþjóð og Noregi, en 23 keppendur taka
þátt í mótinu. Meðal keppnda verður fyrsta amman
í íslenskri torfæru, Sæunn Lúðvíksdóttir frá Sel-
fossi. Hún er með rásnúmer eitt og á eftir henni
aka 14 karlkyns keppendur.
„Islensku ökumennirnir eru geysilega góðir og
reyndir í keppni, þannig að þeir verða erfiðir. Ég
er búinn að aka lengi í flokki götujeppa en eitt ár
á 500 hestafla sérsmíðaðri grind. Ég er spenntur
að takast á við íslenskar brekkur og börð, en við
keppum venjulega í sandi,“ sagði Svíinn Jimmy
Brett í samtali við Morgunblaðið. Hann hefur unn-
ið silfuryerðlaun í keppni í heimalandi sínu, en
Svavar Óskar Bjarnason keppir einnig undir sænsk-
um fána og hefur unnið gull í ýmsum akstursíþrótt-
um í Svíþjóð. Hann ekur 700 hestafla tryllitæki.
KNATTSPYRNA
■t
GOLF
Meistar-
arnir aftur
á toppinn
ÞAÐ var í mörg horn að líta hjá
Skagamannlnum Ólafi Þórðar-
synl og Kristjáni Halldórssyni
úr Val, sem hér berjast um
knöttinn, á Valsvelli í gær-
kvöldi. Olafur og félagar höfðu
betur 3:1 og eru komnlr á
kunnulegar slóðlr á toppi deild-
arinnar, tveimur stigum á und-
an KR-ingum sem leika í dag
gegn Breiðabliki á Kópavogs-
velll klukkan 14. Tveir aðrir
leikir voru í 13. umferð 1. deild-
ar í gærkvöldi og urðu óvænt
úrslit í Ólafsfirði er heimamenn
tóku á mótl Keflvíkingum og
urðu að játa sig sfgraða 2:1,
þar sem gestirnir skoruðu
bæði mörk sín á fyrstu sautján
mínútum leikslns. í þriðja leik
umferðarinnar voru það Eyja-
menn sem lögðu Fylki að velli
i Árbæ með þremur mörkum
gegn tveimur og náðu leikmenn
IBV þar með að mjaka sér af
mesta hættusvæðinu í bili.
■ Leikirnir / C2
Mjög hörð
barátta
ÞRJÁR sveitir hafa tekið afgerandi
forystu, bæði í karla- og kvenna-
flokki, eftir fyrsta dag Sveitakeppni
GSÍ, með því að sigra í báðum leikj-
um sínum. Keppnin hófst í gær á
Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði með
tveimur umferðum í 1. deild karla
og kvenna.
í karlaflokki skipa heimamenn
úr A-sveit Keilis efsta sætið ásamt
Leynismönnum frá Akranesi og
A-sveit GS. Hjá konunum eru Suð-
urnesjakonur og A-sveitir Keilis og
Golfklúbbs Reykjavíkur í sérflokki.
í dag dregur væntanlega í sund-
ur með efstu sveitunum í karla-
flokki, því A-sveit Suðurnesja-
manna leikur gegn Leyni og heima-
mönnunum úr Keili. Akurnesingar
leika að auki gegn B-sveit GR í
síðari umferð dagsins, en Keilir mun
etja kappi við A-sveit Golfklúbbs
Akureyrar í fyrri umferðinni.
Örn Arnarson lék með sveit
Leynis í gær, en vangaveltur voru
uppi um það hvort hann væri lögleg-
ur til þátttöku vegna mistaka sem
áttu sér stað í vor. Þau voru þess
eðlis að hann var skráður af mis-
gáningi í Golfklúbb Akureyrar, sem
hann lék í áður fyrr. Öm hafði aft-
ur á móti gengið til liðs við Akurnes-
inga áður en umrædd mistök voru
gerð og voru færðar fram sannanir
fyrir því í gær.
Toppslagur fer fram í fyrri um-
ferðinni í kvennaflokki í dag, en
þá leikur A-sveit GR gegn sveit
GS. Á sama tíma leikur A-sveit
Keilis við Akureyringa, en etur
kappi við Suðurnesjakonumar í
seinni umferðinni, en þá leikur A-
sveit GR gegn B-sveit Keilis.
Morgunblaðið/Golli
OLYMPIUHREYFINGIN
Framkvæmdastjóri Ólympíusamhjálparinnar varð fyrir vonbrigðum
Krefst endurgreiðslu
á styrk vegna Mörthu
Framkvæmdastjóri Ólympíu-
samhjálparinnar er ósáttur
við vinnuþrögð Ólympíunefndar
íslands (Óí) í tengslum við leikana
í Atlanta og hefur, skv. heimildum
Morgunblaðsins, krafið Óí um
endurgreiðslu styrks frá janúar
og fram í júní upp á tæplega 880
þúsund krónur, vegna Mörthu
Ernstsdóttur vegna þess að hún
keppti ekki í Atlanta.
Olympíusamhjálpin er stofnun
innan Alþjóðaólympíunefndarinnar
sem styrkir ýmsa íþróttamenn frá
smáríkjum til æfinga. Fram-
kvæmdastjóri stofnunarinnar,
Spánverjinn Anselmo Lopez, hefur
lýst furðu sinni á því í bréfum til
Öí, skv. heimildum blaðsins, að
Pétur Guðmundsson, Sigurður Ein-
arsson og Martha hafi ekki verið
" meðal keppenda í Atlanta þar sem
þau hafl öll náð lágmörkum alþjóða
frjálsíþróttasambandsins.
Lopez segist tilneyddur að
krefja Óí um endurgreiðslu áður-
nefndar upphæðar, því styrkveit-
ing til Mörthu hafi verið endurnýj-
uð í janúar á þessu ári vegna þess
að talið væri öruggt að Martha
yrði með á Ólympíuleikunum, enda
hefði hún þá þegar náð alþjóðlega
lágmarkinu.
Framkvæmdastjórinn telur sig
hafa verið blekktan þar sem aldrei
hafi verið ýjað að því við hann að
Pétur og Sigurður yrðu hugs-
anlega ekki á meðal keppenda í
Atlanta. Lopez segir hlutverk sitt
að meta hvort peningum Sam-
hjálparinar sé vel varið og í til-
felli Péturs og Sigurðar telji hann
svo ekki hafa verið. Ólympíu-
nefndir viðkomandi landa eigi
ætíð síðasta orðið þegar valdir eru
keppendur á Ólympíuleika, en
þrátt fyrir að Samhjálpin komi
ekki nálægt þeirri ákvörðun lýsir
hann miklum vonbrigðum með
niðurstöðuna hvað varðar kastar-
ana. Samhjálpin hafi greitt ríflega
90.000 dollara - rúmlega 6 millj-
ónir króna - vegna þjálfunar Sig-
urðar og Péturs, og honum fínnist
að Ólympíunefnd Islands ætti að
hugleiða möguleika á að bæta
Samhjálpinni fyrir þann tíma, þá
fyrirhöfn og peninga sem hún
hefur lagt fram vegna æfinga-
áætlunar þeirra.
KNATTSPYRNA: BAYERN BYRJAÐIMED SIGRIIÞYSKALANDI / C4