Morgunblaðið - 17.08.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 17.08.1996, Síða 1
 BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1996 ÍHtérgtmtMit&iti ■ LAUGARDAGUR 17.ÁGÚST BLAÐ Heimsbikarmót haldið í Jósepsdal FYRSTA heimsbikarmótið í torfæru fer fram í Jósepsdal kl. 13 í dag. Meðal keppenda eru öku- menn frá Svíþjóð og Noregi, en 23 keppendur taka þátt í mótinu. Meðal keppnda verður fyrsta amman í íslenskri torfæru, Sæunn Lúðvíksdóttir frá Sel- fossi. Hún er með rásnúmer eitt og á eftir henni aka 14 karlkyns keppendur. „Islensku ökumennirnir eru geysilega góðir og reyndir í keppni, þannig að þeir verða erfiðir. Ég er búinn að aka lengi í flokki götujeppa en eitt ár á 500 hestafla sérsmíðaðri grind. Ég er spenntur að takast á við íslenskar brekkur og börð, en við keppum venjulega í sandi,“ sagði Svíinn Jimmy Brett í samtali við Morgunblaðið. Hann hefur unn- ið silfuryerðlaun í keppni í heimalandi sínu, en Svavar Óskar Bjarnason keppir einnig undir sænsk- um fána og hefur unnið gull í ýmsum akstursíþrótt- um í Svíþjóð. Hann ekur 700 hestafla tryllitæki. KNATTSPYRNA ■t GOLF Meistar- arnir aftur á toppinn ÞAÐ var í mörg horn að líta hjá Skagamannlnum Ólafi Þórðar- synl og Kristjáni Halldórssyni úr Val, sem hér berjast um knöttinn, á Valsvelli í gær- kvöldi. Olafur og félagar höfðu betur 3:1 og eru komnlr á kunnulegar slóðlr á toppi deild- arinnar, tveimur stigum á und- an KR-ingum sem leika í dag gegn Breiðabliki á Kópavogs- velll klukkan 14. Tveir aðrir leikir voru í 13. umferð 1. deild- ar í gærkvöldi og urðu óvænt úrslit í Ólafsfirði er heimamenn tóku á mótl Keflvíkingum og urðu að játa sig sfgraða 2:1, þar sem gestirnir skoruðu bæði mörk sín á fyrstu sautján mínútum leikslns. í þriðja leik umferðarinnar voru það Eyja- menn sem lögðu Fylki að velli i Árbæ með þremur mörkum gegn tveimur og náðu leikmenn IBV þar með að mjaka sér af mesta hættusvæðinu í bili. ■ Leikirnir / C2 Mjög hörð barátta ÞRJÁR sveitir hafa tekið afgerandi forystu, bæði í karla- og kvenna- flokki, eftir fyrsta dag Sveitakeppni GSÍ, með því að sigra í báðum leikj- um sínum. Keppnin hófst í gær á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði með tveimur umferðum í 1. deild karla og kvenna. í karlaflokki skipa heimamenn úr A-sveit Keilis efsta sætið ásamt Leynismönnum frá Akranesi og A-sveit GS. Hjá konunum eru Suð- urnesjakonur og A-sveitir Keilis og Golfklúbbs Reykjavíkur í sérflokki. í dag dregur væntanlega í sund- ur með efstu sveitunum í karla- flokki, því A-sveit Suðurnesja- manna leikur gegn Leyni og heima- mönnunum úr Keili. Akurnesingar leika að auki gegn B-sveit GR í síðari umferð dagsins, en Keilir mun etja kappi við A-sveit Golfklúbbs Akureyrar í fyrri umferðinni. Örn Arnarson lék með sveit Leynis í gær, en vangaveltur voru uppi um það hvort hann væri lögleg- ur til þátttöku vegna mistaka sem áttu sér stað í vor. Þau voru þess eðlis að hann var skráður af mis- gáningi í Golfklúbb Akureyrar, sem hann lék í áður fyrr. Öm hafði aft- ur á móti gengið til liðs við Akurnes- inga áður en umrædd mistök voru gerð og voru færðar fram sannanir fyrir því í gær. Toppslagur fer fram í fyrri um- ferðinni í kvennaflokki í dag, en þá leikur A-sveit GR gegn sveit GS. Á sama tíma leikur A-sveit Keilis við Akureyringa, en etur kappi við Suðurnesjakonumar í seinni umferðinni, en þá leikur A- sveit GR gegn B-sveit Keilis. Morgunblaðið/Golli OLYMPIUHREYFINGIN Framkvæmdastjóri Ólympíusamhjálparinnar varð fyrir vonbrigðum Krefst endurgreiðslu á styrk vegna Mörthu Framkvæmdastjóri Ólympíu- samhjálparinnar er ósáttur við vinnuþrögð Ólympíunefndar íslands (Óí) í tengslum við leikana í Atlanta og hefur, skv. heimildum Morgunblaðsins, krafið Óí um endurgreiðslu styrks frá janúar og fram í júní upp á tæplega 880 þúsund krónur, vegna Mörthu Ernstsdóttur vegna þess að hún keppti ekki í Atlanta. Olympíusamhjálpin er stofnun innan Alþjóðaólympíunefndarinnar sem styrkir ýmsa íþróttamenn frá smáríkjum til æfinga. Fram- kvæmdastjóri stofnunarinnar, Spánverjinn Anselmo Lopez, hefur lýst furðu sinni á því í bréfum til Öí, skv. heimildum blaðsins, að Pétur Guðmundsson, Sigurður Ein- arsson og Martha hafi ekki verið " meðal keppenda í Atlanta þar sem þau hafl öll náð lágmörkum alþjóða frjálsíþróttasambandsins. Lopez segist tilneyddur að krefja Óí um endurgreiðslu áður- nefndar upphæðar, því styrkveit- ing til Mörthu hafi verið endurnýj- uð í janúar á þessu ári vegna þess að talið væri öruggt að Martha yrði með á Ólympíuleikunum, enda hefði hún þá þegar náð alþjóðlega lágmarkinu. Framkvæmdastjórinn telur sig hafa verið blekktan þar sem aldrei hafi verið ýjað að því við hann að Pétur og Sigurður yrðu hugs- anlega ekki á meðal keppenda í Atlanta. Lopez segir hlutverk sitt að meta hvort peningum Sam- hjálparinar sé vel varið og í til- felli Péturs og Sigurðar telji hann svo ekki hafa verið. Ólympíu- nefndir viðkomandi landa eigi ætíð síðasta orðið þegar valdir eru keppendur á Ólympíuleika, en þrátt fyrir að Samhjálpin komi ekki nálægt þeirri ákvörðun lýsir hann miklum vonbrigðum með niðurstöðuna hvað varðar kastar- ana. Samhjálpin hafi greitt ríflega 90.000 dollara - rúmlega 6 millj- ónir króna - vegna þjálfunar Sig- urðar og Péturs, og honum fínnist að Ólympíunefnd Islands ætti að hugleiða möguleika á að bæta Samhjálpinni fyrir þann tíma, þá fyrirhöfn og peninga sem hún hefur lagt fram vegna æfinga- áætlunar þeirra. KNATTSPYRNA: BAYERN BYRJAÐIMED SIGRIIÞYSKALANDI / C4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.