Morgunblaðið - 18.08.1996, Side 3
2 D SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996 D 3
Her og borgarar
í eina sæng
BANDARIKJAHER, bílaframleið-
endur og birgjar starfa að fleiri
rannsóknarverkefnum sem gætu
skilað sér sem tækninýjungar í bíla.
Hér á eftir er sagt frá nokkrum
þeirra.
• Vökubúnaður fyrir ökumenn.
Búnaður sem fylgist með ökumanni
með því að mæla nálægð þumal-
fingra ökumanns við stýrishjólið.
Sofni ökumaður undir stýri beinir
búnaðurinn loftstraum að vöngum
ökumannsins. Búnaðurinn er hann-
aður af fyrirtækinu BRTRC og
verður prófaður í AMC Hummer.
• Dísilvél í Bradley brynvagn-
inn.
Cummins vélaframleiðandinn er að
hann 750 hestafla dísilvél fyrir
Bandaríkjaher sem verður prófuð
1999. Vélin er hönnuð með það
fyrir augum að útblástur sé í al-
gjöru lágmarki svo brynvagnsins
verði síður vart á víglínum.
• Framrúðuskjár.
Háskólinn í Oakland er að hanna
framrúðuskjá sem birtir upplýs-
ingar frá leiðsögukerfí, nætursjón-
arkerfí og árekstraraðvörunarkerfí.
Búnaðurinn verður prófaður í borg-
aralegum bílum og herbílum.
• Dísilvél með beinni innspýt-
ingu.
Ford Motor Co. er að hanna spar-
neytna dísilvél. Bandaríkjaher vill
að vélin verði aðlöguð fyrir létta
herbíla, þ.á m. Hummer.
• Skynrænir bílar.
5 tonna herbíll verður útbúinn með
bilanagreiningartölvu, leiðsögu-
kerfí, skynrænni hraðastillingu og
öðrum hátæknibúnaði.
• Hitaeftirlitskerfi.
Þessi búnaður byggir á hitamyndum
sem sýna ástand hjólbarða, lega og
hemla. Búnaðurinn ber saman hita-
myndir af hlutunum og ónotuðum
sambærilegum hlutum. Með þessu
móti er hægt að skipta um vara-
hluti áður en bilana verður vart. ■
BÚNAÐURINN varpar upp mynd af myrkum veginum
á framrúðu bílsins.
Jaguar meö
nætursýn
BILAFRAMLEIÐENDUR hafa í
auknum mæli notað tækninýjungar
í bíla sína sem þróaðar hafa verið
af hermálayfirvöldum. Tom Meitzler
stjórnar rannsóknum á „hinum
mannlega þætti“ ýmissa tækninýj-
unga fyrir Bandaríkjaher. Fyrir fá-
einum árum aðstoðaði hann við að
gera skriðdreka Bandaríkjahers
minna sýnilegri en núna vinnur
hann að því að auka nætursýn eig-
enda Jaguar bíla í framtíðinni.
Jaguar er dótturfyrirtæki Ford
Motor í Bandaríkjunum. Meitzler
er að mæla virkni nætursýnar með
innrauðum rafsegulgeislum. Vinna
hans er þáttur í tækniskiptaverkefni
varnarmálaráðuneytins bandaríska
en yfirlýst markmið þess er sam-
skipti við borgaraleg fyrirtæki á
sviði tæknimála. Tækniskiptaverk-
efnið felur einnig í sér að herinn fær
tækifæri til að nota borgaralegar
tækninýjungar eins og árekstra-
varnarkerfi sem yfírmenn hersins
vilja setja í flutningabíla sína. Bíla-
framleiðendur hafa einnig notað
tækninýjungar sem koma frá hern-
um eins og GPS-staðsetningakerfíð
í tengslum við leiðsögutölvur í bíl-
um.
Mynd á framrúöu
Nætursýnin er gott dæmi um
samskipti hers og borgaralegra
fyrirtækja á sviði tæknimála. Meðan
á Persaflóastríðinu stóð notaði her-
inn skriðdreka sem voru búnir næt-
ursýn. Stjórnendur þeirra gátu ekið
drekunum í myrkri og séð skotmörk.
Búnaðurinn í Jaguar verður inn-
rauð myndatökuvél sem komið verð-
ur fyrir á grilli bílsins. Hún skynjar
hita frá hlutum á veginum. Þar sem
LITLI, eins manna flutningabíllinn Midget II er með varahjólið
fest á vélarhlífina.
Daihatsu
dvergurinn
DAIHATSU hefur sett á
markað lítinn sérkennilegan
bíl, Midget II, sem er einkum
ætlaður til flutninga. Aðeins
ökumaðurinn kemst fyrir í
húsi bílsins en á palli er
hægt að flytja t.d. dagblöð
eða mjólk. Dreifingaraðilar á
þessari vöru hafa einmitt
keypt töluvert af Midget II.
Framleiðendumir bjuggist
altént ekki við því að taka á
móti 2.000 pöntunum fyrstu
tíu dagana sem bíllinn var
til sölu.
Að innan er bíllinn alveg
„hrár“ eins og sagt er um
bíla sem ekki eru búnir algengustu
þægindum eins og miðstöð eða
vindlingakveikjara. Loftkæling,
vindlingakveikjari og öskubakki er
valbúnaður í Midget. Loftkælingin
kæmi sér líklega vel í Japan þar sem
bíllinn er einvörðungu til sölu því
aðeins hægri hliðarglugginn er opn-
anlegur.
Vélin er þriggja strokka, 660
rúmsentimetrar og skilar 31 hest-
afli. Hljóðið frá henni er lítt dempað
Á PALLINUM er hægt að stafla alls
konar vöru til flutninga innanbæjar.
inni í ökumannshúsinu enda situr
ökumaðurinn nánast ofan á henni.
Daihatsu hefur lýst mikilli
ánægju með viðtökurnar en fyrsti
bíllinn af þessari gerð, sem hét ein-
faldlega Midget, kom á markað
1957 og var framleiddur í fimmtán
ár. Sagt er að Daihatsu ráðgeri að
hefja framleiðslu á stærri Midget
III en frumgerð hans var frumsýnd
á bílasýningunni í Tókíó á síðasta
ári. U
hita stafar frá öllum hlutum getur
fullkomin innrauð myndavél dregið
upp skýra mynd af vegi og þeim
hlutum sem á honum eru. Myndinni
er varpað á framrúðu bílsins í eðli-
legri sjónlinu þar sem ökumaðurinn
sér hana. Myndin líkist einna helst
svart/hvítri sjónvarpsmynd.
Jaguar sýndi þennan búnaði í
fyrsta sinn í X-300 stallbaknum í
febrúar síðastliðnum. Líklegra er
þó að búnaðurinn verði fyrst í boði
í XK8 en aldrei fyrr en árið 2000.
Nú er verið að reyna viðbrögð öku-
manna við honum. Markmiðið er
að ökumaðurinn skilji myndina sem
hann sér og noti búnaðinn líkt og
baksýnisspegil. Verið er að prófa
búnaðinn ítarlega í rannsóknarstofu
í Buick Tomado sem hefur verið
sagaður í tvennt. |
Fleiri í félagi
bifreiðasala
FÉLAG löggiltra bifreiðasala hef-
ur komið á fót siðanefnd sem
starfar eftir siðareglum félagsins.
Samkvæmt 14. grein getur hver
sá sem telur að bifreiðasali hafi
brotið á sér kært ætiað brot til
siðanefndar Félags löggiltra bif-
reiðasala innan tveggja mánaða frá
meintu broti enda sé málið ekki
rekið fyrir almennum dómstólum á
sama tíma. Kæran skal vera skrif-
leg og berast í ábyrgðarpósti eða
á annan sannanlegan hátt.
Gamall listi yfir bílasölur sem
eru aðilar að Félagi löggiltra bif-
reiðasala var birtur í Bflum sl.
sunnudag. Hér á eftir fer nýjasti
listin'n: Bflasalan Skeifan, Reykja-
vík, Bílasala Vesturlands, Borgar-
nesi, Bílasala Suðurlands, Sel-
fossi, Bílasala Selfoss, Selfossi,
Bfla- og búvélasalan, Hvamms-
tanga, Bílasalan Borg, Reykjavík,
Borgarbflasalan, Reykjavík, Bila-
salan Hraun, Hafnarfirði, Bílfang,
Reykjavík, Bílasalan Braut,
Reykjavík, Bflabankinn Bílasel,
Reykjavík, Nýja Bilahöllin,
Reykjavík, Litla Bílasalan,
Reykjavík, Honda hf. Gylfi Gunn-
arsson, Reykjavík, Bílasalur Suð-
umesja, Keflavík, Start hf.,
Reykjavík og Höfðahöllin, Reykja-
vík. ■
B&L tekur vid Rover-umboðinu
HEKLA hf. og Bifreiðar og land-
búnaðarvélar hf. hafa sent frá sér
fréttatilkynningar þar sem segir að
síðarnefnda fyrirtækið hafi tekið
við umboði á íslandi fyrir Rover
verksmiðjumar.
„Um leið og þýsku bílaframleið-
endurnir BMW eignuðust Rover
verksmiðjurnar í Englandi breyttu
þeir umboðsmannakerfi sínu þann-
ig að framvegis verður umboð fyrir
framleiðslu Rover verksmiðjanna
alfarið í höndum umboðsmanna
BMW. I samræmi við það tekur
fyrirtækið Bifreiðar og landbúnað-
arvélar hf. við umboði hérlendis
fyrir Rover verksmiðjurnar. Hekla
þakkar hinum fjölmörgu eigendum
Rover bifreiða ánægjuleg viðskipti
á liðnum áratugum um leið og Bif-
reiðum og landbúnaðarvélum hf.
er óskað velfarnaðar," segir í
fréttatilkynningu frá Heklu.
Boðið upp á
fjórhjóladrlfna bíla
Bifreiðar og landbúnaðarvélar
hyggjast bjóða upp á fjórhjóladrifn-
ar Range Rover og Discovery bif-
reiðar. „Ennfremur verður hægt
að panta nýjan og endurbættan
Land Rover sem nú heitir Defend-
er. Innan skamms mun B&L opna
nýjan, glæsilegan sýningarsal að
Suðurlandsbraut 14 þar sem BMW
og Rover bifreiðar munu verða til
sýnis og sölu. B&L býður hina fjöl-
mörgu Rover viðskiptamenn vel-
komna og vonast eftir ánægjulegu
samstarfí og mun kappkosta að
veita þeim góða þjónustu í framtíð-
inni.
Starfsfólk B&L sendir starfsfólki
Heklu hf. bestu kveðjur og óskir
um farsæla framtíð," segir í frétta-
tilkynningu Bifreiða og landbúnað-
arvéla. ■
Hollendingar yfir sig hrifnir af íslenslcri jeppamenningu
Torfærumeistari í
jeppakappakstri
»cl m. KJ wh' ti,Aa
p.4tnla<tr.Ni (X-<u«»
i» wuHa «« fua)!.
<.k» M<> ~n hrt
Untk itr Fm. MÍraHif* át
r»MAb V.v «h»*
ii larl^W: .»•* m 41
•!<•«.• <k M<n>f *** **»*c “Al> * *.••»■» nfcw Mivi tn M «*•f*
-w. 'mfinn Cf H-Lnt-r kkki L Wrrl rW^viM pctíáwvml <4
H.1 »<64,vajw<»»v<«.Wv.- <a
bpr —ukí.- fvhick Om ».U hka *: ílvl.aiv U M
4.1 wm •.««< awt k« •**<<: t*t Oi ih w. fc Uawja >»■
.*< I,mi*«v*i«*i» «»i 1
At» A »([*.»<
u iíip. Wi uuni tri. «*i: t.i‘1 «•* w« ;<«ii«iwJ
<.«■• cmVi. Ilii*.«< '«<►« p.T*w»*4«-«H«tki H. »
*■*<»•>. tUI.MKWlkf
1««/«■'“ »n L*Y
»». * J«* X'. M. * s». W. •I
«*•!•> M Vvi.t * r m«RU* U r>fv
O. ... «» w nM *• »«P
ut»ilM>»»ra »•>!.
Sol Malin t: fMikiat «.<j«i»l
naUitulfi «p'k-tw»v*
IJki í«*vw»jac ■»<
Mt».«pi» *»!»■> ma
anktrHk Ua it
.v..l.rJppit pwp.w><«
•mertna. Akt fc !W4nUnlr»< U-i
vvrr. tm J. mthaf n* nrr.
wi .Mrillti * .
i >, >, e
£ il’i r M-ilA
FJALLAÐ var um Gunnar Pálma og
bíl hans á sex litsíðum í einu útbreidd-
GUNNAR Pálmi Pétursson, tor-
færuökumaður, hefur verið að gera
garðinn frægan í Hollandi á þessu
ári. Hann hefur ásamt félaga sínum
Snorra Ingimarssyni verkfræðingi
verið með keppnisbílinn sinn þar
ytra og vann meðal annars fyrstu
verðlaun í kappakstri á jeppum í
sínum flokki. Mikil umfjöllun hefur
verið um Gunnar Pálma í einu út-
breiddasta jeppablaði í Hollandi,
Captain og í maíhefti blaðsins er
ijaílað um hann og bíl hans á sex
blaðsíðum. Gunnar Pálmi er reyndar
þekktari fyrir að aka upp þverhnípt
móabörð í íslensku torfærunni þar
sem hann stendur reyndar sérlega
vel að vígi til íslandsmeistaratitils
þegar þetta er skrifað.
Bíll Gunnars Pálma er sérsmíðað-
ur frá grunni. Hann er á Bronco ’67
grind og með sérsmíðaðri ályfir-
byggingu sem er eins og Willys
heijeppi af árgerð 1942. Hann er
með sérsmíðaðri Chevrolet V-8 vél,
5,7 lítra, 350 kúbiksentimetra,
keppnisvél með nítró yfir 500 hest-
öfl. Bíllinn er með gormafjöðrun.
Bíllinn var fyrst fluttur út í
desember 1995 til að taka þátt í
spilkeppni á vegum Warn sem
greint hefur verið frá á þessum síð-
um. Þar hafnaði Gunnar Pálmi í
fimmta sæti. Að keppni lokinni var
bíllinn fluttur til íslands á ný og
var lagfærður litillega. Næst tóku
Gunnar Pálmi og Snorri þátt ár-
legri jeppaferð í frönsku Alpana
með hópi hollenskra jeppamanna í
fyrstu viku marsmánaðar.
í loftköstum upp skíðabrekku
Snorri segir að Gunnar Pálmi
hafi fengið leyfi til þess að aka án
snjókeðja og án þess að um opin-
bera keppni væri að ræða hefði
Gunnar Pálmi „átt svæðið“. Ekið
var um þrönga skógarstíga og hálar
snjóbrekkur. Lítill snjór var á svæð-
inu en það reyndi á fjöðrun og grip.
Gunnar Pálmi hleypti úr dekkjunum
og bíllinn skreið upp brekkumar
meðan Hollendingarnir á snjók-
eðjunum grófu sig niður á fast.
„Við stungum upp á því við Hol-
lendingana að við fengjum að reyna
okkur við eina hæstu skíðabrekkuna
þarna á svæðinu. Leyfi fékkst til
þess og það endaði með því að
Gunnar Pálmi ók fjórum
sinnum í loftköstum upp á
topp skíðabrekkunnar mönn-
um til mikillar undrunar.
Þetta var í 1.000 metra hæð
yfir sjávarmáli í miklum en
þjöppuðum snjó,“ sagði
Snorri. Hann sagði að þeim
og fleiri íslenskum jeppa-
mönnum stæði til boða að
taka þátt í Alpaferðinni á
næsta ári.
Tll sýnis í jeppabúð
Þegar þeir félagar komu
aftur til Hollands kom beiðni
frá eiganda jeppabúðar
skammt frá Schiphol flug-
velli í Amsterdam að fá að
hafa bfl Gunnars Pálma til
sýnis í nokkrar vikur og þar
var bíllinn fram til maíbyij-
unar. Gunnar Pálmi hélt svo
aftur utan til Hollands í byij-
un maí ásamt aðstoðaröku-
manni sínum Baldvini E. Ein-
arssyni, og keppti þá á bíl
sínum í jeppakappakstri, sem
er sér hollensk fyrirbæri.
Keppt er á nokkurs konar mótor-
hjólabrautum með mikið af holum
og skomingum. Mikið breyttir bílar
keppa í kappakstrinum og þarna
sáust m.a. Range Rover með V-12
Mercedes-Benz vél og fleiri sérstak-
ir bílar. Ekið er fimm sinnum yfir
daginn og hver akstur er 20 hring-
ir, samstals 20 km. Hver aksturs-
dagur er því 100 km á ósléttri mót-
orkrossbraut. Gunnar Pálmi vann
sinn flokk á 38 tommu dekkjum.
íslenska torfæran Björk nr. 2
Snorri, sem býr í Hollandi ásamt
ÍSLENSKI fáninn blakti við hún þegar Gunnar Pálmi sigraði í sínum flokki í jeppakappakstri
skammt frá Eindhoven í Hollandi.
EKIÐ var um þrönga skógarstíga í frönsku Ölpunum þar sem tor-
færubíll Gunnars Pálma Péturssonar vakti mikla athygli.
eiginkonu sinni sem er þar í læknis-
námi, segir að áhugi Hollendinga
sé mikill á íslensku jeppatorfær-
unni, sem er sýnd á sjónvarpsstöð-
inni Eurosport.
„Ég hitti varla orðið Hollending.
nema þeir minnist á íslensku jepp-
ana í Eurosport. Þeir sem hafa á
annað borð sjónvarp í Hollandi kom-
ast ekki hjá því að rekast á þetta
annað slagið innan um sínar 23
sjónvarpsrásir. Þeim þykir það líka
sérstaklega tilkomumikið að hægt
sé að keyra þessa bíla á vatni. Ef
það er nógu mikil orka í bílunum
ná þeir að halda sér á floti á vatn-
inu. Best er að vera á skófludekkjum
en það gengur líka á 38 tommu
dekkjum og hafa þá sem mest loft-
í þeim. Kynningin á Eurosport
gengur mjög vel í Hollendingana
og þeir tala jafnvel um að íslenska
torfæran sé að verða Björk númer
2. Menn séu að ná athygli heimsins
án þess að nokkrir opinberir styrkir
komi til,“ sagði Snorri.
■
Expedition þegar Explorer dugar ekki
FORD hefur sett á markað nýjan
og stærri jeppa en Explorer, svo-
nefndan Expedition. Markaðssér-
fræðingar Ford heimtuðu ekki
þennan stóra bíl einvörðungu vegna
þess að framleiðslu á hinum gamal-
reynda Bronco var hætt og fyrir-
tækið farið að missa sölu vegna
Suburban, Tahoe og Yukon frá
General Motors. Þeir hafa fulla trú
á því að markaður fyrir stóra jeppa
muni vaxa úr 72 þúsund bílum 1994
í 270 þúsund bíla árið 1997. Egill
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Brimborgar, umboðsaðila Ford, seg-
ir að mikill áhugi_ sé fyrir því að
flytja bílinn til íslands og hafi
nokkrar stofnanir hér á landi sýnt
bílnum áhuga. Þetta verði þó ekki
magnsölubíll hér á landi.
Ford telur að stærsti kaupenda-
hópurinn verði núverandi eigendur
fjölnotabíla, stórra lúxusfólksbíla og
jeppaeigenda sem telja sig þurfa enn
stærri bíl.
XLT og Eddle Bauer
Expedition er fáanlegur með al-
drifi eða afturhjóladrifi í XLT eða
Eddie Bauer útfærslum. Tvær vélar
eru í boði, 4,6 lítra V-8 eða 5,4 lítra
V-8. Expedition er með mjög
svipuðum línum og F-150 pallbíll-
inn, þ.e.a.s. frá framglugga að stuð-
ara, en þann bíl ráðgerir Brimborg
að frumkynna 15. september nk.
Expedition er 5,21 m á lengd,
38 sm styttri en Suburban og 13
sm lengri en Tahoe. Talsmenn Ford
segja ástæðuna fyrir nákvæmlega
þessari stærð á bílnum vera þá að
viðskiptavinir vilji stóran bíl sem
rúmi allt að níu manns í sæti en
FORD Expedition á að etja
kappi við stóra jeppa frá GM.
STEFNULJÓS birtast
í hliðarspegli Expedition.
komist engu að síður fyrir í venju-
legum bílskúr. Lengdin á bílnum er
nýtt út í æsar með hlutfallslega
löngu hjólhafi.
I upphafi stóð til að nota sömu
framhurðir og á F-150 en hönnuðir
hættu við það vegna þess að
til stóð að bjóða upp á þijár
sætaraðir í bílnum. Því var hönnuð
ný 8,5 sm mjórri framhurð svo
hægt yrði að hafa afturhurðir breið-
ari að sama skapi. Hægt er að fella
miðsætaröðina niður og fram og
auðvelda þar með aðgang að öft-
ustu sætaröðinni. Til þess að auð-
velda enn aðganginn er hægt að fá
með bílnum stigbretti með lýsingu.
Að aftanverðu er Expedition mjög
líkur Explorer.
Endurbættur
Control-Trac
4,6 lítra vélin skilar 215 hestöfl-
um við 4.400 snúninga á mínútu
og togið er 290 pundfet við 3.250
snúninga á mínútu. Stærri vélin,
sjálfsögðu kraftmeiri en einkum
togar hún þó meira, eða 325 pund-
fet við 3.000 snúninga á mínútu en
hestafla^jöldinn er 230.
Drifbúnaðurinn er endurbættur
Control-Trac. Hægt er að velja um
eina af fjórum drifútfærslum með
því að þrýsta á hnapp í mælaborði,
þ.e. 2H (afturhjóladrif), 4wd sem
bætir við framhjóladrifí ef búnaður
skynjar hraðamismun á á fram- og
afturhjólum, 4H sem er læst fjór-
hjóladrif sem dreifir átakinu jafnt
milli fram- og afturhjóla og loks
4L, lága drifið við verulega erfiðar
aðstæður. í Bandaríkjunum kostar
bíllinn á bilinu 30-35 þúsund doll-
ara, á bilinu 2-2,3 milljónir
ÍSK. ■
TILBOÐ ÓSKAST
Mitsubishi Montero RS 4X4 árgerð '91 og aðrar
bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 20. ágúst kl. 12-15.
Ennfremur óskast tilboð í Jeep Cherokee Sport
4x4 (tjónabifreið) árgerð '94 (ekinn 17 þús. mílur).
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
í Ford Aerostar XL árgerð '93
(ekinn 28 þús. mílur),