Morgunblaðið - 25.08.1996, Page 1
RANGE ROVER DSE DÍSILBÍLLINN í REYNSL UAKSTRI -
ESPACE FORMULA1 - NÝIR BÍLAR SEM VERÐA KYNNTIR Á BÍLA-
— SMÍÐA VINNUSKÚRA ÚR TREFJAPLASTI
'
ILADA
ARMÚLA 13. SÍMI: 568 1200 BEINN SIMI: 553 1236
SUNNUDAGUR 25. AGUST
1996
BLAÐ
PEUGEOT 406
I 4
TÍMAMÓTABÍLL
Komdu og reynsluaktu.
Verö frá. %
. • * * * * • . t
1.48O.000 kr.
PEUGEOT
- þekktur fyrir þœglndi
Nýbýlavegi 2
Sími 554 2600
Minni
Jaguar á
markað
JAGUAR hefur hafið prófanir á
nýjum bíl sem á að keppa á sama
markaði og BMW 5-línan og
Mercedes-Benz E-línan. Bíllinn
heitir X200. Bíllinn verður afar
sérstæður í útliti, með stuttum
framenda, miklu innanrými og
farangursrými. Meira höfuð- og
fótarými verður í X200 en í mun
stærri bíl, XJ6. í boði verða tvær
vélar, 4,0 lítra V-8 og 3,0 lítra
V-6 sem er útfærsla af V-6 vél-
inni í Mondeo. Einnig er hugsan-
legt að X200 verði boðinn með
3,0 lítra, fimm strokka dísilvél
sem Ford er að hanna með beinni
innspýtingu.
X200 verður með
óvenjulegu útliti og
mjög rúmgóður.
Viöskipti með Patrol sæti
Þróunarstyrkur
Bíllinn verður frumkynntur
árið 1998 og kemur á markað
snemma árs 1999. Ráðgert er
að árleg framleiðsla verði um
40 þúsund bílar í nýrri verk-
smiðju Jaguar í Castle
Bromwich en verði um 75 þús-
und bílar innan fárra ára. A síð-
asta ári fengu Jaguar verksmiðj-
urnar, sem eru að stærstum
hluta í eigu Ford, þróunarstyrk
frá Evrópuráðinu upp á 52 millj-
ónir sterlingspunda. ■
SNORRI Ingimarsson verkfræðing-
ur og jeppaáhugamaður í Hollandi
hefur 'stundað nýstárleg en ábata-
söm viðskipti með sæti í Nissan
Patrol bíla. Snorri á sjálfur Patrol
og vakti það athygli hans þegar
hann fluttist til Hollands að þar eru
langflestir Patrol jeppar með engin
aftursæti. Snorri er með annan fót-
inn á íslandi þar sem hann rekur
eigið fyrirtæki og þar geymir hann
jeppann sinn að jafnaði.
„Þegar ég fór að kynna mér mál-
ið kom í ljós að Hollendingar láta
rífa aftursætin úr bílum sinum til
Bifreiðakaup
ÚR NEYSLUKÖNNUN FELAGSVÍSINDASTOFNUNAR1996:
Hefur þú í hyggju
að kaupa bifreið
næstu 6 mánuði?
17,5%
Hvort aetlarðu að
kaupa notaða
eða nýja bifreið?
Hve dýra bifreið ætlar þú að kaupa?
0-500 þús. |
500-800 þús. |
800-1.100 þús. |
1.100-1.500 þús. |
1.500-2.000 þús. 8,0%
yfir 2.000 þús. ÉiMN 8,7% i
Hvernig bifreið ætlar þú að kaupa?
Smábíl Fjölskyldubíl Jeppa
24,3 63,2. 12,5 1
Hvaða tegundflr) hefur þú í huga?
Toyota
Volkswagen
Mitsubishi
Honda
Nissan
Ford
Hyundai g] 3,6%
Subaru @3,6%
Mazda (jj 3,2%
Daihatsu H 2,7%
Aðrarteg
NEYSLUKÖNNUN FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR 1996. Úrtak 1.200 manns, 882 svöruðu.
ÞÝBI neyzlukönnunarinnar, þ.e. sá hópur þjóðarinnar sem úrtakið var tekiö úr,eru allir íslendinaar
á aldrinum 14-80 ára. Þetta eru 185.173 einstaklingar, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu isl.
Hvert prósentustig I könnuninni samsvarar þvl um 1.850 manns. Taka verður tillit til skekkjumarka,
sem eru á niðurstöðum i könnun sem þessari, þegar prósentustig eru umreiknuð I mannfjölda.
þess að fá virðisaukaskatt og tolla
endurgreidda. Þrjár sætaraðir eru í
Patrol og þeir láta fjarlægja mið-
sætaröðina og þá öftustu. Mér tókst
að grafa upp nokkur sett af upphaf-
legum sætum með öryggisbeltum.
Ég flutti sjálfur inn eitt sett í minn
bíl. Síðan hef ég öðru hvetju tekið
með mér eitt og eitt sett. Þau eru
nú þegar komin í nokkra bíla í eigu
opinberra aðila. íslendingar geta
keypt bílana sætislausa til íslands
en Hollendingarnir geta ekki keypt
þá án sæta. Það kostar hátt í hálfa
milljón krónum minna að kaupa bíl-
ana sætalausa og ég hef útvegað
mönnum sætin á innan við 200 þús-
und krónur,“ sagði Snorri.
Hann segir að algengt sé að Hol-
lendingarnir setji einnig háþekju á
Patrol jeppana. Fyrirtæki í Hollandi
fá sjálfkrafa virðisaukaskattinn end-
urgreiddan af jeppum. Breyti þau
jeppunum, taki sætin úr og setji á
þá háþekju fá þau einnig tollana
endurgreidda.
Hann segir að Hollendingar geymi
sætin í hálfgerðum rusiageymslum
og helsti vandinn hafi verið að finna
góð sæti. „Ég sit um alla nýja bíla
áður en þeim er breytt og fæ sætin
þá álveg heil.“
Snorri segir að farið sé illa með
sætin enda er enginn markaður fyr-
ir þau í Hollandi. „Ég hef komið í
skemmu með 300 sætum, aðallega
úr stutta Patrol bílnum og þau voru
meira eða minna skemmd."
Snorri segir að kaupendur Patrol
bíla á íslandi séu að uppgötva það
að taka þá inn sætalausa og láta
sérsmíða fyrir sig sæti eða kaupa þau
af sér. Fyrirtækið Bifreiðabyggingar
í Ármúla hefur haft milligöngu fyrir
Snorra í þessum viðskiptum. ■
Hyundai Coupé
HYUNDAI Coupé er meðal nýrra bíla sem verða náði verulegri fótfestu á markaði fyrir coupé bíia.
frumkynntir á alþjóðlegu bílasýningunni í París í í opnu blaðsins er sagt frá fleiri nýjum bílum sem
október. Bíllinn leysir af hólmi Scoupé sem aldrei verða kynntir í París. ■