Morgunblaðið - 25.08.1996, Page 2
2 D SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 D 3
Belg bætt
í bílinn
BANDARÍSKT fyrirtæki, Breed
Technologies, hefur hafið sölu á
stýrishjólum með innbyggðum
líknarbelg sem hægt er að setja
í bíla af árgerð 1985-1996 sem
ekki voru upphaflega með þessum
búnaði. Líknarbelgurinn er af
sömu stærð og algengust er í
Evrópu og er ætluð bílum sem eru
með þriggja punkta öryggisbelt-
um. Hvert stýrishjól kostar 350
dollara.
Framleiöslu-
aukning VW
VOLKSWAGEN framleiddi yfir
tvær milljónir bíla fyrstu sex mán-
uði ársins. Þetta er í fyrsta sinn
sem framleiðslan er yfir tvær millj-
ónir bíla á fyrri árshelmingi. Fram-
leiðsluaukningin nemur 11,7%.
Framleiðslan í Þýskalandi jókst um
2,9% á þessu tímabili, fór úr
803.772 bílum fyrstu sex mánuði
1995 í 827.321 bíl fyrstu sex mán-
uði þessa árs. Framieiðsla í öðrum
löndum jókst hins vegar um 18,6%,
fór úr 1.021.835 bílum í 1.212.333
bíla. Framleiðsla utan Þýskalands
jókst úr 56% í 59,4% fyrstu sex
mánuði ársins.
Ný 3-lína
BMW
BMW kemur með nýja 3-línu á
markað sem árgerð 1998. Bíllinn
verður með gerbreyttu grilii sem
á að boða breytingar fyrir aðrar
línur BMW.
Nýtt f jór-
magn í Saab
AFAR lítil sala á Saab bílum
undanfarið á Evrópumarkaði hefur
leitt til þess að eigendumir háfa
ákveðið að setja nýtt Ijármagn inn
í fyrirtækið á þessu ári og því
næsta, um þrjá milljarða ÍSK. Fjár-
magnið kemur frá GM, Opel og
sænska fjármálafyrirtækinu Inve-
stor AB. Markmiðið er að auka
söluna um 50% á næstu fimm
árum. Einkum er það salan á 900
bílnum sem hefur brugðist, ekki
síst í Svíþjóð.
VWGolf
með hliðar-
belgjum
VW Golf verður fáanlegur með
hliðarbelgjum fyrir ökumann og
farþega í framsæti frá og með
haustinu. Golf er fyrsti bíilinn í
þessum stærðarflokki sem fáanleg-
ur er með tveimur hliðarbelgjum.
Hliðarbelgir auka mjög öryggi
í hliðarárekstrum. Belgjunum er
komið fyrir í sætisbökum framsæt-
anna. Belgirnir veita því alltaf
hámarksvernd sama hvort sætin
eru stillt í fremstu eða öftustu
stöðu. Hliðarlíknarbelgurinn verð-
ur hins vegar einvörðungu fáanleg-
ur með sætum með hæðarstillingu.
Sætisbökin eru hærri og veita því
einnig betri vernd gegn háls-
hnykkjum. ■
AUDI A3.
STÆRSTA bílasýning haustsins
verður í París dagana 3. til 13.
október næstkomandi. Sýningin er
haldin annað hvert ár og vitað er
að í haust verða frumkynntir
margir nýir bílar. Hér á eftir er
sagt frá helstu nýjungunum.
Audi
Splunkunýr Audi A3 verður
sýndur í Farís. Fyrir skemmstu var
gert auglýsingamyndband um bíl-
inn hér á landi. A3 verður fyrst
um sinn aðeins fáanlegur í þriggja
dyra útfærslu. Á næsta ári kemur
á markað nýr A6.
Citroén
Citroén Saxo, minnsti bíllinn frá
Citroén, verður kynntur í fimm
dyra útfærslu. Einnig verður Saxo
kynntur í nýjum framtíðarklæðum,
svonefndur hugmyndabíll. Saxo er
einnig kominn á framleiðslustig
sem rafbíll.
Ferrarl
Það líður yfirleitt langur tími
milli þess sem Ferrari kynnir nýja
bíla enda er þessi ítalski sportbíla-
framleiðandi ekki á stórum mark-
að. Ferrari kynnir í París arftaka
Testarossa sem kallast Maranello.
Flat
Fiat kynnir nýjan Tempra sem
er reyndar kominn á markað í
Evrópu. Bíllinn er bæði framieidd-
ur sem stallbakur og langbakur.
Ford
Mikið verður líklega um dýrðir
á Ford svæðinu á Parísarsýning-
unni. Ford frumkynnir nýjan smá-
bíl sem fram til þessa hefur verið
kallaður Ka í hugmyndaútfærslum.
Bíllinn er minni en Fiesta en innan-
rýmið er sagt jafnmikið. Bíllinn
kemur á Evrópumarkað upp úr
áramótum. Hinn fjögurra og hálfs
árs gamli Mondeo verður einnig
kynntur með nýju útliti.
MERCEDES-Benz SLK.
SKODA Octavia.
VW Passat.
Hyundai
Flaggskipið Sonata verður
frumkynnt með nýju útliti. I októ-
ber verður einnig kynntur nýr
tveggja dyra sportbíll sem heitir
einfaldlega Coupé.
Maserati
Maserati, framleiðandi virðu-
legra stallbaka með kraftmiklum
vélum hefur nýlega sett á markað
bíl með V-8, 355 hestafla vél, sem
sýndur verður í París.
Mercedes-Benz
Sportbíllinn SLK hefur þegar
verið kynntur víða í Evrópu en
hann verður helsta stolt þýska
framleiðandans í París. Reyndar
hafa viðtökur verið svo góðar þótt
bíilinn sé ekki kominn á markað
FORD Ka.
RENAULT Mégane
Scénic.
Nýir bílar
kynntir
í París
enn að útlit er fyrir að allir bílar
af árgerð 1997 séu uppseldir. Auk
þess kynnir Benz V-fjölnotabílinn
með plássi fyrir sjö óg lúxusút-
færslu af Vito sendibílnum.
Nissan
Nissan kynnir splunkunýjan Pri-
mera sem er framleiddur í Eng-
landi. Bíllinn er væntanlegur á
markaði í Evrópu í haust.
Opel
Opel kynnti í fyrra á sýningunni
í Frankfurt nýja kynslóð Vectra
og í París verður haldið áfram
með langbaksútfærslu af Vectra.
Einnig verður sjömanna fjölnota-
bíllinn Sintra meðal sýningar-
gripa.
Peugeot
Nýr 406 var kynntur á síðasta
ári og nú er það langbaksútfærslan
sem verður sýnd í París.
Porsche
Það er ekki oft sem Porsche frum-
sýnir nýja bíla á bílasýningum. Að
þessu sinni verður þó mikið um
dýrðir á sýningarbás Porsche því
lítill og opinn Boxster verður frum-
kynntur þar. Hann verður settur á
markað í Þýskalandi í október.
Renault
Renault sýnir einrýmisbílinn
Scénic sem tilheyrir Mégane fjöl-
skyldunni. Bíllinn er með rými fyr-
ir fimm. Einnig sýnir Renault stall-
bak sem kallast reyndar Classic.
Mégane verður einnig sýndur í
blæjuútfærslu. Espace fjölnotabíll-
inn verður sýndur í tveimur lengd-
um og einnig útlitsbreyttur Safr-
ane.
Skoda
Felicia eignast stóran bróður á
árinu sem verður sýndur í París.
Skoda Octavia, sem að hluta til
er búinn sömu tækni og Audi A3,
er svipaður að stærð og Nissan
Primera.
Suzuki
Suzuki Baleno verður sýndur í
langbaksútfærslu.
Toyota
í haust kemur á markað nýr Camry
og nýr sex sæta fjölnotabíll, Picnic.
Meðal annarra sýningargripa er
hinn nýi Landcruiser.
Volkswagen
Nýr Passat er stærsta tromp VW
á þessu ári og verður hann sýndur
í París. í byijun næsta árs kemur
langbaksútfærslan sem búist er
við að verði mesti sölubíllinn.
Bíllinn er með nýrri 2,2 lítra, VR5
vél. ■
F650 eins strokks vélhjól nýtur mikilla vinsælda. R1100 GS seldist í fyrra í 7 þúsund eintökum.
Sölumet á BMW vélhjólum
MET hafa verið slegin sl. þijú ár
í röð í sölu á vélhjólum frá BWM.
Skráning á nýjum BMW vélhjól-
um jókst úr 35.150 hjólum árið
1993 í 46.667 hjól árið 1994, sem
er 33% aukning. Á síðasta ári
voru skráð 50.246 hjól sem er
7,7% aukning.
Þetta er mesta sala á vélhjól-
um frá því framleiðsla hófst á
þeim hjá BMW fyrir 72 árum.
Markaðshlutdeild fyrirtækisins í
heiminum hefur aukist úr 3,4%
í 6,2%.
Um helmingur allrar sölunnar
er í fimm útfærslum af nýrri kyn-
slóð hjóla með tveggja strokka
Boxer-vélum. Vinsælasta hjólið af
þeirri gerð var R 1100 GS sem
seldist í 7 þúsund eintökum. Lang-
vinsælasta hjólið er hins vegar
eins strokks F650 hjólið sem seld-
ist í 10 þúsund eintökum á síðasta
ári. ■
ZeusOl
rofbíll
SPÁNVERJAR hafa boðað komu
sína inn á rafbílamarkaðinn fyrir
alvöru með Zeus 01 rafbílnum.
Hleðslugeta Zeus 01 er 500 kg og
gott rými er fyrir tvo menn í bílnum.
Hann er 48 hestöfl og hámarkshrað-
inn er 90 km á klst. Hægt er að aka
70-100 km á rafhleðslunni, allt eftir
akstursmáta og umferð. Stór hluti
af tækninni kemur úr hillum Ford.
Bíllinn er 3,45 cm langur og því 20
cm lengri en Fiat Cinquecento. ■
- ^
Espace Formula I
EINI fjölsæta Formula 1 kapp-
akstursbíllinn sem gerður hefur
verið er smíðaður af Renault. Bíll-
inn er reyndar byggður á Espace
fjölnotabílnum og með einhveijum
hætti tókst tæknimönnum að
koma fyrir í honum tíu strokka
V-vél, 3,5 lítra. Hestaflafjöldinn
er 789.
í bílnum er sex þrepa hálfssjálf-
skipting og gólfið er gert úr trefja-
efni og áli. Hægt á að vera ná 290
km hraða á klst og hröðun úr
kyrrstöðu í 190 km hraða á klst
tekur aðeins sjö sekúndur. Meðal
þeirra sem fengu far í reynslu-
akstri á bílnum í Suður-Frakklandi
fyrir nokkru var Frank Williams,
sem Williams kappakstursbílar eru
kenndir við. Williams lenti í alvar-
legu bílslysi árið 1986. Hann
missti mátt í fótum og hefur verið
í hjólastól upp frá því. Þetta var
því í fy'fsta sinn sem Williams fékk
að reyna ógnvænlegan hraða sinna
eigin Formula 1 bíla frá því hann
lamaðist. ■
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
ÞÓRARINN Kristinsson, framkvæmdastjóri, t.h., afhendir Kára
Hólm hjá ljósleiðaradeild Pósts og síma annað af tveimur húsum
sem smíðuð hafa verið fyrir stofnunina.
Smíia hús úr
trefjaplasti
NÝTT fyrirtæki á sviði trefjaplast-
smíði, Formís hf., dótturfyrirtæki
Víkuivagna hf., hóf starfsemi sl.
vor og hefur smíðað vinnuskúra á
hjólum fyrir Póst og síma og plast-
hús á Hummer jeppa. Einnig verð-
ur hjá fyrirtækinu smíðaðir frysti-
og kæligámar á hjólum og fleira.
Húsið sem Póstur og sími keypti
er létt og einangrað. Fjögur hjól eru
undir því á tveimur öxlum en auk
þess eru fætur á því. Ljósleiðara-
deild Póst og síma notar kerruna
fyrir sína starfsmenn. Kerran kostar
um 1,7 miiljón kr. en allur búnaður
fylgir eins og innréttingar, ljós og
fleira. Inni í kerrunni er skúffur,
vinnuborð og ijósavél hefur verið
komið fyrir í henni. Fjórir opnanleg-
ir gluggar eru á kerrunni.
Húsið er 520 kg en Þórarinn
segir að sambærilegt hús myndi
vega tæp 800 kg væri það smíðað
úr hefðbundnu efni. ■
í HÚSUNUM eru skúffur og
hillur auk vinnuborða og fjög-
urra opnanlegra glugga.
Varahjólbarðar
óþarfir?
FYRIRTÆKIÐ Fleetside Services,
sem sérhæfir sig í framleiðslu á af-
felgunarvörn, hjólbörðum sem hægt
er að aka á þótt springi á, telur að
það hafi fundið upp búnað sem gerir
varahjólbarða í bílum með öllu
óþarfa. Fyrirtækið hefur fengið
einkaieyfi á búnaði sem fylgist með
þrýstingi í hjólbörðum. Búnaðurinn
samanstendur af segli sem er hafður
inni í hjólinu. Nemi í hjólaskálinni
sem fær orku frá rafhlöðu bílsins
skynjar ef hjólbarðinn missir lögun
sína með því að fýlgjast með stað-
setningu segulsins. Mælir í mæla-
borði bíisins gerir síðan ökumanni
viðvart um að loft leki úr hjólbarða.
Búnaðurinn er notaður með hjól-
börðum með affelgunarvörn sem
gerir kleift að aka allt að 50 km á
50 km hraða á klst.
Fleetside mun í fyrstu framleiða
búnaðinn fyrir lögreglubíla og drátt-
arbíla með aftanívagna. ■
í Toyota 4-Runner (upphækkaður) árgerð '93
(ekinn 24 þús. km.), Ford F-150 Super Cap XLT
4x4 árgerð '91, Crysler Newport árgerð '73,
Hyundai Elantra (tjónabifreið) árgerð '93 og aðrar
bifreiðar, er verða sýndaf að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 27. ágúst kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA