Morgunblaðið - 28.08.1996, Side 1
JHorgutiIifaMto
D
1996
MIÐVIKUDAGUR 28. AGUST
BLAD
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Kristinn
Nýr þjálfari og
útlendingur til
Tindastóls
UNGVERJINN Agoston Nagy hefur verið ráðinn
þjálfari úrvalsdeildarliðs Tindastóls í körfuknatt-
Íeik í stað Páls Kolbeinssonar. Þá hefur félagið
einnig fengið annan erlendan leikmann til liðs við
sig. Sá er Joseph Ogoms og á að taka stöðu Hin-
ríks Gunnarssonar sem gekk í vor til liðs við KR.
Þá verður Torrey John með Tindastóli þríðja vet-
urinn í röð.
Ogoms hefur undanfarin ár verið atvinnumaður
í Englandi en átti sæti í kanadíska landsliðinu
fyrir nokkrum árum. Nagy þjálfari er 28 ára
gamall. „Mér líst vel á það sem hann er að gera,“
sagði Páll Kolbeinsson í samtali við Morgunblaðið
en hann ætlar að einbeita sér að þjálfun yngri
flokka og vildi ekkert segja hvort hann ætlaði að
vera með í baráttunni í úrvalsdeildinni.
Auk Hinriks hefur Pétur Guðmundsson yfirgef-
ið Sauðkrækinga og gengið á ný til liðs við Grinda-
vík og Atli Björn Þorbjörnsson hefur gengið ÍR-
ingum á hönd.
Logi „njósnar"
í Búdapest
LOGI Ólafsson, landsliðsþjálfarí, verður meðal
áhorfenda að leik Rúmena og Litháen í undan-
keppni HM sem fram fer i Búdapest á laugardag-
inn. Hann heldur síðan til London strax eftir leik
og sér Bolton leika gegn QPR á sunnudag. f s-
lenska liðið er í riðli með Litháen, Rúmenum,
írum, Lichtenstein og Makedóníu. íslendingar
leika þijá leiki i haust, gegn Litháen á útivelli
5. október, Rúmenum á Laugardalsvelli 10. októ-
ber og á móti frum í Dublin 10. nóvember.
Landsliðið með
Fokkertil Litháen
LANDSLIÐIÐ í knattspjxnu flýgur út með Fokk-
er flugvél Flugleiða í HM-leikinn gegn Litháen
laugardaginn 5. október. Eggert Magnússon, for-
maður KSÍ, sagði að þetta væri þægilegasti ferða-
mátinn til Litháen. „ Við förum út tveimur dögum
fyrir leik (3. október) og komum heim strax eftir
leik. Við eigum síðan að Ieika á móti Rúmenum
á Laugardalsvelli 10. október og því mikilvægt
að nota tímann vel með liðinu á milli leikjanna."
Islenska landsliðið mætir silfurliði Tékklands í vináttulandsleik í næstu viku
Erfitt en kærkomið próf
Fimmtíu í
leikbann
Á fundi Aganefndar KSÍ i gær
voru fimmtíu knattspyrnu-
menn allt frá 3. flokki upp í
meistarflokk karla og kvenna
úrskurðaðir í leikbann. Þar af
voru sex leikmenn ur 1. og 2.
deild karla. Það eru þeir Rágn-
ar Steinarsson, Keflayík,
Kristófer Ómarsson, ÍR, Logi
Unnarson Jónsson, KA, Hauk-
ur Gunnarsson og Róbert Arn-
þórsson liðsmenn Leiknis og
Borgnesingurinn Garðar Már
Newman. Leikbannið tekur
gildi á föstudag.
Ball hættur
ALAN Ball er hættur sem
knattspyrnustjóri hjá enska
liðinu Manchester City, en
hann tók við liðinu i júlí í
fyrra. City féll niður í 1. deild
í vor og hefur byijað illa á
nýhöfnu keppnistimabili.
Árangur liðsins undir stjóm
Balls er ekki góður, 13 sigrar
hafa unnist, 14 sinnum hefur
liðið gert jafntefli og tapað
22 leikjum. Þess má einnig
geta að í gær hætti Jimmy
Thomson sem þjálfari Raith
Rovers í Skotlandi.
LOGI Ólafsson, landsliðsþjálf-
ari, valdi í gær 16-manna hóp
fyrir vináttulandsleikinn gegn
silfurliði Evrópumótsins í sum-
ar, Tékkum, í Jablonec íTékk-
landi í næstu viku. Hann gerði
tvær breytingar á liðinu frá þvi
í síðasta leik, gegn Möltu á
Laugardalsvelli fyrr í þessum
mánuði. Þórður Guðjónsson,
Bochum og Guðni Bergsson,
Bolton, koma inn íhópinn fyrir
Arnór Guðjohnsen og Hlyn
Birgisson, sem leika með
Örebro. Leikurinn er hugsaður
sem lokaundirbúningur ís-
lenska liðsins fyrir HM leikina
íhaust gegn Litháen, Rúmen-
um og írum.
Logi sagði það mikla virðingu við
íslenska knattspyrnu að fá leik
gegn Tékkum, sem léku sem kunn-
ugt er til úrslita um Evrópumeist-
aratitilinn í Englandi við Þjóðveija
í sumar. „Tékkar eru með frábært
lið og ég reikna með að þeir tjaldi
því besta sem þeir eiga því þeir eru
að undirbúa lið sitt fyrir undan-
keppni HM eins og við. Leikurinn
verður erfiður fyrir okkur en jafn-
framt kærkomið próf fyrir átökin í
haust. Það mun reyna mikið á varn-
arleikinn í Tékklandi," sagði lands-
liðsþjálfarinn.
Um íslenska landsliðshópinn
sagði Logi: „Ég ákvað í samráði
við Arnór Guðjohnsen og þjálfara
hans að gefa honum frí í þessum
leik til að hann fengi að hlaða raf-
hlöðurnar því mikið álag hefur ver-
ið á honum í sumar. Hann er farinn
að eldast og þarf því smá hvíld.
Hlynur Birgisson er meiddur í nára
og verður því ekki með. Örebro á
að leika í deildinni sama dag og
landsleikurinn fer fram og því lagði
Dalquist þjálfari Örebro áherslu á
að halda Islendingunum, en ég gaf
Sigurð Jónsson ekki eftir.“
Logi sagði að þessi hópur væri
ekki endanlegur fyrir HM-leikina í
haust þótt hann gerði ekki ráð fyr-
ir miklum breytingum. Leikmenn
eins og Guðmundur Benediktsson,
Arnar Grétarsson og Ágúst Gylfa-
son væru einnig inn í myndinni.
Eins væru Arnar Gunnlaugsson og
Eiður Smári Guðjohnsen báðir farn-
ir að æfa með félagsliðum sínum
eftir meiðsl.
Nú hefur Guðni Bergsson ekkert
leikið með Bolton vegna meiðsla,
Landsliðið
LOGI Ólafsson, landsliðsþjálf-
ari, valdi í gær 16 leikmenn
til þátttöku í vináttulandsleikn-
um gegn Tékkum í næstu viku.
Þeir eru (Landsleikir í sviga):
Markverðir:
Birkir Kristinsson, Brann (44)
Kristján Finnbogason, KR (10)
Aðrir leikmenn:
Guðni Bergsson, Bolton (68)
Ólafur Þórðarson, lA (68)
Rúnar Kristinsson, Örgryte (54)
Sigurður Jónsson, Örebro (44)
Eyjólfur Sverrisson, Hertha (31)
Bjarki Gunnlaugsson, Mannheim (19)
Ólafur Adolfsson, ÍA (16)
Helgi Sigurðsson, TB Berlín (9)
Þórður Guðjónsson, Boehum (8)
Lárus Orri Sigurðsson, Stoke (6)
Einar Þór Daníelsson, KR (4)
Ríkharður Daðason, KR (4)
Hermann Hreiðarsson, ÍBV (2)
Heimir Guðjónsson, KR (1)
erhann orðinn leikfær með landslið-
inu?
„Ég hef verið í sambandi við
Guðna og hann segist vera tilbúinn
í slaginn. Hann vildi ekki spila með
Bolton fyrr en hann væri orðinn
góður af meiðslunum og það er
hann nú. Ég legg mikla áherslu á
að fá fyrirliðann til Tékklands því
þar verður lokaundirbúningur liðs-
ins fyrir haustleikina. Hann leikur
með Bolton gegn QPR á sunnudag-
inn,“ sagði Logi sem mun fylgjast
með leiknum.
Heimir Guðjónsson úr KR lék
fyrsta landsleik sinn á móti Möltu
fyrr í þessum mánuði og hann er
enn í hópnum. „Heimir stóð sig vel
í leiknum á móti Möltu og því er
rétt að gefa honum annað tæki-
færi, í öllu erfiðari leik,“ sagði Logi.
Landsliðið heldur til Tékklands á
mánudag og fer leikurinn fram á
Strelnice-leikvanginum í Jablonec,
sem er um 100 km frá Prag, á
miðvikudag. Tékkar mun endur-
gjalda heimsóknina með því að leika
hér á landi næsta sumar — á 50
ára afmælisári KSÍ.
AKSTURSÍÞRÓTTIR: METÞÁTTTAKA í ALÞJÓDARALLINU / D4