Morgunblaðið - 30.08.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
FÖSTUDAGUR 30. AGUST
BLAD
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Grindvíkingar
kvarta við KSÍ
FORRÁÐAMENN knattspyrnudeildar Grinda-
víkur hyggjast leggja fram formlega kvörtun í
dag til Knattspyrnusambands íslands, vegna
leiksins í Vestmannaeyjum í gærkvöldi, þar sem
þeir töpuðu 1:2 fyrir ÍBV í 1. deildinni.
Egill Már Markússon dæmdi leikinn í gær og
voru Grindvíkingar ekki ánægðir með hann. „I
fyrsta lagi er smekklaust að setja þennan dóm-
ara á leikinn, eftir það sem á undan er gengið;
það vesen sem varð á bikarúrslitaleiknum, þar
sem hann var á linunni. Með þessum orðum er
ég ekki að ieggja mat á það sem þar gerðist,
hvort það var rétt eða rangt, heldur þá stöðu
sem hann er í eftir þann leik,“ sagði Sævar Sig-
urðsson, formaður knattspyrnudeildar Grinda-
víkur við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„f öðru lagi teljum við okkur hafa átt aug-
ljósa vítaspyrnu í leiknum, sem
hann sleppti að dæma. Við tejj-
um að hann hafi ekki dæmt
Óvænt úrslit í leikjum beggja toppliðanna, ÍAtapaði og KR gerði jafntefli
„Heilladísimar greini-
lega á okkar bandi“
víti þá vegna þess að hann var
undir þeirri pressu að dæma
ekki á Eyjamenn, eftir það sem
gerðist í bikarúrslitaleiknum,“
sagði Sævar. í umræddum leik
í A og ÍBV á Laugardalsvelli á
sunnudag var dæmd umdeild
vítaspyrna, eins og áður hefur
komið fram og í framhaldi af
því voru Grindvíkingar ósáttir
við að EgUl Már dæmdi leikinn,
og Eyjamenn líka, eftir því sem
Sævar sagði í gærkvöldi. „ÍBV
kvartaði við dómaranefndina
og KSÍ í dag,“ sagði hann.
„VIÐ klúðruðum þessum leik en KR-ingar náðu ekki að nýta sér
það og við erum því enn á toppnum. Heilladísirnar eru greini-
lega á okkar bandi," sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari Skaga-
manna, eftir að bikarmeistararnir nýkrýndu höfðu tapað fyrir
Breiðabliki, 0:1, á Akranesi í gærkvöldi og á sama tíma gerði
KR jafntefli við Fylki. Blikar hafa nælt sér í sex dýrmæt stig í
botnbaráttunni ítveimur síðustu leikjum og það á móti toppliðum
deildarinnar, ÍA og KR.
ValurB.
lónatansson
skrifar
Skagamenn voru greinilega ekki
komnir niður á jörðina eftir
bikarsigurinn um síðustu helgi er
þeir mættu Blikum
í gær. Bikarmeist-
arnir virkuðu
þreyttir og áhugi
þeirra á leiknum
takmarkaður. Leikurinn var frekar
slakur og dómarinn Bragi Berg-
mann var enginn undantekning þar
á. Blikar höfðu baráttuna fram yfir
Skagamenn og verðskulduðu fylli-
lega fyrsta sigur Kópavogsliðsins á
Skipaskaga frá upphafi.
Baráttusigur
„Við vitum að við erum ekki að
spila bestu knattspyrnuna í deild-
inni, en það er ekki það sem telur
þegar upp er staðið. Þetta var fyrst
og fremst baráttusigur hjá okkur.
Við þurfum á stigum að halda og
þessi sigur gefur okkur aukið sjálfs-
traust fyrir næstu leiki,“ sagði Sig-
urður Halldórsson, kampakátur
þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn.
Kristófer skoraði
Skagamenn voru meira með bolt-
ann í leiknum en náðu ekki að skapa
sér nein umtalsverð marktækifæri.
Sóknarmennirnir, Stefán Þórðarson
og Bjarni Guðjónsson, fengu lítið
úr að moða enda tóku sóknir ÍA
allt of langan tíma. Blikar höfðu
því ávallt nægan tíma til að loka
svæðum áður en hætta skapaðist.
Blikar byggðu hins vegar sitt spil
á hættulegum skyndisóknum þar
sem Arnar Grétarsson fór fremstur
í flokki. Upp úr einni slíkri sókn
kom einmitt sigurmarkið sem Kri-
stófer Sigurgeirsson gerði eftir und-
irbúnings Arnars. „Það var ekkert
annað að gera en að setja boltann
í netið, því færið var gott. Nú er
sjálfstraustið komið hjá okkur og
það ætti að geta fleytt okkur langt,“
sagði Kristófer.
Þreytumerki
„Það er ekki mjög þekkt hér á
Akranesi að tapa, en það voru
greinilega þreytumerki á liðinu eft-
ir bikarúrslitaleikinn,“ sagði Guðjón
þjálfari ÍA. „Við vorum allt of sein-
ir í öllum okkar aðgerðum og því
fór sem fór. Við vorum ekki að
sýna neina meistaratakta. Blikar
eiga heiður skilið fyrir mikla bar-
áttu allan leikinn. Ef þeir sýna
svona baráttu í þeim leikjum sem
þeir eiga eftir þá eiga þeir góða
möguleika á að halda sæti sínu.“
Þáttur dómarans
Þáttur dómarans Braga Berg-
manns í leiknum var nokkuð um-
deildur. Hani'. sleppti því að sýna
tveimur leikmönnum rauða spjaldið
í fyrri hálfleik. Fyrst þegar Olafur
Adolfsson togaði í buxnastreng
Kristófers þegar hann var að sleppa
einn í gegnum vörn ÍA. Ef hann
sá ekki atvikið átti línuvörðurinn
að sjá það. En ekkert var dæmt. í
síðara skiptið átti markvörður
Breiðabliks, Cardaklija, að fá rauða
spjaldið. Varnarmaðurinn Radenko
Maticic ætlaði að senda boltann til
baka á Cardaklija, en Stefán Þórð-
arson komst á milli og náði boltan-
um. Cardaklikja kom hlaupandi út
úr vítateignum og skellti Stefáni
og um leið barst boltinn inn í víta-
teiginn og þar kom Bjarni Guðjóns-
son að og skoraði, en markið var
dæmt af. Góður dómari hefði beðið
með að flauta á brotið - dæmt
markið gilt og gefið síðan Carda-
klija rauða spjaldið.
■ Aðrir leikir / C2
■ Staðan / C2
Morgunblaðið/Þorkell
Markahæstur
RÍKHARÐUR Daðason, sem hér á í
baráttu vlð Ólaf Stigsson, lelkmann
Fylkis, skoraðl elna mark KR I 1-1
jafntefli liðanna í gær og er nú
markahæsti lelkmaður delldarinn-
ar, með 11 mörk.
Arnar Grétarsson fékk sendingu inn að vítateig
Skagamanna vinstra megin eftir skyndisókn
Breiðabliks. Hann lék á Zoran Miljkovic við vítateigslínuna,
fór með knöttinn upp að endamörkum, þar sem Zoran hljóp
hann uppi en Arnar hafði aftur betur í einvígi þeirra. Rétt
áður en Þórður markvörður, sem kom út á móti, náði til
knattarins, var Arnar staðinn upp eftir að hafa rennt sér í
Zoran og sendi rétt út fyrir markteigshomið. Þar var Kristó-
fer Sigurgeirsson í góðu færi og hamraði boltann í hægra
markhornið. Þetta var á 64. mínútu.
„HARÐUR DÓMUR EIM RÉTTUR,“ SEGIR DÓMARIBIKARÚRSLITALEIKSINS / C4