Morgunblaðið - 30.08.1996, Síða 4
KNATTSPYRNA
ÍPROmR
pfar0iniiil>lfa$>t%>
Æ
Atti að dæma víti eða ekki? Það er spurningin
NOKKUÐ heitar umræður hafa
verið um vítaspyrnudóminn í bik-
arúrslitaleiknum milii ÍA og IBV
sl. sunnudag er Gylfi Orrason
dómari dæmdi víti sem Haraldur
Ingólfsson skoraði úr og kom IA
í 1:0. Ríkissjónvarpið sýndi mynd-
ir frá atvikinu á þriðjudagskvöld
frá öðru sjónarhorni en áður hafði
verið sýnt. Af þeim myndum að
dæma vildu sumir meina að hafi
eitthvert brot átt sér stað, hafi
það verið utan vítateigs og tækju
því af allan vafa um vítaspyrnu-
dóminn. Myndirnar sýni að hann
hafi verið rangur, en myndin hér
að ofan er einmitt einn rammi úr
sjónvarpsupptökunni.
Gylfi Orrason, dómari leiksins,
sagðist, í samtali við Morgunblað-
ið í gær, hafa skoðað þessar mynd-
ir, ramma fyrir ramma, og hann
væri enn sannfærðari en áður um
að dómarinn hafi verið réttur.
„Þetta var harður dómur en hann
var réttur og þessar myndir taka
af allan vafa um það. Haraldur
[Ingólfsson] stökk upp fyrir utan
vítateiginn en þegar Friðrik [Sæ-
björnsson] skall á honum voru
þeir á vítateigslínu, sem tilheyrir
vítateignum, eða fyrir innan hana.
Það hefði enginn sagt neitt ef ég
hefði dæmt aukaspyrnu utan
teigs, en brotið var innan teigs
og því ekkert annað hægt en að
dæma vítaspyrnu. Ef menn skoða
þetta í réttu (jósi, án þess að vera
búnir að dæma þetta fyrirfram,
hljóta þeir að komast að sömu
niðurstöðu og ég. Við dómarar
gerum mörg smávægileg mistök i
hverjum leik, en það voru ekki
mistök að dæma vitaspyrnu i
þessu tilviki."
Egill Már Markússon var að-
stoðardómari í umræddum leik og
veifaði flaggi sínu til merkis um
að brotið haf i átt sér stað innan
vítateigs. „Það á ekki að hengja
bakara fyrir smið. Egill var vel
staðsettur og gaf merki eins og
honum bar skylda til,“ sagði
Gylfi.
Graham
afþakkar
GEORGE Graham fyrrverandi
knattspyrnustjóri Arsenal af-
þakkaði í gær boð um að gerast
knattspyrnustjóri hjá Manchest-
er City. „Ég er þakklátur fyrir
boðið en eftir að hafa farið vand-
lega yfir málið þá held ég að
það sé ekki rétti tíminn nú fyrir
mig að snúa mér að nýju að
þessu starfi," sagði Graham {
gær en nú er eitt og hálft ár
síðan hann var rekinn frá Ars-
enal.
Francis Lee, stjórnarformaður
City liðsins, var svekktur yfir
svarinu frá Graham og sagði
boðið hafa verið gott og hrein-
lega óskiljanlegt að Graham
hefði afþakkað það.
En Lee hefur ekki gefist upp
og nú hefur hann mestan áhuga
á að fá arftaka Grahams hjá
Arsenal, Bruce Rioch, til þess
að taka við stjórninni. Ef ekki,
þá eru Kenny Dalglish, Jack
Charlton og Steve McMahon,
fyrrverandi knattspymustjóri
Swindon, næstir á blaði.
Strachan
neitaði að
fara útaf!
GORDON Strachan, leikmaður
með Coventry og aðstoðarmaður
Rons Atkinsons, knattspymu-
stjóra félagsins, var í sviðsljósinu
í gærkvöldi er hann lék með
varaliðinu á útivelli gegn West
Bromwich Albion.
Dómarinn rak þennan gam-
alkunna harðjaxl út af vegna
mótmæla, en hann er þekktur
fyrir að kalla ekki allt ömmu
sína í þeim efnum; lætur dómara
oft heyra það og vandar þó
ógjarnan orðavalið. Strachan
neitaði hins vegar að yfirgefa
völlinn og lauk þeim „leikþætti"
með því að dómarinn, Tony Gre-
en fór út af og kallaði þjálfara
beggja liða á sinn fund í búnings-
herberginu. Leikurinn hófst síð-
an á ný - án Strachans - eftir
14 mínútna hlé.
Reiknað er með að Strachan
hljóta þunga refsingu vegna
framkomunnar í gærkvöldi.
Atvinnu-
menn
reyna
meðsér
í TENGSLUM við stigamótið í
golfi á Akureyri um helgina
verður keppt í einum flokki at-
vinnumanna og er þetta í fyrsta
skipti sem það á sér stað hér á
landi. Eins og kunnugt er mega
atvinnumeim ekki taka þátt í
opnum golfmótum áhugamanna
hér á landi nema sem gestir og
geta þar af leiðandi ekki unnið
til verðlauna.
Sigurvegari flokks atvinnu-
manna á Akureyri um helgina
hlýtur nafnbótina PGA-meistari
íslands auk peningaverðlauna
að upphæð 1.000 Bandaríkja-
dollarar. Atvinnumennirnir leika
18 holur á laugardaginn og 18
á sunnudag. PGA eru samtök
atvinnukylfinga og eftir að golf-
kennurum fjölgaði hér á landi
stofnuðu þeir með sér samtök,
PGA á íslandi.
Að sögn Skúla Ágústssonar,
kylfings og umboðsmanns
Mitsubishi á Aukureyri, en um-
boðið stendur fyrir Stigamótinu,
er vonast til að þessi viðbót sé
komin til að vera og þeir tólf
atvinnumenn sem eru starfandi
hér á landi láti ekki sitt eftir
Hggja.
„Atvinnumönnum hér á landi
er alltaf að fjölga og okkur
fannst þetta vera kærkomin við-
bót við mótið og vonumst til að
þessi flokkur verði með í mótinu
héðan í frá.“
Í gær höfðu nfu menn skráð
sig um hádegisbilið en skráningu
lýkur í kvöld kiukkan átta.
Johnson
og Christie
verða með
MICHAEL Johnson og Linford
Christie samþykktu í gær að
vera með í „Draumasveit" fjög-
urra boðhlaupara sem keppir í
4x100 m boðhlaupi gegn Evr-
ópusveit, bandarískri sveit og
Afríkusveit á stórmótinu í Berlfn
í kvöld. Hlaupið verður háð í
minningu um Bandaríkjamann-
inn Jesse Owens.
Auk Johnsons og Christies
verður heimsmeistarinn, heims-
methafinn og ólympíumeistarinn
í 100 m hlaupi, Donovan Bailey,
með í sveitinni og Frankie Fred-
ericks silfurhafi í 100 og 200 m
hlaupi á Ólympíuleikunum.
Ákveðið hefur verið að Christie
verði fyrirliði sveitarinnar og
hlaupi fjórða og síðasta sprettinn.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Sex keppa
Sex íþróttamenn eiga möguleika
á því að skipta á milli sín
„gullpottinum" sem í eru 20 gull-
stangir samtals að verðmæti 16,5
milljónir króna. Til þess þurfa þeir
að sigra í sínum greinum á stiga-
móti Alþjóða fijálsíþróttasam-
þandsins í Berlín f kvöld. Þessir
íþróttamenn eru Wilson Kipketer,
Danmörku, í 800 m hlaupi, Frankie
Fredericks, Namibíu í 200 m hlaupi,
Derrick Adkins frá Bandaríkjunum,
ólympíumeistari í 400 m grinda-
hlaupi, breski heimsmethafinn í
þrístökki, Jonathan Edwards, Þjóð-
veijinn Lars Riedel ólympíumeistari
í kringlukasti og Stefka Kostad-
inova heimsmethafi í hástökki
kvenna en hún er frá Búlgaríu.
Mikil spenna ríkir vegna þeirra
greina sem þessir íþróttamenn
keppa í enda mikið í húfi. í fyrra
voru það fjórir íþróttamenn sem
skiptu gullstöngunum á milli sín en
fimmti íþróttamaðurinn sem átti
möguleika fyrir síðasta mótið tap-
aði í sinni grein á lokamótinu. Það
var Bretinn Linford Christie sem
um „gullpottinn"
varð svo óheppin að missa af lest-
inni er hann tapaði fyrir Donovan
Bailey á sjónarmun í 100 m hlaupi.
Nú gæti farið á sömu leið fyrir
Frankie Fredericks, hann gæti
misst af pottinum því einn andstæð-
inga hans í 200 m hlaupinu í kvöld
er enginn annar en Michael Johnson
heimsmethafi í greininni. Reyndar
er Fredericks eini maðurinn sem
hefur sigrað Johnson í 200 m hlaupi
í ár, en það gerðist á fyrsta guljmót-
inu á Bislett leikvanginum í Ósló í
júní. Það er hins vegar ekki daglegt
brauð hjá Johnson að lúta í lægra
haldi á hlaupabrautinni og því er
ekki einkennilegt þó Fredericks telji
að lukkudísirnar séu ekki á sínu
bandi á þessu ári. Hann varð annar
bæði í 100 m og 200 m hlaupi á
ólympíuleikunum og nú þegar hann
er nálægt því að eignast milljónir
króna í hreinu gulli þá kemur Tex-
asbúinn enn einu sinni til sögunn-
ar, kannski á gullskónum, og gerir
vonina um þetta gull að engu.
Flestir af bestu frj álsíþrótta-
mönnum heims mæta til leiks í
kvöld. Ljóst er að hápunktar kvölds-
ins verða 200 m haupið og boðhlaup
í minningu Jesse Owens. Þá verður
einnig spenna í kringum hinar gull-
greinarnar sem að framan er getið.
Einnig fylgjast margir spenntir með
því hvort ungi Kenýamaðurinn
Daniel Komen takist að slá heims-
metið í 5.000 m hlaupi, en hann fór
nálægt því á dögunum. Heimsmet-
hafinn í greininni, Eþíópíumaðurinn
Haile Gebreselassie, hefur hins veg-
ar ekki boðað þátttöku sína í mót-
inu.