Morgunblaðið - 31.08.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANMA
KNATTSPYRNA
Jltoiqpntltfitfrlfe
1996
LAUGARDAGUR 31. AGUST
BLAD
ÍSÍ skoraði á FSÍ
að halda ársþingið
ÍÞRÓTTASAMBAND íslands þurfti að hafa
afskipti af því að Fimleikasarabandið héldi árs-
þing sitt um helgina. Samkvæmt lögum á þing-
ið að fara fram á tímabilinu frá 10. mai til 10.
júní ár hvert. Því var frestað í vor með sam-
þykki íþróttasambandsins ogþað kom ekki til
greina afhálfu ÍSÍ að fresta því aftur eins og
stjórn FSÍ hafði ákveðið. Löglega hafði verið
tíl þess boðað og eftir mikil fundahöld þjá fram-
kvæmdastjóm ISÍ á fimmtudag samþykkti
Guðmundur Haraldsson, formaður FSÍ, að
haida þingið um helgina.
Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ,
sagði í samtali við Morgunblaðið að stjórn Fim-
leikasambandsins hafi á sínum tima farið fram
á það við ÍSÍ að fresta ársþinginu fram í ágúst
sökum anna og það hafi verið litið fram hjá þvi.
„Fyrir nokkrum dögum barst okkur skeyti
frá FSÍ þar sem farið var fram á frestun þings-
ins öðru sinni á þeirri forsendu að margir þing-
fuUtrúar hefðu ekki fengið gögn þingsins í
hendumar. Áður hafði FSÍ sent skeyti til allra
fimleikafélaga um frestunina, en flest fimleika-
félög landsins mótmæltu frestuninni. Fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ tók síðan málið fyrir á fundi
sinum í gær [fimmtudag] og þar var samþykkt
að skora á stjórn FSÍ að halda þingið um helg-
ina. í framhaldi af því ákvað síjóm FSÍ að
haida þingið,“ sagði Stefán
Mikil óánægja hefur verið með stjórn Fim-
Ieikasambandsins í fimleikahreyfingunni. Ámi
Þór Ámason hefur ákveðið að gefa kost á sér
tíl formennsku I Fimleikasambandinu á árs-
þinginu sem fram fer í dag.
Gianluigi Lentini
til Atalanta
GIANLUIGI Lentini fyrram landsliðsmaður
Ítalíu var í gær seldur frá meistaraliði AC
Milan tU Atalanta fyrir 390 mU[$ónir króna.
Lentini hafði verið í herbúðum MUanliðsins síð-
an 1992 er hann var keyptur frá Torino fyrir
tvöfalda þá upphæð sem hann er nú seldur
fyrir.
Lentini hefur ekki gengið heUl til skógar
síðastliðin misseri eftir að hann lenti í um-
ferðarslysi og slasaðist á höfði. Eftir það hefur
hann ekki náð að sýna fyrri styrk á knatt-
spyrnuvellinum og í fyrravetur missti hann
sæti sitt í liði AC Milan. Þess má geta að Emil-
iano Mondonico þjálfar nú Uð Atalanta, en hann
var einmitt í sama starfi þjá Torino á þeim
tíma sem Lentini lék með félaginu.
Skíða-
stökk í
sumar-
blíðunni
KNATTSPYRNA
Átta úr siHiirlidi Tékka
leika gegn íslendingum
ÞÓ svo að vetur sé enn ekki
genginn í garð em skíða-
menn að undirbúa sig af
kappi fyrir komandi keppn-
istímabU. Rússar hafa ekki
verið sigursælir í skíðastökki
síðustu ár en nú ætla þeir
að gera bragarbót á því.
Þeir hafa komið sér upp
æfingaaðstöðu í úthverfi
Moskvuborgar - stökkpalli
með gerviefni sem líkist snjó
og er hægt að nota yfir sum-
armánuðina. Myndin hér fyr-
ir ofan var tekin á æfingu
rússneska landsliðsins i gær
en þá var 25 stiga hiti í
Moskvuborg. Fyrirhugað er
að keppa á þessum stökk-
palli 7. september.
Tékkar, sem léku til úrslita um
Evrópumeistaratitlinn í Eng-
landi í sumar, taka á móti íslend-
ingum í vináttulandsleik í Jablonec
í Tékklandi á miðvikudag. Dusan
Uhrin, þjálfari Tékka, valdi liðið
sitt í gær. Átta leikmenn úr silfur-
liðinu á EM í Englandi eru í leik-
mannahópnum og þar af fimm sem
léku úrslitaleikinn gegn Þjóðveij-
um; Petr Kouba, markvörður, Mic-
hal Honrak, Jirí Nemec, Radek
Bejbl og Pavel Kuka. Hinir sem
voru í hópnum í Englandi eru
Lubos Kubik, Karel Rada og Mart-
in Frydek. Karel Poborsky, sem
leikur með Manchester United og
Patrik Berger, sem leikur með
Liverpool, eru ekki hópnum þar
sem þeir eru að leika með liðum
sínum í Englandi á sama tíma.
Af þessari upptalningu er ljóst
að Tékkar tefla fram mjög öflugu
liði og róðurinn gæti því orðið
þungur hjá íslenska liðinu. Tékkar
komu mest á óvart allra liða í
úrslitakeppni Evrópumótsins og
þóttu leika skemmtilega knatt-
spyrnu. Þeir voru m.a. fyrstir til
að leggja hið sigursæla lið Frakka
að velii í keppninni, unnu eftir víta-
spyrnukeppni og bráðabana, 6:5,
í undanúrslitum keppninnar.
Markvörðurinn Petr Kouba varði
þá sjöttu spyrnu Frakka og
tryggði þar með liði sínu sæti í
úrslitaleik keppninnar á Wembley.
Tékkneska landsliðið er skipað
eftirtöldum leikmönnum: (lands-
leikir í sviga)
Markverðir:
Petr Kouba, Deportivo La Coruna (36)
Zdenek Janos, FK Jablonec (0)
Varnarmenn:
Lubos Kubík, Slavía Prag (51)
Oldrieh Machala, Sigma Olomouc (0)
Michal Hornak, Sparta Prag (19)
Karel Rada, Sigma Olomouc (4)
Miðvallarleikmenn:
Jiri Nemec, Schalke (41)
Radoslav Latal, Schalke (33)
Radek Bejbl, Atletico Madrid (12)
Richard Dostalek, Boby-Sport Brno (0)
Lumír Mistr, Sparta Prag (2)
Martin Frydek, Sparta Prag (25)
Zdenek Svoboda, Sparta Prag (0)
Edvard Lasota, Slavía Prag (1)
Framherjar:
Pavel Kuka, Kaiserslautern (49)
Radovan Hromadko, Jablonec (1)
Pavel Verbir, FK Teplice (0)
Tékkar eru að undirbúa sig fyr-
ir undankeppni HM eins og Islend-
ingar, en þeir mæta Möltu í fyrsta
leik sínum í undankeppninni í lok
mánaðarins. íslenska liðið heldur
utan á mánudag en leikurinn fer
fram á miðvikudag klukkan 15 að
NÁ íslendlngar að koma
boltanum í netið hjá Kouba?
íslenskum tíma í bænum Jablonec
sem er um 100 km norður af Prag.
KNATTSPYRNA: BREIÐABLIK OG VALUR LEIKA TIL ÚRSLITA í DAG / C3