Morgunblaðið - 04.09.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.09.1996, Blaðsíða 4
4 E MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Svanasöngur sumarsins Svo hljóðar að hluta fyrsta erindið í ljóðinu Bjarni Thórarensen eftir eitt fremsta ljóðskáld íslands fyrr og síðar, Jónas Hallgrímsson. Mynd- in af svaninum á vatninu eftir Katrínu Jónsdóttur, 12 ára Reykjavíkur- barn, minnti á þetta kveðjuljóð Jónasar, þar sem hann kveður annað skáld, Bjama Thorarensen. Svanurinn er floginn til sólríkari landa því nú haustar að, skólamir em byijaðir og ef til vill læra einhver ykkar eitt eða fleiri ljóða Jónas- ar Hallgrímssonar! Gangi ykkur vel í skólanum. Kæri Moggi. Eg heiti Kristín og mig langar að skrifast á við 8-9 ára stelpur. Sjálf er ég orðin 8 ára. Áhugamál mín eru margvísleg. Kristín Ólafsdóttir Funafold 95 112 Reykjavík Kæri Myndasögu Moggi. Mig langar að eignast penna- vini og -vinkonur frá 10-12 ára, ég er sjálf 10 ára. Áhugamál eru fimleikar, skíði, skautar, dans, dýr, tónlist og margt fleira. Send- ið mynd ef hægt er. Ef ég get ekki skrifað, sendi ég myndina til baka. Guðrún Lárusdóttir Logafold 140 112 Reykjavík Tilkynning Ég vil biðja strák í Þorlákshöfn, sem ég hitti um verslunarmanna- helgina, um að skrifa mér. Ég heiti Hildur og er 10 ára. Skrifaðu ef þú manst eftir mér. Hildur Valsdóttir Hvammstangabraut 39 530 Hvammstangi Sími: 451 2659 Hæ! Eru einhveijir strákar (sætir) 14 eða 15 ára, sem vilja stelpu- pennavin? Ingunn E. Andrésdóttir Fífubarði 10 735 Eskifjörður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.