Morgunblaðið - 07.09.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1996 C 3
ÍÞRÓTTIR
ALÞJOÐARALLIÐ
Forystumennirnir Rúnar og Jón voru heppnir að falla ekki úr keppni á fyrsta degi
„Hélt þetta
væri búið“
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
í stuði
RÚNAR og Jón voru í miklu stuði í byrjun keppni en urðu að
slaka á eftir að framöxuii bfiaði. Þeir hafa þó tæplega þriggja
mínútna forskot eftir fyrsta dag alþjóðrallsins.
RÚNAR Jónsson og Jón Ragnarsson á fjórhjóladrifnum Mazda
323 höfðu í gærkvöldi tæplega þriggja mínútuna forystu eftir
fyrsta dag alþjóðarallsins af þremur. Steingrfmur Ingasson og
Jóhannes Jóhannesson á Nissan voru íöðru sæti og mínútu á
eftir voru Norðmennirnir Nils Petter Gill og Einar Staff á Su-
baru. Bretarnir Geoff Tunnard og Douglas Blandyá Mitsubishi
Pajero voru fremstir jeppamanna, en Ævar Hjartarsson og Ari
Arnórsson á Hummer koma þeim næstir.
Steingrímur var sæmilega sáttur
við annað sætið enda ljónheppinn
að falla ekki úr keppni því öxull
dróst í tvígang út hjá honum og
Jóhannesi á Nissan _ bílnum. „Ég
ók langan kafla á ísólfsskálaleið
með drif á einu hjóli og kom svo
öxlinum í eftir að henni lauk. Strax
á næstu leið fór öxullinn aftur út
og við urðum að stöðva bílinn. Sem
betur fer voru gamlir viðgerðar-
menn mínir þarna að horfa á
keppnina og hjálpuðu okkur að
koma öxlinum í aftur!“ sagði Stein-
grímur. „Þá gerði móða innan á
framrúðunni okkur erfitt fyrir á
vatnsmiklu Djúpavatni. Þrjú síð-
ustu ár hefur fyrsti dagurinn
reynst mér erfiður í þessu ralli.
En keppnin er rétt að byrja, það
er mikið eftir og við ætlum að
vinna, þó Rúnar sé með gott for-
skot. Munum berjast fram á síð-
asta metra.“
Norðmennirnir ætla að spýta í öku-
mannshanskanna í dag, eftir ró-
lega byrjun. „Við erum að venjast
aðstæðum en ökumennirnir hérna
Ítoppslagnum urðu strax afföll.
Porsche félagarnir Guðbergur
Guðbergsson og Jón Helgi Pálsson
urðu að hætta
keppni. Bremsurnar
Gunntaugur biluðu á Kleifarvatni
Rognva sson þeir rákust utan
í barð. A næstu ser-
leið bilaði afturöxull vegna höggs-
ins. „Þetta var ömurlegt eftir alla
vinnuna. Við náðum öxlinum út og
viðgerðarmenn komu hlaupandi
með annan en það var ekki hægt
að setja hann í. Við urðum því að
horfa á eftir andstæðingunum og
sætta okkur við orðinn hlut,“ sagði
Jón Helgi sem var í sínu fyrsta
ralli. Aðrir í toppslangum sluppu
ekki vandræðalaust frá fyrsta degi.
„Ég hélt þetta væri búið þegar
öxull að framan gaf sig á Djúpa-
vatnsleið, þegar 20 km voru eftir.
Ég var á nálum alla leiðina og von-
aði að hinir öxlarnir héldu út leið-
ina. Við náðum í enda leiðarinnar
með drif á þremur og gátum skipt
um öxul,“ sagði Rúnar. „Ég þorði
ekki annað en að slaka aðeins á
og komast heill í viðgerðarhlé. Það
er langur dagur í dag og ég mun
spila á stöðuna hveiju sinni. Eg hef
litlar áhyggjur af Norðmönnunum
en Steingrímur er alltaf sprækur.
En Subaru þeirra norsku er rosaleg
græja, eins og sprengja og með
mikinn kraft. Undirbúningur þeirra
var hins vegar ekki nægilega góður
til að þeir geti slegist af fullum
styrk.“
Slapp á einum öxli
eru sem heimalingar á sérleiðun-
um, gjörþekkja þær. Því miður
höfðum við ekki tækifæri til að
skoða nógu mikið fyrir keppni. Við
ætlum þó að nýta kraft bílsins það
sem eftir er en aka samt hæfilega
áhættulaust og komast í mark,“
sagði Einar Staff. Bretarnir Geoff
Tunnard og Douglas Blandy óku
mjög vel á Pajero-jeppanum og
voru fyrstir jeppamanna, en keppn-
in er mikill í jeppaflokknum og
keppendur ofar en þeir áttu von
á. „Geoff er að ná sér í gang og
verður grimmur það sem eftir er.
Ökumaðurinn á Hummer-jeppan-
um hlýtur að vera mjög góður, að
geta ekið svona stórum jeppa jafn
hratt og raun ber vitni. Sérleiðirnar
eru góðar og við aukum við hrað-
ann í dag en með það að leiðar-
Ijósi að ljúka keppni,“ sagði
Blundy. Ævar kvað léttari Pajero-
jeppa Bretanna erfiðan viðureignar
en hann væri ánægður með stöð-
una. „Ég átti ekki von á að vera
svona framarlega eftir fyrsta dag.
En það eru langar og erfiðar leiðir
eftir og betra að vera ekki of bjart-
sýnn. Það getur allt gerst enn og
úrslitin ráðast oftast á öðrum
degi,“ sagði Ævar.
Á myndinni hér fyrir neðan má
sjá Steingrím Ingason og aðstoðar-
menn lagfæra afturfjöðrunina í
kapp við klukkuna í viðgerðarhléi
í gærkvöldi og var mikill stemmn-
ing á viðgerðarsvæðinu við Shell á
Laugavegi. í kvöld koma bílarnir
í viðgerðarhlé að nýju kl. 20.42.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ HALLDÓR Úlfarsson fyrrum
Islandsmeistari sagði fyrir keppni
að hann vonaðist eftir því að ve-
girnir hefðu ekki breyst síðustu
ár. Halldór villtist í tvígang í
Öskjuhlíð af öllum stöðum, en
rataði á endanum í mark.
■ HALLGRÍMUR Gunnarsson
forstjóri Mazda hérlendis sat í rall-
bíl Rúnars í Öskjuhlíð. Hann
sagði eftir keppnina að aksturinn
hefði verið stórkostlegur og hann
langaði mikið að stýra svona rall-
bíl sjálfur.
■ HJÖRLEIFUR HILMARS-
SON og Franz Jesorskí lentu í
vandræðum eins og margir aðrir á
Djúpvatnsleið. Framrúðan fylltist
af drullu sem ekki vildi af og þeir
sáu illa út. Franz hafði vafið vega-
lengdarmæli um lærið, þar sem
hann hafði brotnað úr mælaborð-
inu í hamaganginum.
■ SIGURÐUR Bragi Guð-
mundsson og Rögnvaldur
Pálmason lentu í vandræðum á
ísólfsskálaleið. Það sprakk og
felguró forskrúfaðist þannig að sjö
mínútur fóru í súginn. Ekki bætti
úr skák að Sigurður flýtti sér um
of og klemmdi putta. Ottaðist að
missa nögl sem ekki er gott fyrir
erfiðan keppnisdag í dag.
■ JÓHANNES V. Gunnarsson
og Gunnar Viggósson á Porsche
911 lentu í ógöngum þegar bensín-
gjöfin bilaði. Náði Jóhannes aðeins
að stíga bensíngjöfína hálfa leið í
botn. Það er ekki skemmtilegt í
kappakstri, en í viðgerðarhléi í
gærkvöldi var gert við bilunina.
■ HJÖRTUR P. Jónsson og ísak
Guðjónsson höfðu náð forystu í
flokki Norðdekk bíla í gær. Hjört,-
ur kvaðst ætla að halda öruggu
forskoti, svo fremi sem ekki bilaði
eða hann sprengdi dekk. Hann var
í vandræðum með stýrið í gær eft-
ir að afstaða hjólanna breyttist af
einhveijum orsökum á einni sérleið.
■ GUÐNÝ Úlfarsdóttir og Þóra
Blöndal fóru tvisvar útaf í gær
og töpuðu miklum tíma. Guðný
sagði að í bæði skiptin hefði hún
verið að ná Suzuki Björns Ragn-
arssonar og Björgvins Bene-
diktssonar. Æsingurinn við að sjá
þá hefði kostað hana útafakstur.
■ ARI Arnórsson og Ævar
Hjartarson á Hummer óku vel í
gær. Ari kvað skrítna upplifun að
sitja í bílnum. Allar hreyfíngar virt-
ust þrisvar sinnum hægari, þó
jeppinn væri á fullri ferð. Tilfinn-
ingin væri eins og að sitja í hálfum
rallbíl og hálfri rútu. Hratt en
þægilegt.
■ ALAN Parramore og Mark
Button höfðu forystu í stríði her-
manna á Land Rover jeppunurrr.
Díseltæki þeirra áttu þó ekki roð
í fremstu jeppanna. Alan sagði að
Djúpavatn hefði verið ótrúlega
erfitt, jafnvel á Land Rover.
■■■■■■
KÖTTARARNIR Kis - Kyss
Þróttarar fara í skrúðgöngu
á leikinn, Þróttur - Skallagrímur á morgun.
Þessi mikilvægi leikur fer fram á Valbjarnarvelli kl. 14.00 en Þróttarar ætla að hittast kl. 12:45
á Þróttarvellinum og trítla saman á völlinn í hátíðlegri halarófu.
Stjórn Þróttar, leikmenn og Köttarar skora á alla Þróttara sem og alla íbúa hverfisins að upplifa
með okkur þessa kraftmiklu stund og styðja þannig við bakið á strákunum okkar í þessum erfiða leik.
• I síðustu skrúðgöngu Þróttara mættu vel á þriðja hundrað manns
Frítt á völlinn fyrir göngubörn, menn og konur • Mætum öll í rauðu og hvítu
Lifi Þróttur