Morgunblaðið - 08.09.1996, Side 3

Morgunblaðið - 08.09.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996 D 3 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson GUNNAR Rúnarsson setti nýtt íslandsmet á sérsmíðuðu kvartmíluhjóli sínu. Sérsmíð- að ofur- hjól ÞAÐ eru ekki margir ökumenn sem myndu þora að seljast á ökutæki Gunnars Rúnarssonar, gefa því fulla bensíngjöf og hanga svo á því á fullri ferð í 400 metra langri kvartmílu. En Gunnar hefur kjarkinn til að stýra þessu 220 hestafla sérsmíð- aða mótorhjóli og setti nýtt ís- landsmet á því fyrir skömmu. Hann keppir í úrslitamóti ís- landsmótsins í dag á kvartmílu- brautinni við Kapelluhraun. „Mér finnst ekkert stórmál að stýra hjólinu þó krafturinn sé mikill og hraðinn sömuleiðis. Eg er vanur akstri mótorhjóla, en það krefst einbeitingar og tækni að hafa sljórn á hjólinu, sagði Gunnar. Mótorhjólasinnuð fjölskylda Fjölskylda hans er mótorhjóla- sinnuð, kona hans María Haf- steinsdóttir á Honda Rebel 450 og sonurinn Sævar Hondu MT 50. En sérsmíðaða mótorhjólið er aðeins notað til keppni og ekki á skrá. Það er byggt upp í kringum Suzuki vél, sem hefur verið boruð út í 1568 cc. í vélina hefur síðan verið raðað sérstak- lega styrktum keppnishlutum. „Ég er búinn að leggja rosa- lega vinnu í hjólið ásamt félögum minum. Stefán Finnbogason sá um að raða vélinni saman, en í AFTURHJÓLIÐ er 9 tommu breitt á 15 tommu felgu. henni eru m.a. Wiseco keppnisst- implar, keppnisflækjur, yfir- stærð af ventlum og gormum til að auka bensínflæði og búið er að vinna í heddinu. Þjappa vélar- innar er 15:1 og MSD kveikju- kerfið er á vélinni sem gefur betri neista og því meira afl en með venjulegu kveikjukerfi," sagði Gunnar, „kúplingin læsir sér í samræmi við hve bensíngjöf- inni er gefið mikið inn, sem auð- veldar stjórn á hjólinu í rásmark- inu. Galdurinn er að ná sem mestri þyngd á afturhjólið sem er 9 tommu breitt á 15 tommu felgu.“ Skemmtilegra að fá meiri keppni Loftskiptir er á hjóli Gunnars sem gerir það að verkum að hann skiptir um gír með takka á vinstra stýrishandfanginu. Meðal annars búnaðar eru tveir diskar að framan á bremsukerfinu, en einn að aftan. Yfirbygging hjóls- ins er sérsmíðuð úr plasti og sá Kristján Erlendsson um það verk. Jón Metal, sem svo er nefndur, sá um smiði grindarinn- ar undir öll herlegheitin og Bíl- bót í Keflavík, sem er heimabær Gunnars, sprautaði hjólið. „Hjólið virkar vel og ég náði að aka brautina á 9,52 sekúndum en Islandsmet mitt er 9,69 sek- úndur. Ég hef trú á að ég kom- ist niður i 9,2 sekúndur og það er langt þarna á milli. Hvert sek- úndubrot skiptir máli og kostar meira afl og nákvæmni í akstri," sagði Gunnar. „Fljótustu mótor- hjólin í kvartmílu úti eru um 6 sekúndur að fara kvartmíluna og þá eru þau á helmingi breið- ari dekkjum. Mér finnst þetta tæki nógu snúið í meðförum og skemmtilegra væri að fá meiri VÉLIN er Suzuki sem hefur verið boruð út í 1568 cc og skilar 220 hestöflum. Saab 90 á markað 1999 SAAB hefur fengið heimild lyá General Motors að notfæra sér hluta af framleiðslutækni nýs Opel Astra til þess að smíða nýjan bfl í millistærð- arflokki. BíUinn sem á að heita Saab 90 verður settur á markað 1999. Saab 90 verður óumdeilt með Saab línum þrátt fyrir tengslin við Opel. Við hönnun verður reynt að ná fram línum frá hinum aldna 96 og sjást þær ekki síst í vélarhlíf og háu grillinu. Billinn verður að líkindum með vél úr Opel Astra sem og drifbúnað. Líklegt þykir að dýrasta útfærslan verði með 2ja lítra vél Saab sem eru allt frá 133 hestöfl- um til 185 hestöfl með forþjöppu. Ford jeppar af öllum stærðum FORD, sem framleiðir mestselda jeppann í Bandaríkjunum, Explorer, ætlar að færa út kvíarnar í jeppa- deildinni, jafnt með stærri sem minni jeppum en fyrir eru. Fyrsti nýi jeppinn kemur reyndar á mark- að í haust, þ.e.a.s. stóri, fjögurra dyra Expedition jeppinn sem sagt hefur verið frá á þessum síðum. Næsta vor kemur svo á markað Expedition útfærsla Lincoln sem verður markaðssettur sem Navigat- or. Á milli áranna 2000 og 2001 hyggst Ford kynna tvo minni jeppa. Annar þeirra verður byggður á næstu kynslóð Escort sem verið er að hanna til heimsframleiðslu í Evrópu um þessar mundir. Hinn er byggður á sömu grind og Contour (Mondeo) og verður fáanlegur með ijög- urra strokka og V-6 vél. Sá fyrri verður1 smíðaður í Evrópu. Nýr Explorer Árið 2000 hyggst Ford endur- hanna að fullu Explorer fyrir mark- að sem 2001 árgerð. Líklegt er tal- ið að Expedition sem settur verður á markað árið 2000 deili mörgu með næstu kynslóð af F-250 pall- bílnum og verði í boði með 5,4 lítra V-8 eða 6,8 lítra V-10 vélum. ■ GHIA Alpe hugmyndabíll Ford þykir likur þeim jeppa sem Ford hyggst smíða á grunni nýs Escort. Hugsan- legt er talið að hönnunaratriði eins og þakið og plast- yfirbygging nái alla leið í framleiðslu. © Vi BOSCH arahlutip Á I bíli nn eru góöir! Rafgeymar Altenatoraii GSR 12 VES-2 Borvél í tösku með hleðslutæki GWS 9-125 Slípirokkur 900w © BOSCH ■ BOSCH umboðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut Lágmúla 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807 Ljósasamlokun og rúðuþurrkui A' s uy Söluaðilar: f Málningarþjónustan, Akranesi (Handverkfæri). GH verkstæðið Borgarnesi (Bilavara- [ hlutir og fl). Pólllnn, (safirði (Handverkfæri). KEA, Akureyrl (Handverkfæri og fl). ' Þórshamar, Akureyri (Bílavarahlutir og fl). KÞ Húsavík (Handverkfæri og bílavarahlutir). í Víkingur, Egilsstöðum (Handverkfæri, bllavarahlutir og íhlutir).Vélsm!ðja Hornafjarðar, u Hornafirði (Handverkfæri, bilavarahlutir og fl). Byggingavörur Steinars Árnasonar hf., i Selfossi (Handverkfæri). IB____.——■— ........... Hðnnun: Gunnar Steinþórsson / BOSCH / 02. 96-002

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.