Morgunblaðið - 22.09.1996, Page 2
2 D SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
4
Stuttfréttir
Clinton
í Toledo
► MIKIÐ var um dýrðir síðla
I ágúst þegar tvær milljónasti
Jeep Cherokee bíllinn rann af
færibandinu í 86 ára gamalli
verksmiðju Chrysler í Toledo í
Ohio. Meðal viðstaddra var Bill
Clinton Bandaríkjaforseti. I
nóvember hefst framleiðsla á
1997 árgerð Cherokee í verk-
smiðjunni en sá verður með
breyttu útliti og innréttingu.
Það er fyrsta stóra breytingin
sem gerð er á bílnum frá því
hann kom fyrst á markað 1983.
Tíu söluhæstu
í Bandaríkjunum
► MIKIL keppni er milli banda-
rískra bílaframleiðenda að
verma efsta sætið yfir mestu
seldu bílana. Það sem af er
árinu er staðan svona:
1. Ford F-línan, pallbílar.
2. Chevrolet C/K línan, pall-
bílar.
3. Ford Taurus stallbakur.
4. Honda Accord stallbakur.
5. Ford Explorer jeppi.
6. Ford Ranger pallbíll.
7. Plymouth Voyager fjöl-
notabíll.
8. Dodge Ram pallbíll.
9. Ford Escort.
10. Chevrolet Lumina stall-
bakur.
GM og Renault
semja
► GM í Evrópu og Renault
hafa gert samning um að
standa sameiginlega að fram-
leiðslu og sölu á minni gerð
vöruflutningabíla sem vega
ekki meira en 2,5 til 2,8 tonn.
Ráðgert er að fyrstu bílarnir
verði kynntir árið 2000.
Toyota í
N-Ameríku
► ÁRIÐ 2000 verður aðeins 8%
af Toyota bílum sem seldir eru
í Bandaríkjunum innfluttir frá
Japan. Þetta segir stjórnar-
formaður Toyota Hiroshi
Okuda. Toyota ráðgerir að selja
1,2 milljónir bíla í Bandaríkj-
unum og af þeim yrðu 100 þús-
und bílar innfluttir. Á síðasta
ári seldi Toyota 1,1 milljón bíla
í Bandaríkjunum, þar af 433
þúsund innflutta.
Ford Windstar
breytist
► FORD Windstar, sem hefur
verið í skugga ferna dyra fjöl-
notabíla frá Chrysler á Banda-
ríkjamarkaði, verður breytt á
þann hátt að bílstjóramegin
verður bætt við rennihurð.
Breytingin kemur þó ekki á _
markað fyrr en eftir tvö ár. í
millitíðinni kemur Windstar á
markað með stærri hurð fyrir
ökumann. ■
TILBOÐ ÓSKAST
Saturn SL2 árgerð '94 (ekinn 12 þús. mílur), Ford
F150 XLT Super Cab 4x4 árgerð '91 og aðrar
bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 24. september kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
John Deere traktor
Tilboð óskast í John Deere traktor JD 301-A
m/dieselvél árgerð '79.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
I Jeep Cherokee Country 4x4 árgerð '94
(ekinn 31 þús. mílur),
OPEL Sintra kemur á markað í nokkrum Evrópulöndum seint í haust og um heim allan í I
SINTRA heitir nýi fjölnota sjö
til átta manna bíllinn frá Opel
sem hannaður er í sameiningu
af tæknimönnum GM í Banda-
ríkjunum og Opel og smíðaður
í Georgíu-fylki vestra. Sintra er
laglegur vagn og stílhreinn, er
framdrifinn, boðinn með 2,2
lítra eða þriggja lítra bensínvél-
um, sjálfskiptur eða handskiptur
og þetta er rúmgóður og
skemmtilegur bíll. En hér á eft-
ir má fræðast nokkuð um eiginleika
Sintra en Opel bauð blaðamönnum
frá öllum heimshomum að skoða grip-
inn og kynnast honum með rúmlega
500 km reynsluakstri í Bandaríkjun-
um í byrjun sept-
ember.
Opel Sintra er
látlaus og smekk-
legur bíll. Hann
hefur hefðbundna
lögun íjölnotabíls
eða langbaks af
stærri gerðinni en er þó ekki nema
4,67 m langur sem er um 14 em
styttra en t.d. Opel Omega. Halli er
á framenda allt frá fínlegum stuðara
og upp á þakbrún. Hliðar eru örlítið
bungulagaðar og hliðarlisti nokkuð
áberandi, afturendinn þverskorinn og
hallar örlítið fram að ofan. Rúður eru
ágætlega stórar. Þá virkar bíllinn
örlítið síður og mætti ætla að hann
yrði myndarlegri á velli á örlítið stærri
hjólbörðum. En endurtaka má að
Sintra er laglegur vagn, þar er engin
framúrstefna á ferðinni en látleysið
látið ráða ferðinni.
Fjölbreytt sætaskipan
Fjölbreytta notkunarmöguleika
bflsins má meðal annars sjá af inn-
réttingu og frágangi á sætaskipan.
Hún getur verið breytileg og bíliinn
t.d. verið sjö til átta manna. Fremst
eru tveir stólar, í miðju þrír og aft-
ast tveir sem skipta má út fyrir
þriggja manna bekk þar sem þrír
verða að vísu að sitja nokkuð þröngt.
í bílunum sem prófaðir voru vestra
voru sex sæti því í miðri miðröðinni
var kælibox fyrir nesti og svala-
drykki sem komu í góðar þarfir í 30
stiga hitanum. Að vísu var hægt að
halda eðlilegu hitastigi í bílunum
með loftkælingu en það var heitt að
stiga út og þá var gott að geta gripið
í svalann!
Framstólarnir eru stillanlegir á
alla enda og kanta og þeim má m.a.
snúa aftur þannig að menn geti haft
betra samfélag við samferðamenn
þegar áð er. Þægilegt er að sitja í
öllum sætum og er rými yfrið nóg
til að láta fara vel um sig á löngum
leiðum. Til þæginda eru rafstillingar
á framstólum í dýrari útgáfunni.
Sintra fjölnot
- sérhæf ðu
Mælaborð er mikið til hefðbundið en
þó reynt að bijóta línuna upp með
t.d. mælum undir kúptri hlíf ofan á
mælaborðinu, rétt við framrúðuna.
Þar er klukka og dagatal og í dýrari
bílnum aksturst-
ölva sem veitir
upplýsingar um
hita, eyðslu, ekna
km og hve langt
má komast á
bensíninu. Snún-
ingshraðamælir og
aðrir nauðsynlegir mælar eru beint
fram af ökumanni og á miðjubrettinu
eru miðstöðvar- og útvarpsstillingar.
Gírstöng er milli framsæta og mætti
hún vera dálítið hærri.
Röskur
Góður stað
albúnaður
Rúmgóður
Tvær bensínvélar
Sintra er búinn tveimur bensínvél-
um en árið 1988 verður bíllinn einn-
ig fáanlegur með dísilvél. Bensínvél-
arnar eru annars vegar 2,2 h'tra, fjög-
urra strokka og hefur 141 hestafl
og síðan er þriggja lítra og sex
Verðið verður
höfuðverkurinn
OPEL Sintra er framleiddur í
verksmiðju GM í Doraville í Georg-
íu-fylki í Bandaríkjunum en þar
verða einnig framleiddir bílar und-
ir merkjum Chevrolet, Pontiac og
Oldsmobile sem fara eiga á markað
í Bandaríkjunum. Enda kjósa
Bandaríkjamenn sér helst bíla und-
ir merlqum sem þeir kannast við.
Flotinn fyrir markað í Evrópu
verður sendur til Antwerpen í
Belgiu og þaðan er honum dreift
til umboðsmanna og seljenda um
alla álfuna. Ofuga Ieið fer síðan
Cadillac Catera sem byggður er í
Þýskalandi og heitir þar Opel
Omega MV6.
Verðið á Opel Sintra hérlendis
hefur ekki verið ákveðið ennþá.
Munu niðurstöður verðsamninga
raunar ráða því hvort fulltrúar
umboðsins, Bílheima, telja mögu-
legt að bjóða bílinn hérlendis. í
Þýskalandi verður Sintra boðinn á
um tvær milljónir króna, þ.e. útgáf-
an með minni vélinni og handskipt-
ingu. Dýrari útgáfan kostar um 2,7
milljónir. Telja má verð á Opel
hérlendis allgott og hafa nánast
aliar gerðir, Corsa, Astra, Vectra
og Omega góða stöðu í keppni sinni
við sambærilega bíla hvort sem
þeir eru evrópskir eða japanskir.
Þetta byggist á þvi að forráðamenn
Opel í Þýskaiandi og Bílheima hafa
náð saman, hafa trú hvorir á öðrum
og verðleggja bílinn með tilliti til
samkeppnisstöðu hans hérlendis.
Staðan er óviss þar sem bíllinn
er framleiddur í Bandaríkjunum.
Talsmenn GM hafa ekki sýnt við-
líka skilning á íslenskum bílamark-
aði og starfsbræður þeirra í Evr-
ópudeildinni og því hafa GM bílar