Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 1
SSANGYONG MUSSO REYNSL UEKIÐ - VOLVO C70 AFHJÚPAÐUR - OPEL KYNNIR TÍMAMÓTA DIESELVÉL 1996 SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER BLAÐ PEUGEOT 406 é & TÍMAMÓTABÍLL Komdu og reynsluaktu. Vorð fré. % 1.4AO.000 kr. V PEUGEOT - þekktur fyrlr þaglndl IMi-IMi Nýbýlavegi 2 Síml 554 2600 1.092 fleiri bílar á árinu SKRÁÐIR voru 739 nýir bílar í ágústmánuði, þar af 648 fólksbílar. í ágúst 1995 voru skráðir 498 nýir fólksbílar. Töluverð aukning hefur orðið í bílasölu á þessu ári. Fyrstu átta mánuði ársins voru skráð- ir 7.204 bílar, þar af 5.735 fólksbílar en á sama tíma í fyrra voru skráðir 4.643 nýir bílar. Aukningin er m.ö.o. 1.092 bílar það sem af er þessu ári. Einnig hefur orðið aukning í skráningum á sendi- og vöru- bifreiðum. Skráðir voru 354 nýir sendibílar fyrstu átta mánuði 1995 en 409 bílar fyrstu átta mánuði þessa árs. Af minni grrð vörubifreiða voru fluttir inn 36 bílar í fyrra en 58 á þessu ári, 26 stórar vörubifreiðar í fyrra en 51 á þessu ári. í ágúst voru skráðir 256 notaðir bílar, þar af 195 fólks- bílar. Fyrstu átta mánuði árs- ins voru skráðir 1.721 notaður bíll, þar af 903 fólksbílar. I ágúst voru afskráðir 386 fólksbílar en 3.314 fyrstu átta mánuði ársins. ■ SONATA hefur fengið nýtt útlit. Morgunblaðið/Þorkell Eldsneytiskaup og viðhald bílsins UR NEYSLUKONNUN FELAGSVISINDASTOFNUNAR 1996: Oftast Stundum Sialdan Aldrei Hvar er keypt eldsneyti á bifreiðina? <0 ESSO «.■ 0Lls \_J Skeljungur Orkan Hverjir sjá um viðgerðjr á bifreiðinni? Verkstæði Sjá!f(ur)/maki UmboðE? Hvar lætur þú smyrja þifreiðina? ESSO OLÍS Skeljungur Dælir þú sjálffurj bensini á bifreið'ma? Þeir sem gera það _________________Ó 10 20 30 40 50% 60 70 80 90 100 NEYSLUKÖNNUN FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR1996. Úrtak 1.200 manns, 882 svöruöu. ÞÝÐI neyzlukönnunarinnar, þ.e. sá hópur þjóðarinnar sem úrtakið var tekið úr.eru allir íslendinaar á aldrinum 14-80 ára. Þetta eru 185.173 einstaklingar, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Isl. Hvert prósentustig i könnuninni samsvarar þvi um 1.850 manns. Taka verður tillit til skekkjumarka, sem eru á niðurstöðum i könnun sem þessari, þegar prósentustig eru umreiknuð i mannfjölda. B&L með glæsilega nýja Sónötu HYUNDAI Sonata er kominn á markað hérlendis með algjör- lega nýju útliti. Grillið er sam- vaxið við stuðarann sem gerður er úr nýju efni sem kallast TPO sem gleyptir högg í sig og þolir árekstur á allt að 8 km hraða á klst án þess að aflagast. Undir stuðaranum eru þokuljós. Hliðarsvipurinn er líka annar og breytingar verið gerðar t.d. á hliðarspeglum til þess að draga úr loftmótstöðu. Mestu breytingarnar á Sonata sjást þó ekki með berum augum. í boði er ný 2.0 lítra vél, 140 hestafla, með tveimur yfirliggj- andi kambásum, sem hvílir á vökvalyftum. Vélin er þvi hljóð- látari en áður og aksturinn mýkri. Eyðslan er alveg þolan- leg, rúmir tíu lítrar í innana- bæjarakstri. Einnig fæst hann með 1,8 lítra vél og 3,0 lítra SOHC V6. Allar vélarnar eru með fjölinsprautun. Fimm gíra handskipting er staðalbúnaður. Sonata er ríkulega búinn ör- yggisbúnaði og má þar nefna tvo líknarbelgi, hliðarárekstrar- vörn og ABS-hemlakerfi. Á fram- og afturenda eru sérhönn- uð krumpusvæði. ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.