Morgunblaðið - 04.10.1996, Síða 4
4 B FÖSTUDAGUR 4. OKT’ÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Klippt
og skorið
SEKKI þarf að horfa ýkja
langt aftur í tímann til að
.SS sjá fyrirmyndir samkvæ-
miskjólanna sem Gucci,
Calvin Klein, Isaac Mizrahi og
fleiri þekktir tískuhönnuðir
kynntu á hausttískusýningum
sínum.
Aþekkir kjólar komu fram á
sjónarsviðið á sjötta áratugn-
um. Þeir voru þá, gagnstætt
kjólunum núna, yfirleitt mjög
stuttir, enda ekki ætlaðir sem
samkvæmiskj ólar.
Sameiginleg einkenni kjól-
anna fra sjötta áratugnum og
samkvæmiskjólunum veturinn
1996/97 eru kringlótt, ferkönt-
uð og alla vega löguð göt hing-
að og þangað á kjólunum og
sést þá vitaskuld í bert holdið,
t.d. aðra öxlina, naflann, milli
brjóstanna svo eitthvað sé
nefnt.
ÞRJÚ verk Torfa 1) Frjáls útfærsla á steinskrift.
Morgunblaðið/Þorkell
2) BAROKK letur, fyrirr
Lifandi
LETUR
Skrift er áskorun, hún er líka áhugamál margra. Torfi Jónsson
er leturlistamaður sem hefur vakið athygli í útlöndum. Gunnar
Hersveinn ræddi við hann og velti fyrir sér leyndardóminum
á bak við stafina og hvers vegna leggja beri rækt við skrift sína.
PAPPÍR á borði, skrif-
færi í hönd, stafir og
orð. Æfð hönd ritar
fallega stafí. Meira er
samt ritað á lyklaborð
tölvunnar á kostnað
handskriftarinnar.
Bréf eru send í
tölvupósti, papp-
írslaus viðskipti
verða æ algeng-
ari og mikilvæg
bréf eru prentuð
í fínustu prent-
urum.
Skrift al-
mennings hef-
ur af skiljan-
legum ástæð-
um hnignað,
því fæstir
leggja sig í líma
við að skrifa
fallega og
lyklaborðið er
skriffærið sem
blífur. Suma
verkjar jafnvel í
úlnliðinn við að
skrifa með
penna.
Ef til vill er
það vegna verri
TORFI Jónsson.
handskriftar kynsióðarinnar sem
skrautskrifurum hefur vaxið ásmeg-
in undanfarin ár og leturlist notið
meiri athygli. Torfi Jónsson mynd-
listarmaður hefur lengi lagt rækt
við leturlistina.
Handskrift Bólu-Hjálmars
sem tölvuletur?
Torfí hefur stúderað leturskrift
og stafi frá ýmsum tímum, til dæm-
is úr Biblíuhandriti, letur sem kall-
ast Unsial frá 350 eftir Krist. Hann
segir skriftina austurlenska að upp-
runa og að hún hafí svo þróast einn-
ig í Evrópu.
Torfí hóf nám í Listaháskólanum
í Hamborg 1956 og
kom heim aftur 1962
eftir lokaverkefni í
bókagerðar- og letur-
deild. Hann hefur
kennt við Myndlista-
og handíðaskólann, í
Iðnskólanum og hald-
ið námskeið reglu-
lega, meðal annars við
Listaháskólann í Sa-
arbrucken í Þýska-
landi.
Torfí segir að færir
leturgerðarmenn vinni
jöfnum höndum á
pappír og tölvur og vinni að því að
færa meira líf inn í tölvuskriftina
og koma í veg fyrir sífellublæinn.
Hann spáir að fólk geti í framtíðinni
látið skanna sína eigin handskrift,
látið laga hana til og notað hana
sem letur í ritvinnslunni í heimatölv-
unni.
Torfí segir líka að skanna megi
til dæmis skrift Bólu-Hjálmars og
búa til tölvuletur sem nota mætti
til að gefa út ljóðin hans.
Sumir skrifa listilega vel, aðrir
eru skrautskrifarar. Að vissu ieyti
er skrift áskorun. Pappírinn stendur
auður og skriffærið í hendinni. Hjá
Torfa Jónssyni verða til leturmynd-
ir. Hann rannsakar forn rit, þróar
stafi af því og býr til myndir úr
heildinni.
Flesta langar til að skrifa fallega
og segjast öfunda þá sem eru með
fallega rithönd. Hinsvegar veigra
þeir sér við að opinbera eigin skrift.
„Handgerður pappír og nýir pennar
gefa nýja möguleika fyrir alla,“ seg-
ir Torfí.
Torfí uppgötvaði leyndardóma
letursins þegar hann var að vinna
að því að velja letur í bækur. Hann.
ákvað að kafa á bak við stafina og
listletrið og hefur komist djúpt þrátt
fyrir fullt starf sem kennari. Myndir
eftir hann hafa meðal annars náð
inn í yfirlitsrit um fremstu núlifandi
listamenn á þessu sviði, nefndu Call-
igraphica. Leonid Pronenko hefur
ritstýrt slíku riti og í því er opna
með verkurn eftir Torfa og einnig á
hann verk framan og aftan á káp-
unni.
„Ég fór að leggja meiri stund á
leturlistina fyrir atbeina Gunnlaugs
SE Briem en hann starfar í San
Francisco í Bandaríkjunum að letur-
hönnun og hefur hannað þrennskon-
ar letur fyrir tölvur sem er mikið
afrek.
Nemendur Torfa úr listaháskól-
anum í Saarbrúcken hafa komið
hingað, bæði á Holt í Önundarfirði
og núna í sumar í Hveragerði. Þeir
hafa gengið á ijöll og áhrifin birtast
í leturmyndum þeirra.
Vinir hins skrifaða leturs
og rósemd hjartans
Torfi er í alþjóðlegum félagsskap
sem nefnist Vinir hins skrifaða let-
urs. Þetta er óformlegur hópur
áhugamanna um skrift, en flestir
meðlimir vinna við listritun sem
aðalstarf. Þegar félagar senda hver
öðrum bréf eru þau ávallt handskrif-
uð og stundum er jafnvel utan-
áskrift umslaganna listaverk.
Hann hefur unnið með mörgum
þeirra í opnum listasmiðjum og sýnt
verk. Núna um helgina er hann með
einkasýningu á Flateyri. Ágóðinn
rennur í minningarsjóð Flateyrar til
að gera skrúðgarð þar sem húsin
stóðu sem fóru undir snjóflóðið fyrir
tæpu ári.
Torfi segir að lokum að skrift
geti verið félagsleg athöfn, því
áhugamenn um skrift hittast til að
bera saman bækur sínar og verða
fyrir áhrifum hver af öðrum. „Sum-
ir fara aftur heim til sín með nýja
gerð af „a“ í pokahorninu," segir
Torfi.
Og eitt vill hann segja til viðbót-
ar: „í handskriftinni felst hógværð
og agi. Hún er eins og mótefni gegn
hraða tímans." ■