Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 6

Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 6
6 B FÖSTUDAGUR 4. OKT’ÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF YMISKONAR baráttu- og þrýstihópar með eða móti einu og öðru beita ýmsum brögðum til að koma sjón- armiðum og hugsjónum sínum á framfæri. Stundum eru hagsmunir margra í húfí, málefnið þarft og gott og full þörf á að vekja athygli á málstaðnum. Oft rísa deilur þegar slíkir hópar leggjast gegn einhveiju, sem ef til vill hefur verið viðtekin venja um árabil. Deilurnar rata oft- ar en ekki í fjölmiðla, líkt og nýver- ið í breska dagblaðið Independent, sem fjallaði um mismunandi viðhorf til notkunar ómtækja og túlkun baráttuhópsins AIMS (Association for Improvements in Matemity Services), samtaka um bætta fæð- ingarþjónustu, á niðurstöðum rann- sókna á börnum, sem höfðu verið skönnuð í móðurkviði. Samkvæmt greininni í Independ- ent færist í vöxt að þungaðar konur í Bretlandi fari oftar en einu sinni í ómtæki á meðgöngunni, sumar allt að tíu sinnum og stundum mjög snemma á meðgöngunni. í King’s College sjúkrahúsinu í London eru læknar farnir að nota nýja gerð ómtækja og skanna ellefu vikna fóstur til að reyna að greina Down syndróm. Þær raddir hafa heyrst að með þessu séu þeir að skapa fordæmi fyrir viðbótar- ómskoðun sem viðtekinni venju, en í Bretlandi hefur tíðkast að skoða þungaðar konur á tuttugustu viku meðgöngu. Bylting í meðferð þungaðra kvenna En við hvað eru menn smeykir? Geta hátíðnihljóðbylgjumar sem notaðar eru til að fá mynd af fóstr- um og gera þannig gert kleift að ákvarða meðgöngulengd, staðsetja fylgju, greina hugsanlega líffæra- galla og fleirbura svo eitthvað sé nefnt, verið skaðlegar? Og hvers vegna vakna slíkar spurningar eftir i rúma aldarfjórðungs reynslu af ómtækjum um allan heim? Reynir Tómas Geirsson, prófess- or í fæðingar- og kvensjúkdóma- fræði, forstöðumaður Kvennadeild- ar Landspítalans og einn helsti sér- fræðingur um ómtæki hér á landi segist vera mjög andsnúinn þeim, sem vaða uppi með bábiljur um tækni, sem löngu hefur sannað gildi sitt og valdið hefur byltingu í með- höndlun þungaðra kvenna. „Engar rannsóknir hafa sýnt fram á að „skönnuð" börn séu að nokkru leyti frábrugðin „óskönnuðum" bömum. Glasabörnin eru besti vitnisburður- inn, en mæður þeirra fara yfírleitt oftar í ómskoðun á meðgöngunni f en aðrar bamshafandi konur. Mér fínnst umræðumar í Bretlandi núna fáránlegar, líkt og menn færu að deila um hvort við ættum að hætta að nota ísskápa og fara að súrsa og salta mat í staðinn. “ Á íslandi hafa þungaðar konur verið ómskoðaðar frá 1975, fímm árum eftir að ómtæki komust fyrst í notkun erlendis. Árið 1985 hófst regluleg ómskoðun á 18.-19. viku meðgöngu og hefur ein slík venju- bundin skoðun þótt duga nema í sérstökum tilvikum eða þegar ákveðin vandamál koma til í þung- un. Ein ómskoðun í 18.-19. viku meðgöngu heppilegust Þótt Reynir Tómas telji fjarstæðu að ætla að fóstri og móður verði meint af hljóðbylgjum finnst honum ekki ástæða til að flölga ómskoðun- um. „Ein gaumgæfileg ómskoðun á 18.-19. viku gefur mjög góða raun. Þá er besti tíminn til að sjá fóstrið greinilega, stærð þess er heppileg, auðvelt að mæla það og sjá hvar fylgjan er auk þess sem við getum greint helstu líffæra- og útlitsgalla. Ef alvarlegir gallar koma í ljós er heldur ekki of seint að grípa til i fóstureyðingar.” Mæðraeftirlit hérlendis segir Reynir Tómas vera gott. Hann von- ast til að innan tíðar verði hægt að bjóða barnshafandi konum að fara í blóðprufu á 14.-15. viku meðgöngu til að kanna hvort líkur séu á litningagalla eða klofnum „ÞEGAR foreldrar sjá tilvonandi barn sitt á ómskjánum og spyija hvort það sé drengur eða stúlka spyr ég þá oft hvort þeir séu vanir að opna jólapakkana sína fyrir jólin," segir Reynir Tómas Geirsson. Omur í aldarfjórðung Ómskoðanir þungaðra kvenna hafa tíðkast í mrnan aldarfjórðung * og lítt verið deilt um kosti og öryggi ómtækja. I breska dagblaðinu IndependentvdiY þó nýverið greint frá slíkum deilum. Valgerður ____Þ. Jónsdóttir spurði Reyni Tómas Geirsson, prófessor í_ fæðingar- og kvensjúkdómafræði, forstöðulækni Kvennadeildar Landspítalans og einn helsta sérfræðinginn hérlendis um _ ómtæki um ýmsar fulllyrðingar og tilgátur, sem þar birtust. hrygg hjá fóstri. Slík athugun gæti gefíð vísbendingar um 60-65% til- fella. Grunur getur líka vaknað um litningagalla við ómskoðun og er þá konum boðin legvatnsástunga eða fylgjusýnitaka. „Með blóðprufu sem lið í reglubundinni skoðun væri hægt að finna tvo þriðju af fóstrum með litningagalla í stað þriðjungs eins og nú háttar til þeg- ar aðeins er stuðst við 35 ára og eldri.“ Málþroski barna I Independent er sagt frá lang- tíma rannsóknum á þúsund börn- um, sem sýndu að eitt af fimm ætti við málörðugleika að stríða. Þótt dr. Sally Ward, talþjálfari, sem stjórnaði rannsókninni, segði líkleg- ustu skýringuna að of margir for- eldrar skilji smábörn eftir fyrir framan sjónvarpið tímunum saman, kusu AIMS samtökin að túlka nið- urstöðurnar öðruvísi. Talsmenn samtakanna, sem lengi hafa gagn- rýnt svokallaða „rútínu“- eða venju- bunda skönnun, sögðu málörðug- leikana trúlega afleið- ingu hátíðnihljóð- bylgna sem börnin urðu fyrir í móður- kviði. „Áf rannsóknum má álykta að hljóð- bylgjur geti verið vandamál," segir Jean Robinson rannsóknar- maður hjá AIMS og varaformaður sjúkl- ingasamtaka. „Ef rétt reynist hafa þær áhrif á heilastarfsemina. Áhrifin eru óljós og ekki greinanleg nema eftir þeim sé leitað sér- staklega. Sé fjöidi barna með lítinn mál- þroska að aukast er trúlega öðru um að kenna en vanrækslu foreldr- anna,“ segir Robinson ennfremur. Reynir Tómas kannast ekki við rannsóknir dr. Sally Ward, nema úr Independent. „Ég leitaði á alnet- inu en fann ekkert urn rannsókn- ina, en hún virðist ekki Ijalla um notkun ómtækja þótt AIMS hafi tengt þetta tvennt saman án augljóss rökstuðnings og á skjön við ályktun þeirra sem gerðu rannsókn- ina. Ég hef aldrei, hvergi nokkurs staðar, séð nokkuð eða lesið nokkuð sem gæti mögulega stutt tilgát- una. Mér finnst undar- leg viðbrögð þegar þrýstihópafyrirbæri reyna að gera góða, jákvæða tækni tor- tryggilega, stríðsfyrir- sagnir birtast í dag- blöðum og margar kon- ur verða skelfdar án ástæðu.“ Robinson vitnar í tvær rannsókn- ir til viðbótar, aðra kanadíska frá 1993, sem Reynir Tómas kannast vel við. Hann segir hana hvorki hafa gefið tilefni til að breyta neinu varðandi ómskoðun né breytt mati sérfróðra manna á öryggi slíkrar skoðunar. „Urtakið var ekki nema Reynir Tómas Geirsson sjötíu og tvö tveggja til átta ára börn og svo samanburðarhópur. Rannsakaðir voru mun fleiri þættir en málþroski, en þar kom einhver munur í ljós og „skönnuð" börn með lítinn málþroska reyndust fleiri en „óskönnuð" börn með eðlilegan málþroska. Rannsóknin er með tals- verða ágalla og í stærra úrtaki hefði munurinn ef til vill ekki orðið neinn, eða allt eins á hinn veginn. Robin- son vitnar í gallaða rannsókn til að fínna orðum sínum stað og notar það sem henni fínnst henta.“ Rétthent eða örvhent Þriðja rannsóknin sem AIMS vitnar í er norsk frá 1994. Sú var miklu víðtækari en kanadíska rann- sóknin. Rannsökuð voru sextán hundruð átta og níu ára börn með tilliti til vaxtar og þroska, lesvanda- mála, athyglisgáfu, hreyfinga, skilnings, sjónar og heyrnar og blindu. Sitthvað fleira var einnig kannað, þar á meðal hvort þau væru rétthent eða örvhent. í ljós kom að um 15% „óskannaðra“ barna voru örvhent, sem þykir venjulegt hlutfall, en 19% „skan- naðra“ barna. „Áð öðru leyti var enginn munur á börnunum," segir, Reynir Tómas. „Munurinn var rétt marktækur með einu tölfræðiprófi en ekki öðru. Samt leiða talsmenn AIMS líkur að því að örvhendu megi rekja til áhrifa ómskoðunar og því hljóti skönnun að hafa áhrif á þroska fósturheila. Slík tilgáta er fjarri allri skynsemi burtséð frá því að örvhenda hefur ekki talist líkamsgalli. í norsku rannsókninni var hvorki munur á málþroska né nokkru öðru er heilann varðaði, en Robinson minnist ekki á það.“ Samkvæmt Independent er bresku læknasamtökunum tilgátan einnig lítt að skapi. Stuart Camp- bell, prófessor í fæðingar- og kven- sjúkdómafræði við St. George’s spít- alann í London, sem skannað hefur meira en þijátíu þúsund böm segir að ómskoðun hafi ekki skaðað eitt einasta barn. „Ef svo væri hefðu bömin mín fjögur ekki margoft far- ið í ómtæki í móðurkviði,“ segir hann. Menningarlegur ágreiningur Í Bretlandi snúast deilurnar um ómskoðun ekki bara um tækni og notagildi hennar. Þær virðast einnig vera að nokkru leyti menningarleg- ur ágreiningur, eða eins og segir í Independent Annars vegar milli læknastéttarinnar þar sem karlar, sem bera mikla virðingu fyrir tækn- inni, eru í meirihluta, og hins vegar hóps kvenna, sem hafa meiri trú á hefðbundnum aðferðum ljósmæðr- anna og vilja lágmarks notkun tækja og tækni á meðgöngunni. Einn læknir hefur jafnvel gengið svo langt að ásaka AIMS um hatur á karlkyns fæðingarlæknum. Lágkúrulegar umræður Slíkar umræður fínnst Reyni Tómasi vera afar lágkúrulegar og eiga lítt skylt við jafnréttisbarátt- una. „Mér fínnst eðlilegt að karlar sem konur hafi áhuga á æxlun, meðgöngu, fæðingu og börnum. Slíkt ætti síst að valda togstreitu milli kynjanna. Margar íslenskar konur kjósa að fæða á sem náttúru- legastan hátt, en varla nokkurri hefur dottið í hug að hafna ómskoð- un á þeim forsendum, enda konur hér vel upplýstar og skynsamar." En það eru fleiri sem taka þátt í umræðunni í Bretlandi. Þótt dr. Hylton Meire sérfræðingur í geisla- fræði og ráðgjafi við King’s College spítalann efist ekki um öryggi og gildi venjulegra ómtækja fyrir þung- aðar konur hefur hann efasemdir um svokallaðar Doppler hljóðbylgj- ur. Slíkri tækni er stundum beitt til að meta starfsemi fylgjunnar og blóðflæði í naflastrengnum. Dr. Meire segir að hægt sé að skaða líkamsvefi ef styrkurinn er hafður of mikill. „Fóstur eru viðkvæmari fyrir hljóðbylgjum en fullorðnir. Sami styrkur og notaður er á fóstur hefur skaðað rottur og mýs.“ Bretar fylgja leiðbeiningum sem

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.