Morgunblaðið - 18.10.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
1996
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER
BLAD
Eins og jó jó undanfarin ár
Morgunblaðið/Kristinn
BALDUR Bjarnason, leíkmaður Stjörnunnar, varð efstur í einkunnagjöf Morgunblaðsins í 1. deild karla í knatt-
spyrnu í sumar og er því Leikmaður íslandsmótsins að mati íþróttaf réttamanna blaðsins. „Ég hef farið fjórum
sinnum upp um deild og þrisvar slnnum niður. Þannig að það má segja að ég hafi verið svona eins og jójó
undanfarin ár,“ segir Baldur í samtali við Morgunblaðið í dag.
■ Hugarfarið / D4
Þróttarar verja
titilinn án Ólafs
KEPPNISTÍMABIL blakfólks hefst fyrir alvöru
í kvöld með tveimur leikjum 11. deild karla. Á
Akureyri mætir lið KA, Islands- og bikar-
meisturum Þróttar, en í Reykjavík mætir ÍS
liði Þróttor úr Neskaupstoð í íþróttahúsi Haga-
skóians. Islandsmeistorarnir verða án Ólafs
Heimis Guðmundssonar, fyrrum fyrirliða liðsins
og lykilsmassara þess, þar sem að hann þáði
tilboð um að leika með Danmerkurmeisturunum
Gentöfte Volley í vetur.
Blóðtaka Stjömunnar
Lið Stjömunnar varð fyrir mikilli blóðtöku
þar sem að þrír lykilmenn iiðsins verða ekki
með. Einar Sigurðsson leikur með danska liðinu
Lyngby og einnig er Gottskálk Gizurarson far-
inn uton, til náms í Ungveijalandi þar sem
hann hyggst einnig leika. Þá hefur Emil Gunn-
arsson skipt yfir til fyrrum féiaga sinna í Þrótti
í Neskaupstað.
Leikmenn Iiðs HK, sem ekki tekur þátt í
mótinu í vetur, hafa gengið í önnur féiög. ÍS
fær þannig góðan liðstyrk, en liðið fékk þá Vigni
Hlöðversson og Stefán Þ. Sigurðsson í sínar
raðir og KA fékk uppspiiarann Guðberg Egil
Eyjóifsson. Fjórir útlendingar munu leika í
karladeildinni í vetur en það eru, Búlgararnir,
Zdravko Demirev ÍS, Apostol Apostoiev Þrótti
Neskaupstað og Hristo Stoianov Stjörnunni, en
Rússinn Aiexander Komeev með KA. Liðin koma
vel undirbúin til leiks og reikna má með þvi að
keppnin verði mjög spennandi í vetur.
Minna loft
Á heimsþingi FIVB, alþjóðablaksambandsins
í Atlanta urðu nokkrar breytingar á leikregl-
um. Sú breyting sem kemur hvað mest til með
að hafa áhrif á leikinn er að loft i knettinum
verður minna en áður. Breytingin mun leiða
til þess að meiri möguieikar skapast fyrir leik-
menn á að bjarga knettinum eftir sóknarslag
andstæðinganna og þannig á að auka á varnar-
tilþrifin.
Ronaldo með þrjú
gegn Litháen
RONALDO skoraði þijú mörk fyrir Brasiliu,
sem lagði Litháen í vináttulandsieik á miðviku-
dagskvöldið, 3:1. Buitkus skoraði mark Litháen
með skoti af 30 m færi, jafnaði þá 1:1. Litháen
er í riðli með íslendingum í heimsmeistara-
keppninni sem kunnugt er. Brasiliski varnar-
maðurinn Andre Cruz var rekinn af leikvelli á
síðustu mín. ieiksins, sem var leikinn í Tresina
130 stiga hita og á velli sem var vart boðlegur
- drullusvað. 60 þús. áhorfendur mættu á leik-
inn og urðu þeir að kúldrast í myrkri í 20 mín.
þegar flóðljós vallarins gáfu sig um tíma er
seinni hálfleikur stóð yfir.
HATTVISI
Hlynur og Sig
uriín prúðust
Knattspyrnusamband íslands af-
henti í gær tveimur liðum og
tveimur einstaklingum viðurkenning-
ar fyrir háttvísi og prúðmennsku inn-
an vallar sem utan í knattspyrnutíð
sumarsins. Sigurlín Jónsdóttir úr KR
og Hlynur Stefánsson frá ÍBV voru
prúðust leikmanna en kvennalið
Stjörnunnar og karlalið Vestmanna-
eyinga með prúðustu liðin.
Jafnframt fengu sex einstaklingar
viðurkenningu fyrir jákvætt starf að
knattspymumálum. Vanda Sig-
urgeirsdóttir, þjálfari og leikmaður
gullliðs Breiðabliks frá í sumar en
nú nýbakaður landsliðsþjálfari
kvenna, og Bjarni Sigurðsson, mark-
vörður Stjörnunnar, fengu bikar fyr-
ir að vera fyrirmynd á glæstum ferli.
Tvö félög fengu bikar fyrir góða
aðstöðu og uppbyggingu, Grindvík-
ingar og Reynir frá Sandgerði, en
Eggert Magnússon, formaður KSÍ,
sagði af því tilefni að þar hefði allir
lagst á eitt, félögin, íbúarnir og
bæjarfélögin. Einnig fengu tveir ein-
staklingar viðurkenningar fyrir
áhuga og stuðning en það vom Dag-
bjartur Einarsson, fiskverkandi og
áhugamaður úr Grindavík, og Hauk-
ur Magnússon, forystumaður Kött-
ara, stuðningsklúbbs Þróttar, sem
Eggert sagði hafa haft mikil áhrif
með gleði, krafti og framkvæmda-
gleði.
Eggert kom einnig inn á í ræðu
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
sinni hve mikilvæg þessi viðurkenn-
ing væri þar sem ekki væri vanþörf
á háttvísi og prúðmennsku víðar í
þjóðfélaginu, benti til dæmis á
ástandið í miðbæ Reykjavíkur um
helgar. Þetta væri í sjötta sinn sem
slíkar viðurkenningar væm veittar
en eftirminnilegast hefði verið fyrsta
árið þegar knattspyrnugoðið Pele
heimsótti ísland.
Myndin var tekin við afhendingu
viðurkenninganna í gær. Talið frá
vinstri, Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, Þórður Jónsson frá Visa, Rósa
Dögg Jónsdóttir, sem tók við bikarn-
um fyrir hönd Stjörnunnar, Svavar
Sigurðsson, formaður knattspyrnu-
deildar UMFG, Sigurlín Jónsdóttir,
Vanda Sigurgeirsdóttir, Bjarni Sig-
urðsson, Jón Gauti Dagbjartsson frá
Grindavík, sem tók við viðurkenning-
unni fyrir hönd föður síns Dagbjarts
Einarssonar, Haukur Magnússon
Köttari, Sigurður Jóhannsson, for-
maður knattspyrnudeildar Reynis frá
Sandgerði, Ágústa Sigrún Agústs-
dóttir frá Visa og Guðmundur Jens-
son, er tók við viðurkenningu fyrir
hönd Vestmannaeyinga og Hlyns
Stefánssonar.
TÓLF KONUR SÆMDAR HEIDURSMERKJUM ÍÞRÓTTASAMBANDSINS / D2