Morgunblaðið - 20.10.1996, Qupperneq 1
SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER1996 BLAÐ C
LESENDUR bandaríska tímaritsins
Condé Nast Traveler, setja Flugleiðir
í 20. sæti yfír vinsælustu flugfélögin.
„Við erum mjög stolt af þessu,“ segir
Margrét Hauksdóttir, hjá upplýsinga-
deild félagsins, „sérstaklega þegar
tekið er tillit til þess að hvað varðar
stærð og umfang erum við í 121.
sæti meðal flugfélaga heims.“
Könnun var gerð meðal lesenda
Condé Nast Traveler um hvaða flugfé-
lag þeir teldu standa sig best varð-
Gotthjá
Flugleiðum
andi áfangastaði og áætlun, stund-
vísi, þægindi og þjónustu, mat, með-
höndlun farangurs og vildarklúbba-
þjónustu. í fyrsta sæti varð Singapore
Airlines, í öðru sæti Swissair og í því
þriðja Virgin Atlantic. Aðeins þijú
bandarísk flugfélög komust á listann;
Alaska Airlines i 14. sæti, United
Airlines í 16. sæti og Delta í 19.
sæti. Tæplega 35 þúsund lesendur
tóku þátt í könnuninni og voru þeir
beðnir um að gefa einkunnirnar fram-
úrskarandi, mjög gott, gott, viðund-
andi og lélegt, á fyrrnefndum sviðum.
Leikhús, fótbolti og skoðunarferðir í borgarferðum í stað villtrar verslunar
Ferdahugur í fólki
EDINBORG og Barcelona, Dublin,
London, Kaupmannahöfn og Kúba,
New York, San Francisco, Halifax
og fleiri borgir. Úrvalið er mikið
og Símon Pálsson, forstöðumaður
markaðsdeildar Flugleiða, segir
mikinn ferðahug í Islendingum í
haust. „Fólk er ekki bara að fara
á þessa klassísku staði, heldur mik-
ið vestur um haf, og svo hefur nýr
áfangastaður, Barcelona, algjörlega
slegið í gegn.“
Frá miðjum september til 24.
október fara þúsund til tólf hundruð
farþegar til Barcelona, en í fljótu
bragði virðist aukning í haustferð-
um almennt vera um 20-25% frá
því fyrra. „Það er eins og ferðamyn-
strið sé að breytast. Fólk leggur
meira uppúr því að fara oftar út,
en þá í styttri ferðir. Vor- og haust-
ferðir njóta sívaxandi vinsælda og
svo er eins og fólk vilji njóta sum-
arsins heirna."
Kúba og San Francisco
Auður Björnsdóttir hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn segir helgar-
ferðir ferðaskrifstofunnar til
Dyflinnar vinsælastar. Þá hafa ein-
staka leiguflugferðir á ákveðna
áfangastaði fengið góðar viðtökur,
tvær ferðir til Kúbu í nóvember
með Boeing 747 vél Atlanta og ein
ferð til San Francisco í lok nóvem-
ber. Einnig verður flogið á vegum
Samvinnuferða til Bahamaeyja með
TriStar flugvél, þrisvar í byrjun
nóvember.
„Við seljum líka ferðir til áfanga-
staða Flugleiða og það er greinilegt
að sífellt fleiri velja að skella sér
vestur til Bandaríkjanna. Eftir því
sem fólk verður vanara að ferðast
eykst eftirspurn eftir slíkum ferð-
um. Þá fer fólk hins vegar frekar
í fimm til sex daga ferðir í stað
þriggja eins og algengt er í Evrópu-
ferðunum.“
Breyttar áherslur
Auður segir greinilega orðið vin-
sælla meðal íslendinga að fara í
stuttar borgarferðir á haustin til
þess að slappa af og njóta þess sém
viðkomandi borg hefur uppá áð
bjóða, skoðunarferðir, leikhús og
annað.
Hún segir að áherslurnar hafi
breyst og hagstæð innkaup ekki
lengur aðalatriðið. Fram til áramóta
segir Auður að hátt í tíu þúsund
manns fari í borgarferðir með
ferðaskrifstofunni.
Edinborg og Newcastle
Hjá Úrvali-Útsýn er leiguflug til
Edinborgar langvinsælast að sögn
Guðrúnar Sigurgeirsdóttur. í öðru
sæti er Newcastle, en þangað er nú
í fyrsta skipti leiguflug á vegum
ferðaskrifstofunnar. „Svo bjóðum
við uppá ferðir til London, Amster-
dam og Halifax í vetrarbæklingi
okkar. Þess utan seljum við ferðir
á aðra áfangastaði Flugleiða."
Að sögn Guðrúnar fara um 3.500
manns á vegum Úrvals-Útsýnar til
Edinborgar til áramóta og um 1.000
til Newcastle. Alls fari um sex þús-
und manns í borgarferðir á vegum
ferðaskrifstofunnar til áramóta.
Leikhús og fótbolti
Plúsferðir eru með leiguflug til
Newcastle og segir Laufey Jó-
hannsdóttir að það hafi verið mjög
vinsælt, í kringum fimmtán hundr-
uð farþegar hafi pantað ferð þang-
að. „Svo seljum við í áætlunarflug
til Glasgow, London og Frankfurt
og þangað hafa samanlegt pantað
um eitt þúsund manns.“
Heimsferðir eru með leiguflug til
London.tvisvar í viku og segir Guð-
björg Sandholt að nær uppselt sé í
BARCELONA hefur slegið í
gegn hjá Flugleiðum.
þær ferðir. „Við fljúgum þangað í
tvo mánuði, út nóvember, og far-
þegafjöldinn er nálægt 2.300.
Guðbjörg sagði greinilegt að
áherslur fólks hefðu breyst. „Það
biður um miða á leikhús, fótbolta-
leiki og spyr um skoðunarferðir."
Disney í París
► Á næstunni verður opnuð
skrifstofa í Kaupmannahöfn á
vegum Disneyland París. Opnun-
in kemur í kjölfar samnings um
að SAS verði sérstakt flugfélag
Disneyland París á Norðurlönd-
um og í Eystrasaltsríkjunum.
Markmiðið er að fjölga ferða-
fólki frá þessum löndum í Di-
sneylandi París, en SAS flýgur
þrettán sinnum á dag frá Osló,
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og
Gautaborg til Parísar.
► „Þetta er fínn samningur
tveggja fyrirtækja sem hafa
gengið í gegnum erfiða tíma, en
eru nú á uppleið," segir Bertrand
GaiIIochet, markaðsstjóri Di-
sneyland París. Forráðamenn
skemmtigarðsins gerðu mistök í
upphafi með því að nefna garð-
inn Euro Disney. „Nafnið gekk
ekki, það var of viðskiptalegt.
Garðurinn er orðinn mun meira
aðlaðandi í hugum fólks eftir að
við skiptum um nafn.“
Disneyland París hefur notið
vinsælda meðal Norðurlandabúa
og árlegur fjöldi ferðamanna
þaðan er um 250 þúsund. Tak-
markið er að gera heimsóknina
auðveldari og ódýrari fyrir
ferðalanga frá Norðurlöndum og
til þess ersamningurinn við SAS
ætlaður. Á döfinni er að bjóða
sérstakar pakkaferðir, en Di-
sneyland París hefur samið á
svipuðum nótum við British
Airways og Iberia. ■
Vinsælustu skemmtisiglingar heimsins, Imagination, Sensati
Fegursta eyjan - DOMINICANA - allt innifalið
Öruggasta vetrarfríið - Jarðnesk paradís fyrir
þig og vini þína - klúbbinn - félagið
Verð frá kr. 100 þús.
ÞÚ GERIR EKKIBETRIKAUP!
ALDREI HAGSTÆÐARA VERÐ!
BR0TTFARIR
VIKULEGA CJTS.*'"'
■*. ... ,•
IVETUR
ÍSLENSK
FARARSTJÓRN
Fáið nýja
spennandi
áætiun
6 valdir
staðir á
Dominicana m
9
CARNIVAL UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI
FERÐASKRIFSTOFAN
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17,4. hæð 101 Revklavík, slmi 56 20 400, fax 562 6564