Morgunblaðið - 25.10.1996, Blaðsíða 3
2 C FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 C 3
+
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
UMFA-KA 29:28
fþróttahúsiðað Varmá, fslandsmótið í hand-
knattleik, 1. deild karla, 6 umferð fimmtu-
daginn 24. október 1996.
Gangur leiksins: 0:1, 4:3, 7:6, 7:8, 8:10,
10:12, 12:13, 15:13, 16:16, 18:18, 21:19,
27:22, 27:25, 28:28, 29:28.
Mörk UMFA: Einar Gunnar Sigurðsson
7, Páll Þórólfsson 7, Bjarki Sigurðsson 5/1,
Sigurður Sveinsson 4, Gunnar Andrésson
2, Ingimundur Helgason 2/2, Siguijón
Bjamason 2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
17/1 (þaraf 5 til mótheija).
Utan vallar: 10 minútur.
Mörk KA: Julian Róbert Duranona 7/1,
Sergei Ziza 7/1, Sævar Árnason 6, Jakob
Jónsson 4, Leó Öm Þorleifsson 2.
Varin skot: Guðmundur Arnar Jónsson 16
(þaraf 6 til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Rögnvaldur Erlingsson og Stef-
án Amarson, gerðu sitt besta að vanda.
Áhorfendur: 500.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
a 5 0 1 164: 150 10
SELFOSS 6 3 1 2 161: 162 7
FRAM 6 3 1 2 136: 140 7
STJARNAN 5 3 0 2 134: 125 6
l'BV 5 3 0 2 120: 113 6
KA 5 3 0 2 137: 132 6
HAUKAR 6 2 2 2 146: 144 6
FH 6 3 0 3 145: 151 6
ÍR 6 2 0 4 141: 144 4
VALUR 6 1 2 3 132: 136 4
GRÓTTA 5 1 1 3 110: 111 3
HK 6 1 1 4 134: 152 3
UMFN - Keflavík 94:82
íþróttahúsið í Njarðvík, úrvalsdeildin i
körfuknattleik, 4. umf. fimmtud. 24. okt.
Gangur leiksins: 4:0, 12:6, 14:16, 18:18,
18:23, 27:32, 36:34, 36:38, 41:40, 45:48,
51:50, 57:53, 64:55, 71:61, 73:67, 79:69,
83:77, 88:77, 88:84, 93:84, 93:87, 94:87.
Stig UMFN: Torrey John 33, Jóhannes
Kristbjömsson 18, Kristinn Einarsson 16,
Friðrik Ragnarsson 9, Sverrir Þór Sverris-
son 8, Páll Kristinsson 6, Rúnar Árnason 4.
Fráköst: 10 í sókn - 31 í vörn.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson 23, Guð-
jón Skúlason 21, Albert Óskarsson 18,
Kristinn Friðriksson 14, Falur Harðarsson
8, Gunnar Einarsson 3.
Fráköst: 17 í sókn - 18 í vöm.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Leifur
Garðarsson voru mjög góðir.
Villur: UMFN 13 - Keflavík 20.
Áhorfendur: Rúmlega 420.
Brelðablik - UMFT 78:85
Smárínn í Kópavogi.
Gangur leiksins: 11:0, 22:7, 32:20, 43:25,
48:39, 59:50, 62:63, 74:74, 78:77, 78:85.
Stig Breiðabliks: Andre Bovain 35, Agnar
Olsen 13, Eriingur Snær Erlingsson 10,
Pálmi Sigurgeirsson 6, Rúnar Freyr Sæv-
arsson 4, Eggert Baldvinsson 4, Einar
Hannesson 3, Steinar Hafberg 3.
Fráköst: 12 í sókn - 27 i vöm.
Stig UMFT: Jeffrey Johnson 26, Ómar
Sigmarsson 24, Cesare Piccini 15, Láms
Dagur Pálsson 9, Yorick Parke 4, Sigurvin
Pálsson 4, Amar Kárason 3.
Fráköst: 17 í sókn - 30 f vörn.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og Jón
H. Eðvaldsson. Jón tók stundum völdin
þegar Einar var betur staðsettur.
Villur: Breiðablik 17 - UMFT 22.
Áhorfendur: Um 50.
KR-Haukar 101:79
íþróttahúsið Seltjamamesi:.
Gangur leiksins: 7:4, 17:9, 21:15, 26:17,
39:27, 42:31, 48:37, 56:41, 65:47, 69:49’,
74:57, 86:69, 90:71, 94:73, 98:74, 101:79.
Stig KR: Ingvar Ormarsson 23, Hermann
Hauksson 23, Jónatan Bow 20, David Edw-
ards 14, Amar Sigurðsson 10, Hinrik Gunn-
arsson 4, Óskar Kristjánsson 4, Björgvin
Reynisson 2, Atli Freyr Einarsson 1.
Fráköst: 7 I sókn - 22 í vöm.
Stig Hauka: Shawn Smith 35, Pétur Ing-
varsson 14, Sigfús Gizurarson 12, Jón Am-
ar Ingvarsson 11, Bergur Eðvarðsson 4,
Björgvin Jónsson 2, Sigurður Jónsson 1.
Fráköst: 9 í sókn - 26 í vörn.
Dómarar: Kristján Möller og Sigmundur
M. Herbertsson.
yillur: KR 18 - Haukar 19.
Áhorfendur: 200.
UMFG-UMFS 117:97
Íþróttahúsið í Gríndavík:
Gangur leiksins: 0:8, 6:8, 6:14, 17:14,
17:22, 25:24, 38:32, 44:34, 47:43, 53:43,
66:45, 74:48, 86:68, 107:93, 117:97.
Stig UMFG: Herman Myers 34, Helgi Jón-
as Guðfinnsson 23, Marel Guðlaugsson 19,
Unndór Sigurðsson 15, Páll Axel Vilbergs-
son 12, Pétur Guðmundsson 10, Jón Kr.
Gíslason 2, Bergur Hinriksson 2.
Fráköst: 11 í sókn - 24 í vörn.
Stig UMFS: Wayne Mulgrave 24, Tómas
Holton 24, Curtis Reymond 12, Sigmar
Egilsson 11, Grétar Guðlaugsson 8, Bragi
Magnússon 7, Ari Gunnarsson 4, Þórður
Helgason 4, Guðjón Þórisson 3,
Fráköst: 11 í sókn - 22 í vöm.
Dómarar: Georg Andersen og Jón Bender.
yillur: UMFG 19 - UMFS 28.
Áhorfendur: Um 250.
ÍR - KFÍ 94:63
íþróttahús Seljaskóla:
Gangur leiksins: 0:2, 7:9, 18:17, 26:21,
36:27, 40:29, 42:31, 42:31, 49:36, 62:41,
66:47, 81:55, 86:58, 92:60, 94:63
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Kristinn
PÁLL Þórólfsson áttl stórlelk I síðari hálflelk gegn KA í gærkvöldl og skoraði sex mörk. Hér raeðst
hann ekki á garðlnn þar sem hann er lægstur og gerir tllraun til að fara framhjá Julian Duranona.
Óþarfa spenna hjá
UMFA að Varmá
ÞAÐ mátti minnstu muna að
UMFA missti sigurleik niður íjafn-
tefli er þeir tóku á móti KA að
Varmá ígærkvöldi. Þegartæpar
tíu mínútur lifðu leiks og heima-
menn höfðu fimm marka forystu,
27:22, breyttu KA-menn um varn-
araðferð sem riðlaði sóknarleik
UMFA og þeim tókst að jafna,
28:28, er mínúta var eftir. Þrátt
fyrir gullin færi á báða bóga í lok-
in var það Einar Gunnar Sigurðs-
son sem tryggði stigin tvö í húsi,
29:28. Sigur heimamanna var
sanngjarn en þeir gerðu sér hann
of erfiðan.
Sigurinn var dýrraætur og styrkir
stöðu okkar. Síðustu tveir leikir
hafa verið fjögurra stiga leikir fyrir
okkur - gegn Haukum
I og KA núna. Varnar-
Benediktsson Ifkurinn var kannski
skrifar ekki i hávegum hafður
hjá báðum liðum en
þeim mun meira var skorað og áhorf-
endur fengu eitthvað fyrir sinn snúð,“
sagði sigurreifur Páll Þórólfsson, leik-
maður UMFA, að leiklokum. Hann lék
vel, einkum í síðari hálfleik og lék þá
bæði í horninu og eins um tíma í stöðu
leikstjórnanda og fórst hvort tveggja
vel úr hendi.
Það voru stálin stinn sem mættust í
Mosfellsbænum og ljóst að KA-menn
ætluðu ekki að gefa þumlung eftir frem-
ur en þeirra er von og vísa. Fyrri hálf-
leikur var í járnum framan af en er leið
á síðari hálfleik sigu norðanmenn fram-
úr og höfðu eins og tveggja marka for-
ystu fram að hálfleik, en þá stóð 13:12.
Leikmenn UMFA fóru illa með nokkur
góð færi í fyrri hálfieik og máttu þakka
fyrir að ekki munaði meira á fylkingum
í ieikhléi.
Grenjandi sem ljón komu leikmenn
UMFA til leiks í síðari hálfleik og íjögur
mörk úr jafnmörgum tilraunum á sama
tíma og KA gerði aðeins eitt mark skóp
forystu sem þeir bættu síðan smátt og
smátt við. Vamarleikur beggja liða var
slakur, einkum þó hjá KA og var Guð-
mundur eina fyrirstaða Mosfellinga um
tíma. Til marks um slakan vamarleik
má geta þess að UMFA skoraði fmimtán
mörk úr sautján upphlaupum á fyrstu
20 mínútum leikhlutans. UMFA náði
fímm marka forystu, 27:22, og allt virt-
ist á góðu róli. En KA menn voru ekki
af baki dottnir og jöfnuðu, 28:28. Mosfell-
ingar komust yfír, 29:28, er 38 sek. voru
eftir og KA-menn geystust í sókn en slök
línusending rataði ekki rétta leið og Sig-
urður Sveinsson komst einn í hraðaupp.
hlaup í kjölfarið en Guðmundur Amar
varði skot hans er 12 sekúndur voru eft-
ir. Þær nægðu KA ekki þrátt fyrir ítrek-
aða tilraun til árangurs.
Bergsveinn Bergsveinsson varði vel
í marki UMFA, Páll var góður og eins
Einar Gunnar þó tilraunir hans hafi
verið æði margar. Þá er jákvætt fyrir
UMFA að Gunnar Andrésson er kominn
á ról á ný þó ekki sé hann kominn í
sína bestu æfingu. KA-liðið líður fyrjr
að enginn örvhentur maður er innan
þess nú um stundir. Guðmundur varði
vel með köflum, Duranona og Ziza báru
uppi sóknarleikinn. Jakob Jónasson
náði sér á strik í fyrri hálfleik en minna
bar á honum er á leið.
Stig ÍR: Tito Baker 40, Atli Þorbjömsson
15, Eiríkur Önundarson 12, Eggert Garð-
arsson 10, Gísli Hallsson 6, Guðni Einars-
son 4, Hjörleifur Sigurþórsson 3, Ásgeir
Hiöðversson 2, Márus Arnarson 2.
Fráköst: 16 í sókn - 18 í vöm.
Stig KFÍ: Friðrik Stefánsson 18, Andrew
Vallejo 15, Baldur Jónas. 9, Euan Roberts
8, Guðni Guðnas. 6, Magnús Gíslason 3,
Þórður Jensson 2, Hrafn Kristjánsson 2
Fráköst: 20 í sókn - 21 í vörn.
Dómarar: Helgi Bragason og Þorgeir
Jón Júlíusson.
Áhorfendur: 140.
Fj. leikja U T Stig Stig
4 ’ 3 1 365: 292 6
ÍR 4 3 1 361: 311 6
UMFN 4 3 1 363: 321 6
KEFLAVÍK 4 3 1 382: 344 6
HAUKAR 4 3 1 324: 325 6
UMFG 4 2 2 383: 372 4
TINDASTÓLL 4 2 2 323: 312 4
KFÍ 4 2 2 303: 330 4
SKALLAGR. 4 2 2 343: 379 4
ÞÓR 3 0 3 232: 261 0
ÍA 3 0 3 196: 254 0
BREIÐABLIK 4 0 4 289: 363 0
1.DEILD KARLA
VALUR - ÍS........93:70
Fj. leikja u T Stig Stig
VALUR 3 3 0 299: 220 6
HÖTTUR 3 3 0 258: 222 6
LEIKNIR 1 1 0 91: 76 2
SNÆFELL 2 1 1 157: 147 2
ÞÓRÞORL. 2 1 1 172: 167 2
SELFOSS 2 1 1 135: 144 2
STAFHOLTST. 3 1 2 222: 268 2
STJARNAN 1 0 1 76: 91 0
ls 3 0 3 208: 241 O
REYNIRS. 2 0 2 161: 203 0
Knattspyr na
Holland
Ajax - RKC Waalwijk. .2:0
Staða efstu liða:
PSV Eindhoven.. 12 8 3 1 34:10 27
Feyenoord 12 8 2 2 23:16 26
Graafschap 11 6 3 2 22:13 21
Twente Enschede 11 6 3 2 15:9 21
Ajax Amsterdam 12 5 5 2 13:8 20
Vitesse Amhem.. 12 5 4 3 17:11 19
Frakkland
Bordeaux - Montpellier.... .3:1
Staða efstu liða:
Paris SG 13 8 5 0 19:4 29
13 6 5 2 22:11 23
13 5 7 1 13:6 22
13 5 6 2 18:13 21
Bordeaux 14 5 6 3 15:10 21
Lille 13 5 5 3 16:18 20
Metz 13 5 6 2 12:9 19
13 6 1 6 15:19 19
Lyon 13 4 6 3 15:14 18
13 5 3 5 18:18 18
Lens 13 5 3 5 14:17 18
13 5 4 4 13:12 17
Guingamp 13 4 5 4 13:13 17
Cannes 13 4 5 4 10:13 17
Ítalía
3. umferð bikarkeppninnar:
Cagliari - Inter.....................2:2
■ Liðin mætast aftur 6. nóvember en átta
liða úrslit verða 13. og 27. nóvember.
Íshokkí
NHL-deildin
Detroit - Dallas...............4:1
Florida - Ottawa...............5:2
NY Rangers - Washington........2:3
Vancouver - Coiorado...........1:4
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Garðabær: Stjarnan - ÍBV.20
KNATTSPYRNA
Alan Shearer lengi úr leik
Flest bendir til þess að Alan Shear-
er dýrasti knattspymumaður
heims, fyrirliði enska landsliðsins og
leikmaður Newcastle leiki ekki knatt-
spyrnu næstu átta vikurnar. Hann
þarf að gangast undir uppskurð vegna
meiðsla í nára. Hann hefur fundið fyr-
ir særindum í nára undanfarnar vikur
og hefur verkurinn verið að ágerast
og nú er ljóst að við svo búið má ekki
lengur standa. Verkirnir eru einnig
komnir í nárann hægra megin og or-
sökuðu m.a. að hann gat ekki verið
með allan leikinn gegn Oldham í deild-
arbikarnum í fyrrakvöld.
„Ég fann fyrst fyrir verkjum vinstra
megin seint í vor og var þá skorinn
upp og var úr leik í fjórar vikur. Síðan
tóku þeir sig upp að nýju fyrir þremur
til íjórum vikum og þá fór ég til sér-
fræðings sem sagði að meiðslin væru
báðum megin,“ sagði Shearer í gær.
„Verkirnir hafa verið að ágerast og
að loknum leiknum gegn Manchester
United um síðustu helgi leið mér mjög
ilia. Það verður líklega ekki hjá því
komist að fara í uppskurð til að fá bót
meinanna en það þýðir að ég missi af
fjórum til fimm leikjum í deildinni og
einnig landsleiknum gegn Georgíu.“
Það verður skarð fyrir skildi hjá
Newcastle að missa Shearer úr hópn-
um um tíma en hann hefur leikið mjög
vel það sem af er leiktíðinni og skorað
átta mörk og náð vel saman við Les
Ferdinand í fremstu víglínu. í næstu
viku á Newcastle fyrir höndum erfíðan
leik á heimavelli við Ferencvaros í
UEFA-keppninni, en Ungveijamir
sigruðu í fyrri leiknum 3:2.
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Njarðvík sigraði
í kapphlaupinu
Stefán
Stefánsson
skrifar
Fyrri hálfleik, þegar Njarðvík
fékk Keflavík í heimsókn í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
gærkvöldi, mætti
helst líkja við blöndu
af kapphlaupi og
þriggja stiga skot-
keppni. Heimamenn
náðu þá að halda í við granna sína,
héldu hraðanum niðri eftir hlé og
unnu verðskuldað 94:87.
„Þetta fór samkvæmt áætlun,
hraðinn í fyrri hálfleik var gríðar-
legur en ég var mjög undrandi að
við skyldum halda í við þá því ég
ætlaði að halda hraðanum niðri,“
sagði Hrannar Hólm, þjálfari Njarð-
víkinga, eftir leikinn. „Okkur fannst
því í hálfleik gott að vera inni í
leiknum miðað við hraðann en nú
ættum við að reyna að leika okkar
leik á okkar hraða. Það tókst, við
hægðum á leiknum og þeim með
löngum sóknum og náðum þannig
tökum á honum með því að leggja
okkur gríðarlega fram auk þess sem
Torrey John var stórkostlegur. Við
höfðum fulla trú á sigri en vissum
að við gætum líka auðveldlega tap-
að því til dæmis Guðjón Skúlason
er ótrúlega hittinn, það má ekki
gefa honum neitt svigrúm. En þetta
eru tvö góð lið og við getum sýnt
að við erum allavega ekki lélegri
en dugir í þetta fimmta sæti sem
okkur var spáð og erum jafnvel
betri, en það verður tíminn að leiða
í ljós,“ bætti Hrannar við. Torrey
átti góða takta eins og Friðrik
Ragnarsson, Jóhannes Kristbjörns-
son og Sverrir Þór Sverrisson.
Kefivíkingar mættu ofjörlum sín-
um, reyndu hvað þeir gátu en tókst
ekki að stinga af og á mikilvægum
augnablikum misstu þeir einbeit-
ingu og gerðu mistök. Damon John-
son og Albert Óskarsson voru þeirra
bestu menn en Guðjón Skúlason og
Kristinn Friðriksson voru dijúgir.
Frækinn sigur Sauðkrækinga
Tindastólar sigruðu Blika í botn-
slag úrvalsdeildar í Smáranum
í gærkvöldi, 85:78, eftir framlengd-
an leik. Bæði liðin
höfðu ekki enn feng-
ið stig í deildinni og
Tindastólar slógu
Blika út úr Lengju-
bikarnum um síðustu helgi.
Blikar voru einráðir í fyrri hálf-
leik. Andre Bovain, Bandaríkjamað-
urinn í liði Breiðabliks, fór á kostum
framan af og skoraði þá alls 19
stig. Sauðkrækingar minnkuðu
muninn í sjö stig þegar sex mínútur
voru eftir af fyrri hálfleik, en þeir
skoruðu ekki aftur fyrr en í þeim
síðari og Blikar leiddu með 18 stig-
um í leikhléi.
Edwin
Rögnvaldsson
skrifar
Ekki var það sama upp á teningn-
um í síðari hálfleik eins og þeim
fyrri. Tindastólarnir hófu að höggva
hvert stigið af öðru af forystu
heimamanna og Ómar Sigmarsson
tók að hitta grimmt úr 3ja stiga
skotum, en hann skoraði sex slíkar
í gærkvöldi.
Gestirnir tóku forystu í fyrsta
sinn í leiknum, 62:61, þegar fimm
mínutur voru eftir. Blikar gáfust
ekki upp og endurheimtu forystuna,
sem var þó aldrei meiri en fímm
stig. Sauðkrækingar jöfnuðu og
komust yfír þegar skammt var til
leiksloka með hjálp Cesare Piccini,
en Andre Bovain var ekki af baki
dottinn og jafnaði leikinn með
tveimur vítaskotum.
Tindastólar stungu af í framleng-
ingunni með körfum frá Piccini og
Johnson og tryggðu sér því sætan
sigur á Blikum, sem gátu ekki leynt
vonbrigðum sínum. Andre Bovain
var besti maður vallarins og átti
stórleik — skoraði 35 stig og hirti
18 fráköst.
Þungu fargi var létt af Augoston
Nagy, hinum ungverska þjálfara
Tindastóls. „Við þekkjum þeirra lið
vel og þeir þekkja okkur líka mjög
vel. Blikarnir leika mjög hægan
körfuknattleik og þeir gátu haldið
boltanum mjög lengi í fyrri hálfleik,
en í síðari hálfleik jukum við hrað-
ann og tókum völdin,“ sagði Nagy
í leikslok.
Stórsigur KR
KR-ingar unnu sannfærandi sig-
ur, 101:79, á slökum Haukum
í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi í
gærkvöldi. Strax frá
fyrstu mínútu voru
Bachmann KR-mgar aberandi
skrifar betri aðilinn í leikn-
um. Þeir voru
ákveðnari, spiluðu beinskeyttari
varnarleik og hittu ágætlega meðan
Haukar léku illa bæði í vörn og
sókn. Sérstaklega var hittni þeirra
ábótavant en allan leikinn var hún
ekki svipur hjá sjón.
Fljótlega í fyrri hálfleik náðu
KR-ingar þægilegu forskoti sem
Haukar ógnuðu aldrei. Munurinn
var mestur þrettán stig en Haukar
minnkuðu muninn í ellefu stig í
hálfleik, 48:37. KR-ingar mættu
enn ákveðnari til síðari hálfleiks,
hófu hann með látum og settu
hveija þriggja stiga körfuna ofan í
á fætur annarri meðan Haukarnir
áttu ekkert svar. Ingvar Ormars-
son, sem skoraði 4 stig í fyrri hálf-
leik, fór hamförum í þeim síðari,
skoraði 19 stig, þar af þrjár þriggja
stiga körfur.
Nýi erlendi leikmaður KR-inga
stóð sig frábærlega. Þó ekki skori
hann gífurlega er hann mjög óeigin-
gjarn og skemmtilegur leikmaður
sem leikur mjög vel fyrir liðið. Hann
átti meðal annars 17 stoðsendingar
og lék auk þess frábærlega í vörn.
Auk þeirra sem áður er getið áttu
Jónatan Bow og Hermann Hauks-
son prýðilegan leik. í liði Hauka
stóð ekki steinn yfir steini. Shawn
Smith hélt þeim hreinlega á floti
en enginn annar í ágætu liði þeirra
náði að sýna sitt rétta andlit. Sigur
KR-inga var sanngjarn og sannfær-
andi og það skyldi þó ekki vera að
þeir hafi nú loks veðjað á réttan
hest í vali á erlendum leikmanni.
Undanfarin ár hafa þeir verið
óheppnir í þeim málum að Jónatan
Bow undanskildum.
Fyrsti heimasigur UMFG
Grindvíkingar unnu sinn fyrsta
sigur á heimavelli þegar þeir
lögðu Borgnesinga 117:97 í gær-
kvöldi. Marel Guð-
Frímann laugsson, sem skor-
Ólafsson aði ekki stig í fýrri
skrifar frá hálfleik, byrjaði
Grindavík þann seinni með
tveimur þriggja stiga körfum og
gaf Grindvíkingum tóninn. Fljót-
lega var staðan orðin 68:47 Grind-
víkingum í vil og þann mun náðu
Borgnesingar ekki að brúa. Grind-
víkingar voru í ham eftir hlé og
léku oft og tíðum frábærlega. Helgi
Jónas Guðfinnsson fór á kostum og
þessi drengur er alltaf að sýna að
hann er í fremstu röð körfuknatt-
leiksmanna hér á landi. Koma Her-
mans Myers virkar vel á liðið og
hann fellur vel inn í það. Marel,
Unndór, Páll og Jón Kr. stóðu einn-
ig vel fyrir sínu.
„Ég er mjög ánægður með leik-
inn. Við erum að prófa nýjan leik-
mann og það tekur tíma að venjast
honum,“ sagði Friðrik Ingi Rúnars-
son, þjálfari Grindvíkinga, eftir leik-
inn. „Upphaf seinni hálfleiks var
frábært hjá okkur og strákarnir
eiga hrós skilið fyrir allan hálfleik-
inn. Þessi tvö lið hafa orðið fyrir
miklum breytingum frá því í fyrra
og var leikurinn gloppóttur hjá báð-
um liðum í fyrri hálfleik en ég er
sannfærður um að við erum á réttri
leið,“ sagði Friðrik.
Borgnesingar sýndu góða leik-
kafla í fyrri hálfleik, bæði í vörn
og sókn, en náðu ekki að halda
haus allan leikinn og misstu móðinn
þegar á reyndi. Tómas Holton lék
þeirra best ásamt Wayne Mulgrave.
„Um leið og það kom einhver
æsingur í leikinn þá gleyma allir
því sem þjálfarinn vill að við gerum
og við gerðum ekkert af því sem
við ætluðum að gera. Við verðum
að leggja okkur betur fram. Við
Morgunblaðið/Þorkell
Troðið með tilþrifum
FRIÐRIK Stefánsson, KFÍ, var sterkur undir körfunni í gær-
kvöldi, en hér treöur hann knettinum meö tllþrlfum. Tlto
Baker, ÍR, t.v. og Euan Roberts, KFÍ, fylgjast meö aðförunum.
hleyptum þeim upp í þeirra leik og
eftirleikurinn var auðveldur hjá
þeim. Ef við gerum það sem við
eigum að gera erum við góðir, ann-
ars ekki,“ sagði Tómas Holton.
IMýliðar KFÍ steinlágu
IR vann nýliðana úr KFÍ örugg-
lega í Seljaskóla í gærkvöldi, en
31 stig skildi liðin að þegar upp var
staðið, 94:63 fyrir
Guðmundur H. heimaliðið. Þar fór
Þorsteinsson Tito Baker á kostum
skrifar og skoraði 40 stig.
ÍR-ingar áttu ekki í
neinum vandræðum með nýliðana
í KFÍ í íþróttahúsi Seljaskólans í
gærkvöldi. Þeir náðu öruggri for-
ystu um miðjan fyrri hálfleik og
liðið hélt áfram að bæta viðþað sem
eftir lifði leiksins. Þegar IR-ingar
hófu að beita pressuvörninni komu
veikleikarnir í ljós hjá leikmönnum
KFÍ, sem misstu boltann hvað eftir
annað til andstæðinganna. ÍR-ingar
leiddu með 11 stigum í leikhléi,
42:31.
Tito Baker tók leikinn í sínar
hendur í seinni hálfleik og fór þá á
kostum í liði ÍR-inga, skoraði þá
25 af 40 stigum sínum. Leikmenn
KFÍ brutu grimmt á honum allan
leikinn en uppskeran var lítil þar
sem hann hitti úr 20 vítaskotum
af 24. Lið ÍR var mun betri aðilinn
en varla er hægt að tala um að
brotthvarf Herberts Amarsonar
hafi komið niður á leik liðsins, til
þess var munurinn á liðunum of
mikill. Liðsheildin var sterk hjá ÍR
og leikmenn liðsins skiluðu sínu
verki vel þar sem baráttan og sam:
starfið var í góðu lagi. Lið KFÍ
komst hins vegar aldrei í gang,
mikið var um rangar sendingar og
lélega hittni í upplögðum færam.
Nokkuð sem nýliðar í deildinni geta
ekki leyft sér. Bandaríkjamaðurinn
í liði KFÍ, Euan Roberts, var gott
dæmi um þetta en hann skoraði
einungis 8 stig úr 22 skotum.
ef þú spilar til ab vinnal
msammsim
ViVAVí
mm
~r